Morgunblaðið - 28.07.2008, Page 4
4 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina aðra
leiðina til Alicante á hreint ótrúlegum kjörum
6. eða 13. ágúst. Gríptu
tækifærið og tryggðu þér
sumarauka á frábærum
kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Alicante
*** Aðeins örfá sæti laus ***
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
frá kr. 19.990
6. eða 13. ágúst
kr. 19.990
Flugsæti aðra leið með sköttum til
Alicante 6. eða 13. ágúst.
Netverð á mann.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
HVERGI í þeirri bókun skipulags-
ráðs Reykjavíkur, sem sett var inn í
keppnislýsingu samkeppninnar um
hús Listaháskóla Íslands (LHÍ) á
svonefndum Frakkastígsreit, kemur
fram að ekki megi hrófla við hús-
unum á Laugavegi 41 og 45. Í verð-
launatillögu +Arkitekta fær húsið
við Laugaveg 41 að vera um kyrrt en
hús nr. 43 og 45 þurfa að víkja.
Bæði Ólafur F. Magnússon borg-
arstjóri og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, formaður skipulagsráðs
Reykjavíkur, segja að laga þurfi
bygginguna betur að þeirri götu-
mynd sem borgarstjórnin vill halda í
við Laugaveg. Í vinningstillögunni
hafi ekki verið tekið fullt mið af fyrr-
nefndri bókun í samkeppnislýsing-
unni sem sett var inn að beiðni
skipulagsráðsins. Ólafur hefur lýst
yfir þeirri skoðun sinni að öll húsin
eigi að standa, annaðhvort með því
að fella þau inn í nýbygginguna eða
búa til göngustíg á milli.
Skoði möguleika
„Vakin er athygli á bókun skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar frá 28.
júní 2006, sem er svohljóðandi:
„Ráðið leggur einnig mikla áherslu á
að lóðarhafar athugi sérstaklega út-
lit húsa við Laugaveg 41 og 45 og
skoði möguleika á því að leyfa upp-
runalegri götumynd að halda sér.““
Svona hljómar klausan sem sett var
í keppnislýsinguna.
Bent hefur verið á að í fyrrnefndri
bókun felist töluvert rými til túlk-
unar. Hvergi segir að húsin verði að
standa en væri það skilyrðið hefði
svo átt að standa í bókuninni. Þá
geri verðlaunatillagan Laugavegi 41
töluvert hátt undir höfði með því að
draga inn nýbygginguna svo gamla
bárujárnshúsið njóti sín betur. Að
auki sé reynt að láta nýbygginguna
falla inn í götumyndina með því að
gera hana ámóta háa og húsin í ná-
grenninu.
Funda í vikunni
Að sögn Hjálmars H. Ragn-
arssonar, rektors LHÍ, telja að-
standendur samkeppninnar sig hafa
unnið í fullu samráði við skipulags-
yfirvöld. Hann segist treysta því að
málið fái faglega og málefnalega um-
fjöllun í skipulagsráði.
Forsvarsmenn LHÍ munu í vik-
unni hitta Hönnu Birnu og Ólaf F.
og leiða þau í gegnum tillögurnar.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Framtíð? Svona mun hornið á Frakkastíg og Laugavegi líta út skv. tillög-
unni. Húsið við Laugaveg 41 stendur enn en húsin nr. 43 og 45 hafa vikið.
Nútíð Hornið á Laugavegi og Frakkastíg þar sem fyrirhugað er að nýi
Listaháskólinn rísi. Á horninu stendur Laugavegur 45.
Bókuðu bara um möguleika
Borgaryfirvöld gagnrýna að í vinningstillögu hafi ekki verið farið nægilega vel eftir
tilmælum skipulagsráðs en aðstandendur samkeppninnar eru því ekki sammála
Hjálmar H.
Ragnarsson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„SVEITARFÉLÖG munu mörg
hver væntanlega þurfa að endur-
skipuleggja framkvæmdaáætlanir
sínar fyrir þetta
ár. Tekjurnar
munu dragast
saman, það er
óhjákvæmilegt,“
segir Halldór
Halldórsson,
bæjarstjóri á Ísa-
firði.
Hann segir
áhrif niðursveifl-
unnar í efnahags-
lífinu á starfsemi sveitarfélaga ekki
enn komin í ljós.
Aðspurður segir Halldór skulda-
stöðu sveitarfélaganna rjúka upp.
„Kostnaður sveitarfélaganna sem
eru með erlend lán hefur aukist mik-
ið. Það færist til gjalda í árslok ef
þessi hækkun heldur áfram. Við von-
um auðvitað bara að þetta jafni sig út
á næstu árum.“ Hann bætir jafn-
framt við að aðstaðan sé mjög mis-
munandi enda hafi sum sveitarfélög
engin erlend lán á bakinu en allt að
því helmingur lána annarra sveitar-
félaga sé erlendur.
Hefst á höfuðborgarsvæðinu
Halldór telur einnig að erfiðleik-
arnir byrji á höfuðborgarsvæðinu.
„Öll fyrirtækin sem hafa verið í mik-
illi þenslu og útrás eru á höfuðborg-
arsvæðinu og því eðlilegt að erfið-
leikarnir hefjist þar. Landsbyggðin
hefur setið dálítið eftir í þeim efnum
og þar af leiðandi finnur hún seinna
fyrir erfiðleikunum.“
Skuldir hækka
og tekjur minnka
Allt að helmingur lána er erlendur
Halldór
Halldórsson
BÍLVELTA varð í Mjóafirði í Ísa-
fjarðardjúpi í gær. Bílstjórinn kom
sér sjálfur út úr bílnum og mun
ekki vera slasaður. Ekki er vitað
hvernig atvikið bar að en lögreglan
á Ísafirði vill benda á að fram-
kvæmdir standa yfir á þessum slóð-
um og er lausamöl mikil. Mikilvægt
er því fyrir bílstjóra að fara að öllu
með gát.
Þá valt bíll með fjórum innan-
borðs á Uxahryggjaleið, skammt
frá Þingvöllum. Að sögn lögregl-
unnar á Selfossi voru meiðsl fólks-
ins minniháttar en ekki er vitað um
ástand bílsins. ylfa@mbl.is
Bílveltur í
Mjóafirði og
við Þingvelli
MARGRÉT EA fékk sl. föstudag
stærsta hal í flotvörpu sem vitað er
um hérlendis. Hífði Margrétin upp
eftir tíu tíma veiðar út af Aust-
fjörðum 1.400 tonn af fiski og var
90% fisksins makríll. Þar sem svo
stór hluti aflans er makríll þykir
ljóst að verðmæti aflans er mikið.
Frá þessu segir á fréttavef mbl.is.
Ekki er vitað hvað skip hafa mest
fengið erlendis en sumir telja að
aflinn eigi erindi á heimsmetalist-
ann. „Þau gerast ekki stærri en
þetta,“ segir Kristinn Snæbjörns-
son, skipstjóri Margrétar. „Það var
heppilegt að það vorum við sem
fengum þetta því Margrét er eina
skipið sem er nægilega vel útbúið
til að geta tekið svo stórt hal.“
Methal hjá
Margréti EA
Makríll 90% afla Margrétar EA var
makríll og aflinn því verðmætur.
Efni í heimsmet?
ÞYRLA landhelgisgæslunnar sótti
á sunnudagsmorgun slasaða konu í
Flatey á Breiðafirði. Kvöldið áður
hafði hún fengið tjaldsúlu í augað.
Svo vel vildi til að augnlæknir var í
eynni og hann taldi konunni ekki
liggja mikið á að komast undir
læknishendur. Mælti hann með að
hún héldi suður daginn eftir.
Morguninn eftir var konan sár-
kvalin og mikið bólgin. Engin að-
staða eða verkjalyf voru tiltæk og
fyrirséð að konan næði ekki til
Reykjavíkur fyrr en undir kvöld.
Landhelgisgæslan var því fengin til
að sækja hana og ferja til Reykja-
víkur. Flaug þyrlan með hana á
Reykjavíkurflugvöll og þaðan ók
sjúkrabíll henni á Landspítalann
við Hringbraut.
Ekki fengust upplýsingar um líð-
an konunnar. skulias@mbl.is
Fékk tjald-
súlu í augað
EINUM þeirra sem voru í jeppa
sem valt á Holtavörðuheiði á föstu-
dag er enn haldið sofandi í önd-
unarvél á gjörgæslu Landspítalans
í Fossvogsdal. Hann var óbundinn í
bílnum og hentist út. Vakthafandi
læknir á gjörgæsludeild sagði enn
fremur að ökumaður bifreiðarinnar
hefði verið útskrifaður af deildinni.
Hann dvelur nú á almennri deild
spítalans.
Mennirnir slösuðust báðir mikið í
veltunni. Farþegi í framsæti öku-
tækisins slasaðist aðeins lítillega og
var frjálst að yfirgefa sjúkrahúsið
að lokinni skoðun. skulias@mbl.is
Enn sofandi í
öndunarvél
Eru borgaryfirvöld alfarið á móti
vinningstillögunni?
Nei, að mati borgaryfirvalda er
margt gott í henni og hún mætir vel
þörfum LHÍ. Hins vegar þarf að að-
laga hana betur götumyndinni.
Er deila sem þessi óvenjuleg?
Alls ekki, að sögn Hönnu Birnu.
Skipulagsráð fylgist með uppbygg-
ingu á sérhverjum reit Laugaveg-
arins. Byggingaraðilar koma með
teikningar og tillögur sem eru unnar
áfram í samráði við skipulagsráð.
Hvaða ferli fer tillagan í?
Fyrst er hún unnin í samvinnu við
skipulagsyfirvöld. Síðan er lögð fram
tillaga um breytingu. Skipulagsráð
samþykkir tillögu í auglýsingu og þá
fer fram hagsmunaaðilakynning og
auglýsing. Þá fær almenningur tæki-
færi til að tjá sig um tillöguna og
skila inn athugasemdum. Í framhaldi
af þeim tekur skipulagsráð end-
anlega ákvörðun.
S&S
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra segir sína skoðun
á málinu á vefsíðu sinni, bjorn.is.
„Að óreyndu hefði mátt ætla, að borgarstjóri og aðrir
málsvarar blómstrandi og friðsamlegs mannlífs í mið-
borginni hefðu hrópað yfir sig af fögnuði, þegar í ljós
kom, að unnt yrði að hýsa listaháskólann á þennan
glæsilega hátt við Laugaveginn […]. Þetta gerðist því
miður ekki. Bitinn virðist vera of stór fyrir borgarstjóra,
Torfusamtökin og aðra […]. Frá mínum sjónarhóli hefur
Laugavegurinn ekki fengið aðra eins lyftistöng í marga
áratugi. Með listaháskólanum gengi Laugavegurinn í
endurnýjun lífdaga. Standi valið á milli þess eða halda í gömlu húsin tvö,
vel ég listaháskólann í þeirri umgjörð, sem hefur verið kynnt.“
Lyftistöng fyrir Laugaveginn
Björn Bjarnason