Morgunblaðið - 28.07.2008, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
TRAUSTI Fannar Valsson lektor í
stjórnsýslurétti við Háskóla Íslands
telur það ekki samrýmast viðmiðum
stjórnsýsluréttar um vandaða
stjórnsýsluhætti að ráða opinbera
starfsmenn hjá sveitarfélögum án
almennra auglýsinga. Embætti sem
ráðið var í á aukafundi bæjarráðs
Kópavogs á laugardaginn voru ekki
auglýst. Var þar um að ræða nokkur
æðstu embætti bæjarins, meðal ann-
ars stöðu sviðsstjóra fræðslusviðs og
gæðastjóra bæjarins.
Engin bein lagaskylda til að aug-
lýsa störf hvílir á sveitarfélögum. Al-
mennt er það þó talið til vandaðra
stjórnsýsluhátta og þykir æskilegt
að stjórnvöld hafi þá í hávegum.
Skylda sveitarfélaga til að auglýsa í
stöður embættismanna og opinberra
starfsmanna kann að verða leidd af
óskráðum grundvallarreglum laga.
Ekki er þó hægt að slá því föstu þar
sem ekki hefur fallið dómur þar um.
„Það er athyglisvert að ítarleg lög
gilda um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins, þar sem meðal ann-
ars er kveðið á um auglýsinga-
skyldu, en sambærileg lög gilda ekki
um starfsmenn sveitarfélaga,“ segir
Trausti. Hann teldi ekki óeðlilegt að
sett yrðu lög um réttindi og skyldur
starfsmanna sveitarfélaga, ekki síst í
þágu hagsmuna sveitarfélaganna
sjálfra. Óheppilegt sé að almennar
skyldur starfsmanna séu aðeins
leiddar af kjara- og ráðningarsamn-
ingum.
Trausti leggur þó áherslu á að
starfsmannamál sveitarfélaga lúti
sveitarstjórnar-, stjórnsýslulögum
og fleiri sérlögum.
Löglegt en siðlaust?
Samfylkingin í Kópavogi lætur nú
ganga úr skugga um hvort ráðning-
arnar standist lög.
Meirihlutinn hafnar
ólögmæti ráðning-
anna sem og ásök-
unum um að þær
samræmist ekki
starfsmannastefnu
bæjarins.
„Það stendur í
bæjarmálasam-
þykkt bæjarins að
starfsmenn bæj-
arins hafi réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna,“ segir Guðríður
Arnardóttir, en þar er skýrt kveðið á
um að auglýsa skuli embætti til um-
sókna. Hún segir aðfarir við ráðn-
ingarnar á gráu svæði, þær séu ekki
endilega ólöglegar en þær séu sið-
lausar. Telur hún vinnubrögð meiri-
hlutans ólýðræðisleg.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
segir ekkert athugavert við vinnu-
brögð meirihlutans. Hann telur eðli-
legt að starfsfólk bæjarins fái fram-
gang í starfi með þessum hætti.
Telur óvandað að auglýsa ekki
Auglýsingar teljast til vandaðra stjórn-
sýsluhátta og æskilegt að hafa þá í heiðri
Trausti Fannar
Valsson
Guðríður
Arnardóttir
Gunnar I.
Birgisson
Í HNOTSKURN
» Meðal annars hefur veriðráðið í embætti bæjarrit-
ara og upplýsingafulltrúa
Kópavogs án auglýsinga.
» Að auglýsa embætti ogstörf opinberra starfs-
manna telst til vandaðra
stjórnsýsluhátta.
» Í stefnu fjármála- ogstjórnsýslusviðs Kópavogs
segir: „Við vinnum á grund-
velli laga og reglna stjórnsýsl-
unnar.“
» Í sveitarstjórnarlögumsegir: „Um starfskjör, rétt-
indi og skyldur starfsmanna
sveitarfélaganna fer eftir
ákvæðum kjarasamninga
hverju sinni og/eða ákvæðum
ráðningarsamninga.“
LEIÐBEINENDUR hjá Vinnuskól-
anum í Reykjavík munu á hádegi
leggja niður störf og halda niður í
Ráðhús Reykjavíkur. Þar verða
borgarstjóra og mannauðsstjóra
Reykjavíkur afhentir kröfu- og að-
gerðalistar en 130 af um 200 leið-
beinendum hafa skrifað undir
listana þar sem þess er óskað að
launaflokkun þeirra verði leiðrétt.
Að sögn Markúsar Bjarnasonar
leiðbeinanda vilja leiðbeinendurnir
fara í sama launaflokk og aðrir í
sambærilegum störfum hjá borg-
inni en á laununum munar allt að 30
þúsund kr. Þá vilja þeir trún-
aðarmann eða fulltrúa innan starfs-
mannafélags borgarinnar og að
starfsmat fari fram sem allra fyrst
á störfum leiðbeinenda.
Fyrir fjórum árum fór fram
starfsmat á störfum hjá borginni
þar sem störf voru metin til launa.
Ekki var horft til sumarstarfa í
matinu og eru leiðbeinendurnir nú í
sama launaflokki og frístundaleið-
beinendur sem hafa umsjón með 6-9
ára börnum eftir skóla.
„Ef þessi mistök verða ekki leið-
rétt munum við hvetja fólk til að
sniðganga þessi störf þangað til
launin verða leiðrétt. Það er stór
hópur fólks sem mun alls ekki ráða
sig aftur sem leiðbeinendur fyrr en
þetta verður lagað,“ segir Markús.
Hjá borginni fengust þær upplýs-
ingar að mannauðsstjóri hefði
fundað með starfskjaranefnd, sem
ræður hvort störf fara í starfsmat,
fyrir helgi og væri málið í eðlileg-
um farvegi. ylfa@mbl.is
Morgunblaðið/Frikki
Kjarabót Leiðbeinendur Vinnuskól-
ans krefjast launaleiðréttingar.
Loka skól-
anum eftir
hádegi
Vilja hærri laun
ÁHRIFA olíu-
verðshækkana
gætir víða, m.a. í
útgerð rann-
sóknarskipa
Hafrannsókna-
stofnunar.
„Þetta setur
mjög mikið strik
í reikninginn
gagnvart úthaldi
okkar en við höf-
um ekki enn þá þurft að breyta út
af áætlunum okkar,“ segir Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. Hann segist gera
ráð fyrir að komið verði til móts
við stofnunina en verði það ekki
gert hafi það veruleg, neikvæð
áhrif.
Áður hafi olíuverðssprengingar
verið bættar í lok árs en það hafi
ekki verið gert síðustu árin.
Strik í reikn-
ing Hafró
Jóhann
Sigurjónsson
ERLING Ólafsson, Guðmundur Árni Ásmund-
arson og Guðný Ingibjörg Einarsdóttir spöruðu
sig hvergi við heyskapinn í Árbæjarsafni í gær.
Voru amboðin dregin fram í dagsljósið og gest-
um boðið að taka virkan þátt í heyönnunum eins
og þær voru stundaðar fyrir daga heyvinnuvéla.
Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur tæki en
orf og hrífu til að afla vetrarforðans en nú er
öldin önnur. haa@mbl.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bundið í bagga að gömlum sið
BOEING 757-flugvél Icelandair á leið til New York var
snúið við eftir aðeins ellefu mínútna flug seinni partinn í
gær. Vélin fór í loftið klukkan 17.15 og lenti að nýju
klukkan 17.26. Skömmu eftir flugtak urðu áhöfn og far-
þegar vör við gangtruflanir í hægri hreyfli vélarinnar.
Var vélinni því snúið aftur til Keflavíkurflugvallar.
Á vellinum voru menn við öllu búnir og tókst lend-
ingin vel. Athugun leiddi í ljós að ekki var hægt að laga
hreyfilinn undir eins og var fluginu því frestað um sólar-
hring.
Farþegar í vélinni voru um 170 talsins. Guðjón Arn-
grímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir farþega
hafa haldið ró sinni en þeir heyrðu gangtruflanir hreyf-
ilsins. Brugðust þeir að sögn Guðjóns að mestu vel við
þegar þeim var vísað aftur inn í Leifsstöð eftir lend-
inguna. Þar var þeim boðin áfallahjálp en ekki er vitað
hvort einhver þáði hana. Þeir vesturfarar sem þess
þurftu voru fluttir á hótel til gistingar í nótt.
Orsök bilunarinnar er ókunn. skulias@mbl.is
Sneri við vegna gang-
truflana í hreyfli
Ljósmynd/Víkurfréttir
Rolls Royce Starfsmenn á Keflavíkurflugvelli huga að
hreyflinum skömmu eftir lendinguna í gær.