Morgunblaðið - 25.05.2008, Side 18

Morgunblaðið - 25.05.2008, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Starfskraftur óskast í sælkeraverslun Við óskum eftir starfskrafti í fullt starf í af- greiðslu í Ostabúðinni á Skólavörðustíg. Æskilegt að hafa reynslu af afgreiðslustörfum og góða þjónustulund. Viðkomandi mun hefja störf um mánaðarmót ágúst/september. Umsókn og ferilskrá sendist á ostabudin@ostabudin.is 1/2 staða kennara 1/2 staða kennara er laus við Finnbogastaða- skóla, Árneshreppi. Greinar: Smíði, hand- mennt, myndmennt, íþróttir, heimilisfræði, tónmennt og lífsleikni. Laun skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga. Uppl. veitir skóla- stjóri í síma 451 4026 eða finnbs@ismennt.is Umsóknarfrestur er til 10. júní. Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 650 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi VEGNA VERKEFNA VIÐ KÁRAHNJÚKA- VIRKJUN ÓSKAR ÍSTAK EFTIR AÐ RÁÐA Í EFTIRTALIN STÖRF: TÆKJASTJÓRNENDUR ÍSTAK óskar eftir að ráða vana tækjastjórnendur til starfa við fram- kvæmdir á Kárahnjúkum. Um er að ræða stjórnun á jarðýtum, gröfum og fleira. Í boði er mikil vinna við fjölbreytt verkefni. TRÉSMIÐIR ÍSTAK óskar eftir að ráða trésmiði, vana mótauppslætti, til starfa við framkvæmdir á Kárahnjúkum. Í boði er mikil vinna við fjölbreytt verkefni. JARÐFRÆÐINGAR ÍSTAK óskar eftir að ráða jarðfræðing til starfa við jarðvegsrannsóknir vegna stíflugerða og kortlagningu bergs. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sambærilegum störfum. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýs- ingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsemenn sem þú þarft að ná í. Óskað er eftir öflugum mannauðsráðgjafa til starfa í mannauðsþjónustu sviðsins. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi starf í metnað- arfullu og skemmtilegu starfsumhverfi, þar sem hæfi- leikar starfsmanna fá notið sín. Við bjóðum upp á þátt- töku í þróun starfsumhverfis og verkefna og tækifæri til símenntunar og starfsþróunar. Helstu verkefni: • Veita ráðgjöf um símenntun og annast símenntun fyrir ákveðna hópa • Veita ráðgjöf um ráðningar, kjaramál og vinnurétt • Veita ráðgjöf um stjórnun og starfsmannamál • Vinna að bættu starfsumhverfi • Þátttaka í vinnuhópum á sviði starfsmannamála bæði innan sviðs og borgarkerfisins • Ýmis verkefni sem lúta að því að gera starfsstaði Velferðarsviðs að aðlaðandi og eftirsóknaverðum vinnustöðum. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhalds- menntun á sviði mannauðsmála æskileg • Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála æskileg • Þekking á kjarasamingum og vinnurétti æskileg • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Við leitum að starfsmanni í fullt starf sem getur hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Lóa Birna Birgisdóttir starfs- mannastjóri, netfang: loa.birna.birgisdottir@reykjavik.is og í síma 411 9000. Umsækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik/storf.is fyrir 8. júní nk. Velferðarsvið Mannauðsráðgjafi Fleiri útlendingar  Enn flyst mikið af erlend- um ríkisborgurum til landsins og brottflutningur þeirra sem fyrir eru í landinu hefur ekki aukist þrátt fyrir dekkri horfur í efnahagslífinu hér á landi en verið hefur. Ef þró- unin verður áfram sú sama og var á fyrsta ársfjórðungi árs- ins í ár, samkvæmt nýjum töl- um Hagstofunnar um bú- ferlaflutninga, eru horfur á að nýtt metár hvað varðar fjölg- un erlendra ríkisborgara hér á landi sé í uppsiglingu, að því er fram kemur í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Fram kemur að á fyrstu þremur mánuðum ársins fluttust 2.816 erlendir ríkisborgarar til landsins á sama tíma og 617 fluttust brott. Það er meiri aðflutningur en var á sama tímabili í fyrra og einn- ig minni brottflutningur. Fram kemur einnig að að- fluttir umfram brottflutta ís- lenska og erlenda ríkisborg- ara voru innan við þúsundið í efnahagslægðinni 2002-2004. Árleg aukning eftir það hefur verið á bilinu 3-5 þúsund. Sömdu um innágreiðslu  Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) og samtök fyrirtækja heilbrigðisþjónustu hafa skrifað undir samkomulag um launahækkun og er samn- ingurinn hugsaður sem inn- ágreiðsla fyrir komandi kjarasamninga, samkvæmt upplýsingum félagsins. Hækkunin nemur 3% og gild- ir frá 1. maí. Fellur hann úr gildi þegar nýr samningur er í höfn eða í síðasta lagi um næstu áramót. „Samkomulag er um að launahækkun sem kveðið er á um í 2. grein skuli ekki koma til frádráttar launahækkunum sem aðilar munu semja um í kjölfar samninga SLFÍ við fjár- málaráðherra fyrir hönd rík- issjóðs. Hækkun þessi kemur til frádráttar hugsanlegri ein- greiðslu sem orsakast á samningstöfum á milli SLFÍ og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Hækkun þessi getur þó aldrei orðið hærri en sem nemur hækkun samkvæmt 2. Grein,“ segir í samningnum. Deilur í Iðnskólanum í Hafnarfirði  Kennarar við Iðnskólann í Hafnarfirði krefjast leiðrétt- ingar á launum fjögur ár aft- ur í tímann. Krafan mun stafa af launalækkun sem kennarar urðu fyrir vegna breytinga á fyrirkomulagi kennslustunda árið 2003. Breytingin fól í sér að kennslustundum var splæst saman þannig að í stað þess að kennt væri 40 mín- útna kennslustundir með frí- mínútum á milli var kennt í 75 mínútur samfleytt. Voru breytingarnar gerðar til hægðarauka fyrir nemendur og kennara og fólu sam- kvæmt heimildum í sér betri nýtingu á tíma og kennslu- stofum. Deila skóla og kenn- ara stafar af því að eftir breytingarnar voru mán- aðarlaun kennara aðeins 93,6% af fullum launum og krefjast kennarar leiðrétt- ingar í samræmi. Við Iðnskól- ann í Hafnarfirði starfa 63 manns. Hrefnuveiðar hafnar  Fyrsta hrefna sumarsins veiddist á Faxaflóa fyrir helgi og mun kjötið vera komið þegar á markað. Karl Þór Baldvinsson, hrefnu- veiðimaður á Nirði KÓ, segir að mikið hafi verið af hrefnu og töluvert af hnúfubak ut- arlega í Faxaflóa, um 30 sjó- mílur vestnorðvestur af Reykjavík, og vel hafi gengið að skjóta tarfinn sem hafi ver- ið 7,4 metra langur og gefið af sé um tonn af afurðum. Þrír eru í áhöfn Njarðar og segir Karl að fjölskyldan hafi stundað hrefnuveiðar síðan 1970. Það sé því mikil reynsla í fjölskyldunni. Njörður var á vísindaveiðum í fyrra og veiddi síðan sex hrefnur í at- vinnuskyni, þá síðustu um miðjan ágúst. Metár Stöðugt fleiri erlendir ríkisborgarar sækjast eftir vinnu. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd. Samningar SLFÍ hefur sam- ið við ríkið um innágreiðslu. Morgunblaðið/Sverrir Hrefna Guðmundur Haralds- son, sjómaður á Nirði KÓ með kjötstykki úr fyrsta tarf- inum á tímabilinu. Morgunblaðið/RAX ATVINNA ÞETTA HELST ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.