Morgunblaðið - 05.06.2008, Side 33
alltaf á móti öllum fjölskyldumeðlim-
um á sama hátt og þá sérstaklega
barnabörnunum, hvort sem þau voru
blóðtengd henni eða tengdust inn í
fjölskylduna hennar.
Matta var mikil hagleikskona,
hvort sem hún var að prjóna, búa til
hluti úr keramiki eða föndra við perl-
ur, þá lék það allt í höndunum á henni
og allt var gert af mikilli hugvitssemi
og natni. Handavinnan veitti henni
mikla ánægju og var stór hluti af
hennar lífi enda féll henni sjaldnast
verk úr hendi. Þeir eru ekki ófáir
hagleiksmunirnir frá henni, sem
prýða heimilið okkar og á jólunum
tökum við alltaf fram fallegu snjó-
karlana og jólatréð, sem lýsa svo fal-
lega og munu ætíð eiga heiðurstað
hjá okkur til minningar um hana. Á
aðfangadagskvöldi í fyrra, þegar þau
Bensi voru hjá okkur og við vorum að
tala um hversu fallegir munirnir
væru, sem hún hefur gert og prýddu
heimili okkar, var hún hógvær eins
og endranær, en það gladdi hana
greinilega að sjá þá. Það var eftir-
tektarvert hversu vel hún hugsaði
alltaf um hann Bensa sinn og falleg
sjón að sjá þau hjónin leiðast um allt,
passandi hvort upp á annað. Hans
missir er mikill.
Elsku Matta mín. Innilegar þakkir
fyrir samveruna. Við fjölskyldan
kveðjum þig með söknuði en vitum að
þér líður vel núna og við vitum, að
eins og alltaf muntu líta vel eftir
Benna fyrir okkur.
Hildur.
Elsku amma mín, nú ert þú farin
frá okkur og búin að lifa góðu lífi og
skila þínu. Það voru svo mikil róleg-
heit yfir þér síðustu dagana eins og
raunar alltaf.
Það var alltaf svo gott að koma til
ykkar afa, amma mín, í Krummahól-
ana þar sem þið bjugguð eftir að þið
fluttuð frá Hólmavík og síðan seinna
í Dvergabakkann. Nú þegar ég
skrifa þetta léttir yfir mér og ég
brosi út í annað þegar ég minnist
þess þegar þú hjálpaðir okkur systr-
unum að búa til öskupokana fyrir
öskudaginn. Við máttum ekki rífast
og báðar fengum jafnt og ekki mátti
vera með frekju. Þú varst alltaf svo
fær í höndunum og alltaf tilbúin til að
aðstoða mig við saumaskap. Manstu
eftir hvíta kjólnum sem ég gerði með
þinni hjálp. Ég vildi að ég hefði hald-
ið betur utan um þann kjól. Þegar ég
var yngri og var í unglingavinnunni
þá kom ég oft, mjög þreytt eftir dag-
inn og lagði mig hjá ykkur, ég man
hvað þér þótti vænt um það, og þegar
ég vaknaði var alltaf eitthvað gott að
borða.
Ég bjó á Egilsstöðum í rúmt ár og
ég var svo heppin að fá ykkur í heim-
sókn austur á land. Mér fannst til-
valið að þið kæmuð til okkar Inga
vegna þess hversu lítið þið höfðuð
ferðast innanlands. Ég sýndi ykkur
Hallormsstaðarskóg og við keyrðum
um firðina. Ykkur afa þótti þessi ferð
mjög skemmtileg og það má segja að
þetta hafði verið eins og síðbúin
brúðkaupsferð og þið létuð eins og
ástfangnir unglingar. Mér er minn-
isstætt þegar við fórum til Seyðis-
fjarðar. Birgir Snær sonur minn var
þá eins árs gamall og þið urðuð vitni
að fyrstu skrefum hans í þessari ferð
ykkar. Við stoppuðum og fengum
okkur ís í sjoppunni á Seyðisfirði. Við
fengum okkur sæti og ég var í óða
önn að gefa stráknum ís. Þú sagðist
þurfa að fara á salernið, amma! Og
áður en ég vissi af var afi líka farinn.
Ég var dágóða stund ein með
drengnum frammi og var farin að
hafa áhyggjur af því þið létuð nú ekki
sjá ykkur. Ég tók drenginn úr barna-
stólnum og fór að leita. Ég fór inn á
kvennasalernið og þá sá ég ykkur
bæði standandi þarna og þið voruð að
kyssast. Ég hrökk við og strunsaði
aftur út og þið komuð á eftir mér eins
og ekkert hefði gerst en samt svolítið
vandræðaleg á svip.
Svona góðar og miklu fleiri minn-
ingar á ég um ykkur afa, amma mín,
og ég dáist að hversu mikil dugnað-
arkona þú varst og hversu auðvelt
var fyrir þig að eiga öll þessi börn og
annast þína stóru fjölskyldu.
Bless amma mín.
Elísabet Rós Birgisdóttir.
Fleiri minningargreinar um Matt-
hildi Guðbrandsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu daga.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 33
Tilkynningar
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum
Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr.
99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og með
vísan til reglugerðar nr. 1198/2007, er hér með
auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna
innflutnings á blómum, fyrir tímabilið 1. júlí
til 31. desember 2008.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins:
www.stjr.is/slr
Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúla-
götu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00,
miðvikudaginn 11. júní 2008.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
4. júní 2008.
Kvennaskólinn í Reykjavík
Innritun
Innritun nýrra nemenda stendur yfir og er
rafræn. Umsækjendur fara inn á
www.menntagatt.is og fylla þar út umsókn.
Allar umsóknir þurfa að hafa borist skólanum
í síðasta lagi 11. júní.
Námsráðgjafar verða til viðtals í skólanum
10. og 11. júní frá kl. 9.00 til 16.00.
Kvennaskólinn í Reykjavík býður bóknám til
stúdentsprófs.
Brautirnar eru þrjár:
félagsfræðabraut
málabraut
náttúrufræðibraut
Í skólanum er bekkjakerfi en þó mikið val á
3. og 4. námsári.
Nánari upplýsingar um skólann eru á heima-
síðu skólans, www.kvenno.is eða í síma
580 7600.
Auglýsing um skipulag í Eyjafjarðarsveit
A.Tillaga að breytingu á aðalskipulagi.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar
2005 – 2025 með vísan til 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingin felst í stofnun iðnaðarlóðar á eyrum Þverár ytri. Lóðin er ca 5,7 ha og þar er fyrir-
hugað að reisa jarðgerðarstöð fyrir lífrænan úrgang. Við breytinguna minnkar efnistökusvæði
um ca 1,3 ha og landbúnaðarsvæði um ca 4,4 ha. Breytingin er sýnd á uppdrætti í stærðinni A2
og er umhverfisskýrsla dags. í maí 2008 meðfylgjandi uppdrættinum.
B.Tillaga að deiliskipulagi.
Tillaga að deiliskipulagi iðnaðarlóðar í landi Þverár ytri er auglýst með vísan til 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Tillagan sýnir staðsetningu iðnaðarlóðar í
landi Þverár ytri sbr. auglýsingu um breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005 – 2025 hér
að framan. Stærð lóðarinnar er 5,7 ha. Þar er fyrirhugað að reisa jarðgerðarstöð fyrir lífrænan
úrgang. Áætluð stærð byggingar fyrir tækjabúnað er allt að 1250 ferm. að grunnfleti. Vegghæð
5 – 6 m og mesta þakhæð 8 – 9 m. Geymsluhús fyrir stoðefni er áætlað 400 ferm. að grunnfleti.
Malbikuð plön ca 2100 ferm. Afkastageta stöðvarinnar er áætluð 17 þús. tonn á ári.
Tillögur þessar verða til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar frá og með 5. júní til og með 3. júlí
2008. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar er til og með 17. júlí 2008. Athugasemdir
skulu vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögurnar fyrir auglýstan frest telst
samþykkur þeim.
Syðra-Laugalandi 4. júní 2008.
F. h. sveitarstjórnar,
Guðmundur Jóhannsson sveitarstjóri.
FINANCE OFFICER
ASSISTANT
The purpose of the EFTA Surveillance Authority is to ensure the fulfilment by the EEA EFTA States, i.e. Iceland,
Liechtenstein and Norway, of their obligations under the EEA Agreement.
The Authority is located in Brussels, Belgium, and currently employs 60 international civil servants of 16
nationalities. The Authority is led by a College, consisting of three Members appointed by the EEA EFTA States.
The Authority shall be completely independent in the performance of its duties, and shall neither seek nor take
instructions from any Government or body.
The EFTA Surveillance Authority is seeking to fill the following positions in its Administration Department.
The successful applicant will be working with budgets, accounting, payments, voucher handling, travel claims,
payroll and related control activities. In addition, the successful candidate will also carry out tasks relating to
the interpretation and execution of the Authority’s Financial Regulations and Rules and Staff Regulations and
Rules insofar as the latter entails payments. The officer will report to the Director of Administration.
Entry on duty: autumn 2008
The successful applicant will assist the Director in HR and recruitment matters, liaison with Belgian Authorities,
VAT claims, assist new staff members during installation, and procurement of stationary. The incumbent shall
also assist the Finance Officer in various accounting operations, inter alia payroll.
Entry on duty: autumn 2008
A description of conditions and the application procedure for these positions is available at:
https://jobs.eftasurv.int. Compliance with the prescribed procedure is mandatory.
Deadline for application: 30 June 2008
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuauglýsingar