Morgunblaðið - 05.05.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 05.05.2008, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT London. AFP. | Boris Johnson var eitt sinn afskrifaður sem stjórn- málamaður, var sagður pólitískur trúður, en þrátt fyrir hrakspárnar var þessi litríki íhaldsmaður kjörinn borgarstjóri London í vikunni sem leið. Nokkrir stjórnmálaskýrendur telja þó að sigur Johnsons geti reynst tvíeggjaður og komið íhalds- mönnum í koll síðar. Með sigrinum á Ken Livingstone, fráfarandi borgarstjóra, varð John- son fyrstur íhaldsmanna til að kom- ast í eitt af valdamestu embættunum í Bretlandi frá því að Íhaldsflokk- urinn missti völdin til Verkamanna- flokksins undir forystu Tonys Blairs fyrir ellefu árum. Nokkrir stjórnmálaskýrendur sögðu sigur Johnsons og íhalds- manna í sveitarstjórnarkosning- unum á fimmtudag marka upphafið að endalokum stjórnar Gordons Browns forsætisráðherra og end- urreisn Íhaldsflokksins undir for- ystu Davids Camerons fyrir þing- kosningar sem eiga að fara fram innan tveggja ára. Aðrir benda hins vegar á að John- son hefur verið hætt við axarsköft- um og sigur hans geti því komið Íhaldsflokknum í koll. „Ef Johnson klúðrar höfuðborginni get ég skrifað vígorð Verkamannaflokksins fyrir næstu kosningar: Ekki leyfa Cam- eron að gera það við Bretland sem Boris hefur gert við London,“ skrif- aði Andrew Rawnsley í Observer. Álitinn sérvitur furðufugl Johnson er 43 ára, fyrrverandi blaðamaður The Daily Telegraph og ritstjóri hægrisinnaða tímaritsins Spectator. Því fer fjarri að hann hafi verið óumdeilt borgarstjóraefni inn- an Íhaldsflokksins og sumir litu á hann sem sérvitran furðufugl þegar hann hóf kosningabaráttuna. Hann er oft hnyttinn en á það til að fara yf- ir strikið og hneyksla fólk með um- deildum yfirlýsingum. Johnson kom þó mörgum á óvart með málflutningi sínum í kosninga- baráttunni. Hann lagði áherslu á lof- orð um að stemma stigu við glæpum og notfærði sér vaxandi óánægju með frammistöðu stjórnar Gordons Browns. Hann sótti í sig veðrið eftir því sem leið á kosningabaráttuna á sama tíma og Livingstone, sem er 62 ára, virtist þreytast. Ástralski kosn- ingastjórinn Lynton Crosby sá til þess að Johnson gætti tungu sinnar, færi ekki í fjölmiðlaviðtöl sem gætu komið honum í vanda, og lagði mesta áherslu á að fá atkvæði kjósenda í úthverfunum, fjarri höfuðvígjum Livingstones í miðborginni og ná- grenni hennar. „Hvaða gera menn við vandamál eins og Boris er?“ sagði Cameron fyrir nokkrum árum þegar hann var spurður um ástarsamband Johnsons við blaðakonu Spectator og ýmis umdeild ummæli hans. Svo virðist sem svarið sé að koma honum í eitt af áhrifamestu emb- ættum Bretlands. Liam Fox, tals- maður íhaldsmanna í varnarmálum, sagði að það væri „óskhyggja“ af hálfu andstæðinga þeirra að halda að störf Johnsons í London myndu hafa úrslitaáhrif á gengi íhalds- manna í næstu þingkosningum. Sigurinn gæti reynst tvíeggjaður Talið að kosningasigur Boris Johnsons í London geti komið breska Íhaldsflokknum í koll AP Vinsæll orðhákur Boris Johnson á leið í ráðhúsið í London á laugardag. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is TIL átaka kom í gær milli stuðnings- manna og andstæðinga Evo Mor- ales, forseta Bólivíu, þegar atkvæða- greiðsla fór fram í auðugasta héraði landsins, Santa Cruz, um hvort það ætti að fá aukin sjálfstjórnarréttindi. Samkvæmt útgönguspám sjónvarps- stöðva í gærkvöldi samþykktu íbúar héraðsins tillöguna um aukna sjálf- stjórn með 85% atkvæða. Morales hafði lagst gegn atkvæða- greiðslunni, sagt hana brot á stjórn- arskrá landsins og tilraun til að skipta landinu í tvennt. Óttast er að átökin breiðist út eftir að úrslit at- kvæðagreiðslunnar liggja fyrir. Atkvæðagreiðslan var haldin þrátt fyrir að dómstóll hefði fyrirskipað að henni yrði frestað. Her landsins hafði lýst því yfir að hann liti á at- kvæðagreiðsluna sem ógn við ein- ingu landsins. Þrjú önnur héruð í austur- hluta Bólivíu ætla að efna til sams- konar atkvæða- greiðslu í júní. Tvö héruð til viðbótar íhuga að fara að dæmi þeirra. Deilt um skiptingu tekna Leiðtogar Santa Cruz vilja að hér- aðið fái stærri hluta af tekjum af jarðgasvinnslu í héraðinu og koma í veg fyrir að Morales geti tekið hluta af stærstu búgörðunum og úthlutað þeim til fátækra bænda úr röðum indíána eins og hann hefur lofað. Flestir íbúa Santa Cruz eru af evr- ópskum eða blönduðum uppruna og héraðið hefur lengi barist fyrir auk- inni sjálfstjórn. Leiðtogar héraðsins hertu baráttuna eftir að Morales sigraði í forsetakosningum árið 2005 og varð fyrsti forseti landsins úr röð- um indíána með loforðum um að bæta kjör þeirra. Forsetinn hefur reynt að breyta stjórnaskránni til að gera honum kleift að bæta kjör ind- íána og takmarka stærð búgarða. Bólivía er fátækasta ríki Róm- önsku Ameríku. Santa Cruz og hin héruðin, sem sækjast eftir aukinni sjálfstjórn, hafa mikla þýðingu fyrir efnahag landsins. Þar eru stærstu gasvinnslusvæðin og nær allt rækt- anlegt land Bólivíu. Að minnsta kosti tuttugu manns særðust í átökum sem blossuðu upp í héraðinu í gær vegna atkvæða- greiðslunnar. Hugo Chavez, forseti Venesúela og bandamaður Morales, sakaði Bandaríkjastjórn og auðug handbendi hennar í Bólivíu um að hafa staðið fyrir átökunum. Leiðtogar Santa Cruz neita því að þeir stefni að aðskilnaði frá Bólivíu. Samkvæmt tillögu þeirra á héraðið að fá svipuð sjálfstjórnarréttindi og ríki Bandaríkjanna, fá t.a.m. eigið þing og lögreglulið. Branko Marinkovic, einn leiðtoga héraðsins, sagði að þeir vildu samn- ingaviðræður við stjórn Morales eft- ir atkvæðagreiðsluna um hvernig standa ætti að breytingunum. Fréttaskýrendur sögðu að það myndi styrkja stöðu leiðtoga Santa Cruz í viðræðunum ef sjálfstjórnar- tillaga þeirra yrði samþykkt með miklum meirihluta í atkvæðagreiðsl- unni. Ólga vegna atkvæða- greiðslu um sjálfstjórn Sjálfstjórnartillaga samþykkt í ríkasta héraði Bólivíu þrátt fyrir andstöðu Morales Reuters Spenna Stuðningsmenn Evo Morales, forseta Bólivíu, úr röðum indíána í La Paz mótmæla atkvæðagreiðslu í Santa Cruz um hvort héraðið eigi að fá auk- in sjálfstjórnarréttindi. Santa Cruz er auðugasta hérað Bólivíu og hefur mikla þýðingu fyrir þau áform Morales forseta að bæta kjör bólivískra indíána. Evo Morales Amstetten. AP, AFP. | Mágkona Josefs Fritzls, Austurríkis- manns sem hélt dóttur sinni fang- inni í kjallara í 24 ár og eignaðist með henni sjö börn, segir að hann hafi stjórn- að fjölskyldunni eins og „harðstjóri“ og hafi afplánað fangelsisdóm fyrir nauðgun á sjöunda áratugnum. Mágkonan, sem vill ekki koma fram undir fullu nafni en kallar sig Christine R., sagði í viðtali við AP- fréttastofuna að Elisabeth, dóttir Fritzl, hefði strokið að heiman þegar hún var sautján ára. Það kynni að skýra það hvers vegna faðir hennar ákvað um hálfu ári síðar að loka hana inni í hljóðeinangraðri og glugga- lausri kjallaraprísund í húsi fjöl- skyldunnar. Christine R. sagði Fritzl hefði ver- ið harðstjóri og haldið allri fjölskyldu sinni í heljargreipum. Hann hefði talið fjölskyldunni trú um að Elisa- beth hefði gengið til liðs við sértrúar- söfnuð og enginn hefði efast um þá sögu. „Þegar hann sagði að hlutirnir væru svartir þá voru þeir svartir, jafnvel þótt þeir væru skjannahvít- ir,“ sagði Christine. „Hann þoldi engar mótbárur. Ég var sjálf hrædd við hann í fjölskylduboðum og þorði ekki að segja neitt sem gæti hugs- anlega komið honum úr jafnvægi og þess vegna er hægt að ímynda sér hvernig konunni, sem bjó með hon- um í öll þessi ár, hefur liðið.“ Christine sagðist viss um að ef Rosemarie systir hennar hefði reynt að andæfa manni sínum hefði hann brugðist ókvæða við og misþyrmt henni. Segir Fritzl ósakhæfan Christine sagði að Fritzl hefði ver- ið dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun árið 1967 og verið í um eitt og hálft ár í fangelsi. Austurrískt dagblað sagði á laugardag að í dómskjali frá 1967 kæmi fram að Fritzl hefði verið dæmdur fyrir að brjótast inn í íbúð 24 ára gamallar hjúkrunarkonu og nauðga henni. Lögreglan staðfesti ekki fréttina og sagði að samkvæmt fyrningarlögum ætti að vera búið að eyða svo gömlum skjölum. Lögmaður Fritzls kvaðst telja að hann væri ósakhæfur og ætla að óska eftir því að hann yrði dæmdur til vistar á geðsjúkrahúsi en ekki í fangelsi. Sat í fang- elsi fyrir nauðgun Josef Fritzl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.