Morgunblaðið - 28.07.2008, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er mánudagur 28. júlí, 210. dagur
ársins 2008
Orð dagsins: Ef þér elskið mig, munuð
þér halda boðorð mín. (Jóhannes 14,15.)
Víkverji lætur sér fátt fyrir brjóstibrenna en brá þó töluvert þegar
leið hans lá um Hafravatnsveg fyrir
helgi. Þar á vegurinn að heita tví-
breiður en í reynd er hvor vegar-
helmingur svo að segja bílbreidd – í
það minnsta ekki mjög breiður, þótt
Víkverji hafi ekki brugðið málband-
inu á loft. Þar er vissulega ekkert at-
hugavert við yfirborð vegarins, svo
langt sem hann nær. En þegar út á
vegöxlina er komið tekur skyndilega
við lausamöl. Ef ökumanni myndi
bregða við það og fipast biði hans
ekki mjúkur mosi heldur ylti hann
niður grjóti lagða brekku. Og þá sá
Víkverji að hraðamerkingar á þess-
um kafla gefa til kynna að hámarks-
hraði sé 90 kílómetrar á klukkustund.
Já, Víkverja brá. Þarna hefði hann
ógjarnan viljað fá bíl á móti sér á 90
kílómetra hraða á klukkustund.
x x x
Þeir sem þekkja Víkverja vita aðþó hann sé geysilegur nagli hef-
ur hann ekkert á móti litlum, loðnum
dýrum. Honum finnst gaman að sjá
myndir af þeim og klappar þeim
gjarnan ef þau verða á vegi hans. Úr-
vali og aðgengi að litlum, loðnum dýr-
um er þó oft ábótavant í daglegu lífi
þeirra sem ekki eiga þess kost að
halda gæludýr. Úr þessu mætti bæta.
Víkverji sér fyrir sér sérhæfðan
dýragarð á borð við Húsdýragarðinn,
nema hvað að sérhæfingin myndi
ekki liggja á sviði íslenskra húsdýra,
heldur á sviði mjúkra og krúttlegra
dýra. Þar væri nauðsynlegt að bjóða
gestum upp á að klappa hinum ís-
lensku landnámskrúttum, kópum og
yrðlingum, og auðvitað klassík á borð
við hvolpa, kettlinga og kanínuunga.
Þá væri ekki síður aðkallandi að
bjóða upp á framandi krútt, svo sem
apaunga af tegundinni rhinopitecus
roxellana eða hreysikattarunga í
vetrarbúningi. Og hér er ekki aðeins
komin bráðgóð viðskiptahugmynd,
heldur eru lýðheilsusjónarmið í húfi.
Það er jú margsannað með rann-
sóknum virtra rannsakenda að það er
sérlega gott fyrir geðheilsuna að
klappa mjúkum dýrum. víkverji@m-
bl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hreyfing-
arlausa, 8 setur, 9 hæfi-
leikinn, 10 eldiviður, 11
víðáttu, 13 flanaði, 15
rok, 18 svikull, 21 ekki
gömul, 22 endar, 23
synji, 24 meta á ný.
Lóðrétt | 2 illkvittni, 3
heykvíslar, 4 gretta sig,
5 slitna, 6 krampakast, 7
röski, 12 stúlka, 14 veið-
arfæri, 15 vers, 16 fár-
viðri, 17 smásilungs, 18
hótum, 19 illt, 20 kyrrð-
in.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 volks, 4 fíkja, 7 dómur, 8 ömmur, 9 ger, 11
aurs, 13 saur, 14 álinu, 15 sjór, 17 mett, 20 sló, 22 nakin,
23 vinda, 24 afmáð, 25 tíðka.
Lórétt: 1 vodka, 2 lemur, 3 sorg, 4 fjör, 5 komma, 6 aðr-
ar, 10 erill, 12 sár, 13 sum, 15 sinna, 16 óskum, 18 ennið,
19 trana, 20 snið, 21 óvit.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
© Puzzles by Pappocom
www.sudoku.com
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. f4 g6 4. Rf3 Bg7
5. Bb5 Rd4 6. O–O Rxb5 7. Rxb5 d5 8.
e5 d4 9. c3 a6 10. Ra3 b5 11. cxd4 cxd4
12. d3 Rh6 13. Rc2 Rf5 14. g4 Re3 15.
Bxe3 dxe3 16. Rxe3 Db6 17. d4 Bb7 18.
Dd3 Hd8 19. Had1 O–O 20. Kg2 f6 21.
Kg3 Kh8 22. d5 fxe5 23. fxe5 e6 24. Rg5
Dc7 25. Kh3 Dxe5 26. Rf7+ Hxf7 27.
Hxf7 Bxd5 28. Rxd5 exd5 29. Hd2 Dg5
30. He2 Bf6 31. Df3 Bg7 32. Hee7 Hg8
Staðan kom upp á sænska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Växjö. Stórmeistarinn Emanuel Berg
(2592) hafði hvítt gegn kollega sínum
Pontusi Carlssyni (2514). 33. Hxg7!
Hxg7 34. He8+ og svartur gafst upp
enda stutt í að hann verði mát eftir
34… Hg8 35. Dc3+.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Í fullu fjöri.
Norður
♠54
♥K103
♦G10972
♣763
Vestur Austur
♠Á82 ♠D1093
♥G972 ♥Á64
♦K853 ♦64
♣G4 ♣10982
Suður
♠KG76
♥D85
♦ÁD
♣ÁKD5
Suður spilar 3G.
Kennarinn Eddie Kantar (f. 1932)
nennir ekki að taka þátt í löngum
mótum lengur en spilar reglulega í
heimahúsum. „Hann hefur aldrei ver-
ið betri,“ segir vinur hans Phillip Al-
der.
Hér eru þeir félagar í vörn gegn 3G
og Kantar kom út með ♥2. Lítið úr
borði, Alder drap með ás og skipti yf-
ir í ♠9 – þriðja frá brotinni röð. Sagn-
hafi lét gosann, Kantar drap og spil-
aði áttunni. Suður dúkkaði, en fékk
næsta slag á ♠K. Tígulinn varð að fría
og suður spilaði ♦Á og drottningu.
Sem Kantar gaf. Þá spilaði sagnhafi
hjarta að blindum og Kantar stakk
upp gosa – ætlaði ekki að láta sagn-
hafa svína tíunni og næla sér í auka
innkomu til að nýta tígulinn. Tapað
spil og sagnhafi iðraðist þess að hafa
ekki hent ♥D undir í fyrsta slag.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú setur þér markmið að nýju.
Segðu sjálfum þér algerlega satt um hvað
þú vilt. Annars verður eitthvað ekki rétt,
þegar þú loksins kemst á toppinn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ræðst í áskoranir og drauma.
Ekki hengja þig í smáatriði eða hræðast
að geta ekki gert allt. Allt verður auðvelt
ef þú bara nýtur þess.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er eitthvað sem þú gerir
mjög svo rétt! Allt í lífi þínu er á sínum
stað. Og þar sem þú hefur stjórn á öllu,
geturðu hreinlega slappað af og haft það
gott.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það skiptir engu hvað er að gerast
rétt fyrir utan dyrnar hjá þér. Þú lokar
þeim og einbeitir þér að því að búa til þinn
eigin notalega litla heim.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fólk veit ekki alveg af hverju það á
að vera gott við þig, en er það samt. Fólki
finnst þú merkilegur, þótt það viti ekkert
um þig. Nálægð þín kallar á virðingu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér finnst gaman að leika. Af
hverju að halda sig við niðurdrepandi út-
gáfu af raunveruleikanum? Þú segir jafn-
vel ósatt til að gera allt skemmtilegra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Upplýsingarnar að utan eru svo ótrú-
lega leiðilegar. Guði sé lof fyrir þig, sem
gerir allt skemmtilegra. Fólk verður allt-
af í sambandi – því líkar sýn þín á heim-
inn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Smá þekking er hættuleg.
Fólk í kringum þig dregur rangar álykt-
anir og telur sig svo geta treyst þeim. Sá
sem veit minnst, veit mest.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú heldur að það sé ekki
heillavænlegt að láta skrýtinn draum ræt-
ast eða nota sköpunarkraftinn. En er það
satt? Leyfðu þránni að ráða för.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér býðst hið fullkomna tæki-
færi til að gera allt flott og vel. Þú ert
endalaust skapandi, og enginn efniviður í
kringum þig sem þú getur ekki notað.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft að gleyma öllu sam þú
lærðir um samskipti við ættingja. Fólk
vandar sig ekki nóg af því að það þekkist.
Sýndu þínu fólki ást og virðingu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Einhver annar kemur auga á þína
innri hæfileika. En spennandi! Nú er mál
að sanna þá í verki. Það verður nóg að
gera næstu þrjá daga.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
28. júlí 1662
Erfðahyllingin í Kópavogi
(Kópavogsfundur). Helstu for-
ystumenn þjóðarinnar, m.a.
Árni Oddsson lögmaður og
Brynjólfur Sveinsson biskup,
undirrituðu skuldbinding-
arskjal er miðaði að einveldi
Danakonungs hér á landi.
28. júlí 1895
Þjórsárbrú hjá Þjótanda var
vígð og opnuð til umferðar. Á
þriðja þúsund manns voru við-
staddir. Brúin var í notkun í
rúma hálfa öld.
28. júlí 1957
Hallgrímskirkja í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd var vígð.
Hún var reist til minningar um
Hallgrím Pétursson sem orti
þar mörg sín þekktustu ljóð.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá …
Jóna Soffía
Bald-
ursdóttir og
Bjarki Jó-
hannsson
voru gefin
saman í
Garðakirkju,
31. maí síð-
astliðinn af
séra Jónu Hrönn Bolladóttur.
Heimili þeirra er í Hulduborgum 15
í Reykjavík.
Brúðkaup
Systurnar Helga Rós og Edda
Sóley Arnarsdætur og vinkonurnar
Ástrós Mirra Þráinsdóttir og Ást-
hildur Rós Imsland héldu tombólu í
Hafnarfirði og söfnuðu 9.376 kr.
fyrir Rauða kross Íslands.
Hlutavelta
FINNUR T. Gunnarsson heitir hann, upprunninn á
Egilsstöðum, búsettur í Hafnarfirði, viðskipta-
fræðingur að mennt og hann hefur unnið við rann-
sókn og greiningu hjá 365-miðlum um tveggja ára
skeið. Hann er þrítugur í dag og segist ekki ætla
að hafa neitt sérstakt við, mæta í vinnuna, fara í
ræktina og kannski í bíó.
„Raunar ætlaði ég að fitja upp á einhverju á
laugardaginn en það fórst nú fyrir og ætli ég bíði
þá ekki bara með það fram yfir verslunarmanna-
helgi,“ sagði Finnur og þegar hann var inntur eft-
ir 25 ára afmælinu kvaðst hann varla muna eftir
því hvað þá meir.
Finnur segist eiga sér ýmis áhugamál en líklega beri íþróttirnar
hæst og þá alveg sérstaklega körfuboltann. Hann hafi líka áhuga á
kvikmyndum og svo hafi hann gaman af tölfræði. Það er líklega ekki
verra fyrir mann í hans stöðu. Þá nefnir hann einnig útiveru en tekur
fram að hann hafi verið heldur óduglegur við hana að undanförnu.
Áður hafi gert dálítið af því að ganga á fjöll og aldrei að vita nema
hann taki upp á því aftur.
Enn eitt áhugamál Finns er ónefnt en það er teiknimyndasögugerð.
„Já, ég hef gaman af henni og við félagarnir, ég og Jónas Reynir
Gunnarsson, sem einnig er frá Egilsstöðum, höfum verið með mynda-
sögu á léttari nótunum einu sinni í viku í DV.“ svs@mbl.is
Finnur T. Gunnarsson 30 ára
Teiknimyndir og tölfræði
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is