Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 2

Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 2
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Eiríkur Hauksson fór, sá og sigraðikannski ekki í fyrra, er keppnin varhaldin í Finnlandi. En hjörtuFrónbúans voru hans frá því að hann söng fyrstu nótu í þungarokksópusnum „Ég les í lófa þínum“, sem síðan átti eftir að breytast í „Valentine Lost“ þegar ákveðið var að elta ólar við alþjóðatungumál poppsins (og innihélt þá m.a. þessar ódauðlegu og dýrt kveðnu línur: „A passion killed by acid rain/A rollercoaster in my brain“). Eiríkur varð óðar uppáhald allra, féll í kramið hjá ömmum sem kornabörnum, sjarm- erandi rokktröll – harður nagli með stórt hjarta úr skíra bárujárni. Ekki spillti fyrir að Eiríkur var eldri en tvævetur í Evrósvisjón- heimum og fjölhæfur með afbrigðum þegar kom að stílbrögðum. Hann hafði tekið þátt í flutningi á Gleðibankanum sem meðlimur í ICY-tríóinu þegar Ísland keppti í fyrsta skipti í Evróvisjón árið 1986, og keppti þá fyrir Nor- eg árið 1991 sem meðlimur í öðru tríói, Just 4 Fun. En í þetta skiptið var komið að þunga- rokkaranum Eiríki Haukssyni að stíga fram. Þótti það enda hernaðarfræðilega skyn- samlegt þar sem sigurvegarar Evróvisjón frá árinu á undan voru þungarokkarar, en þar fór hin „ógurlega“ finnska sveit Lordi. Þrátt fyrir að ná ekki þeim árangri sem hann og fleiri bjuggust við gekk Eiríkur að sjálfsögðu hnarreistur frá keppninni; ósnert- anlegur sem áður og tók ósigri með auðmýkt hins sanna séntilmanns. Vinsældir hans hér- lendis biðu engan hnekki og í raun má segja að þessi Evrósvisjónkeppni hafi markað vissa endurkomu rauðhærða riddarans inn í vitund íslensku þjóðarinnar. Á krossferð Eiríkur segist horfa sáttur um öxl og hann sé ánægður með framlag sitt frá því í fyrra. Rokkið eigi alltaf séns, hvort sem er í Evr- óvisjón eða annars staðar. „Ég fór gagngert í keppnina af því að ég var með rokklag í höndunum. Það er nú kannski hvað skemmtilegast við þennan „sirkus“ hvað allt er óútreiknanlegt. Og jú jú, rokkið á alltaf möguleika, þó svo að ég næði ekki alla leið í fyrra.“ Eiríki verður ekki skotaskuld úr að leiða saman rokkarann og Evróvisjónpopparann í sér og í rauninni má segja að hann hafi splæst þessum tveimur eiginleikum saman í Finn- landi í fyrra. „Ég er búinn að fá heilmikið út úr þessu brölti mínu í fyrra. Markmið mitt var einfalt; að stuðla að því að rokkið myndi festa sig í sessi á þessum vettvangi. Árin 1986 og 1991 var ég „júrópoppari“ og í rauninni bara að selja mig í vel borgaða vinnu. Í fyrra fór ég hins vegar sem nokkurs konar „krossfari“ og söng með sannfæringu fyrir tugi milljóna lag sem endurspeglar mig sem rokkara. Er hægt að fá betri auglýsingu? Varla!“ Eiríkur hefur sitthvað að segja um keppn- ina í ár, þótt hann sé fráleitt einhver sérfræð- ingur að eigin sögn – þó að margir séu á öðru máli um það. Það blekkir þá kannski margan að Eiríkur hefur verið reglulegur gestur í spá- dóma- og spekingaþætti, skandinavískum, um Evróvisjón þar sem nærvera hans hefur verið sterk og vakti hann mikla athygli fyrir vel ígrundaða og uppbyggilega gagnrýni sína. „Það er svolítið fyndið en samt þó vel skilj- anlegt að margir halda að ég hafi svaka áhuga á og viti bókstaflega allt um Evróvisjón. Ég hef sagt það áður og get alveg endurtekið það nú, að um 80-85% af tónlistinni eru algjört prump að mínu mati. Hins vegar er stigagjöfin alltaf þrælspennandi og þar af leiðandi skemmtileg. Í ár hef ég bara heyrt framlög Ís- lands, Noregs og Svíþjóðar. Ekkert þessara laga stendur upp úr. En þau geta öll bæði unnið og skíttapað – svo fríkuð er þessi keppni.“ Skandinavíumafía? Um gildi keppninnar segir Eiríkur að sig- urvegarinn upplifi dágóða athygli og temmi- legar tekjur í u.þ.b. ár – eða allt fram að næstu keppni. „Flestir gleymast síðan eftir það, að ég tali nú ekki um þá sem komast ekki í efsta sætið. Hvar er hún blessunin, sú serbíska frá því í fyrra? Ég man ekki einu sinni hvað hún heitir. En hún söng alla vega þrælvel og ég var bara sáttur við hana sem sigurvegara.“ Í fyrra var mikið rætt um það að Austur- Evrópuþjóðirnar væru svo gott sem búnar að „stela“ keppninni með klíkuskap og ann- arlegum meðulum. En er austurevrópska mafían virkilega til? Eða bara tilbúningur tapsárra landa? „Er ekki bara eðlilegt að austurblokkin standi saman?“ segir Eiríkur. „Það má alveg eins tala um Norðurlandamafíu. Ég fékk tólf stig í fyrra frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og átta frá Danmörku. Svolítil mafíulykt af því líka, er það ekki?!“ Eiríkur notar tækifærið í lok spjallsins og óskar Friðriki Ómari og Regínu Ósk góðs gengis í Belgrad. „Þau eru með lag sem passar inn í þeirra feril sem söngvarar og eru þannig séð sig- urvegarar nú þegar, bara við það að fá að sýna sig í þrjár mínútur. Og vonandi fáum við aðrar þrjár mínútur að þessu sinni – Áfram Ísland!“ Rauðhærði Evró- visjónriddarinn Morgunblaðið/Eggert Methafi Eiríkur Hauksson setti Íslands- og Evrópumet í Evróvisjónsöng þegar hann keppti í Helsinki og söng þar með í keppninni þriðja áratuginn í röð. Rætt við Eirík Hauksson sem keppti fyrir Ís- lands hönd í fyrra með svartbikað þungarokk 2|Morgunblaðið ÍRAR eru methafar í Evróvisjón-sigrum, eiga sjö sigra að baki, en næstir þeim koma Lúx- emborgarar, Frakkar og Bretar með fimm sigra hver þjóð. Norðmenn hafa oftast lent á botn- inum, tíu sinnum samtals, þeir hafa líka oftast fengið engin stig. Sigurlöndin í gegnum árin ÚT UM allan heim skemmta menn sér við að giska á hvernig þjóðunum á eftir að farnast á sviðinu í Belgrad. Í Lundúnum er til að mynda haldið árlegt Evróvisjón-partí undir nafninu Douze Points (tólf stig á frönsku). Er það var haldið fyrir stuttu greiddu gestir atkvæði um lögin í 25 dómnefndum líkt og í keppninni sjálfri, en lögin voru flutt í sömu röð og þau verða í hinum raunveru- legu úrslitum. Tíu lið komast áfram í úrslitin á hverju undanúrslitakvöldi og ef marka má nið- urstöðu atkvæðagreiðslunnar standa Íslend- ingar vel að vígi. Fyrra kvöldið fóru leikar svo: Fyrra undanúrslitakvöldið: Noregur, 153 stig, Andorra, 132, Slóvenía, 126, Armenía, 100, Grikkland, 89, Rúmenía, 72, Belgía, 61, Pólland, 59, Rússland, 58, Holland, 54 og Aserbaídsjan, 53. Seinna undanúrslitakvöldið: Svíþjóð, 164, Sviss, 147, Ísland, 138, Portúgal, 109, Búlg- aría, 72, Úkraína, 60, Ungverjaland, 60, Tyrkland, 55, Malta, Albanía, 50. Douze Points Ár Land Lag Flytjandi 1956 Sviss Refrain Lys Assia 1957 Holland Net Als Toen Corry Brokken 1958 Frakkland Dors mon amour André Claveau 1959 Holland Een beetje Teddy Scholten 1960 Frakkland Tom Pilibi Jacqueline Boyer 1961 Lúxemborg Nous les amoureux Jean-Claude Pascal 1962 Frakkland Un premier amour Isabelle Aubret 1963 Danmörk Dansevise Grethe & Jørgen Ingmann 1964 Ítalía Non ho l’età (per amarti) Gigliola Cinquetti 1965 Lúxemborg Poupée de cire, poupée de son France Gall 1966 Austurríki Merci Chérie Udo Jürgens 1967 Bretland Puppet On a String Sandie Shaw 1968 Spánn La, la, la ... Massiel 1969 Spánn Vivo cantando Salomé 1969 Frakkland Un jour, un enfant Frida Boccara 1969 Holland De troubadour Lennie Kuhr 1969 Bretland Boom Bang a Bang Lulu 1970 Írland All Kinds of Everything Dana 1971 Mónakó Un banc, un arbre, une rue Sévèrine 1972 Lúxemborg Après toi Vicky Leandros 1973 Lúxemborg Tu te reconnaîtras Anne-Marie David 1974 Svíþjóð Waterloo ABBA 1975 Holland Ding-a-dong Teach-In 1976 Bretland Save Your Kisses for Me Brotherhood of Man 1977 Frakkland L’oiseau et l’enfant Marie Myriam 1978 Ísrael A-ba’ni-bi Izhar Cohen & Alphabeta 1979 Ísrael Hallelujah Gali Atari & Milk and Honey 1980 Írland What’s Another Year Johnny Logan 1981 Bretland Making Your Mind Up Bucks Fizz 1982 Þýskaland Ein bißchen Frieden Nicole 1983 Lúxemborg Si la vie est cadeau Corinne Hermes 1984 Svíþjóð Diggi-loo-diggi-ley Herreys 1985 Noregur La det swinge Bobbysocks 1986 Belgía J’aime la vie Sandra Kim 1987 Írland Hold Me Now Johnny Logan 1988 Sviss Ne partez pas sans moi Céline Dion 1989 Júgóslavía Rock Me Riva 1990 Ítalía Insieme 1992 Toto Cutugno 1991 Svíþjóð Fångad av en stormvind Carola 1992 Írland Why Me Linda Martin 1993 Írland In Your Eyes Niamh Kavanagh 1994 Írland Rock’n Roll Kids Paul Harrington & Charlie 1995 Noregur Nocturne Secret Garden 1996 Írland The Voice Eimear Quinn 1997 Bretland Love Shine a Light Katrina & The Waves 1998 Ísrael Diva Dana International 1999 Svíþjóð Take Me to Your Heaven Charlotte Nilsson 2000 Danmörk Fly On the Wings of Love Olsen Brothers 2001 Eistland Everybody Tanel Padar & Dave Benton 2002 Lettland I Wanna Marie N 2003 Tyrkland Everyway That I Can Sertab Erener 2004 Úkraína Wild Dances Ruslana 2005 Grikkland My Number One Helena Paparizou 2006 Finnland Hard Rock Hallelujah Lordi 2007 Serbía Molitva/Prayer Marija Šerifovic

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.