Morgunblaðið - 05.05.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 15
MENNING
ÓLÖF Oddgeirsdóttir opnaði á
laugardag sýninguna Vefi í
Listasal Mosfellsbæjar. Ólöf er
núverandi bæjarlistamaður í
Mosfellsbæ og er sýningin
haldin af því tilefni.
Viðfangsefnið í verkum Ólaf-
ar er samspil manns og nátt-
úru. Vísað er til hins mann-
gerða með formum úr gömlum
útsaums- og vefnaðarmynstr-
um sem oft eiga sér fyrir-
myndir í náttúrunni. Hins vegar koma fyrir lífræn
form úr náttúrunni, greinar, æðar, frjó og aldin
trjáa. Listasalur Mosfellsbæjar er í Kjarna og op-
inn virka daga 12-19 og laugardaga 12-15.
Myndlist
Samspil mannsins
og náttúrunnar
Ólöf
Oddgeirsdóttir
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
var tilkynnt um verðlaunahafa
í hinni alþjóðlegu PX3 ljós-
myndakeppni í París og vann
Ellert Grétarsson, ljósmyndari
Víkurfrétta, til þrennra að-
alverðlauna. Hann sigraði í
flokki atvinnumanna í nátt-
úruljósmyndun fyrir myndröð
sem sýnir háhitasvæðin í
Krýsuvík. Hann hlaut einnig
fyrstu verðlaun í flokknum Náttúra-Jörð fyrir
sömu myndröð. Þá hlaut Ellert fyrstu verðlaun
fyrir myndröð af glitskýjum, í flokkunum Nátt-
úra-Himinn. Vinningsmyndirnar verða sýndar í
París og koma út í veglegri bók.
Ljósmyndun
Ellert vinnur
til verðlauna
Ellert Grétarsson
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞAÐ vakti mikla athygli ut-
anlands sem hér heima á
Listahátíð fyrir þremur ár-
um þegar flogið var með er-
lent fjölmiðlafólk, safna- og
sýningarstjóra og valda
gesti hátíðarinnar kringum
landið á einum degi og
myndlistarsýningar
Listahátíðar í samvinnu við
gallerí og söfn á lands-
byggðinni skoðaðar. Þá
hafði aldrei verið jafnmikið
viðhaft í myndlist á Listahá-
tíð; sérstök áhersla lögð á
greinina og erlendur sýn-
ingarstjóri ráðinn til að
samræma sýningahaldið um
allt land. Reynslan þótti
góð, og mikið var fjallað um
íslenska myndlist og Ísland
í erlendu miðlunum í kjöl-
farið.
Tilraunamaraþon er
upptaktur Oddaflugs
Í ár, þegar aftur er mikil
áhersla á myndlist á
Listahátíð, verður leikurinn
endurtekinn, en þó með svo-
lítið öðru sniði. Opnunar-
helgin verður mikils háttar
listviðburður, með Til-
raunamaraþoni í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu, sem þeir Hans Ulrich
Obrist og Ólafur Elíasson
stýra; sýningaropnunum, og
svo stóra myndlistarrúnt-
inum, sem nú er kallaður
Oddaflug. Allt er þetta sam-
tvinnað, því erlendu gest-
irnir munu eyða föstudeg-
inum 16. maí, öðrum í hátíð,
í að fylgjast með Tilrauna-
maraþoninu og skoða sýn-
ingarnar sem opnaðar verða
síðar um daginn. Guðrún
Kristjánsdóttir er kynning-
arstjóri Listahátíðar: „Ég
var að fá þær skemmtilegu
fréttir staðfestar í dag að
hin eina sanna Doktor Ruth
kemur í Tilraunamaraþon-
ið,“ segir Guðrún, en um-
rædd Ruth er tvímælalaust
kunnasti kynlífsráðgjafi í
amerísku sjónvarpi og hefur
notið gríðarlegra vinsælda
um áratuga skeið. „Hún
verður með verkefni ásamt
Marinu Abramovitz á
sunnudeginum. Það styttist
í að þakið fjúki af Hafn-
arhúsinu!“
En aftur að rúntinum
stóra, Oddafluginu. Tvær
sýningar norðanlands verða
heimsóttar; Kínversk sýn-
ing í Listasafni Akureyrar
og Greinasýning í Safna-
safninu í Eyjafirði, en fyrir
austan verða skoðaðar sýn-
ingar á Eiðum, í Sláturhús-
inu á Egilsstöðum og í
Skaftfelli. Tvær 50 sæta
flugvélar fljúga Oddaflugið,
en auk fjölmiðlafólksins fara
nokkrir listamenn með, en
restina af sætunum getur
almenningur keypt. Á
sunnudeginum verður farið
með hópinn í rútuferð til að
skoða bæði Listasafn Ár-
nesinga og Listasafn
Reykjanesbæjar, en dag-
skránni lýkur í Bláa lóninu.
Það er Blue Medium
miðlunarfyrirtækið í Banda-
ríkjunum sem vinnur að því
með Listahátíð að velja það
fjölmiðlafólk og áhrifafólk í
alþjóðlegri myndlist sem
kemur til Íslands, og upp-
lifir þessa stórbrotnu opn-
unarhelgi, en að sögn Guð-
rúnar er líka nokkuð um
það að fólk sæki um að fá að
koma. „Blue Medium býr
svo um hnútana að það
komi ekki aðrir en þeir sem
víst er að muni skrifa um
hátíðina. Þetta verður
vinnuferð fyrir þetta fólk,
ekki bara skemmtiferð,“
segir hún.
Ný vísindi
„Hátt í þrjátíu blaðamenn
eru búnir að boða komu
sína, en auk þeirra safnarar
og aðrir úr myndlistarheim-
inum. Þetta fólk er að skila
sér hingað vegna samstarfs-
ins við Blue Medium, sem
gengur úr skugga um að
heimsóknin muni skila sér í
umfjöllun. Við eigum tvær
þykkar möppur með er-
lendri umfjöllun frá 2005.
Þetta eru ný vísindi fyrir
ferðaþjónustuna hér en eftir
reynsluna af síðustu
Listahátíð eru æ fleiri að
taka þau upp, og vilja vita
nákvæmlega hverju heim-
boð af þessu tagi skila.“
Ferðamálastofa, Höf-
uðborgarstofa, Flugfélag Ís-
lands, Iceland Naturally og
Icelandair eru þungavigt-
araðilar í þessu samstarfi,
að sögn Guðrúnar og kosta
komu fjölmiðlafólksins hing-
að. Hún segir reynsluna frá
2005 nýtast afar vel, og þá
sé ekki síður athyglisvert að
skrif um hátíðina áður en
hún hefst séu mun meiri nú
en áður. „Nú veit umheim-
urinn að hann gengur að al-
vöru listalífi á Íslandi.“
Um 30 erlendir blaðamenn alþjóðlegra listtímarita og dagblaða fara í Oddaflug
Nú veit umheimurinn
MYNDLIST Atlantis, sköpunarverki Teu Mäkipää og Halldórs Úlfarssonar, verður komið
fyrir í Reykjavíkurtjörn og sýnir hálfsokkið hús sem er tákn fyrir hugmyndir okkar um að
lifa af. Frá Tjarnarbakkanum sést í eitt horn þessa litla húss; frá því stafar hlýlegri birtu
og hljóðlátur erill daglegs lífs ómar inni fyrir, allt frá rauli til rifrilda. Atlantis er ætlað að
minna okkur á hversu berskjölduð manneskjan er og hve mjög hún er undirorpin nútíma-
legum lífsmáta sínum; hvernig náttúruhamfarir geta orðið til þess að kollvarpa lífi okkar.
Atlantis í Reykjavíkurtjörn
ÞÝÐINGAR á
verkum Guð-
rúnar Evu Mín-
ervudóttur hafa
nýverið komið út
í Frakklandi og á
Ítalíu. Smásagna-
safnið Á meðan
hann horfir á þig
ertu María mey
kom út hjá Zulma
í Frakklandi og
skáldsagan Yosoy hjá Scrittura pura
á Ítalíu.
Samkvæmt upplýsingum frá For-
laginu hafa bækurnar fengið góða
dóma gagnrýnenda. Ítalska þýð-
ingin á Yosoy hefur hlotið mikið lof
og víða fjallað um hana. Í World-
press er bókinni líkt við verk Coet-
zee og Lowry í umfjöllun sinni um
mannlega þjáningu. Gagnrýnendi
Tiefo segir bókina „mjög metn-
aðarfullt verk, einstaklega vel skrif-
að, sem í fyrstu gæti virst torlesið en
vald höfundar á textanum sé í raun
slíkt að flókin hugtök skila sér til les-
andans áreynslulaust í gegnum orð-
fagra og blæbrigðaríka frásögn“.
Í Le Nouel Observateur segir að
sögurnar í Á meðan hann horfir á
þig ertu María mey líkist einna helst
smáum og léttvægum brotum úr
hversdagslífinu sem höfundurinn
nái að hlaða merkingu og sveipa svo
dulúðugri birtu að þau minni helst á
dagdrauma. Hann varpar fram
þeirri kenningu að á Íslandi gerist
svo fátt að þessir smámunir, þetta
hversdagslíf, verði ósjálfrátt að ein-
hverju stórbrotnu.
Von er á nýrri skáldsögu frá Guð-
rúnu Evu í haust.
Metnaðar-
full og vel
skrifuð
Bækur Guðrúnar
Evu fá góða dóma
Guðrún Eva
Mínervudóttir
LÖNGU týnd ópera eftir Antonio
Vivaldi var flutt að nýju í Prag á
föstudagskvöldið, eftir að hafa verið
frumflutt þar í borg fyrir 278 árum,
árið 1730. Óperan, sem heitir
Argippo, gerist við hirð indversks
fursta. Í dag er Vivaldi þekktastur
fyrir Árstíðirnar en hann var afar
afkastamikið tónskáld og samdi yfir
500 konserta, 73 sónötur, fjölda
kirkjuverka og 46 óperur.
Tónlistarmaðurinn Ondrej Macek
stýrði þessari nýju uppsetningu, en
það var hann sem fann nóturnar og
texta óperunnar eftir langa leit í
skjalasöfnum. Hann komst að því að
hópurinn sem flutti óperuna upp-
haflega fluttist síðan til Regensburg
í Þýskalandi og þar fann Macek um
tvo þriðju hluta nótnanna í skjölum
sem sögð voru eftir „óþekkta“ höf-
unda. Hann fyllti upp í verkið með
tónlist úr öðrum óperum Vivaldis
frá sama tíma.
Ópera Vivald-
is aftur í Prag
LISTMÁLARINN Helga Sigurð-
ardóttir hlýtur mikla athygli fyrir
málverk sín í nýjasta tímariti Int-
ernational artist, sem helgar sig
listmálun og þá einkum mál-
unartækni og veitir mönnum upp-
lýsingar varðandi tæknileg atriði og
meðferð misjafnra tegunda máln-
ingar. Heilar tíu blaðsíður eru lagð-
ar undir Helgu, en blaðið er 160
bls.
Helga lýsir því í blaðinu hvernig
hún beiti litunum og hrifningu sinni
á vatnslitum, enda sé hún um-
kringd vatni í ýmsu formi alla daga
sem Íslendingur. Landslagið hafi
mikil áhrif á hana og litaspil náttúr-
unnar, ekki síst himinsins og norð-
urljósanna sem endurspeglist á
sjávarfletinum. Tónlist sé einnig
mikilvæg við vinnuna og þá helst
taktföst, hún komi henni í rétta
skapið til að takast á striga eða ál-
plötu. Helst vilji hún mála utandyra
en þar sem veðrið hér á landi sé sí-
breytilegt geti það oft reynst erfitt.
Þó hafi veðrið oft hjálpað til, t.d.
þegar hún var eitt sinn að mála ut-
andyra og skyndilega gerði helli-
dembu. Rigningin hafi breytt verk-
inu til hins betra. Upp frá því hafi
hún farið að úða vatni á vatns-
litaverk sín í meira mæli en áður.
Á einni opnu er sýnt ferli vatns-
litaverks frá byrjun til enda hjá
Helgu og er myndefnið Snæfells-
jökull. Undir lok umfjöllunarinnar
er farið út í þær tegundir pappírs
og vatnslita sem Helgu þykja best-
ar. Helga nefnir þó að síðustu tvö
ár hafi hún farið að fá meiri áhuga
á olíumálun og þá málað á ál, striga
og tréplötur. Málunartæknin sé
svipuð og þegar hún noti vatnsliti
en í stað vatns noti hún terpentínu,
eins og gefur að skilja. Hægt er að
skoða verk Helgu á vefsíðu hennar,
www.helgasigurðardottir.is.
Tíu síðna umfjöllun um Helgu Sigurðardóttur myndlistarkonu í tímaritinu International Artist
Óvænt demba varð til bóta
Mikil umfjöllun Helga Sigurðardóttir málar í vinnustofu sinni.
♦♦♦
KJARTAN Sigtryggson hefur
opnað sýninguna „Í framan –
In the Face“ á Café Karólínu á
Akureyri.
Kjartan stundaði nám við
Myndlistarskólann á Akureyri
og Listaháskóla Íslands og út-
skrifaðist þaðan árið 2006.
Verkin sem hann sýnir nú seg-
ir hann afrakstur vinnu þar
sem hann blandar saman mál-
verkum og teikningum þar
sem andlitið er aðal viðfangsefnið, og „þá aðallega
á huglægum grundvelli fremur en formlegum og
bókstaflegum.“ Umsjónarmaður sýninga á Café
Karólínu er Hlynur Hallsson.
Myndlist
Kjartan sýnir á
Café Karólínu
Eitt verka Kjartans
Sigtryggssonar.