Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 9 Nóg að gera Edda Hafsteinsdóttir og Guðlaugur Ágústsson í kaffihús- inu í Norðurfirði.  MYNDARLEGT kaffihús tók til starfa í Norðurfirði í Árneshreppi í vor. Húsnæðið er í eigu hreppsins, en áður var þar aðstaða fyrir menn sem unnu í sláturhúsinu á staðnum meðan það var rekið og síðar gistu þar sjómenn sem reru frá Norð- urfirði. Húsnæðið hafði staðið autt í nokkur ár, en til að nýta það um leið og störfum var fjölgað var ráð- ist í endurbætur á húsinu síðastlið- inn vetur. Þau Edda Hafsteinsdóttir og Guðlaugur Ágústsson eru með húsnæðið á leigu og reka kaffi- húsið. Auk Eddu vinna tvær ung- lingsstúlkur frá Melum á staðnum. Á þennan hátt tókst að skapa 2-3 störf og hefur kaffihúsið verið vin- sælt meðal ferðamanna í sumar og aðsókn verið góð. Vinsælt kaffihús ÞAÐ er sérstakt að sitja á spjalli með mæðg- unum í Bæ í Árneshreppi á Ströndum og hugsa til þess að tólfti ættliðurinn undir þessu sama fjalli, að minnsta kosti, kom í heiminn í ársbyrjun. Heimasæturnar Magnea Fönn, fimm mánaða, og Aníta Mjöll, tæplega tveggja ára, eru yngstar í þessum hópi undir Finn- bogastaðafjalli. Eftir 50 ár verður fjallið örugglega á sínum stað, en spurningin er hvernig byggðinni reiðir af á næstu áratug- um. „Maður skyldi aldrei segja aldrei, en ef ég flyt héðan úr sveitinni verð ég alla vega með þeim síðustu til að fara í burtu,“ segir Guð- björg Þorsteinsdóttir í Bæ. Hún hefur alla tíð búið á sömu torfunni; fædd og uppalin á Finn- bogastöðum, en flutti árið 1972 að Bæ. Þar byrjuðu hún og eiginmaður hennar, Hjalti Guðmundsson, búskap með tengdaforeldrum hennar árið 1972, en Hjalti lést árið 2005. Nú hefur Pálína dóttir þeirra tekið við bús- forráðum ásamt Gunnari Helga Dalkvist Guð- jónssyni, eiginmanni sínum. Þau eiga dæt- urnar Magneu Fönn og Anítu Mjöll. Nöfnin á stelpunum hafa ekkert með fannfergi vetr- arins að gera, foreldrunum fannst nöfnin ein- faldlega falleg. Pálína og Gunnar eru yngstu bændurnir í hreppnum, en með stærsta býlið. Í Bæ eru rúmlega 500 fjár, en eingöngu er búið með sauðfé í Árneshreppi. Ekki lausar við öfund „Það er yndislegt að vera hérna,“ segir Pál- ína. „Flestar vinkonur mínar eru ættaðar héð- an úr hreppnum og þær hafa skilning á því að ég vilji búa hér í Bæ. Það er reyndar ekki laust við að þær öfundi mig stundum þegar þær eru þreyttar á stressinu og tímaleysinu í bænum. Það hefur gengið mjög vel með stelpurnar, þær hafa verið hraustar, 7-9-13. Annars kem- ur læknir hingað á tveggja vikna fresti, en fólk hér um slóðir er ekkert að kvarta nema eitthvað alvarlegt sé að. Vonandi verður skóli enn hér á Finn- bogastöðum þegar stelpurnar komast á skóla- aldur. Fækkunin hefur verið ótrúlega hröð eins og sést á því að þegar ég var í skólanum vorum við yfir tuttugu. Núna eru tvær stelpur í skólanum og að óbreyttu verða nemendur 1-2 næstu 15 árin. Við verðum að fá fleira fólk hingað til að byggðin fjari ekki út. Ég trúi ekki öðru en að þetta lagist,“ segir Pál- ína, sem verður leiðbeinandi í skólanum næsta vetur og sér um ýmsa verklega kennslu. Pálína og Guðbjörg móðir hennar nefna báðar að bætt netsamband myndi breyta mjög möguleikum sveitarinnar. Með slíkri nútíma- væðingu mætti bæði stunda vinnu og nám í höfuðborginni frá tölvu á Norður-Ströndum. Fjarar út hægt og rólega „Ef ekki kemur ungt fólk inn í þetta sam- félag okkar þá fjarar sveitin bara út hægt og rólega, við erum nú ekki beinlínis að yngjast þessir bændur hér,“ segir Guðbjörg. „Það er bara jákvætt að Árneshreppur sé í umræðunni og vonandi kemur eitthvað já- kvætt úr þessum skýrslum. Best væri ef hægt væri að styðja við bakið á ungum bændum svo þeir geti komið sér af stað í rekstrinum. Eins og þetta er núna þá gerist það ekki nema með því að ungt fólk taki við af foreldrum sínum. Ferðaþjónustan er góð eins langt og hún nær en hún er takmörkuð við sumartímann. Þessi sveit hefur svo margt að bjóða um- fram þéttbýlið; kyrrðina, náttúruna, feg- urðina. Það er meira að segja fallegt hérna í blindbyl að vetrarlagi. Ég þekki heldur ekki annað, fædd hér og uppalin, hef búið hér alla mína tíð og vildi ekki skipta. Að mínu mati er þetta spurning um fimm ár. Ef ekkert jákvætt gerist á þeim tíma fjarar byggðin út, svo ein- falt er það,“ segir Guðbjörg í Bæ. Tólf ættliðir undir sama fjalli Mæðgur Þær Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Pálína Hjaltadóttir, Magnea Fönn og Aníta Mjöll í blíðunni fyrir framan íbúðarhúsið í Bæ í Árneshreppi á Ströndum. „VISSULEGA var veturinn oft erf- iður og langur en ég segi það alveg satt, að ég er farinn að hlakka til næsta vetrar,“ segir skólastjórinn í Finnbogastaðaskóla, Elín Agla Briem. Skólinn er annar tveggja fá- mennustu skóla landsins en bæði í Finnbogastaðaskóla og í skólanum í Mjóafirði voru tveir nemendur síð- astliðinn vetur. Elín Agla segir tilviljun hafa ráðið því að hún fluttist norður í Árnes- hrepp. „Ég sat á kaffihúsi í miðborg- inni í júní í fyrra og fletti gömlum Mogga. Þá rak ég augun í auglýs- ingu með fyrirsögninni: „Ertu göldr- ótt/ur.“ Þannig var auglýst eftir skólastjóra í Finnbogastaðaskóla og eftir samtal við Jóhönnu í Árnesi, formann skólanefndar, var ég ráðin hingað norður og sé ekki eftir því. Hvort ég er göldrótt? Þessu er ekki hægt að svara, hvorki játandi né neitandi, þá væri enginn galdur eftir.“ Elín Agla er gift Hrafni Jök- ulssyni, sem m.a. hefur starfað sem blaðamaður, ritstjóri og skákfröm- uður og skrifaði meðal annars bók- ina Þar sem vegurinn endar og kom út fyrir síðustu jól. „Við Hrafn komum hingað í apríl í fyrra til að gifta okkur. Ætlunin var að þetta yrði allt mjög einfalt en þegar fólkið í sveitinni frétti af þessu tilstandi okkar, kom ekki ann- að til greina en að slá upp veislu. Heimamenn mættu með stórkost- legar veitingar og gerðu sér glaðan dag með okkur. Þannig kynntist ég fólkinu í Árneshreppi í fyrsta skipti og ber eðlilega sterkar taugar til þessa dags og þessa samheldna fólks.“ Fúlgur fjár fyrir einangrun Elín Agla er heimspekingur frá Háskóla Íslands en fór síðan í fram- haldsnám í Englandi. Þar lagði hún m.a. stund á búddísk fræði og heim- speki og bjó um tíma í Búddamið- stöð. Hún segir að búddisminn hafi að mörgu leyti nýst henni síðastlið- inn vetur. „Að mörgu leyti er þetta eins og að setjast fyrir framan spegil og skoða það sem þú sérð og læra að þekkja sjálfan sig. Í kringum páskana var ég til dæmis ein í skól- anum í fimm daga. Það var kafalds- bylur allan tímann, ófært innan sveitar, húsin nánast á kafi í snjó og eðlilega varla nokkur maður á ferð. Eftir fimm daga einangrun kom Jón Björn í Litlu-Ávík með póstinn. Það var gott að sjá hann en svo var hann rokinn og við tóku tveir dagar í viðbót án þess að ég sæi nokkra hræðu. En veistu, þetta var stór- merkilegt og í útlöndum er fullt af fólki sem borgar fúlgur fjár til að komast í svona aðstöðu.“ En tilheyra hún og Hrafn ekki 101 Reykjavík? „Núna er staðan þannig að við er- um hluti af samfélaginu hérna og eigum ekki annað heimili. Sennilega blundar 101 Reykjavík líka í okkur en við vorum eiginlega búin að fá nóg. Ég er ekki að segja að það sé betra hér og verra annars staðar. Það er einfaldlega svo mikilvægt að hafa fjölbreytni og mismunandi möguleika fyrir fólk til að lifa lífinu. Auðvitað er ekki alltaf eintóm sæla að vera hérna; dimmt á vetr- um og kalt og ekki hægt að skreppa í bíó. Það er bara svo margt annað.“ Samfélagið má ekki deyja út Elínu Öglu er umhugað um að byggð haldist í Árneshreppi og nái að dafna á komandi árum. Hún bendir á að lítið þurfi til að styrkja stoðirnar. Með komu fjögurra manna fjölskyldu í hreppinn yrði um 10% fjölgun. Ef börnin væru á skóla- aldri þýddi það tvöföldun á nem- endafjölda. „Samfélagið hérna stendur völt- um fótum og við þurfum fleira fólk hingað til að viðhalda sögunni, menningunni og lifnaðarháttum sem gengið hafa mann fram af manni. Þetta samfélag má ekki deyja út. Það er svo ótrúlega lítið sem þarf að gera, fyrst og fremst er það betra netsamband, í öðru lagi þyrfti að bæta samgöngur og moka veginn oftar eftir áramót en gert hefur ver- ið og í þriðja lagi bráðvantar hér 2-3 leiguíbúðir. „Flest annað getum við séð um sjálf,“ segir Elín Agla að lok- um. „Þá væri enginn galdur eftir“ Í sveitinni Elín Agla er að hefja sitt annað starfsár sem skólastjóri í Finn- bogastaðaskóla. Henni og heimalningnum Urðarketti kemur vel saman. Elín Agla Briem skólastjóri á Finn- bogastöðum hlakkar til vetrarins  AUKIN ferðaþjónusta er meðal þess sem talið er til tækifæra í at- vinnuuppbyggingu í Árneshreppi. Valgeir Beneiktsson, bóndi í Árnesi í Trékyllisvík, og Hrefna Þorvalds- dóttir, kona hans, hafa byggt upp og reka minja- og handverkshúsið Kört og var húsnæði safnsins ný- lega stækkað. Hrefna starfar í Kört ásamt dótturinni Rakel Valgeirs- dóttur sem stundað hefur nám í þjóðfræði við HÍ. Minjasafnið er í einkaeigu og einnig eru handverksgripir eftir fólk í sveitinni boðnir þar til sölu. Húsið sjálft er sérstakt og gaman að koma þar við, en það er að mestu byggt úr rekaviði. Opið er alla daga í Kört og þar er einnig rekin upp- lýsingaþjónusta um Árneshrepp. Handverkshúsið Kört – minjasafn í einkaeigu  MIKIL samheldni er meðal íbúa í Árneshreppi. Elín Agla nefnir dæmi: „Annan hvern laugardag er haldinn saumaklúbbur í sveitinni, sem sannarlega ber nafn með rentu. Þá mæta allir frá Kjörvogi að Krossnesi og gera sér glaðan dag. Þessi saumaklúbbur stendur und- ir nafni því konurnar virkilega sauma og prjóna en kallarnir taka í spil. Veitingar eru síðan fram born- ar svo borðin svigna. Húsmæður hér í sveit kunna sannarlega að taka á móti gestum. Þessar sam- komur eru haldnar á bæjunum til skiptis og eru eftirminnileg manna- mót. Sem betur fer er röðin ekki komin að mér alveg strax.“ Mikil samheldni  HRAFN Jökulsson heldur úti starfsemi Skákfélagsins Hróksins norðan frá Trékyllisvík og hefur haldið fjölmenn skákmót í sveitinni. Í haust hyggst hann, sér til gamans, vera með 7 gimbrar og lambhrút á fóðrum hjá Guðmundi bónda á Finnbogastöðum. Hrúturinn hefur fengið nafnið Urðarköttur, nafn sem Finnbogi rammi bar fram á unglingsár. Finnbogi var borinn út sem ung- barn og var í fyrstu kenndur við urðina þar sem hann fannst og nefndur Urðarköttur. Hrafn hefur jafnframt falast eftir tveimur gimbrum frá Bæ. Þær eru undan á sem ber nafnið Ill. Hún gekk úti í síðastliðinn vetur með dætrum sínum en til þeirra sást í Drangavík þegar komið var fram á vor. Urðarköttur og 7 gimbrar unni lýkur um ástand og horfur í hreppnum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.