Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIRYAM Shomrat, sendiherra Ísraels á Íslandi skrifaði grein í Morgunblaðið 17. mars sl. með fyr- irsögninni „Hryðjuverk og viðbrögð við þeim“ Kjarni greinarinnar er þessi: Ef hryðju- verkamennirnir í Ha- mas hætta að skjóta eldflaugum, ráðast á ísraelsk heimili, sjúkra- hús, trúarskóla og barnaheimili þá muni ríkja friður. Ísraelsher hefði þá enga ástæðu til þess að ráðast á Palest- ínumenn. Sendiherrann reynir að telja lesendum Morgunblaðsins trú um að andspyrna Palest- ínumanna sé orsök átakanna, hún lýsir Ísr- aelum sem fórn- arlömbum. Við eigum að trúa því að þjóð sem á fjórða sterkasta her- inn og nýtur stuðnings öflugasta herveldisins, sé fórnarlamb þjóðar í herkví! Það er fróðlegt að kynnast málflutningi sendiherrans, hún er opinber talsmaður Ísr- aelsstjórnar og flytur því afstöðu stjórn- arinnar og sjónarmið síonista ómeng- uð til okkar. Hún opinberar það sem er svo mikilvægt að almenningur skilji: Talsmenn Ísraela segja aldrei satt og rétt frá þegar þeir ræða átök- in við Palestínumenn. Sendiherrann er að verja málstað þeirra sem eru hægt og bítandi að reyna að útrýma heilli þjóð! Það er ekki góður mál- staður og þess vegna verður að bera fram miklar blekkingar Sendiherra síonistanna er djörf í grein sinni; hún hikar ekki við að vísa Palestínumönnum leiðina til lífsham- ingjunnar og skrifar: „ef hryðju- verkaáætlanir, vopnasmíð og upp- hafning haturs vikju fyrir eðlilegri atvinnustarfsemi“. Þessi leiðarvísir sendiherrans hlýtur að vekja spurn- ingu: Hvað er eðlileg atvinnu- starfsemi hjá þjóð sem hefur verið undirokuð í áratugi? Er hægt að stunda eðlilega atvinnustarfsemi þar sem hernámslið setur upp mörg hundruð vegatálma – þar sem akrar eru eyðilagðir – þar sem húsnæði er lagt í rúst – þar sem fólki er meinaður að- gangur að vatni – þar sem fólki eru meinuð afnot af vegum – þar sem skattatekjum er stolið – þar sem fólki er neitað um lífsnauðsyn- legan aðgang að heil- brigðisstofnunum – þar sem fullkomnustu her- þotur varpa sprengjum á þéttbýli – þar sem stöðugt er skotið úr skriðdrekum og stór- skotaliðsbyssum – þar sem ekki er hægt að fá einföldustu varahluti – þar sem rafmagn getur farið fyrirvaralaust – þar sem ríkir hafnbann – þar sem flugvöllurinn hefur verið sprengdur í loft upp – þar sem margra metra hár múr skilur að þorp og akra – þar sem fatlað fólk er drepið með jarðýtum – þar sem menn geta átt von á fyrirvaralausri fangelsun – þar sem börn horfa á foreldra sína nið- urlægða – þar sem börn eru skotin til bana á leið í skóla eða við leik – þar sem skólakerfi er skipulega lagt í rúst – þar sem tölvum með upplýs- ingum um þjóðina er stolið – þar sem holræsakerfi eru eyðilögð – þar sem skriðdrekum er ekið vísvitandi yfir bíla í eigu einstaklinga – þar sem land heimamanna er tekið með hervaldi og lagt undir nýbyggingar vopnaðra landtökumanna – þar sem fjöldamorð eru regla en ekki undantekning? Orð sendiherrans um „eðlilega at- vinnustarfsemi“ afhjúpa takmarka- lausan hroka Ísraelsstjórnar gagn- vart umheiminum. Almenningur á Íslandi veit að það eru Palestínumenn sem eru sviptir landi sínu, mannréttindum og mögu- leikum til þess að lifa því lífi sem allar þjóðir eiga rétt á. Og það eru Ísraelar sem hafa hertekið þessa þjóð, drepið þúsundir, fangelsað þúsundir, eyði- lagt heimili tugþúsunda og svipt 10,5 milljónir Palestínumanna landi sínu. Allir Palestínumenn eru í helj- argreipum Ísraela; 4,5 milljónir eru í herkví í Gazagettóinu og á Vest- urbakkanum, 1,3 milljónir lifa við skert réttindi í Ísrael og milljónir eru flóttamenn um allan heim og fá ekki að snúa heim. Andspyrna Palest- ínumanna er réttmæt barátta fyrir réttindum sínum. Þetta er hinn ein- faldi sannleikur og blekkingatilraunir sendiherra síonistanna geta ekki falið raunveruleikann. Hvað segja íslenskir ráðamenn um þetta ástand? Hvernig geta þeir sam- þykkt með aðgerðaleysi sínu að svona sé farið með eina þjóð? Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að því miður hafi Ísraelar „leiðst út í ógöngur“ þegar hann fjallar um nýleg fjöldamorð þeirra í Gazagettóinu. Ingibjörg Sólrún utan- ríkisráðherra heimsótti svæðið, skoð- aði rörasprengjur í Sderot og sá með eigin augum fangelsismúrinn sem Ísraelar stækka daglega. Hún skrif- aði bréf til utanríkisráðherra Ísrael og mótmælti framferði þeirra á Gaza. En þetta eru máttlausar aðgerðir, hryðjuverkamenn Ísraela hlusta ekki á svona aðfinnslur – það er margs- annað. Ofbeldisstjórninni í S-Afríku var komið á kné með baráttu heima- manna og stuðningi umheimsins. Það var sett viðskiptabann á stjórn hvíta minnihlutans í S-Afríku og flest ríki frystu sín samskipti við hana (Ísrael var eitt fárra ríkja sem hélt góðu sambandi). Ríkisstjórn Íslands á að fylgja hvatningu Desmond Tutu biskups, en hann hefur hvatt til viðskiptabanns á Ísrael. Ef utanríkisráðherra Íslands vill freista þess að hafa áhrif á ástandið þá verður hún að taka skref- ið og rjúfa öll samskipti við stjórn- völd í Ísrael. Það er það eina sem fær þau til að skilja að umheimurinn muni ekki líða framferði þeirra. Eftir 60 ára kúgun er kominn tími til að- gerða. Gazagettóið og sjónarmið síonistans Hjálmtýr Heiðdal skrifar vegna greinar sendiherra Ísraels, Miryam Shomrat Hjálmtýr Heiðdal Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. » Sendiherr- ann reynir að telja lesend- um Morgun- blaðsins trú um að and- spyrna Palest- ínumanna sé orsök átakanna, hún lýsir Ísra- elum sem fórnarlömbum. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÁRLEGA berast yf- ir 500 óskilakettir í Kattholt og einungis fjórðungur þeirra er sóttur af eigendum sínum. Fjórðungi er lógað og helmingur fær ný heimili. Kattholt reynir eftir bestu getu að sinna öllum þessum dýrum sem til þeirra koma en oft er það erfitt og dýrin of mörg. Oftar en ekki eru kettirnir ekki örmerktir þó svo að eigendum sé skylt að örmerkja þá samkvæmt reglugerð Reykjavíkur- borgar. Einnig er greint frá því í bækl- ingi um kattahald að skylda sé að hafa hálsól með heimilisfangi og síma svo unnt sé að ná í eigandann ef kötturinn fer á flakk eða er að valda tjóni eða ónæði hjá nágrönnum. Því miður eru líka margir sem trassa það að láta gelda kettina eða taka úr sambandi til þess að koma í veg fyrir óæskileg got. Vegna þess eru smáauglýsingar fullar af litlum kett- lingum í heimilisleit og því miður eru ansi margir sem finna aldrei ný heim- ili. Núna ríkir neyðarástand í Katt- holti, um 130 kettir dvelja þar nú, þá eru kettlingar ekki með- taldir. Fjárhagurinn er bágur og útlitið er svart. Það er sorgleg tilhugsun að hugsa til þess hvað mun gerast ef kattholt lokar. Hvað verður um alla óskila- kettina? Það er mjög þarft starf sem unnið er í Kattholti og hvet ég fólk til þess að leggja þessu málefni lið. Hægt er að fara inn á heimasíðu Kattholts; kattholt.is, til þess að fá frekari upp- lýsingar. Einnig velti ég fyrir mér hvað bæj- arfélög í kringum Reykjavík eru að gera til þess að styrkja Kattholt því það er ekki bara að hýsa og bjarga köttum frá Reykjavík. Einnig vil ég minna á að því fylgir ábyrgð og kostnaður að eiga dýr. Það þarf að bólusetja, gelda og orma- hreinsa dýr árlega jafnvel oftar. Dýrin þurfa ást og umhyggju frá okkur en veita okkur í staðinn einn besta fé- lagsskap sem hægt er að hugsa sér. BIRNA HELENA CLAUSEN, meðlimur í Kattavinafélaginu. Hver hugsar um dýrin okkar? Frá Birnu Helenu Clausen Ómótstæðilegir Þessar litlu kisur fengu allar gott heimili. MORGUNBLAÐIÐ birti hinn 21. maí sl. leiðara undir fyrirsögninni „Jarðgufa og vatnsafl“. Þar segir: „Vatnsaflsvirkjanir hafa verið mjög umdeildar hin síðari ár, kannske fyrst og fremst vegna þess, að þeim hefur fylgt mikið rask í óbyggðum og að margra mati eyðilegging á náttúruverðmætum“. Síðar í leið- aranum segir um þessar virkjanir: „Og jafnvel þótt þær séu ekki í óbyggðum eru þær umdeildar eins og sjá má af deilunum sem standa um virkjanir í neðri hluta Þjórsár“. Ennfremur segir: „Það er áreið- anlega víðtæk samstaða meðal þjóð- arinnar um að útiloka frekari fram- kvæmdir á miðhálendinu, hvort sem um er að ræða virkjanir eða aðrar framkvæmdir, svo sem vegafram- kvæmdir“. Það blæs þannig ekki byrlega fyrir frekari nýtingu vatns- orku á Íslandi að mati leiðarahöf- undar. Í framhaldi segir höfundur: „Þess vegna hefur verið spurt, og Morg- unblaðið hefur m.a. varpað þeirri spurningu fram, hvort jarð- gufuvirkjanir gætu orðið einhvers konar málamiðlun milli virkjana- sinna og umhverfisverndarsinna“. Hann rekur síðan nýlegar deilur um jarðgufuvirkjanir á Hellisheiði (sem ekki getur nú talist til miðhálend- isins) og segir síðan: „Ef líka þrengir mjög að jarðgufuvirkj- unum fer þetta að verða spurning um hvort við treystum okkur til að halda yf- irleitt áfram að nýta orkuauðlindir þjóð- arinnar að einhverju marki“. Hér má skjóta inn að eftir Kára- hnjúkavirkjun höfum við nýtt um 30% af efnahagslega nýt- anlegri vatnsorku landsins og enn lægra hlutfall nýt- anlegs jarðhita. Sam- bærilegt nýting- arhlutfall efnahagslegrar vatnsorku í öðrum iðnríkjum er frá um 65% upp í yfir 90%. Höfundur leið- arans heldur áfram: „Við höfum þeg- ar sett okkur ströng mörk í sam- bandi við nýtingu á auðlindum hafsins“ og spyr síðan: „Treystum við okkur til að ganga ekki lengra að sinni í nýtingu auðlinda okkar? Er- um við tilbúin að taka á okkur þær takmarkanir á lífskjarabata á næstu árum sem því mundi fylgja?“ Hann svarar ekki þeirri spurningu en bendir á að það hafi einn- ig reynst vera sveiflur í þekkingariðnaðinum á Íslandi og að nú síðast hafi orðið bakslag í trú almennings á fjár- málasnilli Íslendinga. „Þetta eru álitamálin,“ segir höfundur að lokum. Hér mætti svo bæta við að ef ekki er öðrum ætlað að geta ferðast um miðhálendið en úthalds- góðum göngugörpum, eða þeim sem treysta sér til að vera hristir dag- langt á óvegum, er hætt við að þeir sem hafa troðnustu veskin sneiði hjá miðhálendinu – og þá kannske Íslandi um leið – til tjóns fyrir íslenska ferðaþjónustu. Kröfur ferðamanna um aðbúnað og þjónustu fara stöðugt vaxandi og þeir eru reiðubúnir til að greiða fyrir hana. Mitt svar – og að ég held mikils meirihluta þjóðarinnar – er nei. Við erum ekki tilbúin að taka á okkur þær takmarkanir á lífskjarabata á næstu árum sem því mundi fylgja að nýta íslensku orkulindirnar ekki frekar en orðið er. Í leiðaranum gætir algengrar til- hneigingar til að greina iðnað í Nei! Við erum ekki reiðubúin til lakari lífskjara Jakob Björnsson skrifar um nýtingu orkuauðlinda Jakob Björnsson » Það er hrein bábilja og fjarstæða að við munum eyði- leggja náttúru landsins þótt við nýtum hreinar orkuauðlindir... HUGARAFL fagnar 5 ára afmæli sínu hinn 5. júní með táknrænum gjörningi, sem hefst klukkan 13:00 við Klepp og endar í Grasagarðinum. Sam- tök notenda erlendis hafa staðið fyrir svip- uðum gjörningi og kallað hann „bedpush“ (www.bedpush.com). Hugarafl var stofnað af sex einstaklingum. Bæði var það fólk sem notið hafði þjónustu geðheilbrigðiskerf- isins, svokallaðir not- endur, og iðjuþjálfar. Þeim var það sameig- inlegt að vilja breyta geðheilbrigðisþjónust- unni en höfðu ekki fundið farveg til áhrifa, hvorki innan stofnana né hagsmunasamtaka. Þegar fólk lendir í hremmingum og ræð- ur ekki lengur við dag- legt líf eiga hvorki sjúkdómsgreiningar né lyfjataka að vera forsenda aðstoðar. Það hefur komið í ljós að sjúklingshlutverkið og sjúkdómsgreining get- ur valdið meiri skaða en upphaflega vandamálið. Erlend hagsmunasamtök fólks með geð- raskanir hafa undanfarið sett val- möguleika í geðheilbrigðisþjónstu sem aðalmarkmið. Ástæðan er m.a. að innan notendahreyfinga eru skiptar skoðanir á því hvaða leiðir séu áhrifaríkastar til að ná bata og sýna batarannsóknir/notendarann- sóknir það sama. Fólk nær bata eft- ir ólíkum leiðum og oft án atbeina heilbrigðisstarfsfólks. Viðhorfs- munur er meðal notenda. Annars vegar þeir sem ánægðir eru með þjónustuna, hafa kannski veitt mót- spyrnu í upphafi en síðan fengið lyf og tengst fagfólki sem hvort tveggja hefur skipt sköpum. Þessu fólki sárnar því neikvæð gagnrýni á kerf- ið. Hinn hópurinn hefur náð tökum á lífinu og segir sjálft að það sé „þrátt fyrir“ aðferðir kerfisins. Meðferðin hafi dregið úr lífsgæðum, lyf farið illa í þá og óumbeðnar sjúkdóms- greiningar hafi skert stöðu þeirra á atvinnumarkaði og í líf- inu. Þessir ein- staklingar eru tor- tryggnir gagnvart lyfjarisunum og telja það mannréttindi að mega hafna lækn- isfræðilegu inngripi og meðferð. Þeirra bar- áttumál er að aðrar að- ferðir fái notið sömu virðingar og lækn- isfræðileg úrræði. Margar not- endahreyfingar hafa fengið sig fullsaddar á því að eyða orkunni í innbyrðis átök. Enn þann dag í dag hafa ekki fengist nægar sannanir um orsakir geðrænna truflana og þ.a.l. geti enginn leyft sér skoðanahroka. Fólk á að vera vel upp- lýst um kosti og galla mismunandi aðferða. Lög og reglugerðir eiga að tryggja að fólk með geðraskanir hafi val. Kjósendur velja hvaða flokki þeir treysta best til að stjórna landinu og það sama á að gilda um notendur geðheilbrigðisþjónustunnar. Þeir eiga að fá að taka ákvörðun um það hverjum þeir treysti best til að að- stoða þá við að ná sem best tökum á lífi sínu. Það er ekki tilviljun að við höfum valið lýðræði sem stjórn- skipulag. Það að eiga val og geta tjáð sig án þess að óttast afleiðing- arnar hefur áhrif á almenna heilsu og vellíðan. Gerð var rannsókn um einstaklinga sem annars vegar höfðu val milli hefðbundinnar bráða- þjónustu og óhefðbundinna leiða innan geðheilbrigðisþjónustunnar, – og þeirra sem ekkert val höfðu. Hugarafl fagnar 5 ára afmæli Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar um gildi þess að fólk hafi val innan geðheilbrigðis- þjónustunnar »Kjósendur velja hvaða flokki þeir treysta best til að stjórna land- inu og það sama á að gilda um notendur geð- heilbrigðisþjón- ustunnar. Elín Ebba Ásmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.