Morgunblaðið - 05.05.2008, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LÖGREGLAN á Selfossi hefur tekið til rannsókn-
ar kærur á hendur sr. Gunnari Björnssyni, sókn-
arpresti á Selfossi, vegna meintra kynferðisbrota
gegn tveimur stúlkum undir 18 ára aldri. Eru þær
sóknarbörn hans. Ekki hafa verið teknar skýrslur
af stúlkunum en vonast er til að það geti farið fram
í þessari viku. Lögreglan hefur tekið frumskýrslu
af kærða en tjáir sig ekki hvernig eða hvort hann
hafi tjáð sig um málið.
Að sögn lögreglunnar er kærandi Fjölskyldu-
miðstöð Árborgar fyrir hönd stúlknanna. Hin
meintu brot gætu spannað tiltekið tímabil að sögn
lögreglu.
Sóknarprestinum veitt leyfi frá
störfum meðan rannsókn fer fram
Þjóðkirkjan lítur málið alvarlegum augum og
samkvæmt tilkynningu þaðan var umkvörtun
vegna sóknarprestsins sem barst kirkjunni, strax
vísað í þann farveg sem þjóðkirkjan hefur fyrir
slík mál. Þar er um að ræða Fagráð um meðferð
kynferðisbrota innan kirkjunnar.
Fagráðið brást strax við og var málinu vísað til
barnaverndarnefndar.
Sóknarpresturinn hefur sótt um leyfi meðan
rannsókn fer fram og honum hefur verið veitt leyf-
ið.
Fagráð um meðferð kynferðisbrota hefur starf-
að frá árinu 1998 og skýrar reglur eru um það
hvernig farið skuli með slík mál. Í ráðinu sitja
Gunnar Rúnar Matthíasson sjúkrahúsprestur,
formaður, Hulda Elsa Björgvinsdóttir lögfræð-
ingur og Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og af-
brotafræðingur. Meðal hlutverka ráðsins er að til-
nefna talsmenn þeirra sem telja sig þolendur
kynferðisbrota innan kirkjunnar.
Kærður til lögreglu fyrir
kynferðisbrot gegn stúlkum
Þjóðkirkjan lítur mál á hendur sóknarprestinum á Selfossi alvarlegum augum
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Selfosskirkja Hin meintu kynferðisbrot gætu
spannað tiltekið tímabil að sögn lögreglu.
KARLMAÐUR á sjötugsaldri beið
bana í bílslysi á Suðurlandsvegi í
Kömbunum síðdegis í gær. Maður-
inn, sem er íslenskur, var einn í pall-
bíl sínum á austurleið og var kominn
í næstneðstu beygjuna þegar bíll
hans fór út fyrir veginn og stað-
næmdist 170 metra frá honum. Áður
en bíllinn stöðvaðist féll hann fram af
þverhníptum kletti sem tilheyrir
hamrabelti sem nefnt er Hamarinn
við Hveragerði. Segir lögreglan á
Selfossi að samanlögð fallhæð frá
vegöxl hafi verið 50 metrar. Svo virð-
ist sem maðurinn hafi ekki verið í bíl-
belti og kastaðist hann út úr bílnum.
Þegar að var komið voru lífgunartil-
raunir reyndar en báru ekki árangur
og var maðurinn úrskurðaður látinn
á staðnum. Bifreiðin er gjörónýt að
sögn lögreglunnar.
Við vettvangsrannsókn fékk lög-
reglan til liðs við sig verkfræðing
sem sérhæfir sig í að reikna út hraða
ökutækja, auk fulltrúa Bílgreina-
sambandsins og Rannsóknarnefndar
umferðarslysa.
Lögreglan á Selfossi hefur tekið
tildrögin til nánari rannsóknar og
lýsir eftir vitnum að slysinu.
Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
Banaslys neðarlega í Kömbum
Morgunblaðið/Júlíus
Gjörónýt Pallbíllinn staðnæmdist 170 metra utan vegar og var fallhæðin 50 metrar frá vegöxl.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SIGRÍÐUR Snæbjörnsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og forstjóri Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja var
kjörin formaður Krabbameinsfélags
Íslands á aðalfundi félagsins síðast-
liðinn laugardag. Sigríður er fyrsta
konan sem gegnir formennsku í
Krabbameinsfélaginu í 57 ára sögu
þess.
„Þetta leggst mjög vel í mig. Mér
finnst þetta mjög spennandi verkefni
og þykir það mikill heiður að vera
treyst fyrir þessu,“ sagði Sigríður í
samtali við Morgunblaðið. Hún
kvaðst alltaf hafa litið mjög mikið
upp til Krabbameinsfélags Íslands
og hafa fylgst með starfsemi þess úr
fjarlægð og nálægð. Nú sagðist hún
hlakka til að kynna sér starfsemina
betur, kynnast starfsfólki félagsins
og fá betri sýn yfir hvernig starfi fé-
lagsins er háttað. Sigríður sagði að
almenningur þekkti ef til vill best
starfsemi Leitarstöðvarinnar en fé-
lagið hefði margt fleira á sinni könnu.
„Vísindastörfin eru mjög merki-
leg, kannski sérstaklega vegna þess
að hér á Íslandi er mögulegt að hafa
yfirsýn yfir alla þjóðina. Krabba-
meinsskrá félagsins er sennilega sú
besta í heimi, að því er mér skilst.
Einnig er þarna unnið fræðslustarf
og ráðgjafarstarf. Það er mikil upp-
bygging og mikil uppsveifla.“
Mikil endurnýjun tækjabúnaðar
félagsins stendur fyrir dyrum. Búið
er að safna fyrir nýjum stafrænum
röntgentækjum, stjórnstöð og öðrum
búnaði fyrir um 600 milljónir króna.
Röntgentækin verða staðsett í leit-
arstöðinni í Skógarhlíð, á Akureyri
og eitt verður í bíl sem fara mun um
landið. Nú er verið að breyta hús-
næðinu í Skógarhlíð til þess að taka
við nýju tækjunum. Sigríður sagði
reiknað með að þau yrðu tekin í notk-
un síðsumars. Nýi röntgen-
búnaðurinn á m.a. að verða mun
fundvísari á krabbamein í brjóstum
hjá ungum konum en eldri búnaður.
Munu breytingar fylgja í kjölfar
þess að kona sest í formannsstólinn?
„Ég tel að forverar mínir hafi sinnt
þarna mjög góðu starfi. En almennt
talað kemur nýtt fólk með nýtt sjón-
arhorn,“ sagði Sigríður. Hún sagði að
sig langaði til að halda áfram að efla
leitarstarf félagsins og eins verði
mjög mikilvægt að fá skimun fyrir
ristilkrabbameini sem er fyrirhuguð
á næsta ári.
„Mig langar að hlusta á hvað
starfsfólkið segir. Þetta er fagfólk
sem þekkir vel til verka og ég ætla að
læra af því og nýta mér þær upplýs-
ingar og vonandi nýta þær áfram til
góðs fyrir félagið,“ sagði Sigríður.
Fráfarandi formaður er Sigurður
Björnsson yfirlæknir. Hann hafði
verið formaður Krabbameinsfélags
Íslands í tíu ár og setið í stjórn þess
samtals í 28 ár, eða lengur en flestir
aðrir. Sigurður var sæmdur gull-
merki og kjörinn í Heiðursráð
Krabbameinsfélagsins á aðalfund-
inum, en það er æðsta viðurkenning
sem félagið veitir.
Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur og forstjóri Heilsugæslu Suðurnesja var kjörin for-
maður Krabbameinsfélags Íslands og er fyrsta konan til að gegna því embætti í 57 ára sögu félagsins
„Mjög spennandi verkefni“
Morgunblaðið/Ómar
Formannsskipti Sigríður Snæbjörnsdóttir tók við af Sigurði Björnssyni.
ELDUR kom upp á efri hæð í
íbúðarhúsi í Njarðvík rétt fyrir há-
degi í gær. Íbúar náðu að slökkva
eldinn áður en lögregla og slökkvi-
lið komu á vettvang en talsverður
reykur var í húsinu. Einn brennd-
ist nokkuð á höndum og var fluttur
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
til skoðunar.
Talið er að kviknað hafi í út frá
rafmagni og eldur borist í sjón-
varp í íbúðinni. Hlaut einn íbúa
brunasár á höndum við að reyna
að koma sjónvarpinu út.
Var hann fluttur með sjúkra-
bifreið á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja til skoðunar en hann gæti
einnig hafa fengið snert af reyk-
eitrun. Slökkviliðsmenn frá Bruna-
vörnum Suðurnesja reykræstu
húsið.
Tildrög eldsins eru í nánari
rannsókn lögreglunnar á Suður-
nesju.
Eldur í húsi
í Njarðvík
♦♦♦
TVÖ hjólhýsi brunnu á geymslu-
svæði hjólhýsaleigu við Nausta-
bryggju í Reykjavík snemma í gær
morgun, um klukkan sex. Slökkvilið-
ið á höfuðborgarsvæðinu mætti á
svæðið með viðbúnað og tók tæpan
klukkutíma að ráða niðurlögum elds-
ins. Um leið tókst slökkviliðinu að
koma í veg fyrir að eldurinn bærist í
fleiri hjólhýsi, en það þriðja sviðnaði
þó lítillega.
Ekki hætta af gaskútunum
Töluverðar sprengingar urðu í
gaskútum í hjólhýsunum sem
brunnu, en kútarnir voru úr trefja-
efni og stafaði slökkviliðsmönnum
því ekki hætta af kútunum sjálfum,
að sögn varðstjóra hjá SHS. Minnast
má atviks við Rósarima árið 2005
þegar við banaslysi lá þegar gaskút-
ur við útigrill sprakk nánast framan í
tvo slökkviliðsmenn sem voru að ráð-
ast að eldi í húsinu. Var slökkvistarf-
inu þá líkt við hættulegasta starf
sem um getur á friðartímum.
Hjólhýsabruninn er í rannsókn
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu.
Tvö
hjólhýsi
brunnu