Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 17
Morgunblaðið/Valdís Thor
Glasa-, hnífapara- og diskasett Stórsniðugt í
ferðalagið og fáanlegt í nokkrum litum. Það er
betra að skera steikina á plasti en pappír. Fæst í
Rúmfatalagernum og kostar 1.290 kr.
Barnaveiðistöng Mjög
einföld í notkun.
Spúnn og flotholt
fylgja með en börnin
hafa jú gaman af því
að tína orma sjálf.
Fæst í Rúmfatalagern-
um og kostar 1.290 kr.
10 lítra ferðavaskur Það er
ótrúlegt að hægt sé að
setja heila 10 lítra af vatni í
þennan samanbrjótanlega
vask, það fer ekkert fyrir
honum. Fæst í Everest og
kostar 3.595 kr.
Blár tjaldstóll sem er bæði ódýr
og meðfærilegur. Er með inn-
byggðan glasahaldara fyrir
uppáhalds útilegumjöðinn.
Fæst í Rúmfatalagernum og
kostar 689 kr.
Lítil og létt tjalddýna 190x60
cm. Það kemur sér vel að hafa
svona grip til að einangra kuld-
ann frá afturendanum. Fæst í
Europris og kostar 1.199 kr.
Fyrir lengra komna
Þessa rétti er gott að undirbúa
heima og geyma í kæliboxinu.
Villimannafille
lambafille eða svínalundir
hunang
ferskar kryddjurtir
Kjötið er fituhreinsað að mestu og
kryddað með salti og pipar, penslað
með þunnu lagi af hunangi og loks
þakið með kryddjurtum. Á lambið er
gott að nota rósmarín og oregano og
á svínið basil. Þá er kjötinu rúllað
þétt inn í tandurhrein viskastykki og
svo pakkað niður í kælibox. Kjötið
marinerast vel á þennan hátt og
verður meyrt og gott. Áður en það
er grillað þarf að dusta það mesta af
jurtunum af svo þær brenni ekki. Til
að gera enn betra má tína hvönn,
blóðberg eða maríustakk á staðnum
og henda á grillið meðan kjötið grill-
ast.
Meðlæti með kjötinu
Hálfsjóðið litlar kartöflur, raðið
þeim upp á grillprjón og pakkið nið-
ur í kæliboxið. Skella þeim svo á
grillið með kjötinu.
Einnig er hægt að þræða heila
sveppi og heila smátómata á grill-
prjón og grilla með.
Grillaðar tígrisrækjur
fyrir tvo
300 g tígris- eða risarækjur
½ meðalstór chilipipar, fræ-
hreinsaður og smátt skorinn
2 sm ferskt engifer, smátt
saxað eða rifið
safi úr hálfum lime-ávexti
1 teskeið salt, t.d. maldon-salt
saxað koriander (má sleppa)
2-3 msk. olía
Allt efni í marineringu hrært
saman og rækjurnar settar út í.
Marineringin á ekki að vera mjög
þunn né of mikið af henni, hún á
helst að límast við rækjurnar. Má
marinerast í sólarhring í kæli, eða
skemur ef vill.
Rækjurnar eru síðan veiddar upp
úr marineringunni og grillaðar á
spjóti eða álpappír á blússandi heitu
grilli í 2-3 mínútur, eða þar til þær
eru orðnar bleikar.
Snæddar snarkandi heitar með
fersku salati, ávöxtum eða öðru sem
hugurinn girnist.
gudrunhulda@mbl.is
hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 17
Pétur Stefánsson bregður á leikmeð limruna:
Þegar að lendir hún Þóra í,
þrengingum sem er ei glóra í;
þá dettur hún í’ða
(það dregur úr kvíða)
og hugsar um karlmenn og hórarí.
Að limrum er gaman að leika sér,
af ljóðum og vísum að hreykja sér.
Samt er nú fínna
ferskara’og brýnna
í kúbönskum vindli að kveikja sér.
Af yrkingum stórskáldin stæra sig
og stöðugt í lífinu mæra sig.
Þeir meta sitt bull
svo mikið sem gull,
að varla þeir nenna að næra sig.
Hallmundur Kristinsson flaug
nýverið til Færeyja með Vefaranum,
þjóðdansafélagi á Akureyri. Hann
orti þegar lent var á Vogaflugvelli
eftir stutt og snaggaralegt flug:
Vefararnir ungu og öldnu
ósköp hljóta fegnir því
að vera lentir heilu og höldnu
hérna Færeyjunum í.
VÍSNAHORNIÐ
pebl@mbl.is
Af limru og Færeyjum
Nokkur atriði fyrir foreldra/
forráðamenn að hafa í huga
Unglingar yngri en 18 ára eru á
ábyrgð foreldra sinna og ættu því ekki
að fara á útihátíð án þess að einhver
ábyrgur fullorðinn væri með í för. Fáið
símanúmer hjá þeim sem ætlar með
þeim.
Hafið samband við foreldra þeirra
sem unglingurinn ætlar með og komið
ykkur saman um þær reglur sem þið
viljið að unglingarnir fylgi.
Gangið úr skugga um að ungling-
urinn sé vel útbúinn fyrir útilegu.
Látið unglinginn hafa símanúmer hjá
ættingjum og vinum sem hann getur
hringt í ef eitthvað kemur upp á og ekki
næst í ykkur.
Nærvera foreldra er mikilvæg for-
vörn. Foreldrar geta gist í nágrenni
útihátíðar og gott er að hafa samband
við unglinginn sem oftast í síma eða með
því að hittast á svæðinu.
Ræðið við unglinginn um að þiggja
aldrei far hjá neinum sem er undir
áhrifum áfengis.
Útvegið unglingum ekki áfengi. Ung-
lingur undir áhrifum áfengis er í meiri
hættu á að lenda í vandræðum. Þegar
foreldrar útvega unglingum áfengi hafa
þeir samþykkt drykkju þeirra og líklegt
er að þeir drekki meira.
Lögbrot er að selja, veita eða afhenda
þeim áfengi sem eru yngri en 20 ára.
Verslunarmannahelgin er einstærsta útihátíðahelgin áÍslandi. Fjölmargt og fjöl-breytt skemmtanahald
freistar ungs fólks og margt þarf að
hafa í huga. Margir foreldrar muna
eflaust eftir að hafa á sínum ung-
lingsárum staðið frammi fyrir svip-
uðum aðstæðum og sóst eftir því að
fara á útihátíðir um þessa helgi og
muna hugsanlega eftir rökræðum við
sína foreldra um leyfi til að fara í
Húsafell eða á þjóðhátíð í Eyjum. Nú
hefur staðan snúist við. Unga fólkið
sem var er nú orðið foreldrar sjálft,
og þarf að ákveða hvort leyfa eigi sín-
um unglingi að fara með jafnöldrum
á útihátíð um verslunarmannahelg-
ina. Í því tilefni er vert að hafa í huga
að tímarnir hafa breyst. Sjálfræðis-
aldurinn hefur færst úr 16 árum í 18
ár og umhverfið er að margra mati
harðara þegar litið er til áfengis- og
vímuefnaneyslu. Flestir foreldrar
telja sig vel geta treyst unglingnum
til að fara á útihátíð og flestir ung-
lingar standa undir því trausti. En
þær aðstæður, sem reynslan sýnir að
geta komið upp, geta hins vegar
reynst unglingum þungbærar og af-
leiðingarnar alvarlegar.
Misskilningur að betra sé
að foreldrar kaupi áfengið
Sumir foreldrar telja það skárri
kost að kaupa áfengi fyrir unglinga
og reyna þannig að hafa áhrif á
hvaða og hversu mikið áfengi ung-
lingurinn drekkur. Þetta er mikill
miskilningur. Rannsóknir frá Norð-
urlöndunum sýna að áfengið sem for-
eldrar útvega unglingum er oft hrein
viðbót við það áfengi sem ungling-
urinn hefur skaffað sér sjálfur. Með
því að kaupa áfengi fyrir unglinginn
hefur foreldri gefið sitt leyfi fyrir
áfengisneyslunni. Síðan ber að hafa í
huga að dómgreind unglingsins
skerðist við áfengisneyslu og honum
er því hættara við að drekka ennþá
meira en hann ætlaði sér.
Samvera – forvörn sem virkar
Enginn vafi leikur á að foreldrar
gegna stóru hlutverki í lífi barna
sinna; þeir hafa bæði erfðafræðileg
og félagsleg áhrif á hegðun þeirra.
Áhrifamáttur foreldra minnkar á
unglingsárunum og áhrifamáttur
vina eykst sem því nemur. Niður-
stöður rannsókna sýna að samvera
foreldra og barna dregur úr líkum á
því að unglingar neyti ólöglegra
vímuefna og seinkar því að unglingar
fari að nota áfengi. Því er hægt að
segja að samverustundir foreldra og
barna séu forvörn sem virkar.
Morgunblaðið/Kristján
Gaman saman Niðurstöður rannsókna sýna að samvera foreldra og barna dregur úr líkum á því að unglingar neyti
ólöglegra vímuefna og seinkar því sömuleiðis að unglingar fari að nota áfengi.
Foreldrar, unglingar og
verslunarmannahelgin
Sveinbjörn Kristjánsson,
verkefnisstjóri, Lýðheilsustöð.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SUMARYOGA
Sér sumartilboð
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Líkamsæfingar, önurnaræfingar, slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi konur,
byrjendur og lengra komna.