Morgunblaðið - 30.07.2008, Page 10

Morgunblaðið - 30.07.2008, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Olli minn, ég er alveg búin að gleyma hvað langur dómur þarf að vera til að fá að koma í matarboð til okkar? VEÐUR Kapítalistar hafa í gegnum tíðinareynst listamönnunum vel. Það þekkti meira að segja Þórbergur Þórðarson.     Annars hafa kapítalistarnir reynstmér betur en mínir elskulegu flokksbræður,“ skrifar Þórbergur í Stokkhólmi sum- arið 1923 í bréfi til Erlends í Unu- húsi.     Einn skenktimér 50 krón- ur þegar ég fór af landi burt. Annar gaf mér 100 krónur. Sá þriðji sendi mér 130 króna virði eftir að ég kom til Stokk- hólms. Ég skammast mín auðvitað fyrir að segja frá þessu og þú skalt ekki hafa hátt um það því að frá sósí- alísku sjónarmiði er sagan reglulega ljót.“     Auðvitað þurfti Þórbergur ekkertað skammast sín fyrir það að einstakir velviljaðir menn vildu styrkja hann. Á meðan gat hann ein- beitt sér að því sem hann gerði best: skriftum. Þetta vissu menn.     Að sama skapi þurfa stjórnendurGljúfrasteins ekkert að skamm- ast sín fyrir að Glitnir fjármagni hljóðleiðsögn um heimili Nób- elsskáldsins.     Þrátt fyrir kostun Glitnis hafafræðimenn frjálsar hendur um efnistök og framsetningu efnis. Þetta er án allra skuldbindinga og þeim sem á hlýða er ekki ofboðið.     Eins var það þegar kapítalistarnirstyrktu Þórberg.     Það er því ánægjulegt að kapítal-istarnir leggi sitt af mörkum til að halda arfleifð Laxness á lofti eins og þeir héldu Þórbergi uppi. STAKSTEINAR Þórbergur Þórðarson Falleg kapítalisk saga SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                    *(!  + ,- .  & / 0    + -                  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                   :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?                                                      *$BC                    !    "  #$    ! %      &    ' ( )        "*  "+    *! $$ B *! !" # $%  $" $%  & '% (' <2 <! <2 <! <2 !&%# $) * +$,'-  D2E                 /     B  ,    )   )   & !  (   -!   .(  '  /(  %  <7    0"*   1    !  '       '-    23  %   <   4     0"         %            ' (  )      -!  %    5  % "$  #+    !  6   ./ $$'00  '%$$1 ' '$) * Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR FUNDUR íbúa í húsi SEM sam- takanna (Sam- taka mænuskadd- aðra), notendur heimahjúkrunar og félagar og stjórn SEM mót- mæla harðlega „þeirri mannfyr- irlitningu“ sem lýsi sér í útboði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um að „veita 12 mikið fötluðum ein- staklingum búsettum í Reykjavík, þjónustu við persónulega umhirðu.“ Í tilkynningu segir að fundurinn telji að verið sé að fara aftur til for- tíðar og þvert á allar hugmyndir í nú- tímasamfélagi. Gengið sé í berhögg við samning Sameinuð þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. „Í þeim löndum sem við berum okkur gjarnan saman við, svo sem Norðurlöndunum, er fyrir löngu komið valfrelsi fyrir fatlaða ein- staklinga og hvernig aðstoð þeirra sé háttað,“ segir í tilkynningunni. „Sam- tökin eru reiðubúin til að vera stjórn- völdum innan handar og til ráðgjafar um framtíðarskipan þessa mála.“ jonhelgi@mbl.is Ekkert samráð við SEM Segja mannfyrirlitn- ingu í útboðslýsingu Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is HÚÐSÝKINGUM vegna slælegrar umhirðu heitra potta hefur fjölgað þónokkuð hér á landi. Sýkingin er í flestum tilfellum af völdum pseudomonas-bakteríu sem lifir í heitu vatni. „Þetta er mjög þekktur sýkill í vatnsböðum. Þeir liggja gjarnan þar sem mikill hiti og raki fyrir- finnst, t.d. í pottlokum. Bakterían nær sér helst upp í vatni sem hefur staðið lengi. Það vinnur ekk- ert á henni nema klór, ef sýrustig er rétt,“ segir Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir. Vilhjálmur segist sjá nokkuð merkjanlega aukningu í húðsýk- ingum af völdum bakteríunnar og segist ekki hafa áður séð jafnmörg tilvik og í sumar. Um er að ræða þrymlabólur með kláða og útbrot. Þessi út- brot vaxa tiltölulega hratt á nokkrum dögum. Oft- ast vinnur ónæmiskerfi líkamans á þessum sýk- ingum af sjálfu sér en í ákveðnum tilfellum, þegar um sýkingu í t.d. eyra er að ræða, eða öðrum stöð- um þar sem exem var fyrir, getur sýkingin orðið erfiðari viðureignar. Bakterían þrífst vel í upp undir 40 stiga hita. Oftast eru sýkingarnar afleiðing kunnáttuleysis á því hvernig eigi að beita hreinsiefnum eins og klór. Fólk er vant því að heita vatnið sjái um þetta, að sögn Vilhjálms. Auðvelt er að fyrirbyggja það að bakterían skjóti upp kollinum í heitum potti með því að skipta reglulega um vatn og hreinsa pottana. Það er afar mikilvægt að fólk sé ekki að nota sama vatn aftur og aftur án hreinsunar. Húðsýkingum fjölgar vegna potta  Slæleg umhirða heitra potta orsakar fjölgun  Bakteríur sem þrífast vel í upp undir 40 gráðu heitu vatni  Mikilvægt að fólk skipti reglulega um vatn Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ENDURBÆTUR standa nú yfir á hinu sögufræga húsi Höfða í Borgartúni. Húsið, sem komst í heimsfréttirnar árið 1986 þegar leiðtogafundur Reagans og Gor- batsjovs var þar haldinn, hefur að mestu verið nýtt í móttökur og fundi á vegum borgarinnar und- anfarin ár. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdasviði Reykjavík- urborgar standa yfir viðgerðir að utanverðu húsinu og lýkur fram- kvæmdum eftir tæpar tvær vikur. Verður húsið málað, skipt um klæðningu og allir gluggar lagaðir. Notkun hússins er töluvert minni á sumrin en veturna og eru sumr- in nýtt í viðhald af þessu tagi. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Hvítt Endurbætur standa yfir á utanverðu húsinu. Höfði fær tímabæra andlitslyftingu Í HNOTSKURN »Höfði var byggður 1909og var í fyrstu skrifstofa franska ræðismannsins. »Leiðtogafundurinn 1986markaði tímamót í sam- skiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í kalda stríð- inu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.