Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 20
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
GÓÐAR viðtökur neytenda er
ástæða þess að íslenskum paprikum
er í langflestum tilfellum pakkað
saman í ólíkum litum í neyt-
endapakkningar að sögn stærsta
paprikuframleiðanda landsins.
Neytendur hafa því ekki val um að
kaupa stakar íslenskar paprikur eða
fleiri íslenskar paprikur í einum lit
eingöngu.
Það getur valdið gremju að
standa frammi fyrir grænmetis-
borðinu úti í búð og uppgötva að ef
til stendur að nota rauða papriku í
salatið um kvöldið sé ekki val um
annað en að kaupa græna eða gula
papriku með – vilji viðkomandi ís-
lenska framleiðslu. Sjái menn ekki
not fyrir þá grænu eða vilji forða
henni frá skemmdum í ísskápnum
þurfa þeir að leita í erlenda græn-
metið.
Friðrik Friðriksson, grænmetis-
bóndi á Jörfa sem er langstærsti
paprikuframleiðandi landsins, segir
að menn hafi farið að pakka inn
paprikum fyrir nokkrum árum svo
hægt væri að auðkenna þær sér-
staklega sem íslenskar og þannig
koma í veg fyrir að erlendar papr-
ikur væru seldar sem innlendar.
Hann segir að um leið hafi verið
byrjað á því að pakka fleiri en einni
papriku saman og í mismunandi lit-
um. „Áður seldust grænar, rauðar
og gular paprikur í jafnmiklu magni
svo þegar við fórum að pakka þessu
reyndum við að hafa alla liti þannig
að bakkinn yrði sem litskrúðug-
astur. Þá tóku neytendur þessu
fagnandi og þess vegna höfum við
haldið þessu áfram. Við höfum ekki
fengið neina athugasemd um þetta
fyrr.“
Ekki forræðishyggja
Aðspurður tekur Friðrik fyrir að
um einhvers konar forræðishyggju
sé að ræða; að með þessu séu fram-
leiðendur að ákveða fyrir neytendur
hvaða paprikuliti þeir fái. Misjafnt
sé hversu margar paprikur fram-
leiðendurnir setji saman í bakka, en
á Jörfa innihaldi pakkningarnar
tvær paprikur. Helmingur pakkn-
inganna innihaldi aðra paprikuna
græna en í hinum helmingnum séu
Ekki val um lit eða fjölda
neytendur
|fimmtudagur|5. 6. 2008| mbl.is
Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur
gudrunhulda@mbl.is
Dansandi stúlkur í stutt-pilsum að fetta sig ogbretta með dúska í hendiog bros á vör er sennilega
eitthvað sem flestir tengja við banda-
rískar unglingabíómyndir, fremur en
grunnskólapíur á Kjalarnesi. Engu að
síður hefur hópur þeirra síðarnefndu
staðið í ströngu við slíkar æfingar í
vetur.
Tilefnið var klappstýrunámskeið á
vegum Ungmennafélags Kjalarness
sem haldið var í íþróttamiðstöðinni
Klébergi. Var ekki annað að sjá en
stúlkurnar væru vel þjálfaðar þegar
Daglegt líf bar að garði.
Hin átján ára gamla Maríanna
Þórðardóttir hafði veg og vanda af
námskeiðinu. „Kúnstirnar lærði ég á
klappstýrunámskeiði á íþróttalýðhá-
skóla í Danmörku. Ég hef kennt fim-
leika á Kjalarnesi og fékk þá hug-
mynd að standa fyrir
klappstýrunámskeiði hjá UMFK þeg-
ar ég kom heim frá Danmörku. Hug-
myndinni var vel tekið svo ég lét til
skarar skríða,“ segir Maríanna sem
hefur æft fimleika, dans og fleiri
íþróttir síðan hún man eftir sér.
„Klappstýruæfingar eru íþróttir út
af fyrir sig enda eru klappstýrur ekki
eingöngu hugsaðar til að hvetja aðra
íþróttamenn til dáða. Æfingarnar eru
blanda af dansi og fimleikum, auk
þess sem séreinkenni æfinganna eru
hin svokölluðu „stunts“ þar sem
klappstýrunum er kastað upp í loftið
með alls kyns snúningum. Þetta er
erfið en stórskemmtileg íþrótt sem er
iðkuð sem keppnisíþrótt í Danmörku
og víðar.“
Maríanna telur langt í að klapp-
stýrur verði landlægar á Íslandi.
Ásókn í námskeiðið hafi þó verið von-
um framar og íslensku stúlkurnar
voru bæði duglegar og áhugasamar.
„Auðvitað voru æfingarnar erfiðar á
tímum fyrir stelpurnar en þær voru
mjög duglegar og ákveðnar og að lok-
um náðu þær öllum töktunum.“
Hápunktur námskeiðsins var síðan
þegar stelpurnar sýndu kúnstir og
stökk á vorhátíð UMFK þar sem til-
þrif þeirra vöktu verðskuldaða at-
hygli.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Klappstýrur Stelpurnar fóru létt með að stilla sér upp í glæsilegan píramída.
Þjálfarinn Maríanna lærði klappstýrukúnstir á
íþróttalýðháskóla í Danmörku.
Með dúska í hendi
og bros á vör
daglegtlíf
Paprikan er einkar rík af B-
og C-vítamíni. Rauðar papr-
ikur innihalda þrisvar sinnum
meira C-vítamín en appels-
ínugular og grænar. Í þeim er
einnig mikið af A-vítamíni,
steinefnum og trefjum.
Vegna þess að græn papr-
ika er tínd óþroskuð inniheld-
ur hún minna af vítamíni en
litríkari paprika.
Heimild: www.islenskt.is
Rauðar,
gular og
grænar
MEÐAL þeirra sem tóku þátt í námskeið-
inu á Kjalarnesi voru Aþena Valý Orradóttir
og Agnes Ýr Gunnarsdóttir. Þær voru sam-
mála um að það væri gaman að
vera klappstýra. „Ég æfi fim-
leika sem nýtist mér í klapp-
stýruæfingum,“ segir Agnes
Ýr. „Æfingarnar byggja að-
allega á dansi en síðan gerum
við ýmis stunts sem er
mikið fjör,“ segir
Aþena Valý. Bún-
ingana völdu allar
stelpurnar í sam-
einingu úr ýms-
um fötum sem
þær fundu í
Kringlunni.
Gaman að vera
klappstýra
Kátar
Aþena Valý og
Agnes Ýr.