Morgunblaðið - 05.06.2008, Qupperneq 16
Reuters
SVO langt er síðan John McCain tryggði sér
tilnefninguna sem forsetaefni repúblikana að
sigur hans er orðinn eins og hver önnur gömul
lumma; dramatísk átök milli demókratanna
tveggja hafa þokað honum út á hliðarlínuna.
Og annað getur orðið örlagaríkt: Obama og
Clinton hefur gengið mun betur að afla fjár í
kosningabaráttunni en McCain. Tortryggni
margra flokkshollra repúblikana, sem finnst
McCain ekki vera „sinn maður“ og neita að
styðja hann, gæti orðið banabiti hans.
Segir það sem hann meinar
Tvennt getur líka orðið McCain að falli.
Annars vegar er það aldur hans, hann verður
72 ára í ágúst og nái hann kjöri verður hann
elsti maður í sögu Bandaríkjanna til að verða
forseti. Hitt er stuðningur hans við Íraks-
stríðið og reiði margra í garð repúblikana og
Bush forseta vegna Íraksmálanna. Hafi ekki
orðið umtalsverð breyting til batnaðar í Írak í
haust og hafi ástand efnahagsmála ekki lagast
er ósennilegt að gamli baráttujaxlinn leggi
Obama í nóvember.
En McCain er þrátt fyrir allt einn af þekkt-
ustu og reyndustu leiðtogum landsins og fjöl-
miðlar hafa lengi haft á honum dálæti. Vand-
inn er að það hafa þeir enn frekar á Obama,
öldungadeildarþingmanninum frá Illinois.
Öldungadeildarþingmaðurinn frá Arizona er
mjög hreinskilinn maður og það líkar mörgum
kjósendum vel, þeir eru margir orðnir leiðir á
þrauthönnuðum frambjóðendum sem gæta
þess vandlega að segja aðeins það sem hljómar
vel á hverjum stað. McCain er þekktur fyrir að
segja það sem hann meinar.
Sem dæmi má nefna að hann reynir ekki að
smjaðra fyrir fólki í Ryðbeltinu svonefnda, þar
sem mörg störf hafa tapast í hefðbundnum
iðnaði, með því að lofa að láta endurskoða frí-
verslunarsamninga eins og NAFTA. Hann er
sannfærður um gildi frjálsra heimsviðskipta,
að Bandaríkin í heild hagnist á þeim þótt ein-
hverjir missi sums staðar vinnuna. Hann hefur
líka neitað að styðja niðurgreiðslur til bænda
sem framleiða maís til etanólframleiðslu.
„Fæ mér eitt glas á dag“
„Ég hef ekki neitt á móti etanóli [spíritus],
það er fínt, ég fæ mér glas á hverjum morgni
en vil ekki láta niðurgreiða það,“ sagði orðhák-
urinn McCain í sjónvarpsumræðum í fyrra.
Harðlínu-repúblikanar eru ósáttir við margt
í málflutningi McCains. Hann vill taka vægt á
ólöglegum innflytjendum og gefa þeim færi á
að verða ríkisborgarar. McCain vill auk þess
að Bandaríkin berjist ákaft gegn gróðurhúsa-
áhrifum, þvert á stefnu stjórnar Bush forseta.
McCain gæti orðið Obama erfiður keppi-
nautur í baráttunni um atkvæði á miðjunni.
Hann nýtur virðingar langt út fyrir raðir repú-
blikana, bæði vegna þeirra fórna sem hann
færði fyrir þjóð sína sem stríðsfangi í Norður-
Víetnam en einnig vegna sjálfstæðis hans á
þingi. Þar hefur hann barist gegn þröngum
hagsmunum stórfyrirtækja sem lengi hafa átt
góða vini í flokksforystunni. | kjon@mbl.is
Hampar reynslunni
McCain nýtur virðingar langt út fyrir raðir repúblikana og höfðar mjög til
miðjufólks en hár aldur hans og stuðningur við Íraksstríðið verða til trafala
Í HNOTSKURN
»Faðir McCains og afi voru báðirflotaforingjar. Sjálfur gekk hann í
flotaskóla en var þar oft refsað fyrir
óhlýðni. Hann varð flotaflugmaður, var
skotinn niður og pyntaður í fangelsi N-
Víetnama í rúm fimm ár.
»Eiginkona McCains, Cindy, er munyngri en hann og erfði mikil auð-
æfi. Þau hafa verið gagnrýnd fyrir að
veita litlar upplýsingar um eignir
hennar.
Garpur McCain er þrautþjálfaður í sjónvarps-
kappræðum og gæti gert Obama skráveifu.
16 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HANN er blökkumaður í föðurætt,
aðeins 46 ára gamall, með tiltölulega
litla stjórnmálareynslu, virkar á
suma demókrata sem upphafinn og
jafnvel hrokafullur menntamaður, úr
tengslum við alþýðuna. En Barack
Obama hefur að mati flestra meiri
persónutöfra en gengur og gerist
meðal stjórnmálamanna og stundum
minna fjöldafundir hans meira á sam-
komu hjá rokkstjörnu en forsetaefni.
Hann hefur yfir sér áru sigurveg-
ara með nýja sýn, a.m.k. ennþá þótt
hann hafi staðið sig misvel í kapp-
ræðum og öðru hverju gert slæm
mistök í kosningabaráttunni. Hann
var t.d. ótrúlega seinn að skilja hve
miklu tjóni prestur hans til margra
ára, Jeremiah Wright, hafði valdið
með ofstækisfullum yfirlýsingum sín-
um en hefur nú afneitað honum.
Obama fæddist 1961 á Hawaii,
hann er sonur lítt efnaðrar, ein-
stæðrar móður frá Kansas, Ann Dun-
ham, og Kenýa-mannsins Baracks
Obamas eldri sem stundaði nám við
Hawaii-háskóla en er nú látinn.
Obama eldri yfirgaf barnið og móð-
urina fljótlega eftir fæðingu sonarins.
Obama lauk laganámi við Harvard og
varð öldungadeildarþingmaður fyrir
ríkið árið 2004.
Obama þykir almennt vera til
vinstri í flokki sínum en gagnrýnt er
að hann hafi oft gripið til hjásetu á
þingmannsferli sínum sem geri erfitt
að sjá hver stefna hans sé í reynd. En
er hann eitthvað meira en maður sem
á auðvelt með að hrífa fólk á fjölda-
fundum og í sjónvarpi?
Því mun tíminn svara. Heimild-
armenn segja að Obama sé agaður og
prúður. Hann sé tillitssamur, láti
duga að hvísla í eyru ráðgjafa sinna
en hrópi ekki og öskri á þá eins og
margir þekktir leiðtogar hafa verið
frægir fyrir að gera.
Stundum glittir í stál
Obama vinnur afar skipulega þeg-
ar hann kannar stöðuna og sækir sér
hiklaust aðstoð hjá eldri og íhalds-
samari leiðtogum þegar þörf krefur.
Hann getur verið býsna kaldrifj-
aður og ákveðinn, stundum glittir í
stál og metnaðinn skorti ekki. Þegar
hann fékk áhuga á að taka sæti í öld-
ungadeild Illinois-ríkis 1996 tjáði
hann konu sem hafði gefið honum
mörg góð ráð að hann hygðist ekki
víkja fyrir henni svo að hún gæti end-
urheimt sætið sem hún hafði misst.
Hann notfærði sér einnig tæknileg
smáatriði til að losa sig með hægð við
hugsanlega keppinauta. Að lokum
vann hann án mótspyrnu.
Ára sigurvegarans
AP
Obama fæddist ekki með silfurskeið í munninum en er mjög agaður og
náði á aðeins 11 árum því takmarki sínu að verða forsetaefni demókrata
Hver er stefna Johns McCains?
Utanríkismál: Studdi innrás í Írak
2003 og síðar fjölgun í herliðinu. Tel-
ur að herinn ætti að vera áfram þar
til Írakar geta sjálfir tryggt öryggi
sitt. Vill mynda fylkingu lýðræðisríkja
til að herða viðskiptabann á Írana.
Efnahagsmál: Hyggst ekki
hækka skatta á ný, en vill draga úr
opinberum útgjöldum. Vill umbæt-
ur á almannatryggingakerfinu.
Ólöglegir innflytjendur: Lagði til
lög um sakaruppgjöf ólöglegra inn-
flytjenda og stífari landamæragæslu.
Telur að ólöglega starfskrafta skuli
aðstoða við öflun ríkisborgararéttar.
Hver er stefna Baracks Obamas?
Utanríkismál: Var andvígur stríði í
Írak frá upphafi og telur þar engar
lausnir að fá með hernaðar-
aðgerðum. Tilbúinn að hitta leiðtoga
Írans án fyrirframskilyrða.
Efnahagsmál: Vill betrumbæta
heilbrigðis- og menntakerfið, og
hefur heitið því að endurskoða frí-
verslunarsamninga.
Ólöglegir innflytjendur: Styður
harðari refsingar við ráðningu ólög-
legra starfskrafta. Telur aðstoð við
öflun ríkisborgararéttar ekki jafn-
gilda sakaruppgjöf ef innflytjandi
greiðir sekt. | sigrunhlin@mbl.is
S&S
OBAMA er sagð-
ur eiga í harðri
baráttu við tób-
aksfíknina, notar
tyggigúmmí í
þeim slag. Hann
hefur viðurkennt
að hafa notað
fíkniefni á há-
skólaárunum og
ólíkt Bill Clinton
andaði hann að sér marijúana-
reyknum. „Ég hef aldrei skilið
þetta [hjá Clinton]. Markmiðið var
að anda þessu að sér.“
Obama tók
ofan í sig
Táningurinn
Obama.
EIGINKONA Obamas, Michelle, er
einnig lögfræðingur. Hún er oft
sögð ráðleggja honum að láta
hjartað ráða meira en heilann
þegar hann tjái sig við kjósendur.
Heimildarmenn segja að Obama
virði gjarnan pólitík fyrir sér eins
og úr fjarlægð og reyndar hefur
hann sagt að mikil fjölmiðlaum-
fjöllun ýti undir sjálfsdýrkun með-
al pólitíkusa. Á Obama þessa af-
stöðu sameiginlega með
væntanlegum keppinaut sínum,
John McCain, sem lengi hefur þótt
fara sínar eigin leiðir og gera
hálfpartinn gys að öllu tilstandinu
og sjálfum sér um leið.
Óttast
sjálfsdýrkun
OBAMA heim-
sótti föðurfólk
sitt í Kenýa þeg-
ar hann var um
tvítugt. Amma
hans þarlend, Sa-
rah Hussein
Obama, segist
vera afar stolt og
er með stóra
mynd af son-
arsyninum uppi á vegg. Amman
hvíta frá Kansas, Madelyn Dunham,
mun hafa reynst Obama mjög vel.
En hann hefur lýst því hvernig
sumt af því sem hún segi um svarta
ósi af fordómum, þrátt fyrir ástina
á dóttursyninum.
Ömmurnar
tvær
Amman í Kenýa.