Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 21

Morgunblaðið - 30.07.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 21 mér yfir lærdóminn, tókst þér frí í vinnunni og við sátum úti í Gróttu. Bíltúrarnir síðla kvölds, kók og prins í sjoppunni okkar. Göngutúrarnir hringinn í kringum Helgafell um helgar, Heiðmörkin á kvöldin. Þú elskaðir að segja mér sögur og varst manna fróðastur um undarlegustu hluti. Við spekúleruðum endalaust þú og ég. Við áttum svo margar ómet- anlegar stundir saman pabbi. Þú elskaðir Vesturbæinn og elsk- aðir Ísland, en varst samt alltaf tilbú- inn að fara á vit ævintýranna með okkur og mömmu til útlanda. En þeg- ar heim kom dróstu djúpt inn andann og hljópst beint í næsta vatnskrana og fékkst þér heilnæma vatnið okkar og dásamaðir landið í leiðinni. Eftir að ég flutti út fyrir 18 árum voruð þið mamma dugleg að koma og heim- sækja mig og mína, hvar sem við vor- um. „Lánaðir mér mömmu“, eins og þú komst að orði og það var ósjaldan. Komst svo og sóttir hana og áttum við þá yndislegar stundir. Þér fannst matur góður og ég naut þess að búa hann til fyrir þig. Bjóða þér upp á góð vín. Þetta kunnirðu að meta. Aldrei leið langur tími á milli þess sem við sáumst. Það síðasta sem þú sagðir við mig var: Góða ferð, ég elska þig. Elsku pabbi minn, mér finnst þú hafa verið tekinn frá okkur allt of snemma, ég er ekki tilbúin að missa þig, ég átti eftir að tala svo mikið við þig. Eiga stundir með þér og mömmu. Þakka þér fyrir hjálpina sem þú og mamma veittuð mér og börnunum í vetur. Mig langaði að segja þér frá öllu sem ég er að taka mér fyrir hend- ur, deila svo mörgu með þér. Sorgin og tómið er óbærilegt. Ég elska þig pabbi minn, geymi þig í hjarta mér og tek þig með mér hvert sem ég fer. Ég kveð glæsilegan og stoltan mann með þessum línum Tómasar Guðmunds- sonar: „Tak þú mitt angur og vinn úr því söng, er sefi söknuð alls þess, er var og kemur ei framar.“ Guð geymi þig pabbi. Þín Helena. Elsku besti afi minn, rosalega fannst mér sárt að kveðja þig svona snemma, en svona er víst lífið, maður fæðist, lifir og deyr. Rosalega áttum við góðar stundir saman, svo sem klukkustundir í göngu, talandi um allt milli himins og jarðar, ég talaði um skólann, þú um viðskipti, framtíðina, og það sem máli skiptir í þessum sam- ræðum er að ég átti æðislegar stund- ir. En það er eitt atvik sem ég gleymi aldrei og það er að þegar ég var með þér í Danmörku núna í maí, þá fórum við í göngu. Ég gat talað við þig um það hvernig maðurinn minn ætti að vera, hverjum ég myndi vilja giftast, hvernig strákamálin mín væru og ég fékk góð ráð. En það sem mestu skiptir er að ég var að tala við afa minn, ekki mömmu mína eða vinkon- urnar, ég var að tala við þig, góðan vin minn og afa. Minningarnar geymi ég í hjarta mínu, þig hef ég hjá mér, en lífið held- ur áfram, ég mun ekki bregðast þér í sambandi við neitt sem við töluðum um. Elska þig afi minn og ég passa mormor, mömmu og Helenu fyrir þig. Þitt barnabarn og vinkona, Nadía. Elsku afi minn! Ég sakna þín, það er svo leiðinlegt að við getum aldrei labbað aftur á söfn og niður á tjörn að gefa öndunum. Þú varst svo skemmtilegur og það var svo gott að vera hjá þér og mormor og fá pulsur og ísblóm. Nú er mormor alein og ég ætla að vera dug- leg að knúsa hana. Elska þig, afi, og vona að ég sjái þig bráðum aftur. Knúsaðu engl- ana og Guð. Þín Níta María. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um Guð- bjart Pálsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURBJÖRG BÓEL MALMQUIST JÓHANNSDÓTTIR, Aflagranda 40, Reykjavík, lést sunnudaginn 20. júlí á Vífilsstöðum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Jón Ellert Guðjónsson, Guðrún Bóel Guðjónsdóttir, Viðar Hjartarson, Kristín Margrét Axelsdóttir, Árni Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR HJARTARSON, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum við Hringbraut, fimmtudaginn 24. júlí. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 15.00. Jensína Guðmundsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Skúli Lýðsson, Ingibjörg Hjartardóttir, Sigurður Ólafsson, Vilborg Arinbjarnar, Anna Ásta Khan Hjartardóttir, Hrafn Sabir Khan, Björn Grétar Hjartarson, Guðmundur Ingi Hjartarson, Sigríður Sigmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHILDUR KRISTÍN SANDHOLT, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 27. júlí. Jón Eiríksson, Eiríkur Jónsson, Ásthildur Björnsdóttir, Íris Jónsdóttir, Einar Sigurðsson, Atli Már Jónsson, Lilja Dagbjartsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Eyrardal, Súðavík, sem lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 23. júlí, verður jarðsungin frá Súðavíkurkirkju laugardaginn 2. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Súðavíkurkirkju. Guðlaug Ingvarsdóttir, Jóna McCarthy, Jósep McCarthy, Bjarni Kjartansson, Guðmundína Sturludóttir, Steinn Ingi Kjartansson, Rósa Ólafsdóttir, Guðmundur S. Kjartansson, Guðrún Eiríksdóttir, Guðjón M. Kjartansson, Dagbjört S. Hjaltadóttir, Kristín Lilja Kjartansdóttir, Þorsteinn Haukur Þorsteinsson, Bjarney Stella Kjartansdóttir, Einar Hálfdánarson, Daði Kjartansson, Stefán Haukur Kjartansson og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KRISTÍN ARNA ZÓPHANÍASDÓTTIR, Hringbraut 136, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 28. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 5. ágúst kl. 14.00. Vilborg Einarsdóttir, Hörður Kristinsson, Jökull Einarsson, Björg Sigurðardóttir, Steinar Einarsson, Helga Björk Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR, síðast til heimilis í Seljahlíð, lést mánudaginn 28. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. ágúst kl. 13.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, RAGNHEIÐUR MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR, Skólabraut 6, Seltjarnarnesi, lést mánudaginn 28. júlí á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útförin verður auglýst síðar. Jón Oddur Magnússon, Margrét Þ. Jónsdóttir, Björgvin H. Fjeldsted, Þórður Ingi Jónsson, Áslaug Þóra Jónsdóttir, Sigrún Ósk Jónsdóttir, Hanna María Jónsdóttir, Þórður M. Adólfsson og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður og faðir okkar, MAGNÚS KARLSSON, Mímisvegi 8, Reykjavík, lést sunnudaginn 27. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 7. ágúst kl. 15.00. Bára Guðmannsdóttir, Guðmann Sigurgeir Magnússon. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR B. GUÐMUNDSSON verkstjóri, Gnoðarvogi 28, Reykjavík, lést þriðjudaginn 22. júlí á líknardeild Landakots. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 11.00. Gíslína J. Jónsdóttir, Fjóla Hilmarsdóttir, Ásta Hilmarsdóttir, Jóhann Sigurjónsson, Jón K. Leósson, Regína Magnúsdóttir, Bjarni Júlíusson, María Magnúsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Eva Ström, Egill Þorgeirsson, Hrafnhildur Hilmarsdóttir, Gunnar Þorvarðarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, OLGEIR SIGURÐSSON, Kóngsbakka 12, Reykjavík, lést þriðjudaginn 29. júlí á Landspítalanum við Hringbraut. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnhildur Gísladóttir, Fritz H. Berndsen, Ásta Kristjánsdóttir, Halldór Olgeirsson, Svava Magnúsdóttir, Guðrún Olgeirsdóttir, Jens Arnljótsson, Þórunn Olgeirsdóttir, Haraldur Pálsson, Smári Olgeirsson, Sigríður Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.