Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 26
Svíþjóð Íslendingar bera þungan hug til Svía í Evróvisjón síðan Charlotte Nilsson skaust framúr Selmu Björns- dóttur í Jerúsalem 1999. Charlotte Nilsson snýr nú aftur og syngur fyrir Svía lagið Hero. Sagan hermir að hún hafi þegar fallist á að keppa aftur þeg- ar hún heyrði lagið, en fram að því hafði hún oft verið beðin um að vera með en jafnan sagt nei takk. 26|Morgunblaðið Kýpur Kýpverska söngkonan Evdokia Kadi syngur lagið Femme Fatale fyrir Kýpur, en hún sigraði naumlega í söngkeppni kýpverska sjónvarpsins. Hún er bráðung og er víst með sína fyrstu breiðskífu í smíðum. Lettland Sjóræningjasveitin Pirates Of The Sea varð hlutskörpust í forkeppninni í Lettlandi með sænska lagið Wolves Of The Sea / Sæúlfar. Sveitina skipa dansstjarnan Aleksandra Kuru- sova, ævintýramaðurinn Janis Vaila og söngvarinn Roberto Meloni, sem hefur áður sungið á Evróvisjón; var í söngsveitinni Bonaparti.lv á síðasta ári, Hann er reyndar ítalskur en hefur bú- ið í Lettlandi síðustu árin. Sviss Paolo Meneguzzi syngur fyrir Sviss að þessu sinni, en lagið heitir Era Stupendo. Meneguzzi er ítölskumælandi og hefur verið tónlistaráhugamaður frá barsaldri. Hann mætti litlum skilningi hjá fjöl- skyldu sinni þegar hann hætti í fastri vinnu til að getahelgað sig söngnum en hefur spjarað sig bæri- lega í ítölskumælandi hluta Sviss og á Norður-Ítalíu. Einnig hefur honum geng- ið bráðvel í Suður- Ameríku. Tékkland Fulltrúi Tékka í Evr- óvisjón er söngkonan Tereza Kerndlová sem flytur lagið Have Some Fun. Segja má að hún sé alin upp í tónlist því faðir hennar er djasssöngvari og hún fylgdi honum á tónleikaferðum frá barnsaldri. Söngreynslu hefur hún meðal ann- ars frá því að syngja með föður sín- um frá átta ára aldri, en einnig af vinnu með Ivu Bittova. Kerndlová er víst liðtækur dansari líka; sex- faldur Tékklandsmeistri í dansi og Evrópumeistari og varð í öðru sæti á heimsmeistaramótin í steppi. Tyrkland Tyrkneska hljómsveitin Mor ve Ötesi treður upp fyrir Tyrki á Evróvisjón að þessu sinni. Hún hefur starfað í rúman áratug að mestu óbreytt og sent frá sér fimm breiðskífur sem gengið hafa harla vel í Tyrklandi, en sveitinni hefur líka verið vel tekið í Þýskalandi. Úkraína Úkraínska söng- konan Ani Lorak er gríð- arlega vinsæl í heimalandi sínu og hefur notið hylli í hálfan annan áratug að hún lét fyrst í sér heyra. Hún hét reyndar Karolina í eina tíð, en vendi nafninu og skipti því upp - Ani Lo- rak. Henni hefur verið sýndur margvíslegur sómi í heimalandi sínu og plöt- ur hennar hafa selst í milljónum eintaka, en eins var hún nýverið kjörin fegursta og kynþokka- fyllsta kona Úkraínu. Hún hefur einnig náð góðum árangri sem leikkona og hefur leikið í vinsælum kvikmyndum í Úkraínu, á að baki þrjár barnabækur og ljóðabækur og á og rekur veitingahús. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.