Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er miðvikudagur
30. júlí, 212. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En hann frelsar hinn
bágstadda með bágindum hans og
opnar eyru þeirra með þrengingunni.
(Jb. 36, 15.)
Fræðimaðurinn Diamond Jaredhefur slegið í gegn með bókum
sínum um uppgang þjóða og hrun.
Nú hefur hann beint sjónum sínum
að hefndinni og fjallar um hlutverk
hennar hjá frumstæðum þjóð-
flokkum og hvað læra megi af því í
vestrænum samfélögum.
x x x
Jared lýsir í viðtali við tímaritiðDer Spiegel hvernig hefndin
getur leitt til þess að stríðsástand
ríkir í samskiptum samfélaga í Nýju
Gíneu. Tekur hann dæmi af því
hvernig deila um svín leiddi til þess
að háðar voru sex orrustur og 29
manns lágu í valnum.
x x x
Þetta er vissulega ekki hag-kvæmt,“ segir Jared. „En í
þjóðflokkasamfélögum þar sem ekki
er neitt ríkisvald verður fólk að taka
réttlætið í eigin hendur. Sá sem ekki
gerir það verður fyrirlitinn og mun
líklega verða beittur meira ofbeldi.“
x x x
Jared segir hins vegar líka frá þvíhvernig fólk nær sáttum í þess-
um samfélögum. Í einu tilfelli ók
maður niður dreng. Drengurinn dó,
en faðir hans kvaðst átta sig á því að
þetta hefði verið slys. Hann bað hins
vegar þann, sem var valdur að slys-
inu að sjá um veitingar við minning-
arathöfn um drenginn og einnig var
samið um skaðabætur. Athöfnin bar
yfirskriftina „mér þykir það leitt“ og
þar komu saman fjölskyldur hins
látna drengs og ökumannsins. Fjöl-
skyldurnar borðuðu saman og að
endingu lýsti faðir látna drengsins
yfir því að hann þægi skaðabæt-
urnar og myndi ekki hefna sín.
x x x
Jared segir að á Vesturlöndumgeti menn lært af þessu ferli og
sums staðar sé þegar farið að reyna
það. Hann bendir á Bandaríkin, en
einnig afbrotamenn og brotaþolar
hafa einnig verið leiddir saman á Ís-
landi og hefur það gefið góða raun.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Reykjavík Adam Leví fædd-
ist 23. júní. Hann vó 4.130 g
og var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Sara Lárus-
dóttir og Guðmundur Ragn-
ar Björgvinsson.
Akureyri Ríkharður Máni
fæddist 18. maí kl. 23:05.
Hann vó 4.165 g og var 55 cm
langur. Foreldrar hans eru
Leifur Þór Heimisson og
Lilja Björg Randversdóttir.
Amsterdam Sóley fæddist
20. febrúar í Amsterdam.
Hún vó 3.624 g. Foreldrar
hennar eru Ragna Björt
Einarsdóttir og Erwan Le
Roux.
Reykjavík Aníta Dís fæddist
20. maí kl. 4.45. Hún vó 15
merkur og var 50 cm löng.
Foreldrar hennar eru Gunn-
ur Líf Gunnarsdóttir og Atli
Freyr Guðmundsson.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 efnilegur mað-
ur, 8 pyngju, 9 hillingar,
10 verkfæri, 11 mál,
13 eldstæði,15 sorgar,
18 handleggjum,
21 hreysi, 22 girnd,
23 eyddur, 24 borgin-
mennska.
Lóðrétt | 2 gömul,
3 tudda, 4 kirtla, 5 nef,
6 ábætir, 7 heyið,
12 tannstæði,14 kyrr,
15 kjöt, 16 róta, 17 húð,
18 duglegur, 19 átt við,
20 túla.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 orsök, 4 bitur, 7 makar, 8 ólman, 9 tær,
11 rösk, 13 gata, 14 ásinn, 15 tómt, 17 álma, 20 agn,
22 góður, 23 angan, 24 urrar, 25 niður.
Lóðrétt: 1 ormur, 2 sekks, 3 kort, 4 bjór, 5 temja,
6 renna, 10 æfing, 12 kát, 13 Gná, 15 tuggu, 16 móður,
18 logið, 19 asnar, 20 arar, 21 nafn.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. Rc3 Rf6 3. Bg5 Rbd7 4.
Dd3 h6 5. Bh4 c6 6. Rf3 Da5 7. a3 e6
8. Rd2 Be7 9. f3 e5 10. e4 dxe4 11.
Rdxe4 O–O 12. Be2 He8 13. O–O
Rxe4 14. Dxe4 f5 15. Bc4+ Kh8 16.
De1 Bxh4 17. Dxh4 Db6 18. Re2 exd4
19. Rf4 Rf8 20. Dh5 He7 21. Hae1
Dd8 22. Dh4 Hd7 23. Dg3 Hd6 24. Bf7
Df6.
Staðan kom upp á sænska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Växjö.
Stórmeistarinn Jonny Hector
(2537) hafði hvítt gegn Erik Hedman
(2363). 25. Rg6+! Rxg6 26. He8+ Kh7
27. Bg8+ Kh8 28. Be6+ Rf8 29. Dxd6
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Samsett þvingun.
Norður
♠K985
♥104
♦Á74
♣K965
Vestur Austur
♠G764 ♠D103
♥Á2 ♥63
♦D6 ♦KG10852
♣DG1084 ♣32
Suður
♠Á2
♥KDG9875
♦93
♣Á7
Suður spilar 6♥.
Alfræðiritið segir að samsett þving-
un gerist í tveimur áföngum – fyrst sé
eins konar undirbúningsþvingun í
þremur litum, sem síðan er fylgt eftir
með hefðbundinni tvöfaldri þvingun.
Það er nefnilega það.
Þessi fágæta þvingun sást í fyrstu
umferð Spingold-keppninnar í Las
Vegas. Austur hafði opnað í þriðju
hendi á tígulhindrun, en eigi að síður
kom vestur út með ♣D. Sagnhafi tók
heima og trompaði út, vestur drap
strax og spilaði ♣G í von um að austur
gæti stungið. En kóngurinn hélt og nú
er sagnhafi á grænni grein. Vestur
lendir fljótt í vandræðum, því hann
þarf að halda í alla spaðana og tvö lauf.
Hann neyðist því til að henda tígli (það
er undirbúningsþvingunin). Sagnhafi
getur þá byggt upp tvöfalda þvingun
með því að taka á ♦Á og klára trompin.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef þú hefur undanfarið átt erfitt
með að sjá fyrir þér þína björtu framtíð,
þá birtir núna til. Láttu þig dreyma! Ekki
þykjast vita hvað fólk er að hugsa í kvöld.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er þreytandi að taka tillit til til-
finninga allra í kringum þig. Vertu harð-
ur af þér og ætlastu til þess sama af öðr-
um. Þá mun orkumikið og öruggt fólk
umkringja þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hlutverk þitt er mikilvægt. Og
það sem þér þykir spennandi í vinnunni
er ekki það sama og æsir aðra. Njóttu
þess að eiga þínar eigin leyniáskoranir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Tæknileg vandamál láta á sér
kræla. Það er áskorun að fá alla til að
vera á sama tíma á sama stað. Gerðu þitt
besta og ekki láta sjá að þú svitnar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er hættulegt að taka lífið of bók-
staflega. Horfðu á úr fjarlægð og reyndu
að greina mynstur. Ekki hlusta á aðra.
Spurðu sjálfan þig: Um hvað snýst þetta?
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Notaðu hvaða tækifæri sem gefst
til að verða ástfangnari af sjálfum þér.
Ekki bíða eftir neinum til að eyða lífinu
með. Hafðu stuð og leyfðu öðrum að vera
með.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft ekki að vera unglingur til að
finnast allt frekar fáránlegt. Gáfur þínr
leyfa þér að sjá húmorinn í því sem aðrir
taka alvarlega.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það þarf að vinna úr íþyngj-
andi aðstæðum. Gerðu það án þess að
hugsa of mikið. Ef þú veist of mikið um
málið, kemstu aldrei að niðurstöðu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er langt þangað sem þig
langar að fara, og þú veltir fyrir þér
hvort þér takist það. Það er enginn tími
til að hugsa. Haltu af stað í rétt átt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vanalega sérðu eitthvað sem
þér líkar í fólki um leið og þú hittir það. Í
dag muntu hins vegar afgreiða einhvern
án góðrar og gildrar ástæðu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það stefnir í að visst samband
takist á flug. Viltu fá far? Komdu tilfinn-
ingunum fyrir í handfarangrinum. Sam-
an lendið þið á fallegum og framandi
stað.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur ákveðið að hreinsa upp
vitleysuna eftir einhvern annan. Láttu
hann samt vita hvað þér finnst, en án
þess að væla – og bara staðreyndir.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
30. júlí 1951
Örn Clausen, 22 ára laganemi,
setti Norðurlandamet í tug-
þraut, hlaut 7.453 stig. Þetta
var næstbesti árangur í heim-
inum það ár.
30. júlí 1994
Rúta með 32 erlenda ferða-
menn valt út af þjóðveginum
fyrir ofan Bólstaðarhlíð í
Austur-Húnavatnssýslu. Flest-
ir farþeganna slösuðust og ell-
efu voru lagðir á sjúkrahús.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
Runólfur Run-
ólfsson verk-
stjóri verður sjö-
tugur mánudag-
inn 4. ágúst
næstkomandi. Af
því tilefni verða
þau hjónin Dúddi
og Stína með
opið hús sunnu-
daginn 3. ágúst milli kl. 14 og 17 að
Rjúpnabraut 5, Úthlíð, Biskups-
tungum. Þau hlakka til að sjá ætt-
ingja og vini sem eru hjartanlega
velkomnir.
70 ára
Svana Ósk Jónsdóttir og Davíð
Harðarson voru gefin saman í
Garðakirkju 7. júní sl. af sr. Sigurði
Árna Þórðarsyni. Heimili þeirra er
á Hólagötu 1b í Vogum.
Brúðkaup
JÓHANN Bæring Gunnarsson, verkefnastjóri hjá
Ísafjarðarbæ, er 35 ára í dag. Hann ætlar sér ekki
að gera mikið veður út af áfanganum, enda segist
hann „ekkert ofboðslega mikill afmælismaður“.
Í fjölskyldunni leynist hinsvegar annar og meiri
afmælismaður sem á það til að stela sviðsljósinu
því tengdafaðir hans, Jónatan I. Ásgeirsson skip-
stjóri, er 55 ára í dag. Þeir tengdafeðgar hafa
fagnað afmælinu saman í mörg ár en í þetta skiptið
bregða þeir út af þeim vana því Jónatan er á sjón-
um. Í staðinn segist Jóhann ætla að hafa það náð-
ugt á tjaldstæðinu á Tálknafirði, með konu sinni
Sædísi Maríu Jónatansdóttur og þremur dætrum. „Við höfum verið að
þræða landið og tjaldsvæðin í sumarfríinu. Við eltum bara góða veðrið
og erum núna nýkomin af Látrabjargi,“ segir Jóhann. Þau hjónin eru
mikið útivistarfólk og njóta þess að ferðast um landið, í gönguferðum
á sumrin og á skíðum á veturna. Sjálfur segist Jóhann eiga heilan haug
af áhugamálum og hefur hann alla tíð tekið virkan þátt í félagsmálum.
Hann gegnir m.a. starfi varaformanns Héraðssambands Vestfirðinga
auk aðalritarastarfa fyrir Mýrarboltafélag Íslands og embætti forseta
Ofurhugafélags Íslands, en í nafni þess félagsskapar hafa nokkrir
sprækir menn stundað gönguferðir saman í 15 ár. Næst á dagskrá hjá
Jóhanni er hið árlega Mýrarboltamót á Ísafirði um verslunarmanna-
helgina og eru allir hvattir til að mæta. unas@mbl.is
Jóhann Bæring Gunnarsson, 35 ára
Tengdó stelur sviðsljósinu
;)
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd,
og nafn foreldra,
á netfangið barn@mbl.is