Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 29
Morgunblaðið |29
EVRÓVISJÓN, söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöða, er eitt stærsta verkefni hvers
árs hjá Sjónvarpinu og var eiginlega meira að
vöxtum núna en nokkru sinni fyrr og útsend-
ingin á undankeppninni í Laugardagslög-
unum gríðarlega vinsælt sjónvarpsefni.
Fjölmargir koma að keppninni hér heima
en það fer líka allstór hópur utan; flytjendur,
nema hvað, Friðrik Ómar og Regína Ósk,
lagasmiðurinn Örlygur Smári og aðstoðarfólk,
kynnir, sem verður Sigmar Guðmundsson nú
líkt og í síðustu keppni, fararstjórinn Jónatan
Garðarsson, og myndstjóri vegna útsending-
arinnar hingað, alls 16 manna hópur. Einnig
sendir Kastljósið fréttamann út en sá er ekki
hluti af eiginlegum Evróvisjónfarahóp.
Páll Óskar fjarri góðu gamni
Að sögn talsmanna Sjónvarpsins er stærð
hópsins áþekk og undanfarin ár, en einn
komst þó ekki með, textasmiðurinn Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson, enda er hann svo önnum
hlaðinn að hann komst ekki út.
Á myndunum sem hér sjást má sjá Evró-
bandið á æfingu í Belgrad, en segja má að
hver mínúta sé skipulögð þá daga sem hópur-
inn er ytra, því stöðugt er unnið að því að geta
atriðið betra úr garði, slípa saman flutning og
lag, aukinheldur sem mæta þarf í viðtöl og
sinna ýmislegu kynningarstarfi.
Reuters
Glæsilegt Ekkert er til sparað til að gera Evróvisjón 2008 sem best úr garði eins og sjá má á þessari mynd af Eurobandinu á æfingu á sviðinu í íþróttahöllinni í Belgrad.
Fjörug Þau Regína Ósk og Friðrik Ómar hafa verið i miklu stuði á æfingum Eurobandsins í
íþróttahöllinni miklu, en hún rúmar um 23.000 manns og er með stærstu íþróttahöllum Evrópu.
Fjölmenn sendinefnd