Morgunblaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Vinnutími er milli kl. 08-17 á reyklausum vinnustað.
Boðið er upp á starf á fullkomn-
asta rafeindaverkstæði á sínu
sviði hérlendis, við hlið hæfustu
manna með áratuga reynslu
í þjónustu á ofangreindum
búnaði. Gott vinnuumhverfi
og nýjasti tækjabúnaður er til
staðar. Námskeið í þjónustu
á búnaðinum eru haldin bæði
hérlendis og erlendis.
Starfið felst einkum í upp-
setningu vélstýringa í vinnu-
vélar. Búnaðurinn byggir m.a. á
GPS, laser eða alstöðvatækni.
Viðkomandi starfsmaður hefur
samskipti við viðskiptavini
fyrirtækisins varðandi þjónustu
og leiðbeiningar um notkun
tækjanna.
Leitað er að drífandi laghentum
og þjónustulunduðum einstak-
lingi sem er fljótur að tileinka sér
nýjungar og getur unnið undir
miklu álagi á álagstímum. Gott
vald á ensku og tölvukunnátta
er skilyrði. Til greina koma t.d.
vélvirkjar, rennismiðir, vélstjórar
og aðrir með góða reynslu af
vinnu við vinnuvélar eða aðra
járna eða vélavinnu. Leitað er
að einstaklingi sem getur hafið
störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veitir Jón Tryggvi í síma 5105100.
Umsóknir sendist á tölvupósti á póstfangið jon@ismar.is ásamt upplýsingum
um umsækjanda fyrir 2. júní 2008.
VEGNA AUKINNA UMSVIFA OG MIKILLAR VINNU VIÐ UPPSETNINGAR
Í VINNUVÉLAR, ÓSKUM VIÐ EFTIR AÐ RÁÐA TÆKNIMANN
Ísmar, sem var stofnað 1982, er
sérhæft fyrirtæki á sviði hvers konar
mælingatækni s.s. GPS, alstöðvum
eða lasertækni. Fyrirtækið býður
heildarlausnir hátæknibúnaðar fyrir
verktaka, verkfræðistofur, jarðvísinda-
menn og ýmis ríkisfyrirtæki á sviði
mælitækni og vélstýringa auk um-
ferðaröryggisbúnaðar fyrir löggæslu,
sveitarfélög, verktaka o.fl.
Ísmar er umboðsaðili fyrir framleið-
endur sem eru leiðandi á sínu sviði
í heiminum.
Við mælum með því besta
Ísmar :: Síðumúla 28 :: 108 Reykjavík
Sími 510 5100 :: ismar@ismar.is
Tónlistarskóli Árnesinga
Píanókennari
í uppsveitum Árnessýslu
Gítarkennari
á Selfossi
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til
starfa píanókennara í fullt starf í uppsveitum
Árnessýslu (Flúðir, Reykholt, Þjórsárskóli) og
gítarkennara í hlutastarf á Selfossi.
Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma
482 1717 eða 861 3884.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2008. Senda má
fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti á
tonar@tonar.is
Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsin
með starfsemi á 11 kennslustöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um
600 og starfa 30 kennarar við skólann.
mest í löndum Vestur-Evrópu
þar sem Skandinavía og Bene-
lux-löndin hafi trónað á toppn-
um.
„Umtalsverð aukning hefur
einnig orðið í Bretlandi og Ír-
landi en Tyrkland bættist í hóp-
inn árið 2006. Í dag eru 7 af
hverjum 10 drykkjarílátum gerð
úr áli. Endurvinnsla áldósa held-
ur áfram að vera mikil, eða í
kringum 92% í löndum sem hafa
úrræði til þess sbr. Sorpa á Ís-
landi. Gríðarlegur orkusparn-
aður fylgir endurvinnslu áls og
er hægt að spara upp undir 95%
af orku með endurvinnslu. Hið
endurunna ál er notað t.d. við
framleiðslu nýrra bíla, í vél-
arhluta, byggingarklæðningar
og reiðhjól. Í Evrópu kemur um
helmingur áls sem notað er í
drykkjardósir úr endurunnu áli.
Þetta samsvarar spörun á 8 kg af
gróðurhúsalofttegundum á hvert
framleitt tonn af áli,“ segir m.a. í
tilkynningunni.
Heildarendurvinnsla áldósa í
Vestur-Evrópu jókst umtals-
vert árið 2006 og stendur nú í
57,7%, að því er fram kemur á
vefsíðu Alcans á Íslandi.
Átaksherferðir
Aukningin telur nærri 6%
samanborið við 52% heildar-
endurvinnslu árið 2005. Í
fréttatilkynningu fyrirtækisins
segir að þessa þróun megi
nærri eingöngu rekja til
átaksherferða og skipulagðra
aðgerða til að auka endur-
vinnslu í Evrópu.
„Heildarfjöldi/notkun áld-
rykkjardósa í Evrópu hefur
aukist úr 25,1 milljarði dósa
upp í 28,3 milljarða dósa með
68% markaðshlutdeild
drykkjaríláta. Í Mið- og Austur-
Evrópu hefur heildarnotkunin
aukist um 1,4 milljarð áldósa og er
nú 10 milljarðar dósa árlega, sem
er aukning um 15% miðað við árið
2005.“
Í fréttatilkynningunni segir enn-
fremur að markaður áld-
rykkjardósa hafi stækkað sífellt,
Endurvinnsla áldósa nálægt 60%
Aukning Heildarendurvinnsla áldósa í
Vestur-Evrópu hefur aukist umtalsvert.
Föstudaginn 30. maí mun EURES,
samevrópsk vinnumiðlun sem rekin
er á vegum Vinnumálastofnunar,
efna til ráðstefnu þar sem fjallað
verður um fyrirséðan skort á sér-
fræðingum og samkeppni um hæf-
asta fólkið á EES-svæðinu. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu á
vefsíðu Samtaka atvinnulífsins.
Í tilkynningu frá EURES segir að
ein helsta áskorun evrópsks vinnu-
markaðar í framtíðinni verði að laða
til sín hæfa sérfræðinga og stjórn-
endur á alþjóðavísu, m.a. vegna öldr-
unar þjóða Evrópu. Er þetta talin
ein meginforsenda áframhaldandi
hagvaxtar og samkeppnishæfni
svæðisins.
Ráðstefnan markar upphaf sam-
starfs EURES á Íslandi, Noregi, Ír-
landi og Danmörku um aðgerðir til
að laða til landanna sérhæft starfs-
fólk. Þróunin í löndunum hefur um
margt verið svipuð. Mikil þensla hef-
ur verið á vinnumarkaði og framboð
á starfsfólki ekki haldið í við eftir-
spurn. Því hefur verið mætt með
vinnuframlagi erlends starfsfólks frá
nýju aðildarríkjum ESB. EURES
segir að nú sé þörfin á sérhæfðu
starfsfólki að verða meira aðkallandi
og munu forstöðumenn EURES í
fyrrgreindum löndum fara yfir stöðu
mála og ástand á vinnumarkaði.
Ráðstefnan er haldin á Flughót-
elinu í Keflavík hinn 30. maí nk. og
hefst kl. 9. Ráðstefnan fer fram á
ensku og eru allir velkomnir, að því
er segir í tilkynningunni.
Framtíðarhorfur á evr-
ópskum vinnumarkaði
Morgunblaðið/Kristinn