Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 28

Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 28
28|Morgunblaðið Bretland Bretar eru orðnir langþreyttir eftir Evróvisjóngulli og þær raddir verða æ háværari sem krefjast þess að þeir hætti að senda inn lög; það sé engin leið að vinna vegna austantjaldsmafíunnar. Hvað sem því líður þá hafa lögin sem þeir hafa sent undanfarin ár ekki verið burðug og flytj- endur sumir ekki beint fyrsta flokks. Þeir kusu nú Andy Abraham sem flytur lagið Even If sem Abraham samdi við þriðja mann. Hann hefur notið talsverðra vin- sælda á undanförnum árum þó fáir virðist þekkja hann utan Bretlands, en hann hef- ur gefið út tvær breiðskífur og er með þá þriðju í burðarliðnum. Spánn Spánverjar fóru þá nýstárlegu leið í lagavali að áhugasamir sendu inn lög á MySpace, en síðan var sigurlag valið í sjónvarpsþætti, lagið Baila El Chiki Chiki sem Rodolfo Chikilicu- atre flytur. Hann er reyndar argentínskur, en fluttist til Spánar fyrir nokkrum árum og hefur gert það gott þar í landi. Þýskaland Þjóðverjar hafa verið þekktir fyrir það að senda furðu- fugla í Evróvisjón og skemmst að minna kántrísveitarinnar Texas Lightning sem var meðal annars skipuð stjörnum úr grínþætti í þýska sjónvarpinu, nú eða Guido Horn og Stoðsokkana sem kepptu fyrir áratug. Að þessu sinni senda þeir hefðbundnari sveit, stúlk- nakvartettinn No Angels, sem syngur lagið Disappear. Þær stöllur slógu í gegn 2001 í Idol-keppni Þjóðverja, Popstars, og nutu hylli heima fyrir í kjölfarið, en tóku sér síðan þriggja ára hlé. Planið er að Evróvisjónsigur skjóti þeim aftur upp á stjörnuhimininn, enda nýútkomin ný breiðskífa. ÞJÓÐIRNAR fjórar sem greiða mest til EBU, Bretar, Þjóðverjar, Frakkar og Spánverjar, eru jafnan öruggar með sæti í úrslitum og að þessu sinni slást Serbar í för með þeim, sigurvegararnir í Evróvisjón 2007. Úrslitin 2008 Frakkland Tónsmiðurinn sérvitri Sebastien Tellier keppir fyrir Frakka á Evróvisjón að þessu sinni. Hann hefur getið sér orð fyrir tónsmíðar sínar og meðal annars hitað upp fyrir Air, Royksopp og Moby, en hann hefur líka unnið með Daft Punk og á eitt lag í kvikmynd þeirra Daft Punk bræðra, Electroma, aukinheldur sem Guy-Manuel Homem de Christo Daft Punk bóndi vann með honum plötuna Sexuality. Tellier syngur eigin lag, Divine, en það vakti miklar deilur í Frakklandi að textinn var nánast allur á ensku þó Tellier hafi lofað að snúa honum á móðurmálið að mestu. Serbía Serbar siguðu nokkuð örugglega í síðustu Evróvisjón-keppni og því mikil pressa á söngkonunni Jelena Tomaševic að feta í fótspor Marija Šerifovic á toppnum. Tomasevic syngur lagið Oro eftir Željko Joksimovic, en hann tók þátt fyrir Serbíu-Svartfjallaland 2004 og lenti í öðru sæti og samdi einnig Evróvisjónlag Bosníu Hersegóvínu sem varð í þriðja sæti 2006. Je- lena Tomaševic er þjálfuð í þjóðlagasöng en tók síðar upp poppsöng og hefur unnið til fjöl- margra verðlauna á því sviði. Hún varð önnur í undankeppninni í Serbíu á síðasta ári, en náði núna á toppinn með metfjölda stiga. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 NÚ KEPPAST menn við að spá umúrslitin í Evróvisjón, gera kann-anir, lesa í kaffibolla og spá í spil.Þýska ríkisútvarpið gekkst fyrir viðamikilli könnun í samvinnu við aðrar þýsk- ar og svissneskar sjónvarpsstöðvar og vefset- ur sem helguð eru Evróvisjón. Niðurstaðan var nokkuð afgerandi: Serbneska söngkonan Jelena Tomasevic er líklegust til sigurs. Tomasevic fékk stig frá nánast öllum þátt- takendum í könnuninni, eini þátttakandinn sem skoraði svo vel, en næst henni komu Króatía, Úkraína, Belgía og Írland. Ekki langt undan voru svo Portúgal, Búlgaría, Sviss, Rússland, Grikkland, Tyrkland, Nor- egur, Armenía, Ísland og Moldavía. Rússar sterkir Fleiri hafa spáð fyrir um úrslitin. Til að mynda telur bloggvefurinn eurovisionex- press að eftirtaldar þjóðir komist áfram 20.: Eistland, Aserbaídsjan, Noregur, Pólland, Bosnía-Hersegóvína, Armenía, Holland, Rúmenía, Rússland og Grikkland. Og 22. (keppnisdag Íslendinga) komist eft- irfarandi þjóðir áfram: Svíþjóð, Tyrkland, Úkraína, Sviss, Lettland, Króatía, Búlgaría, Georgía, Malta og Makedónía. Ísland 40/1 Veðmálafyrirtæki eru líka með sína lista yfir sigurlíkur laga og þar skora Rússar hæst, Serbía kemur næst, þá Armenía og Úkraína jöfn, svo Grikkland og Svíþjóð, sem líka eru jöfn. Athygki vekur hvað Bretar koma illa úr þessu mati, en samkvæmt veð- bönkum þar í landi eru líkurar á sigri Breta 250 á móti einum. Röðin er annars svo með líkunum fyrir aftan heiti viðkomandi lands: Rússland 7/2 Serbía 11/2 Úkraína 6/1 Armenía 13/2 Svíþjóð 12/1 Grikkland 14/1 Írland 22/1 Spánn 28/1 Tyrkland 28/1 Bosnía-Hersegóvína 33/1 Rúmenía 35/1 Búlgaría 40/1 Lettland 40/1 Ísland 40/1 Sviss 50/1 Noregur 66/1 Albanía 66/1 Georgía 75/1 Finnland 80/1 Malta 100/1 Frakkland 125/1 Ísrael 150/1 Bretland 250/1 Sigurstrangleg Serbneska söngkona Jelena Tomasevic. Rússar og Serbar rokka Frægur Margir veðja á rússneska söngv- arann Dima Bilan, enda er hann vinsæll vel í heimalandi sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.