Morgunblaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Traustur
einstaklingur
Foreldrar einhverfs unglings óska að ráða
traustan einstakling í hlutastarf. Starfið felst
í umönnun sonar okkar sem er ljúfur og
þægilegur í umgengni. Vinnutími þarf að
vera sveigjanlegur og viðkomandi þarf
meðal annars að geta annast unglinginn í
nokkra daga í senn vegna ferðalaga foreldr-
anna. Manngæska æskilegri en önnur
hæfisskilyrði. Sérstakrar fagþekkingar er
ekki krafist. Góðir hæfileikar í mannlegri
umgengni eru nauðsynlegir. Gæti hentað
námsmanni eða góðri ,,ömmu”. Ítarlegar
upplýsingar um umsækjanda ásamt með-
mælum óskast sendar:
traustureinstaklingur@gmail.com
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Frá Kársnesskóla
Laus störf skólaárið 2008-2009:
• Sérkennari
• Þroskaþjálfi
• Stærðfræðikennari á unglingastig
• Náttúrufræðikennari á unglingastig
• Umsjónarkennari á miðstig
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og KÍ.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Guðrún Pétursdóttir,
í síma 570 4100 og 898 4107.
Hvetjum konur jafnt sem
karla til að sækja
um störfin
Landbúnaðarháskóli Íslands
Verkefnisstjóri
ylræktarrannsókna
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) auglýsir eftir sérfræðingi
til þess að taka að sér verkefnisstjórn á sviði ylræktarrann-
sókna. Um er að ræða sameiginlegt átaksverkefni til næstu
fjögurra ára milli Landbúnaðarháskóla Íslands og Sambands
garðyrkjubænda í nánu samstarfi og með faglegum stuðn-
ingi Martens Trädgårdsstiftelse í Finnlandi. Rannsóknarsam-
starfið mun fyrst og fremst beinast að þáttum er snúa að
aðlögun nýrrar tækni við raflýsingu í ylrækt annars vegar og
umhverfisstýringu í lokuðum eða hálflokuðum gróðurhúsum
hins vegar. Rannsóknir verða unnar í tilraunagróðurhúsi LbhÍ
á Reykjum í Ölfusi og hjá samstarfsaðilanum í Finnlandi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistara- eða doktorspróf á sviði náttúrufræði, verk- og
tæknifræði eða skyldra greina.
Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Góðir skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt.
Um fullt starf er að ræða og eru launakjör samkvæmt kjara-
samningi opinberra starfsmanna. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Áslaug
Helgadóttir, prófessor við LbhÍ (aslaug@lbhi.is) í síma 843-
5325. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2008. Upplýsingar um
Landbúnaðarháskóla Íslands má nálgast á www.lbhi.is.
Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum upplýsingum skal
skilað til Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311,
Borgarnes eða með tölvupósti til Hafdísar Pétursdóttur
(hafdis@lbhi.is).
www.lbhi.is
Háskóli í hörkusókn
Sérfræðingur á deild náttúruverndar
Meginstarfssvið sérfræðingsins eru umsagnir vegna
skipulagsáætlana, mats á umhverfisáhrifum, umhverfismats
áætlana auk annarra umsagna sem tengjast lögbundnu
hlutverki stofnunarinnar. Sérfræðingurinn mun starfa í
verkefnateymi Umhverfisstofnunar um framangreinda
starfsþætti.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu eru
hafðar til viðmiðunar við val á umsækjendum:
Háskólamenntun á sviði náttúruvísinda, t.d. líffræði,
landfræði, jarðfræði eða umhverfisfræði
Þekking og/eða reynsla á starfssviðinu
Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlandamáls
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er deildarstjóri
náttúruverndar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðríður Þorvarðar-
dóttir deildarstjóri og Hjalti J. Guðmundsson sviðsstjóri,
sími 591 2000.
Sérfræðingur á deild hollustuverndar
Sérfræðingurinn mun vinna að verkefnum er varða förgun,
endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs og eru á verksviði
Umhverfisstofnunar. Í þeim felst m.a. vinna við stefnumótun
og áætlanagerð, öflun og úrvinnsla gagna, gerð fræðslu-
efnis, starfsleyfa og eftirlit. Sérfræðingurinn mun starfa í
verkefnateymi stofnunarinnar um framangreinda
starfsþætti.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu eru
hafðar til viðmiðunar við val á umsækjendum:
Háskólamenntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða
raunvísinda. Framhaldsmenntun æskileg
Þekking og/eða reynsla af umhverfismálum og opinberri
stjórnsýslu
Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlandamáls
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er deildarstjóri
hollustuverndar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Elín G. Guðmundsdóttir
deildarstjóri og Gunnlaug Einarsdóttir sviðsstjóri,
sími 591 2000.
Lögfræðingur á sviði laga- og stjórnsýslu
Meginstarfssvið lögfræðingsins verður undirbúningur
stjórnvaldsákvarðana, gerð tillagna tengdum löggjöf
Evrópusambandsins, undirbúningur reglugerða, umsagnir
um þingmál, umsagnir um stjórnsýslukærur auk leiðbein-
inga og ráðgjafar um önnur lögfræðileg málefni á verkefna-
sviði stofnunarinnar. Gert er ráð fyrir nánu samstarfi við
önnur svið stofnunarinnar en starfið felur einnig í sér
samskipti við ráðuneyti, hliðsett stjórnvöld, stjórnvöld á
sveitarstjórnarstigi og eftir atvikum alþjóðastofnanir. Sviðið
ber ábyrgð á eftirliti með lögfræði- og stjórnsýsluþáttum
innan stofnunarinnar.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu eru
hafðar til viðmiðunar við val á umsækjendum:
Kandídatspróf eða meistarapróf í lögfræði
Þekking á stjórnsýslurétti, umhverfisrétti og Evrópurétti
Reynsla af opinberri stjórnsýslu
Þverfagleg þekking á umhverfismálum
Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlandamáls
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er sviðsstjóri sviðs laga
og stjórnsýslu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigrún Valgarðsdóttir
starfsmannastjóri og Kristín Linda Árnadóttir forstjóri,
sími 591 9100.
Við val á umsækjendum um ofangreind störf verða
eftirfarandi kröfur um hæfni hafðar til viðmiðunar:
Tekur ákvarðanir og fylgir þeim eftir
Sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Er skipulagður og með ríka þjónustulund
Sýnir lipurð í mannlegum samskiptum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.
Æskilegt er að starfsmenn geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir um störfin skulu sendar til Umhverfisstofnunar,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið
ust@ust.is eigi síðar en 21. apríl 2008.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á www.ust.is
Umhverfisstofnun auglýsir starf lögfræðings og störf tveggja sérfræðinga laus
til umsóknar. Í boði eru störf með margvíslegum þróunarmöguleikum hjá nýlega
endurskipulagðri stofnun þar sem lögð er áhersla á sterka liðsheild, metnað og
fagmennsku í starfi.
Umhverfisstofnun
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími: 591-2000
Fax: 591-2020
Veffang: www.ust.is
Netfang: ust@ust.is
Njótum umhverfisins og stöndum vörð um það saman.