Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 11
FRÉTTIR
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, tók á móti forsetabifreið
Sveins Björnssonar á Bessastöðum
á laugardag. Bifreiðin hefur nýlega
verið endurgerð og er hún af Pack-
ard-gerð frá árinu 1942. Hún er
fyrsta forsetabifreiðin og var notuð
á upphafsárum Sveins Björnssonar
í embætti sínu.
Bifreiðin var keypt notuð frá
Bandaríkjunum eftir að önnur
sömu gerðar, sem hafði verið gjöf
frá Roosevelt, forseta Bandaríkj-
anna, til Sveins Björnssonar, sökk
ásamt Goðafossi þegar skipið var
skotið í kaf í nóvember 1944.
Bifreiðin var endurgerð á ár-
unum 1998 til 2004, en heild-
arkostnaður við endurgerðina er
áætlaður á bilinu tólf til fimmtán
milljónir króna.
Endurgerð lokið á Packard-bifreið sem Sveinn Björnsson notaði á upphafsárum embættis síns
Fyrsta for-
setabifreið
Íslands
Morgunblaðið/Frikki
Til hátíðabrigða Bifreiðin er eign Þjóðminjasafnsins en verður geymd á Bessastöðum og notuð og sýnd við sérstök tækifæri.
Fljót | Sauðburður er víðast hvar
hafinn í Fljótum og í einhverjum
tilvikum kominn á fullan skrið.
Vorið hefur látið bíða eftir sér
hér, jörð verið nánast alþakin
snjó til þessa og leiðindaveður í
síðustu viku. Því er útlit fyrir að
fé verði í húsi eitthvað fram eftir
maí. Þegar þannig háttar er nauð-
synlegt að hafa skjól handa fénu.
Í þeim tilgangi hafa bændur í
Skagafirði fest kaup á braggalaga
smáhýsum sem eru mjög hand-
hægt skjól fyrir búfénað. Um
helgina var verið að setja svona
hýsi saman á Brúnastöðum í Fljót-
um en það er fyrsta sinnar teg-
undar í sveitinni. Þá var meðfylgj-
andi mynd tekin og þeir Einar
Valur, bóndi í Ási í Hegranesi, og
Vigfús, vinnumaður á Brúnastöð-
um, tilbúnir að flytja húsið með
dráttarvél þangað sem það mun
standa í framtíðinni.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Setja upp skjól handa
fénu í sauðburðinum
ÁKVÖRÐUN hefur verið tekin um
að starfsemi fjarskiptafélaganna
HIVE og SKO, sem nýlega voru
sameinuð, verði framvegis rekin
undir merkjum Tals. Starfsemi fé-
lagsins hefur verið endurskipulögð
og verður megináhersla lögð á hefð-
bundna þjónustu vegna farsíma,
heimasíma og internets með aðgangi
að dreifikerfum Símans og Voda-
fone, segir í frétt frá fyrirtækinu.
Í frétt frá Tali segir að starfsemin
verði einvörðungu grundvölluð á
þjónustu og umtalsverður sparnaður
á sviði hvers kyns tækniþróunar ger-
ir félaginu kleift að bjóða heildar-
þjónustu, þ.e. farsíma, heimasíma og
internet, að jafnaði á um 20-30%
lægra verði en risarnir tveir á fjar-
skiptamarkaðnum, Síminn og Voda-
fone, hafa gert til þessa.
Eigendur Tals eru Teymi, sem á
51% hlut og CP, sem á 49%, og er
m.a í eigu Jóhanns Óla Guðmunds-
sonar. Alls starfa um 40 manns hjá
Tali um þessar mundir.
Boða 20-30% verðlækk-
un á fjarskiptamarkaði
RAFRÆN innritun í framhalds-
skóla landsins hefst 14. maí næst-
komandi og lýkur 11. júní. Innritun-
in fer fram á skólavef menntamála-
ráðuneytisins. Slóðin á hann er:
menntagatt.is/innritun.
Samkvæmt frétt menntamála-
ráðuneytisins eru allar umsóknir um
nám í dagskóla rafrænar og berast
þær beint til upplýsingakerfa fram-
haldsskólanna. Nemendur í 10. bekk
grunnskóla munu fá bréf með leið-
beiningum ásamt veflykli sem veitir
þeim persónulegan aðgang.
Innritun í nám í kvöldskóla, fjar-
nám og annað nám en í dagskóla
verður með hefðbundnum hætti í
viðkomandi framhaldsskólum.
Rafræn innritun
í framhaldsskóla