Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 4
Ég er á stöðugu tónleika-ferðalagi,“ segir Logansem er staddur um borð ísnekkju við borgina Hamborg í Þýskalandi þegar blaða- maður nær tali af honum. Síðasta plata Logans, The Irish Connection, hefur notið töluverðra vinsælda og segist hann hafa verið að fylgja henni eftir allt frá því hún kom út fyrir um ári síðan. Það er þó aldrei meira að gera í tónleikahaldi hjá Logan en einmitt í kringum Evr- óvisjón-keppnina, og segist hann varla fá frið síðustu dagana fyrir keppni. „Þá er ágætt að fela sig á Ís- landi,“ segir hann og hlær. Hann segir þó eðlilegt að fólk vilji fá hann til tónleikahalds í kringum keppn- ina. „Það er líklega eðlilegt í ljósi þess að ég sigraði í keppninni í þrí- gang. Hins vegar halda sumir að ég sé einhver Evróvisjón-sérfræðingur, en svo er ekki. Ég horfi ekki einu sinni alltaf á keppnina og veit ekkert alltaf hvaða lög vinna. Það er fullt af fólki sem veit allt um keppnina, sögu hennar og svona. Ég tilheyri ekki þeim hópi,“ útskýrir Logan. Þakklátur Evróvisjón Logan flutti lagið „What’s Anoth- er year“ sem sigraði í Evróvisjón ár- ið 1980, samdi svo og flutti „Hold Me Now“ árið 1987 og samdi loks sig- urlagið „Why Me?“ sem Linda Martin flutti árið 1992. Þá má einnig geta þess að hann samdi lagið „Terminal 3“ sem Martin flutti í keppninni árið 1984, og hafnaði í öðru sæti. Það er því ekki að furða að hann hefur fengið viðurnefnið Mister Eurovision, eða Herra Evr- óvisjón. Aðspurður segist Logan ekkert sérstaklega þreyttur á því að vera sífellt tengdur við keppnina. „Það er fullt af fólki í þessum bransa allt sitt líf án þess að ná til- ætluðum árangri. Ég hef náð mikl- um árangri og er nokkuð þekktur, og það á ég Evróvisjón að miklu leyti að þakka. Ég hef selt um 14 milljónir platna með Evróvisjón-lögunum mínum og lag eins og „Hold Me Now“ varð á sínum tíma nokkuð vin- sælt í bæði Asíu og Ástralíu, og þar fylgjast menn náttúrulega ekki með keppninni, þannig að þetta er kannski ekki eingöngu Evróvisjón að þakka.“ Kalkúnninn er hneyksli Þegar Logan er spurður hvort hann hafi heyrt af hinum gríðarlega Evróvisjón-áhuga Íslendinga segir hann svo vera. „Er þetta ekki bara eins og á Ír- landi, þar sem menn annað hvort elska eða hata keppnina?“ spyr hann, og blaðamaður segir honum að Íslendinga dreymi um að sigra í keppninni, og rifjar meðal annars upp fyrir honum hversu nálægt því Selma Björnsdóttir komst árið 1999. „Það væri frábært ef Ísland ynni, og að keppnin yrði svo haldin á Íslandi í kjölfarið. Hún snýst að miklu leyti um að þjóðir innan Evrópu kynnist betur, og það er fullt af fólki í Evr- ópu sem veit ekkert um Ísland. Þetta snýst nefnilega ekki bara um tónlistina heldur er þetta sjónvarps- þáttur sem á að sameina ríki álf- unnar, og fá fólk til að líta á aðra Evrópubúa sem nágranna sína, en ekki útlendinga. Þetta skiptir miklu máli.“ Framlag Íra til keppninnar í ár hefur vakið mikla athygli, en þar er á ferðinni kalkúnninn Dustin með lagið „Irelande Douze Pointe“. Lag- ið, og raunar atriðið í heild sinni, er hálfgerður farsi sem minnir um margt á framlag Íslands árið 2006; „Til hamingju Ísland“ með Silvíu Nótt. „Mér finnst það algjört hneyksli,“ segir Logan um framlag þjóðar sinn- ar. „Undanfarin tíu ár höfum við sent heilan helling af lélegum lögum í keppnina, og okkur hefur því eðli- lega gengið mjög illa. Við erum hins vegar sú þjóð sem oftast hefur sigr- að í keppninni, eða sjö sinnum, og þegar okkur gekk vel í keppninni höfðu menn mikinn áhuga á henni. Núna er hins vegar eins og menn hafi ákveðið að gefa skít í hana. Sumum Írum finnst þetta að vísu mjög fyndið atriði, en ég efast um að öðrum Evrópubúum verði skemmt. Þegar kalkúnninn sigraði í for- keppninni á Írlandi púuðu sumir, og ég er hræddur um að það verði enn meira gert af því í Serbíu. Þarna verður fullt af fólki sem er komið til að njóta keppninnar, fólk sem hrein- lega elskar hana, og ég er viss um að það verður mjög móðgað þegar það sér írska atriðið,“ segir Logan. Aldrei að segja aldrei Þetta verður ekki fyrsta heimsókn Logans hingað til lands því hann hélt tónleika í Reykjavík í upphafi níunda áratugarins. „Það var á stað sem mig minnir að hafi heitið Holly- wood. Þetta var á gamlárskvöld, en ég man ekki hvort það var 1981 eða 1982,“ segir hann og rifjar í kjölfarið upp kynni sín af Björgvini Halldórs- syni sem hann segist enn vera í nokkru sambandi við. Logan ætlar að spila efni frá öllum ferli sínum á tónleikunum hér. „Ég mun auðvitað spila Evróvisjón-lögin þrjú, en svo verður töluvert af rokki og sálar- og gospeltónlist. Þannig að Íslendingar munu fá að heyra brot af hinum ýmsu tónlistarstefnum sem ég hef komið nærri í gegnum árin. Umfram allt eiga þetta að vera skemmtilegir tónleikar, og ég veit að þeir sem koma á þá skemmta sér vel.“ Ekki er hægt að sleppa Logan án þess að spyrja hann hvort hann geti hugsað sér að taka aftur þátt í Evr- óvisjón-keppninni. „Ég hef aðeins verið að velta því fyrir mér, en ég held að ég ætti eng- an möguleika nema ég færi í kyn- skiptiaðgerð, og breytti nafninu mínu í Jenna Loganowitz. Þá ætti ég kannski smá möguleika á sigri,“ seg- ir hann og hlær. „En í alvöru talað þá sé ég það ekki fyrir mér. En maður á víst aldr- ei að segja aldrei.“ jbk@mbl.is Herra Evróvisjón Haltu mér Logan syngur „Hold Me Now“ í fyrsta sætið árið 1987. Flottur Logan kom, söng og sigraði með „What’s Another Year“ árið 1980. Tónleikar Logans verða á Broadway á föstudags- kvöldið. Miðasala stendur yfir á midi.is. Miðaverð er 3.490 kr. en 7.490 kr. með þriggja rétta máltíð. Nánari upplýsingar á midi.is. Írski tónlistarmaðurinn Jo- hnny Logan hefur sigrað í Evróvisjón-keppninni í þrí- gang, en þekktastur er hann fyrir lagið „Hold Me Now“ sem sigraði árið 1987. Logan hefur þó komið víðar við en í Evróvisjón, og hefur gefið út fjölda platna sem náð hafa tölu- verðum vinsældum. Jóhann Bjarni Kolbeins- son ræddi við kappann sem heldur tónleika á Broadway næstkomandi föstudagskvöld. Sigurvegari Írski söngvarinn Johnny Logan segist þakklátur Evróvisjón, enda skaut keppnin honum upp á stjörnuhimininn. 4|Morgunblaðið EVRÓVISJÓN var komið á koppinn 1955, þótt fyrsta keppnin hafi ekki verið haldin fyrr en 1956, og því var haldið upp á fimmtíu ára afmæli keppninnar fyrir þremur árum. Það var gert með heilmiklu húllumhæi í Kaupmannahöfn og byggðist á samkeppni þar sem valin voru bestu Evróvisjónlög allra tíma. Þátttakendur gátu valið þau lög sem þeim hugnaðist best á vefsetri Evrópska sjón- varpssambandsins, EBU. Tíu efstu lögin í því vali komust áfram en síðan valdi sérstök dómnefnd fjögur lög til viðbótar. Af lög- unum fjórtán voru þrjú sem ekki komust á verðlaunapall, Nel blu di pinto di blu, sem Domenico Modugno söng 158 og lenti þá í þriðja sæti (almennt kallað Volare), Congra- tulations, sem Cliff Richard söng í annað sætið 1968, og Eres Tú sem hljómsveitin Mocedades söng 1973 og náði í annað sætið það ár. Afmælisútsendingin var svo áþekk því sem um raunverulega keppni væri að ræða og atkvæði talin frá dómnefndum og í símakosningu, en hálf þriðja milljón at- kvæða barst. Úrslitin urðu svo þessi (segir sitt um sess Johnnys Logans í Evróvisjónsögunni að hann átti tvö lög á listanum): Waterloo ABBA Nel blu dipinto di blu Domenico Modugno Hold Me Now Johnny Logan My Number One Helena Paparizou Save Your Kisses for Me Brotherhood of Man Fly on the Wings of Love Olsen Brothers Ein bisschen Frieden Nicole Congratulations Cliff Richard Every Way That I Can Sertab Erener Ne partez pas sans moi Celine Dion What’s Another Year? Johnny Logan Eres tú Mocedades Diva Dana International Poupée de cire, poupée de son France Gall Reuters Magnaðar Agnetu og Anni-Frid var varpað á risaskjá þegar menn mærðu Abba í Kaupmannahöfn í október 2005. Besta Evróvisjónlag allra tíma var niðurstaða dóm- nefndar og áheyrenda. Bestu Evróvisjónlögin Eurovision tilboð frítt 2L gos með

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.