Morgunblaðið - 05.05.2008, Page 16

Morgunblaðið - 05.05.2008, Page 16
Ræðumenn í Markerville Við hús Stephans G. Stephanssonar. Frá vinstri: Markús Örn Ant- onsson sendiherra, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherrahjónin Einar K. Guðfinnsson og Sigrún Þórisdóttir og Hallgrímur Benediktsson, ræðismaður í Calgary. Heiðursfélagar og stjórnarmenn Fremri röð frá vinstri: Carol Blyth (heiðursfélagi 2007), Susan Anderson, Dilla Narfason, Mavis Marteinson og Linda Bjarnason. Aftari röð frá vinstri: Dr. Hallgrimur Benediktsson ræðismaður, Andrew Anderson, Brent Grisdale, formaður Ís- lendingafélagsins í Calgary, Larry Johnson sonur Laurence Johnson, Gary Oddleifson, fráfar- andi formaður Þjóðræknisfélagsins, og Lorne Bjarnason. Ljósmynd/Karl Torfason Heiður Dilla Narfason með viðurkenninguna. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is DILLA Narfason á Gimli var sæmd æðstu viðurkenningu Þjóðræknisfélagsins (INL), Lawrence-Johnson Lifetime Achievement Award, á þinginu í Calgary í Kanada um liðna helgi. Þetta var 89. þing Þjóðræknisfélagsins og verður það næst haldið á Gimli í Manitoba undir kjörorðunum Komið heim til Nýja Ís- lands. Walter Sopher í Edmonton var heiðraður fyrir óeigingjarnt starf fyrir INL í átta ár og sagði þetta besta þing sem hann hefði sótt. Hann bætti við að héldu félögin áfram að efla grasrótina, styrkja hana og styðja, þyrfti ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni. Lawrence-Johnson viðurkenningin er veitt fyrir frábær störf í þágu íslenska samfélagsins í Norður-Ameríku og var fyrst veitt á þinginu í Edmonton í Alberta 2003. Neil Ófeigur Bardal, þáverandi aðalræðismaður á Gimli, var þá sæmdur viðurkenningunni. Dr. T. Kenneth Thorlakson, læknir í Winnipeg, fékk viður- kenninguna á þinginu á Heclu í Manitoba 2004. Stella Stephanson, einn af stofnendum Íslend- ingafélagsins í Vatnabyggð í Saskatchewan, var verðlaunuð á þinginu í Wynyard 2005. Lill- ian Gudmundson frá Árborg í Manitoba var heiðruð á þinginu í Victoria 2006 og Stefán J. Stefánson, fyrrverandi fógeti á Gimli í Mani- toba, á þinginu í Winnipeg í fyrra. Íslendingafélagið á Gimli hefur notið krafta Dillu Narfason í aldarfjórðung og gegnir hún nú stöðu fyrrverandi formanns. Hún var fjall- kona Íslendingadagsnefndar 1994, sat í bæj- arstjórn í níu ár og er heiðursfélagi Þjóðrækn- isfélagsins. Áður en Larry Johnson afhenti Dillu við- urkenninguna gat hann þess að hún sæi ávallt til þess að allir tækju þátt í að viðhalda íslensku arfleifðinni, án hennar kæmi félagið á Gimli ekki eins miklu í verk og án hennar væri ekki eins mikið í Gimli spunnið. Susan og Andrew Anderson, Linda og Lorne Bjarnason og Mavis Marteinson voru útnefnd heiðursfélagar INL. Dilla Narfason á hæsta stalli 16 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND ÚR VESTURHEIMI Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is ÞAÐ verður mikil knattspyrnuhátíð á öðr- um í hvítasunnu í knattspyrnubænum Akra- nesi en kallaðar hafa verið saman allar helstu kempur Skagaliðsins í karla- og kvennaflokki. Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, verður viðstaddur hátíðina þar sem að rúmlega 150 knattspyrnumenn og -konur munu taka þátt í kynslóðaleik í knattspyrnu. Tómas Guðmundsson, markaðsfulltrúi Akraneskaupstaðar, segir að tilgangurinn með þessari hátíð sé margþættur. „Þessi hugmynd varð til fyrir um þremur árum en það hefur ekki gefist tími til þess að fram- kvæma hana fyrr en nú. Í fyrstu ætluðum við að halda slíka hátíð á 60 ára afmæli Íþróttabandalags Akraness árið 2006 en það er bara tilviljun að þessi hátíð fer fram á þessum degi árið 2008,“ segir Tómas en samkvæmt heimildum þess sem þetta skrif- ar þá á Tómas þessa hugmynd með húð og hári. „Þeir sem lifa og hrærast í þessari knatt- spyrnumenningu sem ríkir á hér á Akranesi upplifa þessa sögu og hefð með öðrum hætti en ég sem kem inn í þetta bæjarfélag fyrir nokkrum árum. Ég veit ekki hvort þetta er hógværðin í Skagamönnum sem hefur gert að verkum að menn eru ekki vanir því að halda slíkar hátíðir. Ef litið er yfir sögu ÍA í knattspyrnu í karla- og kvennaflokki þá er ótrúlegt hvað þetta litla samfélag hefur náð langt. Kannski finnst þeim sem búið hafa á Akranesi lengi ekki ástæða til þess að rifja upp söguna og gleðjast yfir glæsilegri sögu félagsins. Mér fannst þetta tilvalið tækifæri til þess að brúa kynslóðarbilið með slíkum hætti.“ Hefðin til staðar Tómas segir að það sé markmiðið með hátíðinni sé að styrkja í sessi þá ríku knatt- spyrnuhefð sem er á Akranesi og undir- strika hversu samofin hún er menningu og mannlífi bæjarfélagsins. „Það eru margir leikmenn sem hafa komið við sögu hjá ÍA í gegnum tíðina en tekin var sú ákvörðun að kalla saman rúmlega 150 leikmenn sem munu klæðast sérstökum ÍA búningi sem þeir fá að gjöf. Hátíðarbúningurinn er að sjálfsögðu svartur og hvítur. Það eru marg- ir leikmenn sem hafa ekki farið í ÍA- búninginn í langan tíma og það verður sér- stakt að sjá þessa leikmenn koma saman á þessum degi. Ekki má gleyma að þessi há- tíð er ekki síður hugsuð fyrir stuðnings- menn liðsins sem hafa margir hverjir staðið við hliðarlínuna í áratugi.“ Tómas segir að það sé mikill heiður fyrir þá sem að hátíðinni standa að fá hr. Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á hátíð- ina. „Hátíðin hefst kl. 15 á öðrum degi hvítasunnu og munu hátíðargestir ganga frá íþróttahúsinu við Jaðarsbakka og út í Akra- neshöllina. Þar mun Ólafur Ragnar heilsa upp á leikmenn og þekkt stuðningslög úr sögu ÍA verða leikin. Ég veit ekki hvort Ólafur Ragnar er stuðningsmaður ÍA-liðsins en ég geri ráð fyrir að hann hafi fylgst með árangri liðsins í gegnum tíðina.“ Mjög margir aðilar koma að undirbúningi hátíðarinnar og segir Tómas að vel hafi gengið að fá fólk til starfa. „Hróður ÍA hef- ur borist víða og nýverið var sýnt mynd- band á heimasíðu UEFA þar sem sér- staklega var fjallað um litla knatt- spyrnubæinn á Íslandi sem hefur alið af sér ótrúlega marga góða knattspyrnumenn. Það eru ekki aðeins leikmenn og þjálfarar sem hafa komið liðinu á kortið. Þeir aðilar sem hafa starfað í sjálfboðavinnu fyrir félagið í gegnum súrt og sætt í gegnum tíðina við ýmis störf eiga einnig stóran þátt í sögu félagsins,“ sagði Tómas Guðmundsson. Kynslóðaleikurinn verður ekki eini kappleikurinn sem fer fram á Akranesi um hvítasunnuhelgina. Fyrsta umferð Landsbankadeildarinnar í knattspyrnu hefst laugardaginn 10. maí og fá Skaga- menn lið Breiðabliks í heimsókn í fyrsta leiknum. Kynslóðaleikur í knattspyrnubænum Morgunblaðið/Sigurður Elvar Efnilegar Þessar hressu Skagastelpur verða kannski þátttakendur í kynslóðaleik á Akranesi eftir nokkur ár í knattspyrnubænum. Ástæða til þess að rifja upp söguna og gleðjast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.