Morgunblaðið - 25.05.2008, Page 13

Morgunblaðið - 25.05.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2008 B 13 Skrifstofustjóri á skrifstofu orkumála Í iðnaðarráðuneyti er laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu orkumála. Ráðuneytið er áhugaverður og krefjandi vinnu- staður, sem starfar í þremur skrifstofum; skrif- stofu orkumála, ferðamála og nýsköpunar og þróunar, auk þjónustusviðs. Undir skrifstofu orkumála falla auðlinda- og orkumál. Helstu verkefni skrifstofunnar eru undirbúningur stefnumótunar í ofangreindum málaflokkum, samráð og samskipti við stofn- anir og hagsmunaaðila, úrskurðir, álitsgerðir, alþjóðleg samskipti og ráðgjöf til ráðherra. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólamennt- un sem nýtist í starfi. Gerð er krafa um sér- þekkingu og reynslu á sviði auðlinda- og orku- mála. Einnig er víðtæk þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu og af innleiðingu EES-gerða mikilvæg. Um er að ræða fullt starf sem áformað er að skipa í frá 1. júlí nk. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs sbr. lög um kjararáð nr. 47/2006. Nánari upplýsingar veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri (kristjan.skar- phedinsson@idn.stjr.is). Einnig er bent á heimasíðu ráðuneytisins: http:\\www.idnadar- raduneyti.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að skila umsóknum sínum til iðnaðarráðuneytisins, 150 Arnarhvoli, Reykjavík. Við stöðuveitingar í iðnaðarráðuneytinu eru jafnréttissjónarmið höfð í huga og hvetur ráðuneytið því konur jafnt sem karla til að sækja um auglýst störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipan hefur verið tekin. Iðnaðarráðuneytið. Segavarnir LSH - Sérhæfður starfsmaður Laus eru sérhæfð klínísk störf við umsjón segavarna Landspítala á blóðmeinafræðideild. Störfin felast í umsjón með sega- vörnum blóðþynntra sjúklinga, sem taka warfarin og önnur segavarnarlyf. Skömmtunin byggir á alþjóðlegum ráðlegging- um, þverfaglegu samstarfi, klínískum upplýsingum og niðurstöðum storkuprófa og sérhæfðu tölvukerfi. Störfunum fylgir þátttaka í vísinda-og þróunarstarfi. Æskileg menntun er hjúkrunarfræði, lífeindafræði eða lyfjafræði. Starfshlutfall er samkomulag. Umsóknir berist rafrænt fyrir 9. júní 2008 til Páls Torfa Önundarsonar, yfirlæknis, netfang pallt@landspitali.is og veitir hann jafnframt upplýsingar í síma 543 5010. Hjúkrunarfræðingur, næturvaktir Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir. Starfið felur í sér stjórnun og skipulagningu hjúkrunar á næturvöktum á 2-3 sjúkradeildum Landakots. Á deildunum eru skjólstæðingar með margvísleg heilsufarsvandamál. Starfshlutfall er sam- komulagsatriði. Umsóknir berist rafrænt fyrir 9. júní 2008 til Lúðvíks H. Gröndal, deildarstjóra, netfang ludvikg@landspitali.is og veitir hann upplýsingar um starfið í síma 543 9883. Sérfræðingur í skurðhjúkrun Laus er til umsóknar staða sérfræðings í skurðhjúkrun á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Staðan veitist frá og með 15. júní 2008. Starfið tengist öllum skurðstofudeildum svæfinga-, gjör- gæslu- og skurðstofusviðs á LSH. Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk er stuðningur og ráðgjöf um hjúkrun á skurðsto- fu, ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsókna- og þróunarvinnu. Ennfremur felur starfið í sér uppbygg- ingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. Sérfræðingur í skurðhjúkrun vinnur að þróun hjúkrunar í viðkomandi sérgrein ásamt sviðsstjóra. Sérstök áhersla verður á næstu misserum lögð á öryggi sjúklinga og starfsmanna ásamt skipulagningu og þróun teymisvinnu. Umsækjendur skulu hafa lokið meistara- eða doktorsprófi og hafa hlotið sérfræðileyfi í skurðhjúkrun í samræmi við reglu- gerð nr. 124/2003 um sérfræðileyfi í hjúkrun. Með umsókn skal leggja fram skrá yfir náms- og starfsferil ásamt gögnum um vísindastörf og ritsmíðar og afrit af próf- skírteinum, hjúkrunarleyfi og sérfræðileyfi í hjúkrun. Mat á umsækjendum byggist m.a. á innsendum gögnum og viðtali. Umsóknir berist fyrir 9. júní 2008 til skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík, netfang ann- astef@landspitali.is. Upplýsingar veita Helga Kristín Einarsdóttir, sviðsstjóri, í síma 543 7344, netfang helgakei@landspitali.is og Anna Stefáns- dóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, í síma 543 1109, netfang annastef@landspitali.is. Sérfræðingur í svæfingahjúkrun Laus er til umsóknar staða sérfræðings í svæfingahjúkrun á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Staðan veitist frá og með 15. júní 2008. Starfið tengist öllum svæfingadeildum svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviðs á LSH. Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk er stuðningur og ráðgjöf um hjúkrun á svæfinga- deildum, ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsókna- og þróunarvinnu. Ennfremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. Sérfræðingur í svæfingahjúkrun vinnur að þróun hjúkrunar í viðkomandi sérgrein ásamt sviðsstjóra. Sérstök áhersla verður á næstu misserum lögð á öryggi sjúklinga og starfsmanna ásamt skipulagningu og þjálfun í hermi. Umsækjendur skulu hafa lokið meistara- eða doktorsprófi og hafa hlotið sérfræðileyfi í svæfingahjúkrun í samræmi við reglugerð nr. 124/2003 um sérfræðileyfi í hjúkrun. Með umsókn skal leggja fram skrá yfir náms- og starfsferil ásamt gögnum um vísindastörf og ritsmíðar og afrit af próf- skírteinum, hjúkrunarleyfi og sérfræðileyfi í hjúkrun. Mat á umsækjendum byggist m.a. á innsendum gögnum og viðtali. Umsóknir berist fyrir 9. júní 2008 til skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík, netfang ann- astef@landspitali.is. Nánari upplýsingar veita Helga Kristín Einarsdóttir, sviðsstjóri, í síma 543 7344, netfang helgakei@landspitali.is og Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, í síma 543 1109, netfang annastef@landspitali.is. Skurðhjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðingar Skurðhjúkrunarfræðingar/ hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á skurðstofur 12-C-D við Hringbraut og skurðstofur kvenna- deildar LSH. Starfshlutfall eftir samkomulagi. Starfið felur í sér að veita einstaklingshæfða hjúkrun við þá einstaklinga sem þurfa að gangast undir skurðaðgerðir. Deildin sérhæfir sig í aðgerðum tengdum almennum skurðaðgerðum, þvag- færaaðgerðum, augnaðgerðum, barnaaðgerðum, hjartaaðgerðum, aðgerðum tengdum fæðingum, kvensjúkdómum og aðgerðum á brjóstum. Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun og fræðsla, starfsumhverfi sem hvetur til starfsþróunar, já- kvætt andrúmsloft og teymisvinna þar sem markmið er að veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra bestu mögu- lega þjónustu. Umsóknir berist fyrir 9. júní 2008 til Erlínar Óskarsdóttur, deildarstjóra hjúkrunar, 12CD Hringbraut, netfang erlin@landspitali.is og veitir hún upplýsingar í síma 825 3588. Svæfingahjúkrunarfræðingur Svæfingahjúkrunarfræðingur óskast til starfa á svæfingadeild 12 CD við Hringbraut. Starfshlutfall eftir samkomulagi. Starfið felur í sér að veita einstaklingshæfða hjúkrun við þá einstaklinga sem þurfa að gangast undir skurðaðgerðir. Starfsemi deildarinnar er mjög fjölbreytt, þar eru framkvæmdar svæfingar vegna almennra-, brjósthols-, þvagfæra-, barna-, kvensjúkdóma- og augnaðgerða. Í boði er einstaklingshæfð aðlögun og fræðsla, starfsumhverfi sem hvetur til starfsþróunar, jákvætt andrúmsloft og teymisvinna þar sem markmið er að veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra bestu mögu- lega þjónustu. Umsóknir berist fyrir 9. júní 2008 til Margrétar Jónasdóttur, deildarstjóra hjúkrunar, 12CD Hringbraut, netfang mar- gjona@landspitali.is og veitir hún upplýsingar í síma 543 7202, 824 5226. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýs- ingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður Aría ehf . óskar eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf Leitum eftir duglegum og jákvæðum einstaklingi með góða tölvu- og ensku- kunnáttu. Kristín Þórsdóttir tekur við umsóknum, netfang: kristín@aria.is Sími 544 8448. KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is Sérfræðingur í fjármáladeild • Kópavogsbær óskar eftir að ráða sér- fræðing í fjármáladeild á fjármála- og stjórnsýslusviði. Sérfræðingur í fjármáladeild mun m.a. vinna við ýmis fjárhagsuppgjör, gerð fjárhagsáætl- ana og hafa umsjón með upplýsingamiðlun úr fjárhagskerfum bæjarins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræðingur af fjármála- eða endurskoðunarsviði • Mjög góð excel kunnátta skilyrði • Góð þekking á Navision fjárhagskerfi • Sjálfstæð vinnubrögð og góðir sam- skiptahæfileikar Nánari upplýsingar veitir Guðrún Pálsdóttir, fjár- mála-og hagsýslustjóri Kópavogsbæjar í síma 5701500. gudrunp@kopavogur.is Umsóknum með ferilskrá skal skilað á rafrænu formi á netfangið starfsmannastjori@kopavogur.is Umsóknum skal skila fyrir 31. maí n.k. Starfsmannastjóri. Málmiðnaðarmenn Við leitum að starfskröftum í málmsmíði. Teknís ehf er framsækið málmiðnaðarfyrirtæki sem starfar við nýsmíði og viðhald mannvirkja og vélbúnaðar. Ef þú ert tilbúinn að ganga til liðs við samhentan hóp og takast á við spen- nandi verkefni, kíktu þá á heimasíðu okkar www.tekn.is og sendu inn starfsumsókn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.