Morgunblaðið - 05.06.2008, Qupperneq 38
Margir listamenn
virðast hjakka í sama
farinu svo árum skiptir eða
jafnvel áratugum … 40
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„ÉG er alltaf í sigurliði,“ fullyrðir
Friðrik Þór glaðhlakkalegur í sím-
ann, nýkominn úr sturtu eftir vel
heppnaðan hádegisfótbolta. Og þeg-
ar ég spyr hann nánar út í næstu
mynd þá kemur í ljós að þar var
hann í sigurliðinu í mun mikilvægari
baráttu. Um er að ræða Sólskins-
dreng, heimildarmynd sem frum-
sýnd verður næsta haust. Myndin
fjallar um leit móður einhverfs
drengs að úrræðum fyrir einhverfan
son sinn. „Þegar við byrjuðum
myndina þá átti hún dreng sem hafði
ekki tjáð sig lengi en síðan hefur
margt áunnist sem enginn sá fyrir,
sem hefur verið mjög ánægjulegt að
sjá. Þetta er ferli sem allir einhverfir
geta farið í, þótt tjáskiptatæknin
komi til þeirra á misjöfnum hraða,“
segir Friðrik Þór og vonast til þess
að stjórnvöld hérlendis fylgi þróun-
inni. „Það sem er fallegast við þetta
er að samfélagið hefur nú ákveðin
úrræði í þessum málum sem stjórn-
völd gera vonandi að sínum. Kali-
forníufylki er langfremst í þessum
rannsóknum, þannig að við eigum
bara að apa eftir því sem þeir eru að
gera og bæta svo við. Ég sé fram á
að þá ættu ekki að verða margir ein-
hverfir eftir fjögur ár sem ekki geta
tjáð sig.“
Friðrik Þór sýndi nokkur atriði úr
myndinni á Skjaldborgar-hátíðinni
sem nú er nýlokið. „Það gekk mjög
vel, ég fékk mjög góð viðbrögð – það
var gott að fá ábendingar frá koll-
egunum,“ segir Friðrik Þór.
Leikstjórinn er með fleiri heimild-
armyndir á prjónunum þótt ekkert
sé komið á þann rekspöl að ástæða
sé til að greina umheiminum frá því,
en fyrst er að klára Sólskinsdreng-
inn og leikstýra svo Mömmu Gógó,
ævisögulegri mynd þar sem Hilmir
Snær leikur leikstjórann og Krist-
björg Keld leikur móður hans.
Friðrik Þór í sigurliði
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Bjartsýnn „Ég sé fram á að þá ættu ekki að verða margir einhverfir eftir
fjögur ár sem ekki geta tjáð sig,“ segir Friðrik Þór.
Merkilegar uppgötvanir um einhverfu í væntanlegri
heimildarmynd leikstjórans Er með fleiri myndir í bígerð
Það má lengi
deila um hvort
betra sé að vinna
hylli gagnrýnenda
eða almennra
áhorfenda, en
Ragnar Bragason
og samstarfsmenn hans í Vestur-
porti geta nú glaðst yfir því að vera
jafn dáðir í báðum hópum, a.m.k. í
Rússlandi. Kvikmynd þeirra, For-
eldrar, hlaut nefnilega nýlega
áhorfendaverðlaunin í Zerkalo-
kvikmyndahátíðinni í Rússlandi (en
hún er haldin í minningu leikstjór-
ans mikla, Andrei Tarkovsky) og
fylgdi þar með eftir velgengni tví-
buramyndar sinnar, Börn, sem
vann gagnrýnendaverðlaunin á
sömu hátíð fyrir ári, en þar fékk
Ólafur Darri Ólafsson einnig verð-
laun fyrir leik sinn. Það var Ingvar
E. Sigurðsson sem brá sér til Rúss-
lands og tók við viðurkenningunni
fyrir hönd hópsins.
Vinsælir Foreldrar
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„KREPPA er perfekt fyrir listamann sem á ekki
neitt,“ segir Erpur Eyvindarson þegar hann er
spurður um þann aukna kraft sem virðist kom-
inn í Rottweilergengið síðustu misseri. Erpur
vinnur sjálfur að gerð nýrrar sólóplötu, og Rott-
weiler hundarnir gáfu út lagið Reykjavík Belfast
í gegnum Myspace fyrir skemmstu.
Erpur getur ekki sagt til um með vissu hvenær
nýja platan er væntanleg í búðir. „En ég er kom-
inn vel á leið með hana og með mörg lög í hausn-
um,“ segir hann. Erpi gefst kannski ekki mikill
tími til að semja því XXX Rottweiler hundar eru
eftirsóttir í tónleikahald. „Við erum búnir að
vera að spila eins og svín út um allt í vetur, búnir
að taka beisikallí öll menntaskólaböll og spil-
uðum meira segja á [ritsk.] Höfn í Hornafirði.“
Eru hringitónar framtíðin?
Tónleikahald segir Erpur að sé líka eina leiðin
fyrir tónlistarmenn í dag til að afla sér tekna að
ráði enda alls óvíst með tekjur af útgáfu. „Tón-
listarheimurinn er í einhverju tómarúmi á milli
plötuútgáfunnar, sem er að deyja út, og síðan
einhvers sem ekki er ennþá komið en verður
væntanlega gegnum netið. Vandinn er að rafræn
sala er ekki orðin nógu þróuð og skilar sér ekki
endilega fjárhagslega til tónlistarmannsins,“
segir hann. „Þegar plötusalan er í þessari stöðu
þá þurfa menn að spila meira á tónleikum. Nú er
til dæmis Madonna búin að segja upp samningum
við gamla útgefandann og komin á samning hjá
tónleikafyrirtæki, enda öruggara að fá borgað
fyrir tónleika en plötu sem endar á Viking Bay.“
Blaðamaður stenst ekki mátið að stríða Erpi:
Er ekki hipp-hoppið orðið úrelt og staðnað? Ald-
eilis ekki, segir Erpur og nefnir hvernig ný sóló-
lög hans eru undir nýjum og spennandi áhrifum
suður-amerískra og karabískra Reggaeton- og
Dancehall-strauma og bresks dubstep á meðan
Rottweiler hundarnir eru að verða fyrir miklum
áhrifum frá suðurríkjarappi „Lögin sem við er-
um að gera núna eru allt öðruvísi en það sem við
höfum gert áður. Það eru til dæmis þvílíkar
breytingar á því hvernig ég beiti röddinni og set
saman rímurnar. Áherslurnar í skrifum og
uppsetningu eru allt aðrar og ekki lengur jafn-
hrár heildarhljómur eins og var á fyrstu plöt-
unum,“ segir hann. „Þetta er heavy fresh!“
Innblástur auðfenginn
Erpur Eyvindarson vinnur að nýrri plötu og segir hipp-hoppið aldrei hafa
verið ferskara XXX Rottweiler hundar spila á Trix í Keflavík á laugardag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alltaf ferskur Erpur segir tónlistarmenn í vanda stadda þegar kemur að útgáfumálum í dag. Einu öruggu tekjurnar er að fá með tónleikahaldi.
Blaðamaðurinn Arnar Eggert
Thoroddsen er farinn út til Lund-
úna til að fylgjast með umsvifum
Garðars Thors Cortes vegna vænt-
anlegrar breiðskífu hans sem kem-
ur út 23. júní næstkomandi. Garðar
mun syngja Carmen í Hampton
Court með The Royal Philharmonic
Orchestra í kvöld en daginn eftir
mun hann sitja fyrir vegna greinar
sem birt verður í hinu annálaða lífs-
tílsriti Hello. Algjör „vinstri-hægri“
sveifla eins og Einar Bárðarson,
umboðsmaður Garðars, orðaði það
en Arnar verður sem fluga á vegg á
meðan atganginum stendur og mun
senda hingað skýrslur um fram-
ganginn. Mikill hugur er annars í
Garðari og co. vegna plötunnar en
vonast er til að hún komi honum í
meistaradeild þess geira sem hann
starfar innan.
Fleiri trix í bókinni?