Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 8. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 205. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er LISTIR ÞORSKURINN LÝSIR GESTUM Í LEIFSSTÖÐ REYKJAVÍKREYKJAVÍK Íslenskt hjólabretti á teikniborðinu FÓTFRÁASTA frjálsíþróttakona landsins, Silja Úlfarsdóttir úr FH, vann fimm gullverðlaun á Meistaramóti Íslands um helgina. Hún hefur ákveðið að hætta keppni en hér kemur hún í markið í síðustu greininni, þar sem hún tryggði FH sigur í 4x400 metra boðhlaupi. „Ég kveð mjög sátt,“ sagði Silja við Morgunblaðið en FH varð Íslandsmeistari félagsliða. | Íþróttir Morgunblaðið/hag Síðustu metrar Silju? „Það er engin trygging fyrir því að sá brothætti pakki sem byrjaði að verða til á föstudagsnótt muni lifa af,“ sagði Peter Mandelson, sem fer með viðskiptamál í framkvæmdastjórn ESB, um samningsstöðuna í Genf þar sem tekist er á um nýjan samning um heimsviðskipti. Þó lengi hafi verið deilt um viðskipti með landbúnaðarvörur á vettvangi WTO er ekki síð- ur ágreiningur um markaðsaðgang fyrir iðn- aðarvörur. Tekist er á um gífurlega flókin mál. Ekki er um það að ræða að ljúka samningum um hluta málsins. Það er annaðhvort allt eða ekk- ert. Brothættur pakki Peter Mandelson Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is NÁIST samkomulag í Doha-viðræð- unum á þeim nótum sem rætt hefur verið um síðustu daga má búast við að heimilt verði að flytja til landsins helmingi meira af svínakjöti, kjúk- lingum, nautakjöti og ostum á lág- markstollum en leyft hefur verið til þessa. Innflutningurinn gæti þá numið 7-10% af innanlandsneyslu. Mjög tvísýnt er hvort samkomu- lag náist í Doha-viðræðum en samn- ingalota hefur staðið í Genf undan- farna daga. Á föstudag þokuðust samningamenn í átt til samkomulags og var þá ákveðið að halda viðræðum áfram. Sigurgeir Þorgeirsson, ráðu- neytisstjóri í sjávarútvegs og land- búnaðarráðuneytinu, segir að gerist ekkert í dag muni þessi lota líklega renna út í sandinn. „En það er engin leið að átta sig á hvernig þetta fer.“ Viðkvæmar vörur Í þeim samningsdrögum sem samningamenn eru að takast á um hefur verið rætt um 70% lækkun á tollheimildum. Það þýðir ekki að toll- ar á búvörum muni almennt lækka um 70% vegna þess að álagðir tollar eru mun lægri en heimildirnar. Samningsdrögin gera ráð fyrir að aðildarþjóðir WTO geti skilgreint 6% af „tollalínum“ sem viðkvæmar vörur, en það þýðir að tollar á þeim lækka minna en á öðrum vörum. Ganga má út frá því að Ísland muni skilgreina svínakjöt, kjúklinga, nautakjöt og osta sem viðkvæmar vörur. Tollar á þessum vörum munu því líklega lækka um 23-46%. Sig- urgeir segir að þrátt fyrir þessa lækkun muni tollarnir áfram fela í sér mikla vernd fyrir íslenskan land- búnað. Það sem skipti hins vegar meira máli er að Ísland kemur til með að þurfa að tvöfalda þann inn- flutningskvóta sem fluttur hefur ver- ið inn á lágmarkstollum. Fram að þessu hefur hann verið um 5% af inn- anlandsneyslu, en Sigurgeir segir að hann muni fara upp í 7-10%. Þetta myndi því auka markaðsaðgang er- lendra landbúnaðarvara að íslenska markaðinum umtalsvert, þ.e.a.s. ef samningar takast í Genf. Tvöfalt meiri innflutningur? Ögurstund að renna upp í Doha-viðræð- unum um aukin viðskipti með búvörur Í HNOTSKURN »Í núgildandi WTO-samningum eru viðmið- unarárin 1986-88. Náist samn- ingar verður hins vegar miðað við árin 2003-05. Neysla á kjúklingum og svínakjöti hef- ur aukist mikið hér á landi og því myndi þessi breyting fela í sér að heimildir til að flytja inn svín og kjúklinga á lág- markstollum ykjust talsvert.  Bjarni Guð- jónsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Skagamanna, samdi í gær- kvöldi við KR- inga til fjögurra ára. Hann getur leikið með þeim strax annað kvöld þegar þeir mæta Fjölni. Bjarni var í liði ÍA í síðasta sinn í gærkvöldi en þá steinlá það á heimavelli gegn FH-ingum, 2:5. Strax að leik loknum hélt Bjarni í Vesturbæinn og skrifaði undir hjá KR. » Íþróttir Bjarni Guðjónsson samdi við KR til fjögurra ára  Lögð hefur verið inn hjá Hlutafélagaskrá samrunaáætlun vegna samruna Byrs sparisjóðs við hlutafélagið Byr sparisjóður hf. Slíkur sam- runi er nauðsynlegur eigi að breyta sparisjóði í hlutafélag. Stjórn Byrs tilkynnti í upphafi júlímánaðar að athugun á kostum þess að breyta sjóðnum í hlutafélag stæði yfir. Með stofnun áðurnefnds hlutafélags má ætla að undirbún- ingur að hamskiptum sjóðsins sé vel á veg kominn. Hluthafafundur Byrs þarf að sameina tilhögunina með 2⁄3 at- kvæða og sömuleiðis er hún háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. » 14 Verður sparisjóðurinn Byr brátt að hlutafélagi?  Sprengingar í Ahmadabad á Ind- landi á laugardagskvöld urðu að minnsta kosti 45 manns að bana og 160 eru slasaðir. Óþekktir hryðju- verkamenn sprengdu 16 sprengjur nær samtímis víðs vegar um borg- ina. Í gærkvöldi létust minnst 15 og 154 slösuðust í tveimur spreng- ingum í Istanbúl á Tyrklandi. » 13 Tugir manna látnir eftir margar sprengingar Reiði Maður í Allajabad mótmælir. „ÉG held að tími sé kominn til að láta verkin tala. Það eru ekki mörg ár til stefnu, því að óbreyttu lifir þetta sveitarfélag ekki lengi,“ segir Oddný Þórðardóttir á Krossnesi, oddviti Árneshrepps, um nýút- komna skýrslu Byggðastofnunar um byggðarlög, sem búa við viðvar- andi fólksfækkun. Oddný segist ekki vera viss um, að synir hennar muni setjast að í Árneshreppi og hún bendir á, að unglingarnir þar hafi undantekn- ingarlaust farið úr grunnskóla í framhaldsskóla. Guðbjörg Þorsteinsdóttir í Bæ, sem þar hefur búið alla tíð, segir, að þetta snúist um fimm ár að sínu mati: „Ef ekkert jákvætt gerist á þeim tíma, þá fjarar byggðin út, svo ein- falt er það.“ | 8 Ef ekkert jákvætt ger- ist þá fjarar byggðin út Óvissa um framtíðina í Árneshreppi ÍÞRÓTTIR Kristján Þór Einarsson og Helena Árnadóttir urðu í gær Íslandsmeist- arar í golfi eftir gífurlega spenn- andi keppni í Vestmannaeyjum. Úr- slit réðust í bráðabana, bæði hjá körlum og konum. Kristján og Helena Íslandsmeistarar Það voru skoruð 15 mörk í tveimur leikjum í fótboltanum í gærkvöld þegar FH vann ÍA, 5:2, á Akranesi og Valur vann Grindvíkinga suður með sjó, 5:3. Helgi Sigurðsson gerði þrennu fyrir Valsmenn. FH skoraði fimm mörk á Akranesi Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik tapaði öllum þremur leikjum sínum á móti í Frakklandi. Síðast fyrir Egyptum í gær, 30:33. Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálf- ari hefur um margt að hugsa. Íslendingar töpuðu fyrir Egyptum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.