Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF FRÉTTASKÝRING Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is UNDIRBÚNINGUR fyrir hluta- félagavæðingu Byrs sparisjóðs virð- ist vera langt á veg kominn. Stofnað hefur verið hlutafélagið Byr spari- sjóður hf. auk þess sem stjórn spari- sjóðsins hefur undirritað samruna- áætlun Byrs sparisjóðs og Byrs sparisjóðs hf. Samruninn mun mið- ast við 1. apríl 2008. Eins og fram kom í fjölmiðlum fyr- ir nokkru hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki í viðskiptalífinu um nokkurt skeið þess efnis að til stæði að sameina Byr Glitni banka. Þess- um orðrómi hafa talsmenn beggja fyrirtækja neitað en orðrómurinn er enn til staðar og fékk hann töluverð- an vind í seglin þegar stjórn Byrs til- kynnti nú í byrjun júlí að sjóðurinn hefði látið kanna kosti hluta- félagavæðingar. Þess má geta að samrunaáætlunin er dagsett 30. júní sl. Samrunaáætlun samþykkt Fjallað er um hamskipti spari- sjóðs í hlutafélag í 73. grein laga nr. 161 frá árinu 2002. Þar segir m.a. að slík breyting skuli framkvæmd „… þannig að sparisjóðurinn sam- einist hlutafélagi sem sparisjóðurinn hefur áður stofnað í því skyni að taka við rekstri sparisjóðsins og öllum eignum hans og skuldum, réttindum og skuldbindingum.“ Eins og áður segir hefur slíkt hlutafélag þegar verið stofnað og í greinargerðum stjórna Byrs sparisjóðs og hluta- félagsins, sem nálgast má hjá Fyr- irtækjaskrá, kemur fram að stjórn- irnar – sem eru skipaðar sama fólki – hafi samþykkt sameiginlega áætlun um samruna félaganna. Þar segir jafnframt að Byr sparisjóður hf. sé „stofnaður í þeim tilgangi að breyta félagsformi Byr sparisjóðs í hluta- félag og mun hlutafélagið hafa með höndum sömu starfsemi og Byr sparisjóður hefur nú.“ Því má fastlega gera ráð fyrir að Byr verði innan tíðar breytt í hluta- félag en eins og fram kom í frétta- skýringu í Viðskiptablaði Morg- unblaðsins hinn 15. maí sl. þarf að taka nokkur skref til viðbótar áður en hlutafélagavæðing sparisjóðs verður endanlega að veruleika. Samkvæmt áðurnefndri lagagrein þarf fundur stofnfjáreigenda að sam- þykkja slíka breytingu með 2⁄3 hluta greiddra atkvæða. Að því loknu þarf að óska eftir samþykki Fjármálaeft- irlitsins á breytingunni og að því loknu er leiðin greið. Aðeins einu sinni hefur reynt á þetta ferli, þegar Spron var breytt í hlutafélag í fyrra, og fékkst leyfi FME fyrir því án at- hugasemda. 58 milljarðar króna Verðmat óháðs aðila á sparisjóðn- um er hluti af því ferli sem lög kveða á um þegar honum skal breytt í hlutafélag. Eins og fram kom í Við- skiptablaði Morgunblaðsins á fimmtudag hefur Capacent metið Byr á 58 milljarða króna en þar kem- ur jafnframt fram að áætlað sé að halda stofnfjáreigendafund þar sem fjallað verður um málið hinn 27. ágúst nk. Þar sem forsendur verðmatsins eru ef til vill ekki allar ljósar er erfitt að leggja á það mat en eðlilegt er að menn velti vöngum yfir því og beri það saman við verðmat sem Capa- cent gerði á Spron fyrir breytingu þess sjóðs í hlutafélag. Verðmatið á Spron hljóðaði upp á 60 milljarða króna en eins og kunnugt er hefur gengi Spron hrapað síðan þá og verði af sameiningu sjóðsins við Kaupþing verður hann keyptur á 19 milljarða. Á ekkert í Existu Benda má á nokkra þætti sem ekki eru nákvæmlega hinir sömu og ber þá fyrst að nefna að eigið fé Byrs í lok mars var töluvert meira en eigið fé Spron í lok sama mánaðar árið 2007. Að sama skapi var efnahags- reikningur Byrs nú öllu stærri en efnahagsreikningur Spron ári áður. Ennfremur á Byr ekki jafnmikið undir því að þróun á hlutabréfa- mörkuðum sé hagstæð og Spron en eins og margoft hefur komið fram kom gengisfall Existu sér mjög illa fyrir Spron. Að lokum má nefna að ólíklegt verður að teljast að Byr fari inn á hlutabréfamarkað á næstunni, hvort sem af samruna við Glitni verður eða ekki. Því er markaðsvirði sjóðsins ekki á sama hátt háð skap- sveiflum hlutabréfamarkaðarins og sumir vilja meina að raunin hafi orð- ið með Spron. Undirbúningi að ljúka? Morgunblaðið/G.Rúnar Byr Sjóðurinn varð til við samruna Sparisjóðs vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar í ársbyrjun 2006. Hlutafélagið Byr sparisjóður hf. hefur verið stofnað og samrunaáætlun við Byr sparisjóð samþykkt en samþykki stofnfjáreiganda hefur enn ekki fengist Í HNOTSKURN » Breyta verður sparisjóði íhlutafélag eigi hann að sameinast öðru hlutafélagi. » Stjórn Byrs segir hluta-félagavæðingu gera fjár- mögnun auðveldari en spari- sjóðsformið. » Hlutabréf eru einnig talinfýsilegri fjárfesting- arkostur. TAP af rekstri 365 hf. á fyrri helm- ingi þessa árs nam 2,1 milljarði króna. Þetta er mun verri afkoma en á sama tíma- bili í fyrra, en þá var tap félagsins 80 milljónir. Skýrist aukið tap að stærstum hluta af tveimur þáttum, annars vegar stóraukn- um fjármagns- kostnaði, og hins vegar afskrift á viðskiptavild vegna dótturfélagsins Pósthússins. Fjármagnskostnaður 365 hf. á fyrri helmingi þessa árs var 1.782 milljónir en 170 milljónir í fyrra. Á árinu hafa verið afskrifaðar 438 milljóna króna á viðskiptavild vegna Pósthússins, sem dreifir Fréttablaðinu. Tekjur 365 hf. jukust um 27% á milli ára. Má rekja það annars veg- ar til þess að Pósthúsið var tekið inn sem dótturfélag frá og með apr- ílmánuði síðastliðnum, og hins veg- ar til nýrrar áskriftarsjónvarps- stöðvar, sem hóf göngu sína á seinni hluta árs 2007, og sýnir enska fótboltann. Heildareignir 365 hf. námu um 14,2 milljörðum króna í lok júní- mánaðar og höfðu lækkað um rúm- ar 400 milljónir frá síðustu áramót- um. Vaxtaberandi skuldir höfðu hins vegar aukist um liðlega 1.400 milljónir á sama tíma og námu tæp- um 8,7 milljörðum í lok júní. Segir í tilkynningu 365 hf., sem birt var á vef Kauphallarinnar á Íslandi rétt fyrir klukkan 10 síðastliðið föstu- dagskvöld að aukning vaxtaberandi skulda skýrist af gengisfalli krón- unnar og vaxandi verðbólgu. gretar@mbl.is Afkoma 365 hf. versnar mikið BANDARÍSK fjármálayfirvöld lok- uðu tveimur bönkum í Bandaríkj- unum síðastliðinn föstudag. Hins vegar tókst að koma í veg fyrir að viðskiptavinir bankanna, sem áttu innlánsreikninga í þeim, yrðu fyrir skaða, að því er fram kemur í frétt á fréttavef Wall Street Journal. Þar með hafa sjö bankar hætt starfsemi vestanhafs það sem af er þessu ári en þrír þeirra hafa verið með eignir yfir einum milljarði doll- ara. Þetta eru fleiri bankar en lokað var samanlagt á tímabilinu frá 2004 til 2007, en þó langt í frá að vera eins margir bankar og hættu starf- semi á níunda áratug síðustu aldar og í byrjun tíunda áratugarins. Mikið tap Bankarnir sem lokað var síðast- liðinn föstudag, sem eru nýjustu fórnarlömb fjármálakreppunnar vestanhafs, eru First National Bank of Nevada í Reno í Nevada og First Heritage Bank á Newport Beach í Kaliforníu. Báðir voru hluti af eign- arhaldsfélaginu First National Bank, en báðir bankarnir höfðu tap- að háum fjárhæðum að undanförnu vegna hárra afskrifta á lánamark- aði. Samkvæmt frét WSJ voru eignir First Nationa Bank of Nevada um 3,4 milljarðar dollara. Segir í frétt- inni að þetta há fjárhæð gefi til kynna að um nokkuð umfangsmikið bankahrun sé að ræða. Þó sé þetta töluvert minna en þegar IndyMac- bankanum var lokað fyrr í þessum mánuði, en eignir hans námu um 32 milljörðum dollara. First National Bank of Nevada var með 25 útibú. Hinn bankinn, First Heritage, var töluvert minni en First National Bank of Nevada, með einungis þrjú útibú og eignir upp á 254 milljónir dollara. Fjármálayfirvöld í Bandaríkjun- um hafa verið undirbúa sig fyrir enn frekara hrun á bankamarkaði þar með því að fjölga starfsfólki hjá eft- irlitsstofnunum, að því er fram kem- ur í frétt WSJ. gretar@mbl.is Tveir til við- bótar á hausinn Reuters FDIC Sheila Bair er stýrir stofn- uninni sem leggur bankana niður. Sjö bankar vestanhafs hafa hætt á árinu Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „ÞESSI samningur markar ákveðin tímamót hjá okkur,“ segir Björn Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Skandinavia leikja ehf. Skandinavia mun útvega Coca Cola í Svíþjóð, Danmörku, Finn- landi og Noregi PC-tölvuleiki fyrir vildarkerfi fyrirtækisins á vefnum í hverju landi. Samningurinn gengur út á að leikirnir verða auglýstir á flöskum Coca Cola á öllum Norð- urlöndunum. Notendur geta nálg- ast leikina á sérstökum leikjasvæð- um þar sem hægt verður að kaupa leikina á góðu verði að sögn Björns. Skandinavia mun alfarið sjá um rekstur þessara leikjasvæða. Tók nokkur ár Björn segir að það hafi tekið nokk- ur ár að landa þessum samningi. Hann er afskaplega ánægður með að starfa með einu þekktasta vöru- merki heims sem muni auglýsa þessa þjónustu. Viðskiptavinir Coca Cola skipti tugum milljóna. Hann vill ekki upplýsa hvaða fjárhæðir liggja að baki samn- ingnum. Það sé trúnaðarmál. Samkvæmt upplýsingum frá Birni er takmarkið að gera Coca Cola leiðandi í stafrænni dreifingu á tölvuleikjum á netinu og gefa við- skiptavinum drykkjarvörufram- leiðandans bestu leikina á góðu verði. „Takmark okkar er að nýta þetta tækifæri eins og mögulegt er í sam- starfi við þekktustu tölvuleikja- framleiðendur heims,“ segir Björn. Aðgangur að þekktasta vörumerki heims, dreifikerfi þess og auglýs- ingum, opni fjölmarga möguleika. Björn segir að Skandinavia leikir ehf. hafi verið stofnaðir árið 2001. Þar séu fjögur stöðugildi. Fyr- irtækið reki eitt stærsta dreifikerfi Norðurlandanna á netinu fyrir PC- tölvuleiki. Það sé í samstarfi við flest stærstu netsvæðin, sem selji leiki frá Skandinavia. Leikirnir koma frá þekktustu tölvuleikja- framleiðendum heims. Á svæði Skandinavia á Íslandi, www.mega.is, getur fólk náð í leiki, bæði ókeypis og til prufu, til að spila. Íslenskt fyrirtæki dreifir leikjum fyrir Coca Cola Leikjasvæði Skandinavia auglýst á milljónum kókflaskna Morgunblaðið/Jim Smart Coca Cola Skandinavia leikir ehf. hefur gert stóran samning við gos- drykkjaframleiðandann sem er meðal stærstu fyrirtækja heims.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.