Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 31
Morgunblaðið |31 ÞÓ EVRÓVISJÓN sé ekki pólitískt fyrirbæri við fyrstu sýn hefur þó sitthvað komið uppá í sögu keppn- ina. Þannig neitaði spænski söngv- arinn Joan Manuel Serrat að syngja kassagítarballöðuna La La La á spænsku 1968, hann vildi syngja lagið á katalónsku, móð- urmáli sínu. Einræðisherrann Fransisco Franco, sem þá réði lög- um og lofum á Spáni, aftók það með öllu og því varð að finna nýjan keppanda. Úr varð að Massiel söng lagið sem útsett var upp á nýtt, nú fyrir stóra hljómsveit, og sigraði í keppninni (með svikum segja sumir - Franco á að hafa keypt stigið sem vantaði til að leggja Cliff Richard). Nellikubyltingin var það kallað þegar herforingjastjórninni í Portúgal var steypt 1974. Fjöldi lýðræðissinna kom sér saman um valdaránið og sammæltust um að þegar Paulo de Carvalho byrjaði að syngja portúgalska lagið í Evr- óvisjón kvöldið 25. apríl myndu þeir láta til skarar skríða. Þótt nokkuð sé um liðið síðan þetta bar við eru fjölmörg nýleg dæmi um pólitískan skjálfta í Evró- visjón, síðast í keppninni 2005 þeg- ar úkraínsku keppendurnir breyttu texta lagsins Razom nas bagato vegna þess að skipuleggjendum keppninnar þótti hann of pólitískur og við lá að ísraelska laginu Push the Button sem Teapacks söng í síðustu Evróvisjónkeppni yrði vís- að úr keppni vegna pólitísks inni- halds. Svo má ekki gleyma því að að Sil- víu Nótt var hótað að lagi hennar yrði vísað úr keppni fyrir klúryrði í texta. Ekki beint pólitískt, en kannski má flotta það sem menn- ingarpólitíska deilu. Skipti Massiel, eða María de los Ángeles Santamaría Espinosa, kom í stað Jo- an Manuel Serrat sem var meinað að syngja á móðurmáli sínu, katalónsku. Evróvisjónpólitík Kraftmikil Bretar gerðu sér miklar vonir með Lulu og hún stóð undir væntingum og vel það - sigraði 1969 með hinu lærða lagi La La La. MENN deila iðulega hart um lög- in í Evróvisjón og sýnist sitt hverjum; sumir telja tónlista hreinasta afbragð en aðrir hörm- ung eins og gengur. Flestir eru þó sammála um að heiti laganna eru ansi oft eiginlega út úr kú, ótta- legt bull, þó að menn verði að vara sig á því að það sem okkur finnst hrognamál er kannski ekk- ert hrognamál – „Wadde hadde dudde da?“ þýðir „hvað ertu með?“ á þýskum mállýskum og „A-ba-ni-bi“ þýðir „ég elska þig“ á hebresku. Að því sögðu þá eru mörg heiti laganna sem komist hafa í úrslit í Evróvisjón óttalegt bull, sjá til dæmis „Voi voi“, „Tipi-tii“, „Diggi-loo diggi-ley“, „Sanomi“ og „Ninanajna“, að ógleymdu lag- inu „Sjúbídú“ sem Anna Mjöll söng svo eftirminnilega um árið. Þegar litið er yfir sérkennileg lagaheiti má glöggt sjá að frænd- ur okkar eru sérstaklega gefnir fyrir slíkt. Norðmenn hafa þannig sent í keppnina lög undir heit- unum „Do re mi“ og „Voi voi“, Finnar sendu inn lögin „Tipi-tii“, „Tom tom tom“, „Pump-pump“ og „Yamma-yamma“, Svíar státa af „Diggi-loo diggi-ley“ og „Boo- galoo“, og Danir af „Boom boom“. Tipi-tii, Tom tom tom og Diggi-loo diggi-ley Sætir Herreys hinir sænsku sungu lagið Diggi-loo, Diggi-ley, en enginn veit hvað þeir voru að segja. Partýbúðin Grensásvegi 8 Fu ll bú ð af f jö ri f yr ir Eu ro vi si on p ar tý ið Fu ll bú ð af f jö ri f yr ir Eu ro vi si on p ar tý ið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.