Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
VINNUMÁLASTOFNUN barst ein
tilkynning um hópuppsagnir í júlí-
mánuði. Það var Byggingafélagið
Kambur sem tilkynnti uppsagnir 23
starfsmanna af 70 sem starfa hjá fyr-
irtækinu.
Samkvæmt upplýsingum Vinnu-
málastofnunar er 1.281 maður at-
vinnulaus á höfuðborgarsvæðinu
sem þýðir rúmlega 1% atvinnuleysi.
Á landinu öllu eru 2.212 manns án at-
vinnu.
Um hópuppsagnir gilda ákveðin
lög þegar fjöldi starfsmanna sem
sagt er upp á 30 daga tímabili fer yfir
ákveðin mörk. Þumalfingursreglan
er að lögin gildi ef einum af hverjum
tíu er sagt upp. Í slíkum tilvikum er
atvinnurekanda skylt að hafa sam-
ráð við trúnaðarmann stéttarfélaga
eða annan fulltrúa starfsmanna í því
augnamiði að ná samkomulagi.
Trúnaðarmaður skal fá allar upplýs-
ingar sem máli skipta um uppsagnir
og fá skriflegar ástæður fyrir þeim.
orsi@mbl.is
23 sagt
upp hjá
Kambi
2.212 manns án
atvinnu á landinu
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
FORMAÐUR skipulagsráðs,
Hanna Birna Kristjánsdóttir, og
fulltrúar Listaháskóla Íslands
(LHÍ) og Samson properties fund-
uðu í gær um verðlaunatillögu
+Arkitekta að nýbyggingu skólans
við Laugaveg.
Bæði Hanna Birna og Hjálmar
H. Ragnarsson, rektor LHÍ, hafa
lýst yfir ánægju sinni með fundinn.
„Ég átti mjög góðan fund með
fulltrúum Listaháskólans,“ segir
Hanna Birna. „Við fórum í gegnum
tillögurnar og þeir skýrðu sín sjón-
armið og ég fór yfir sjónarmið
borgaryfirvalda. Við komumst að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu að
hefja samvinnu varðandi vinnings-
tillöguna með það að markmiði að
mæta þörfum skólans sem líka taka
mið af sjónarmiðum borgaryfir-
valda.“
Kynnt í skipulagsráði fljótlega
Að sögn Hönnu Birnu var afar
jákvæður tónn á fundinum en nú
hefjist vinna skipulagsyfirvalda og
aðstandenda samkeppninnar. Vinn-
ingstillagan verður kynnt í skipu-
lagsráði í næstu viku en á fundinum
var rætt um að reyna að ljúka öll-
um viðræðum í byrjun hausts. „Við
erum fullviss um að skólinn mun
reisa sér gott húsnæði við Lauga-
veginn og starfa þar til framtíðar.“
Að sögn Hjálmars höfðu aðstand-
endur keppninnar óskað eftir mál-
efnalegri og fagmannlegri viðræðu
við skipulagsyfirvöld um vinnings-
tillöguna. „Fundurinn sem við átt-
um við formann skipulagsráðs er í
raun bara upphaf að því ferli sem
við höfum óskað eftir.“
Hjálmar segist vona að fram-
haldið gangi hratt og vel fyrir sig.
„Í raun vitum við ekkert hverjar
niðurstöðurnar verða en við erum
bjartsýn á þetta enda er vinnings-
tillagan að okkar mati afar sterk,
bæði fyrir borgina og skólann.“
Vinningstillaga unnin áfram
Formaður skipulagsráðs og aðstand-
endur nýbyggingar LHÍ funduðu í gær Í HNOTSKURN»Eftir töluverða umfjöllunfjölmiðla um sjónarmið
borgaryfirvalda og aðstand-
enda var loksins fundað um
málið í gær.
»Niðurstaðan var að vinnatillöguna áfram en hún
verður lögð fyrir skipulagsráð
í næstu viku.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
STAÐGENGILL lögreglustjórans á
Selfossi, Gunnar Örn Jónsson, gaf í
gær út ákæru á hendur sjö einstak-
lingum sem handteknir voru við bor-
holu Hellisheiðarvirkjunar á mánu-
dag. Brotin eru talin varða við almenn
hegningarlög, lögreglulög og lög-
reglusamþykkt Árnessýslu. Málið var
þingfest samdægurs í Héraðsdómi
Suðurlands og aðalmeðferð frestað til
19. ágúst nk. Ekki var talin ástæða til
að fara fram á farbann.
Fólkið sem kemur frá Bretlandi,
Bandaríkjunum, Belgíu, Danmörku,
Hollandi og Svíþjóð var sleppt úr
haldi lögreglunnar í gærdag eftir um
sólarhringsdvöl í fangaklefa og
skýrslutökur. Allir ákærðu neituðu
sök fyrir dómi og fá því tækifæri til að
taka til varna.
Sakfellt í sambærilegu máli
Fólkið er ákært fyrir að ryðjast
heimildarlaust inn á vinnusvæði
Hellisheiðarvirkjunar (húsbrot),
hlýða ekki fyrirmælum lögreglu auk
þess að brjóta gegn lögreglusam-
þykkt Árnessýslu (134/1939).
Orkuveita Reykjavíkur og Klæðn-
ing hf. gera kröfu um 500 þúsund
króna bætur vegna vinnutaps, en mót-
mælendur stöðvuðu vinnu jarðbors.
Dómur var upp kveðinn í sambæri-
legu máli 30. júní sl. í Héraðsdómi
Suðurlands, en í því var ákært fyrir
mótmæli við Hellisheiðarvirkjun fyrir
ári. Þá voru níu einstaklingar ákærðir
og allir dæmdir til sektar, átta til að
greiða 50 þúsund krónur og einn til að
greiða 100 þúsund krónur.
Neituðu sök
og aðalmeð-
ferð frestað
Sjö ákærðir vegna
mótmælaaðgerða
Stöðvuðu vinnu Mótmælendur
komu sér fyrir á jarðbornum Tý.
JÓN Árni Árnason og Freyr Ingi Björnsson úr Íslenska alpaklúbbnum
vinna í 50 metra hæð í Hafrahvammagljúfri, en hæfileikar og búnaður
austurrískra og íslenskra fjallaklifrara hafa verið nýttir við framkvæmdir
við Kárahnjúkavirkjun í sumar. Þeir eru nú að ljúka vinnu sinni við örygg-
isnet sem strengja þurfti í Hafrahvammagljúfri. Ístak er að undirbúa bygg-
ingu stíflu í Hafrahvammagljúfri skammt neðan við Kárahnjúkastíflu. Til-
gangurinn er að búa til hyl til að taka við fossinum úr yfirfalli stíflunnar.
Mikið hrun er úr hamraveggjunum og til að tryggja öryggi starfsmanna
var ráðist í það mikla verk að hreinsa allt laust grjót úr gljúfurveggjunum
og strengja stálnet yfir. Gilið er 105-120 metra hátt á þessum stað.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Klifrarar strengja net
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÓLAFUR F. Magnússon borgar-
stjóri tjáir sig ekki efnislega um
ástæður þess að Ólöf Guðný Valdi-
marsdóttir arkítekt og fyrrverandi
varaformaður skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar hefur verið látin
víkja skyndilega fyrir Magnúsi
Skúlasyni, formanni húsafriðunar-
nefndar. Sjálf segist Ólöf Guðný
undrandi á málinu. „Ég var mjög
hissa þegar ég fékk símtal frá borg-
arstjóra þess efnis að ég nyti ekki
lengur stuðnings hans og að nýr að-
almaður kæmi inn í ráðið í minn
stað,“ segir hún.
„Ég fæ ekki séð að ég hafi í við-
tölum sagt neitt umfram það sem
hver embættis- eða stjórnmálamað-
ur myndi láta hafa eftir sér miðað við
stöðu þessa tiltekna máls [þ.e. að
hún teldi ótímabært að taka afstöðu
til vinningstillögu um Listaháskóla
Íslands þar sem tillagan hefði ekki
verið rædd í skipulagsráði].
Ég taldi mig ekki geta tekið af-
stöðu með eða á móti tillögunni,“
bendir hún á. „Og mér var tjáð að
þetta væri tilefni þess að ég nyti ekki
lengur trausts borgarstjóra. Það er
mér vitanlega ekkert annað sem hef-
ur gefið honum tilefni til að taka
þessa afstöðu til minna starfa,“ segir
hún. „Ég hef unnið eftir minni bestu
sannfæringu í skipulagsráði og í
anda stefnu þess meirihluta sem ég
var tilnefnd af og hef átt afskaplega
gott samstarf við formann ráðsins,
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Það
hefur verið góður starfsandi innan
skipulagsráðs og ég hef haft mikla
ánægju af að vinna innan ráðsins.“
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
segir að Magnús Skúlason sé vafalít-
ið mjög sammála honum um þær
áherslur sem nú eru uppi um vernd-
un gamallar götumyndar í miðborg-
inni en tjáir sig ekki um málið frekar.
Mjög hissa
á símtalinu
Varaformaður skipulagsráðs víkur
skyndilega fyrir Magnúsi Skúlasyni
Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir
Ólafur F.
Magnússon
Furðar sig á einræðistilburðum
mbl.is | Sjónvarp
ÝTARLEG rannsókn
Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs og Umhverfis- og
samgöngusviðs Reykja-
víkurborgar leiddi ný-
lega í ljós að Reykjavík-
urtjörn er mjög menguð.
Einkum er tjörnin meng-
uð saurgerlum og eldri
rannsóknir benda til að í
botnseti hennar sé að
finna töluverða þung-
málmamengun.
Lífríki í tjörninni hef-
ur ekki farið varhluta af
menguninni. Háplantan
síkjamari finnst ekki
lengur í tjörninni en hún hélt vatninu hreinu og tæru. Sömu sögu er að segja
af ýmsum smádýrum eins og vatnaflóm sem andfuglar leggja sér til munns.
Þá hafa óæskilegir bláþörungar náð þar fótfestu.
Ástæður mengunarinnar eru margþættar en hún er að mestu af manna-
völdum. Er í því samhengi talað um sorpurðun, eyðingu votlendis, ofanvatn
frá umferðargötum og fleira. Saurmengunin er rakin til fuglalífs og skólp-
losunar, sennilega frá svæði Reykjavíkurflugvallar. skulias@mbl.is
Mikil saurgerlamengun
í Tjörninni í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
Drullupollur? Tjörnin er töluvert menguð.