Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 33
Morgunblaðið |33 Gúmmívinnslan á Akureyritók nýverið yfir allanrekstur ALORKU íReykjavík. Gúmmívinnsl- an er rótgróið fyrirtæki og hefur starfað frá árinu 1982. Í fréttatilkynningu frá nýsamein- uðu félagi segir að Alorka sé ört vaxandi fyrirtæki í sölu á hjólbörð- um og flutningatækjum. Í kjölfar sameiningarinnar var ákveðið að öll hjólbarðasala og hjólbarðaþjónusta félagsins færi fram undir nafni og vörumerki Alorku frá og með 14. mars 2008. Í fréttatilkynningunni segir að með þessum breytingum verði til eitt öflugasta félag landsins á sínu sviði. Alorka er með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík og býður breiða vörulínu af hjólbörðum fyrir flestar gerðir farartækja, allt frá fólksbílum og mótorhjólum upp í stærstu gerðir vinnuvéla. Alorka býður einnig breiða línu af flutn- ingavögnum og flutningakössum fyrir stærri flutningabíla. „Við erum sannfærðir um að þessar breytingar geri okkur kleift að veita enn betri þjónustu og meira vöruúrval á samkeppnishæfu verði,“ segir Ómar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Alorku. „Í samrun- anum sáum við einstakt tækifæri til að koma fram undir einu sterku vörumerki á hjólbarðamarkaðnum. Fyrirtækið þjónustar viðskiptavini um allt land og við sjáum einnig fram á að bæði vörur og þjónusta mui ná yfir margt annað en hjól- barða, þó sá þáttur verði áfram kjöl- festan í starfseminni. ALORKA er með hjólbarðaverk- stæði að Réttarhvammi á Akureyri og í Tangarhöfða, Reykjavík, og hafa þau á að skipa traustum fag- mönnum með mikla reynslu. Rekstur Gúmmívinnslunnar hf. verður hér eftir fyrst og fremst á sviði framleiðslu á sóluðum hjól- börðum og ýmsum vörum úr endur- unnu gúmmíi. Gúmmívinnslan er eina fyrirtækið hérlendis sem hefur með höndum sólningu á hjólbörðum og endurvinnslu á vörum úr af- gangsefni sem fellur til við þá fram- leiðslu. Kristján Jónsson, fram- kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar segir að Gúmmívinnslan muni nú einbeita sér að framleiðslu á hágæða sóluðum hjólbörðum fyrir vörubíla og öðrum vörum úr úrgangsgúmmíi. „Fyrirtækið mun halda áfram að fylgja umhverfisstefnu sinni sem hefur verið í gildi síðan 1992 en sam- kvæmt henni miðar reksturinn að því að nýta til fullnustu þau efni sem falla til við aðra starfsemi félagsins. Tengslin milli Gúmmívinnslunnar og ALORKU setja fyrirtækin í sér- flokk varðandi möguleikana á að lágmarka þá umhverfismengun sem hlýst af notkun hjólbarða. Gúmmívinnslan og Alorka sameinast BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR Hurðir til á lager Smíðað eftir máli Eldvarnar- hurðir Öryggis hurðirSími 553 4236 Ef varan er ekki til á lager er örstuttur afgreiðslufrestur. Einnig bremsuhlutir í flestar gerðir fólksbíla og jeppa. Eigum til sérsmíðaða vatnskassa fyrir breyttan Nissan Patrol. Sendum út bílatölvur til viðgerðar. Vatnskassar og millikælar í allar gerðir vinnuvéla og bifreiða Varahlutalagerinn ehf s. 699 3737 Bílaþjónninn ehf s. 567 0660 Smiðjuvegi 4a • www.bilathjonninn.com M b l 9 85 05 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.