Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ KristjánTryggvason fæddist á Meyjarhóli á Svalbarðsströnd 24. apríl 1920. Hann lést á gjörgæslu- deild sjúkrahússins á Akureyri 28. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Tryggvi Krist- jánsson, f. 22. des- ember 1888, d. 18. febrúar 1990, og Jó- hanna Valdimars- dóttir, f. 20. júli 1886, d. 4. maí 1965. Systkini Kristjáns eru Laufey og Jón, sem bæði eru látin, og Friðrika sem býr á Dvalarheimili aldraðra á Ak- ureyri. Eiginkona Kristjáns var Þórdís Ellertsdóttir, f. 8. janúar 1924, d. 18 nóvember 1982. Börn þeirra eru: óskírður drengur, f. 1961, d. 1961, og Alda Hrönn, f. 30. mars 1963, maki Gísli Freyr Ármanns- son, f. 6. apríl 1962. Börn þeirra eru: 1) Íris Ósk, f. 3. febrúar 1988, dóttir hennar og Friðriks Jóns Stef- ánssonar er Natalía Rós, f. 6. júní 2006, og 2) Kristján Þór, f. 19. mars 1991. Kristján lenti í slysi aðeins 13 ára gamall sem varð til þess að hann varð blindur. Hann fór í Blindraskólann í Reykjavík í kjölfarið og stundaði þar nám í nokkur ár. Þar lærði hann m.a. körfu- og dýnugerð sem síðar varð ævistarf hans. Kristján fluttist til Akureyrar með foreldrum sínum 1944 og hefur alla tíð síðan búið í Brekkugötu 15 þar í bæ. Hann rak vinnustofu í Oddeyrargötunni þar sem hann bjó til körfur, bursta og dýnur. Kristján hélt miklum tengslum við Blindrafélag Íslands og átti þar marga góða vini. Útför Kristjáns fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku Kristján, eða bara afi, eins og ég kallaði þig vanalega. Ég vil þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, allt sem við gerðum saman og allt sem þú kenndir mér. Fyrir það er ég ólýsanlega þakklátur. Allur þessi tími sem við eyddum sam- an, hvort sem það var heima, í summ- anum eða á verkstæðinu þínu, er mér afskaplega dýrmætur og ég mun geyma þessar minningar til æviloka. En nú er komið að kveðjustund og ég kveð hér ekki bara tengdaföður minn heldur einnig góðan mann sem var mér eins og faðir og minn besti vinur. Megi guð geyma þig. Gísli F. Ármannsson. Elsku afi minn, nú hefur það gerst sem ég hræddist mest. Ég sakna þín svo ógurlega mikið en ég á svo ótrú- lega margar fallegar minningar um þig sem hjálpa mér að komast í gegn- um sorgina. T.d. var fyrsta orðið sem ég sagði „afi“ og fyrstu skrefin sem ég tók voru þegar ég stóð við hnéð þitt og sleppti. Og ég tala nú ekki um allar ferðirnar í sumarbústaðinn. Þær eru mér ofarlega í huga núna því þessum stað unnir þú mest. Þarna varstu kominn þar sem þú vildir vera. Þrátt fyrir að þú hafir misst sjónina þína ungur gleymdirðu aldrei hvern- ig ströndin þín leit út, þú vissir hvar allar hæðir og hólar voru. Þú varst búinn að bíða í allan vetur eftir sumrinu því þá myndum við skjótast í bústaðinn. Ég er þakklát fyrir að þú gast komið þangað í vor en því miður misstir þú af því að geta legið þar í lautinni þinni í sólinni. Ég vona að þú liggir þar núna með ömmu sem þú saknaðir svo mikið. Ég man að þegar ég var yngri kom ég oft til þín þar sem þú lást í lautinni og skellti einu gleym-mér-ey blómi á peysuna þína og þú hlóst alltaf að mér. Ég vona að þú gleymir mér ekki því ég ætla alltaf að muna eftir þér, besta afa í heimi, sem alltaf varst til staðar, duglegasta og yndislega manni sem til var. Þú lést aldrei neitt stoppa þig og orðið „get ekki“ var ekki í þínum orðaforða. Í meira en einn og hálfan sólar- hring barðistu fyrir lífi þínu og lækn- arnir áttu ekki orð yfir hvað þú hafðir sterkt hjarta, en þetta hjarta var fullt af ást og kærleik sem þú barst til okkar. Ég er svo þakklát fyrir að hafa getað legið í rúminu hjá þér og haldið í höndina þína þegar þú kvaddir þennan heim. Ég veit að þú ert á góð- um stað umvafinn hlýju og ég vona innilega að nú hafirðu fengið sjónina þína aftur. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir bæði mig og dótt- ur mína og ég mun segja henni frá þér. Við sjáumst þegar minn tími kemur, en þangað til, hvíldu í friði, elsku afi minn. Ég elska þig. Þín Íris Ósk. Elsku Kiddi, það er komið að kveðjustund. Það eru þær stundir sem mörgum reynast erfiðar og sér í lagi kveðjustundir sem þessar. Það eru 3 ár síðan við kvöddum pabba og nú ferð þú. Líf þitt hefur oft verið erf- itt. Þegar þú varst 13 ára varð breyt- ing sem fylgdi þér alla tíð. Þú og pabbi voruð að leika ykkur úti, þið funduð sprengju sem því mið- ur sprakk í höndunum á þér og varð þess valdandi að þú misstir bæði aug- un. Þetta var mikil lífsreynsla fyrir ykkur litlu strákana á Meyjarhóli og alla fjölskylduna. Pabbi sagði mér oft frá þessu. Það er ekki hægt að gera sér í hugarlund hvernig ungum strákum líður við slíkar aðstæður. Fyrir örfáum árum sá ég bréf sem þú hafðir sent foreldrum þínum þegar þú varst í Blindraskólanum í Reykja- vík því þangað fórstu þegar þú hafðir heilsu til. Æðruleysið sem lá á milli línanna í þessum bréfum var engu líkt. „Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt“ eru orð sem þú tileinkaðir þér alla tíð. 31. maí 1952 var bræðrabrúðkaup, pabbi giftist mömmu og þú giftist Dísu. Þið Dísa eignuðust tvö börn, dreng sem náði því miður ekki að lifa nema örfáa daga og Öldu Hrönn sem nú býr í Brekkugötunni með sinni fjölskyldu, en þar bjóst þú líka fram á síðasta dag. Þú og pabbi byggðuð ykkur sumarbústaði á Svalbarðs- ströndinni á ykkar eigin landi, fyrir handan eins og við sögðum alltaf, og þar dvöldum við oft á sumrin. Það var oft gaman á sumrin í summanum. Mér eru minnisstæðar margar bjartar sumarnætur þegar þið pabbi voruð orðnir svolítið hressir og fóruð að syngja lög eins og Bjartar vonir vakna og Blessuð sértu sveitin mín, raddir ykkar ómuðu um Strönd- ina. Þið voruð í miklu stuði og lékuð á als oddi. Ekki má nú gleyma Dummdumm-hátíðunum á haustin, þá var kveikt í gömlu rusli og grein- um og setið við eldinn fram á nótt og sungið, þetta voru okkar einkaútihá- tíðir. Ég man líka þegar félagar þínir úr Reykjavík komu og gistu í og við sumarbústaðina, þá var nú mikið fjör. Við fórum nokkrum sinnum saman stórfjölskyldan í ferðir á sumrin og þá var oft mikið fjör. Þið hélduð oft uppi fjörinu, þú, pabbi og Kiddi Skarphéðins. Þið áttuð eitt sameig- inlegt og það var að í ykkur leyndust hrekkjalómar sem spruttu fram ljós- lifandi í þessum ferðum. Eiginkona þín, Dísa, dó 1982 eftir veikindi. Eftir það bjugguð þið Alda saman í Brekkugötunni ásamt afa Tryggva þar til hann fór á Dvalarheimili aldr- aðra. Síðan bjóst þú með Öldu og hennar fjölskyldu í Brekkugötunni fram til dauðadags. Þú varst snilling- ur á mörgum sviðum, sérstakleg í körfu-, bursta- og dýnugerð. Alla daga fórst þú einn upp á verkstæðið í Oddeyrargötunni. Elsku Kiddi, við kveðjumst í þessu lífi, þú ert farinn í annað líf þar sem þú hittir þína nánustu sem farnir eru á undan þér. Þú færð sjónina aftur og þið bræður getið farið að syngja göm- ul ættjarðarlög og halda Dummd- umm-hátíðir á nýjum stað. Ég kveð þig að sinni og þakka þér fyrir allt á liðnum árum. Ég minnist þín sem einstaks manns með æðruleysi að leiðarljósi í gegnum lífið á þessari jörð. Far þú í friði, elsku Kiddi. Björk Jónsdóttir. Frændi minn og móðurbróðir Kristján Tryggvason er látinn, 88 ára að aldri. Hann fæddist að Meyjarhóli á Svalbarðsströnd 1920. Fjórtán ára varð frændi minn fyrir slysi sem varð til þess að hann missti sjónina og hef- ur hann því verið í myrkri á áttunda áratug. Hann hóf fljótt nám í körfu- gerð hjá Guðmundi í Víði í Reykjavík. Eftir heimkomuna stofnaði Kristján sitt eigið fyrirtæki sem hann nefndi Dívanavinnustofa K.T. hér á Akur- eyri og starfrækti til dauðadags. Kristján bjó alla sína tíð eftir slysið að Brekkugötu 15 með foreldrum sínum og síðar konu sinni Þórdísi Ellertsdóttur, en hana missti hann fyrir rúmum 20 árum og bjó eftir það með dóttur sinni og hennar fjöl- skyldu. Á sjötta áratug síðustu aldar hóf hann ásamt konu sinni að reisa sumarhús í litlum hvammi við lítinn læk úr landi Meyjarhóls. Fyrstu minningar mínar um þau hjón eru þær er ég var fóstraður hjá þeim 6 eða 7 ára gamall og svaf hjá þeim í nýfokheldu sumarhúsinu. Ég man að við sváfum á steingólfinu með striga- leppa sem undirlag, en í minningunni var það ekkert tiltökumál. Árin liðu og fjölskyldan sótti í sveitina á sumr- in og ekki leið á löngu áður en Jón bróðir Kristjáns hóf einnig að reisa sér sumarhús á sömu slóðum. Oft hjálpaði ég til við framkvæmdir og að endingu tók ég sóttina og reisti mér og mínum sumarhús þar í grennd. Þeir bræður hjálpuðu mér mikið við bústaðinn, Jón innréttaði kofann og Kristján smíðaði glugga og útihurð. Ég og mín fjölskylda þökkum inni- lega fyrir allar samverustundirnar og hjálpina í gegnum árin. Kristján var alla tíð sívinnandi, meðal annars byggði hann sér lítið hús við hlið sumarbústaðarins fyrir vinnuað- stöðu, þar gat hann dregið í uppþvot- tabursta eða hina sívinsælu bílkústa sem eldra fólk man eftir. Allir tóku þátt í því sem þurfti að gera í sveit- inni, hvort það var að laga sumarhús- in eða laga heimreiðar. Eitt sinn var ég að leggja drög að sólpalli hjá mér, var að brasa við að koma upp ramma eða sökkli, eithvað fannst mér þetta ekki vera alveg í lagi svo ég sótti frænda sem var mjög næmur á tré- verk. Sá gamli skreið um svæðið, þuklaði timbrið góða stund, reis svo upp, sneri sér að mér og sagði: Nafni, sérðu ekki hvað þetta er hornskakkt hjá þér? Þá var mér öllum lokið. Mik- ið var hlegið að þessu. Kæri vinur, um leið og ég kveð þig með trega sendi ég Öldu, Gísla, Írisi Ósk, Kristjáni Þór og Natalíu Rós okkar dýpstu samúðarkveðjur. Kristján Viðar Skarphéðinsson. Góður maður er fallinn frá. Slökkt hefur verið á æviklukku hans og hans tími er kominn í eilífðina, hinum megin við tjaldið. Ótrúlegu lífi lifði þessi maður. Hann var blindur allt frá því að hann var barn. Myrkrið var hans griðar- staður og þótt hann gæti ekki séð fór hann sínar eigin leiðir. Í öll þau skipti sem við hittum hann var eins og hann gæti séð það sem fór fram í herberg- inu.. Hann var fíngerður og alveg ein- staklega handlaginn og gat gert allt sem honum datt í hug. Hann hafði dula kímnigáfu sem laðaði alla þá að sem kynntust honum. Við hjónin kynntumst Kristjáni afa eins og hann var alltaf kallaður fyrir rúmum 20 árum þegar dóttir hans Alda kom inn í líf okkar og varð unnusta Gísla Freys. Margar urðu ferðirnar norður til þeirra í gegnum árin og alltaf var reynt að fara í bústaðinn sem Krist- ján afi smíðaði á sinn ótrúlega hátt. Árin liðu og börnin uxu og alltaf var Kristján afi nálægur, hægur og þægilegur og undi hag sínum með börnunum eða á verkstæðinu sínu. Í dag hefur hann fengið hvíldina, þreyttur og lúinn eftir yfir 80 ár sem hann hefur lifað. Hann skilur eftir sig yndislega fjölskyldu sem misst hefur mikið dýrmætan afa, föður og tengd- arföður sem var honum Gísla Frey svo undurgóður. Elsku Alda, Gísli Freyr, Íris Ósk, Kristján Þór og litla Natalía Rós.. minninginn um góðan mann er geymd í hjörtum okkar og við send- um ykkur ljós þessa erfiðu daga sem eiga eftir að koma. Við vottum ykkur okkar innilegu samúð og megi Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg og söknuði. Nú legg ég augun aftur. Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Matthias Jochumsson .) Guðmundur Þór og Ásdís Elva. Kristján Tryggvason ✝ Elskuleg móðir, tengdadóttir, amma og langamma, SVANHVÍT SIGURÐARDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 31. maí. Egill Svanur Egilsson, Maggý Guðmundsdóttir, Sturla Egilsson, Hildur Erlingsdóttir og langömmubörn. ✝ Eiginmaður minn og faðir okkar, GESTUR STEFÁNSSON verkfræðingur frá Haga í Gnúpverjahreppi, Hørsholm, Danmörku, lést laugardaginn 31. maí. Jarðarförin fer fram frá Hørsholmskirkju laugardaginn 7. júní kl. 13.30. Hjördís Stefansson, Stefán Gestsson Stefansson, Björn Gestsson Stefansson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Skipholti 26, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut, fimmtudaginn 22. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Björn Ómar Jónsson, Kristbjörg Þórðardóttir, Friðrik Jónsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ALEXANDER STEFÁNSSON fyrrverandi alþingismaður og ráðherra frá Ólafsvík, Lækjasmára 4, Kópavogi, er lést miðvikudaginn 28. maí á hjúkrunarheimilinu Eir, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 6. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Ólafsvíkurkirkju. Björg H. Finnbogadóttir, Finnbogi H. Alexandersson, Sigríður M. Halldórsdóttir, Svanhildur Alexandersdóttir, Marinó H. Sveinsson, Stefán Alexandersson, Laila Michaelsdóttir, Lára Alda Alexandersdóttir, Þórður Ólafsson, Örn Alexandersson, Aðalheiður St. Eiríksdóttir, Atli Alexandersson, Elfa Eydal Ármannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín og tengdamóðir, HJÖRDÍS HREIÐARSDÓTTIR, lést á lungnadeild Landspítalans þriðjudaginn 3. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. júní kl. 13.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Rannveig Ása Guðmundsdóttir og Ásmundur Eiður Þorkelsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.