Morgunblaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Leikskólastjóri óskast til starfa hjá Húnavatnshreppi Húnavatnshreppur auglýsir eftir leikskólastjóra við nýjan leikskóla á Húnavöllum. Starfsemi leikskólans hefst í haust. Æskilegt er að leik- skólastjóri geti hafið störf þann 1. ágúst 2008. Húnavatnshreppur er nýtt sveitarfélag sem varð til við sameiningu fimm sveitahreppa í Austur-Húnavatnssýslu. Íbúar í Húnavatns- hreppi eru um 450. Grunnskóli er starfræktur á Húnavöllum. Leitað er eftir starfskrafti með leikskólakennara- menntun, góða skipulagshæfileika, hæfni í mannlegum samskiptum og metnað til að taka þátt í mótun á nýju starfi hjá Húnavatnshreppi. Leikskólinn er ein deild, en einnig er áætlað að í leikskólanum sé aðstaða fyrir vistun barna í fjórum yngstu bekkjum grunnskóla í allt að sjö tíma á viku. Þegar starfstími leikskóla hefst er gert ráð fyrir að leikskólastjóri vinni megnið af starfstíma sínum á deild. Greiddur er flutningsstyrkur. Íbúðarhúsnæði er til staðar. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnavatnshrepps í síma 452 4660, 452 4661, netfang hunavatnshreppur@emax.is. Skriflegum umsóknum skal skilað á skrifstofu Húnavatnshrepps á Húnavöllum. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2008. Húnavatnshreppur Húnavöllum, 541 Blönduós. Vatnamælingar leita að sérfræðingi á sviði straumfræði til starfa við rannsóknir og gagnaúrvinnslu. Viðkomandi getur hafið störf strax. Í boði er fjölbreytt og krefjandi framtíðarstarf þar sem unnið er að rannsóknum og mælingum á vatna- fari. Starfið felst m.a. í: • Umsjón með gerð straumfræðilegra líkana til notkunar m.a. við gerð rennslis- lykla og mat á áhrifum íss á vatnshæðar- og rennslisgögn. • Gerð og gæðaeftirliti rennslislykla, m.a. vegna flóðaathugana og athugana á þurrðum, svo og við túlkun ístruflana. • Vatnafræðilegri líkangerð. • Úrvinnslu mæligagna og skýrslugerð. Sérfræðingnum er ætlað að taka þátt í að móta stefnu í rannsóknum og mæling- um og vinna með sérfræðingum frá ýmsum sviðum, bæði sjálfstætt og í hópum. Starfið krefst útivinnu við mælingar og mælikerfisrekstur. Hæfniskröfur: • Verkfræðingur, tæknifræðingur eða sambærileg menntun. • Fagleg vinnubrögð, áhugi og metnaður. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi. Vatnamælingar leita að sérfræðingi á sviði aurburðarrannsókna til starfa við rannsóknir og gagnaúrvinnslu. Viðkomandi getur hafið störf strax. Í boði er fjöl- breytt og krefjandi framtíðarstarf þar sem unnið er að rannsóknum og mælingum á aurburði í ám. Starfið felst m.a. í: • Mælingum á aurburði í íslenskum ám og úrvinnslu mæligagna. • Skýrslugerð um mælingar. • Umsjón með rannsóknum á aurburði • Umsjón með gagnagrunnum um aurburð Sérfræðingnum er ætlað að taka þátt í að móta stefnu í aurburðarmælingum og vinna með sérfræðingum frá ýmsum sviðum, bæði sjálfstætt og í hópum. Starfið krefst útivinnu við mælingar. Hæfniskröfur: • Jarðfræðingur með framhaldsgráðu eða sambærileg menntun. • Fagleg vinnubrögð, áhugi og metnaður. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi. Vatnamælingar leita að sérfræðingi á sviði reksturs vatnafarsmælikerfa. Við- komandi getur hafið störf strax. Í boði er fjölbreytt og krefjandi framtíðarstarf þar sem unnið er að mælingum á vatnafari með nýjustu tækni. Viðkomandi mun taka þátt í að móta stefnu í mælingum og vinna með sérfræðingum frá ýmsum sviðum, bæði sjálfstætt og í hópum. Starfinu fylgir útivinna við mælingar og mælikerfisrekstur. Starfið felst m.a í: • Umsjón með rekstri, viðhaldi og uppbyggingu vatnshæðarmæla og mælikláfa. • Umsjón með mælingavinnu. • Umsjón með úrvinnslu og endurskoðun gagna, rennslislyklagerð og mati á áreiðanleika gagna, stuðla að faglegum vinnubrögðum. • Uppfærsla yfirlits um nauðsynlegar endurbætur á mælakerfinu á hverjum tíma og tillögugerð um nýjar mælingar eða mæliaðferðir, sem stuðla að auknu rekstraröryggi, öryggi starfsmanna og aukinni hagræðingu í rekstri kerfisins. • Fjareftirlit með vatnafari og tengdum umhverfisþáttum. • Eftirlit með innsetningu og meðhöndlun mæligagna. • Samstarf um aðrar mælingar á vatnafari og tengdum umhverfisþáttum. Hæfniskröfur: • Verkfræðingur, tæknifræðingur eða sambærileg menntun. • Fagleg vinnubrögð, áhugi og metnaður. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi. Við val á umsækjendum verður reynsla af rekstri mælikerfa talinn kostur. Hlutverk Vatnamælinga er að veita almenningi, fyrirtækjum og hinu opinbera áreiðanlegar upplýsingar um vatnafar og vatnsbúskap. Orkustofnun stefnir að því að auka hlutfall kvenna og yngra fólks í starfsliði sínu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um starfið veita starfsmannastjóri Orkustofnunar, forstöðu- maður Vatnamælinga og sviðsstjórar Vatnamælinga. Sími Orkustofnunar er 569- 6000. Sérfræðingur á sviði aurburðarrannsóknaa Sérfræðingur á sviði straumfræði Sérfræðingur á sviði vatnamælinga Lögfræðingur Félag íslenskra stórkaupmanna óskar að ráða í starf lögfræðings. Lögfræðingur heyrir undir framkvæmdastjóra félagsins og vinnur náið með honum að hagsmunamálum aðildar- fyrirtækja félagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Lögfræðingur ber ábyrgð á úrlausn lögfræðilegra álitamála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins, auk gerð kjarasamninga og umsagna um lagafrumvörp. Æskileg menntun og reynsla:  Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði skilyrði  Menntun og reynsla sem nýtist í vinnuréttarmálum  Menntun og reynsla sem nýtist í stjórnsýslu- og samkeppnismálum  Menntun og reynsla sem nýtist í málum tengdum útboðum og innkaupum opinberra aðila. Hæfniskröfur:  Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna  Sjálfstæð vinnubrögð  Hæfni í samskiptum  Færni í rituðu máli  Tungumálakunnátta Félag íslenskra stórkaupmanna eru hagsmuna- samtök lítilla sem stórra fyrirtækja í inn- og útflutningi, heildsölu og smásölu. Hlutverk félagsins er að gæta hagsmuna aðildarfyrirtækja sinna með því að vera framvörður heilbrigðra verslunarhátta sem tryggir réttlátar leikreglur í samkeppni og eflir hag verslunar á Íslandi. Nánari upplýsingar veitir Knútur Sigmarsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 588 8910 og netfanginu: knutur@fis.is. Áhugasömum er jafnframt bent á heimasíðu félagsins, www.fis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.