Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 19

Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 19 Valdís Thor Sól í sól Nú er sumar og gleðjast gumar á landinu bláa þessa dagana. Embla Sól svalaði þorstanum í girnilegri vatnssprænu í hitanum í gær. Blog.is Jakob Kristinsson | 29. júlí Hrefnukjöt ... Svo eru andstæðingar hrefnuveiða að fullyrða að enginn markaður sé fyrir þetta kjöt en nú er Konráð að selja þetta á Ísafirði fyr- ir kr. 800 kílóið enda er þetta mjög gott kjöt. Ég held að óhætt væri að gefa út veiðileyfi fyrir 100 hrefnur í viðbót við þessar 40. Því að allt kjöt af þeim hrefnum sem veiddar hafa verið hefur verið selt jafn- óðum og því óhætt að veiða meira svo eitthvað verði til fyrir veitingastaðina næsta vetur. Þeir sem borða mest af hrefnukjöti á veitingahúsum eru erlendir ferðamenn sem hafa farið í hvalaskoð- unarferðir og langar til að smakka kjötið af þessum dýrum. Þannig að þessar tvær atvinnugreinar geta vel farið saman. Meira: jakobk.blog.is Hlini Melsteð Jóngeirsson | 29. júlí Stjórnleysis- sáttmálinn Margir hverjir samfylking- armenn eru greinilega ekki að átta sig á því að stjórnarsáttmálinn er ótrúlega grunnt plagg til að byrja með. Ekki er tek- ið á málefnum öðruvísi en mjög almennt orðað og þannig að hægt er að túlka eins og hver vill. … Meira: hlini.blog.is Björn Magnús Stefánsson | 29. júlí Réttlætið sigrar! Ég er mjög ánægður með framtak lögreglustjórans í Árnessýslu sem sýnir að þau eru að þverbrjóta lög- in og eiga ekki að komast upp með það. Ég skil vel að Orkuveita Reykjavíkur og Klæðning hf. geri sínar kröfur um bætur, sem betur fer fyrir þessa krakka þá var ekki tjón á bornum sem hefði lík- lega kostað þau ævilaunin sín. … Meira: stefansson.blog.is Í fyrri grein okkar um Evrópumál og ís- lenskan efnahag tæpt- um við á nauðsyn þess að eiga heildræna um- ræðu um Evrópumál þar sem allt væri und- ir. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur allt frá stofnun lagt mikla áherslu á stefnumótun á sviði utanríkis- og alþjóðamála, þar á með- al Evrópumála. Að þessum málum er nú unnið þannig innan flokksins að sérstakur starfshópur fjallar um Evrópumál undir forystu fulltrúa okkur í Evrópunefnd þeirri sem nú starfar. Fyrirhugað er málþing um Evrópumál í haust enda leggjum við Vinstri-græn áherslu á það í starfi okkar að skoða allar hliðar þessara mála, kosti og galla, og hafna engum hlutum fyrirfram. Stefna flokksins hingað til hefur hins vegar verið skýr og fengið einróma stuðning í æðstu stofnunum flokksins, í stjórn, flokks- ráði, þingflokki og á landsfundum, og henni verður að sjálfsögðu ekki breytt eða frá henni hvikað nema að undangenginni rækilegri skoðun og umfjöllun í flokknum og sam- þykktum félagsmanna og þeirra stofnana flokksins sem á lýðræð- islegan hátt ganga frá okkar grund- vallarstefnumálum. Afstaða VG er sem fyrr sú að aðild að Evrópusam- bandinu þjóni ekki hagsmunum Ís- lands. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur hins vegar aldrei skorast und- an umræðu um Evrópumál eða al- þjóða- og utanríkismál yfirleitt og fagnar virkri, málefnalegri og upp- byggilegri umræðu um þau viðfangs- efni eins og önnur. Okkar krafa er hins vegar að sú umræða sé á breið- um grunni og þar sé allt undir. Undan því hefur oft verið kvartað á umliðnum árum að þessi mál séu með einhverjum hætti launhelg í ís- lenskri stjórnmálaumræðu og þau megi ekki ræða, Evrópumálin séu ekki á dagskrá og þar fram eftir göt- unum. Ekki verður þó betur séð af umræðu, greinaskrifum og umfjöllun um þessi mál undanfarin ár og ára- tugi en að öllum hafi alltaf verið frjálst að tjá sig um þetta viðfangs- efni. Það virðist hins vegar vera að koma á daginn að þeir sem mest hafa kvartað undan því að ekki sé næg umræða um Evrópumál og hrósa sér jafnvel af því að hafa komið henni á dagskrá vilji hafa þá umræðu á viss- um forsendum. Þannig voru viðbrögð við skrifum Björns Bjarnasonar um mögulega upptöku evru án þess að ganga í ESB afar athyglisverð og sambandssinnar býsna fljótir að af- greiða umræðuna sem óþarfa. Enn harkalegri urðu viðbrögðin þegar Ögmundur Jónasson, formaður þing- flokks Vinstri–grænna, velti upp spurningum í blaðagrein um hvort ekki væri nauðsynlegt að ræða bæði kosti og galla EES-samningsins. Hinir sömu og mest hafa kvartað yfir ónógri umræðu um Evrópumál á undanförnum árum virðast þannig nota frasann „umræða um Evr- ópumál“ í merkingunni „gagnrýn- islaus umræða um ágæti ESB- aðildar“. Sú umræða sem við viljum beita okkur fyrir tekur málið fyrir á breið- um grundvelli og setur það í viðeig- andi samhengi; sem eina mikilvæg- ustu utanríkispólitísku spurningu sem íslenska þjóðin fæst við þessi ár- in, enda oft minna undir en sjálft sjálfstæðið og framtíðarstaða þjóð- arinnar meðal þjóða. Lýðræðisleg og stjórnskipuleg staða málsins Í framhaldi af þessu viljum við vekja athygli á því að margar og mis- vísandi hugmyndir virðast uppi um það hvernig að því skulið staðið í lýð- ræðislegum og stjórnskipulegum skilningi ef breytingar verða und- irbúnar á stöðu Íslands hvað varðar tengsl þess við Evrópusambandið. Um þetta höfum við skýrar hug- myndir. Í fyrsta lagi hljóta stjórn- málaflokkarnir í landinu að móta sér skýrar áherslur í þessum efnum, tefla þeim fram og afla sér umboðs í lýðræðislegum alþingiskosningum til að framfylgja þeim. Ísland tekur ekki upp evru og gengur þaðan af síður í ESB án þess að atbeini Alþingis komi til. Alþingi þarf að breyta lög- um og stjórnarskrá til að Ísland geti orðið aðili að Evrópusambandinu. Á Alþingi eru þingmenn fyrst og fremst bundnir af samvisku sinni. Þar til viðbótar af þeim áherslum, stefnumálum og umboði sem þeir fengu frá kjósendum í und- angengnum alþingiskosningum. Mál- ið hlýtur því að vera þannig vaxið að þeir flokkar sem hyggjast leggja til breytingar á stöðu Íslands í þessum efnum hljóta fyrst að móta sér þá stefnu sjálfir, í öðru lagi að afla henni fylgis í kosningum og í þriðja lagi að fara með það umboð til samninga við aðra flokka á þingi. Síðan deilir eng- inn um það að efnisleg niðurstaða málsins yrði borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu, í reynd með tvennum hætti, þannig að annars vegar yrði kosið um hina efnislegu samningsniðurstöðu og hins vegar ætti þjóðin þess einnig kost að kjósa um málið með a.m.k. óbeinum hætti þegar nauðsynlegar stjórn- arskrárbreytingar yrðu bornar undir þjóðina. Að okkar dómi standa mál því þannig að á yfirstandandi kjör- tímabili skortir alla flokka umboð til að hverfa frá þeim áherslum sem þeir tefldu fram fyrir síðustu kosn- ingar. Svo mikið er víst að VG mun ekki taka óábyrga kollhnísa í þessu máli frá þeim áherslum sem við lögð- um með skýrum hætti fyrir kjós- endur í síðustu kosningum og feng- um stuðning við. Hins vegar mega menn svo ekki rugla því saman að flokkarnir hafi sínar áherslur sem kjósendur hafa ákveðið að veita al- mennt brautargengi og hinu að í stuðningsmannabaklandi flokkanna kunna að vera skiptar skoðanir um þetta mál eins og mörg önnur. Það er einmitt mjög mikilvægt að flokkar tali skýrt og séu heiðarlegir. Kjós- endur geta svo gert það upp við sig hvort þeir vilji fylgja þeim að málum jafnvel þótt þeir deili ekki að öllu leyti skoðunum með þeim í ein- stökum málum. Miðað við umræðu undangenginna vikna mætti ætla að Evrópumál stefndu í að verða eitt stærsta mál næstu alþingiskosninga en um það er þó of snemmt að spá. Takist svo til, sem að sjálfsögðu þarf að verða, að stjórnvöld í landinu, ríkisstjórn og aðrir aðilar, komi sér að verki, nái tökum á efnahags- og atvinnumálum og komi þeim á réttan kjöl þannig að ástandið batni, verðbólga hjaðni, vextir komist á viðráðanlegt ról og viðskiptahalla verði snúið í jöfnuð, kemst þessi umræða í nýtt samhengi. Það er sannarlega áhyggjuefni að svo virðist sem ýmsir geri nú beinlín- is í því að tala kjarkinn úr þjóðinni. Það er engin ástæða til að ætla annað en að Íslendingar geti hér eftir sem hingað til borið ábyrgð á sér sjálfir. Við höfum alla burði til þess að halda hér úti sjálfstæðu lýðræðis- og vel- ferðarsamfélagi, með góðum lífs- kjörum og öflugu velferðarkerfi. Þjóðinni, sem sárfátæk og vanþróuð sótti sér heimastjórn, fullveldi og að lokum endanlegt sjálfstæði á síðustu öld við erfiðar aðstæður, ætti ekki að verða skotaskuld úr því að sigrast á þeim erfiðleikum sem nú ganga yfir og það munum við að sjálfsögðu gera. Við leggjum áherslu á að gengið verði til þess leiks með bjartsýni, kjark og sjálfstraust að leiðarljósi og menn ætli sér ekkert minna en að koma efnahagsmálunum í gott lag og innleiða traustan stöðugleika á næstu 12-18 mánuðum. Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð býður hér eft- ir sem hingað til fram krafta sína í þeim efnum og við vísum til okkar til- löguflutnings og málafylgju á um- liðnum misserum. Umfram allt: Grautum ekki spurningum sem varða það hvernig tengslum Íslands við ESB eða fyrirkomulagi gjald- miðlamála verði háttað hér á Íslandi á árunum 2015-2018 saman við við- fangsefni næstu mánuða. Heildræn umræða um Evrópumál Eftir Steingrím J. Sigfússon og Katr- ínu Jakobsdóttur » Að okkar dómi standa mál því þannig að á yfirstand- andi kjörtímabili skortir alla flokka umboð til að hverfa frá þeim áherslum sem þeir tefldu fram fyrir síðustu kosn- ingar.Steingrímur J. Sigfússon Höfundar eru formaður og varaformaður Vinstri hreyfing- arinnar – græns framboðs. Katrín Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.