Morgunblaðið - 30.07.2008, Page 13

Morgunblaðið - 30.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 13 ERLENT STÚLKA hleypur gegnum verk eftir Jim Lambie í grasagarði í Edinborg, höfuðborg Skotlands. Ætli ævintýraveröld búi hinum megin skráargatsins? Reuters Til móts við ævintýrin Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is FYRIR RÚMUM fjórum áratugum vöknuðu vonir hjá Bretum um að mikil gósentíð væri í vændum. Og ekki að ástæðulausu. Mikil olía hafði fundist í Norðursjó og leið ekki á löngu þar til verulegar tekjur sköp- uðust af útflutningi á olíu og gasi. Norðmenn tóku þátt í veislunni en horfa nú líkt og Bretar fram á að næstu árin og áratugi muni olían og gasið þverra með tilheyrandi tekju- skerðingu fyrir þjóðarbúskapinn. Bretar eru þó í verri stöðu að því leyti að þeir verða sífellt háðari inn- fluttri orku, á sama og verð á jarð- efnaeldsneyti er í upphæðum. Jarðgasið er þar engin undan- tekning og í nýlegri skýrslu orkufyr- irtækisins Centrica kemur fram að 2015 verði 75% af gasinu sem brennt er í Bretlandi flutt inn og að sama ár hafi um fjórðungur frumorkufram- leiðslunnar verið tekinn úr umferð. Grípa þurfi til aðgerða strax. Kemur niður á fátækum Skýrsluhöfundar leiða einnig líkur að því að á næstu mánuðum kunni gasverðið að hækka um allt að tvo þriðju vegna stighækkandi kostn- aðar. Vandinn sé ekki tímabundinn og útlit fyrir að verðið muni haldast hátt í náinni framtíð. Aðspurð um hvort hún telji að gas- verðið muni stíga jafn-ört og sérfræð- ingar Centrica ráðgera segir Georgina Walsh, ráðgjafi hjá neyt- endavaktinni Energywatch, sem hef- ur eftirlit með orkumarkaðnum, að verðið muni ekki hækka svo ört í einni svipan, þótt samanlögð hækkun næstu átta til níu mánaða geti numið nokkrum tugum prósenta. Walsh segir nýjar tölur benda til að 4,5 milljónir heimila í Bretlandi búi við það sem skilgreint sé „orkufá- tækt“, og er þá átt við að meira en tí- undi hluti ráðstöfunartekna fari til orkukaupa. Til að setja þá tölu í samhengi jafn- gildir hún um tíunda hluta allra skráðra raforkureikninga í Bretlandi. Með hverri 10% hækkun á orku- reikningnum (ýmist raforka eða raf- orka og húshitun) fjölgi heimilum í þessari stöðu um 400.000. Orkufyrir- tækið EDF hafi þegar hækkað verðið um fimmtung og þegar hinir orkuris- arnir fylgi í kjölfarið, eins og þeir geri alltaf, muni meðalverðið fylgja þeirri hækkun. Það þýði að orkuverðið muni koma sífellt meira við pyngju efnalítilla Breta. Bresk orkukreppa  Færast fjær orkusjálfstæði  Norðursjávarolían að þverra  Munu að óbreyttu þurfa að flytja inn 75% af gasinu 2015 Reuters Á útleið? Sólin skein á kjarnorkuverið í Drax á N-Englandi í sumar. Næstu árin er reiknað með að mörgum breskum kjarnorkuverum verði lokað. HLUTUR gass á breska raforku- markaðnum er nú um 41% þegar litið er til framleiðslu á óendurnýj- anlegri orku. Til samanburðar komu 35% úr olíu, 15% úr kolum og 9% úr kjarnorku árið 2004, að því er fram kemur í skýrslunni „The future of UK gas supplies“, sem breska þingið gaf út í árslok 2004. Árið 2004 urðu þau tíðindi að Bret- ar fluttu inn meira gas en þeir fluttu út, en samkvæmt áður- nefndri skýrslu má ætla að árið 2020 verði yfir 80% gassins flutt- ur inn. Liggur meginskýringin í því að hratt gengur á gasbirgðir Breta í Norðursjó og viðbúið að gasvinnsl- an minnki verulega næstu árin. Viðkvæmir fyrir sveiflum ÓEIRÐIR brutust út á mótmæla- fundi stuðningsmanna stríðsglæpa- mannsins Radovans Karadzic í Bel- grad, höfuðborg Serbíu, í gærkvöld. 15.000 voru viðstaddir. Lögregla þurfti að nota táragas og gúmmíkúlur til að leysa upp 80 manna hóp, að mestu drukkinna unglinga, sem hafði tekið að grýta lögreglumenn. Tólf voru fluttir á sjúkrahús. Mótmælendur voru flestir öfga- þjóðernissinnar og mótfallnir hand- töku Radovans Karadzic og fram- sali hans til stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna. Luka Karad- zic, bróðir Radovans, hélt ræðu og Tomislav Nikolic, leiðtogi Róttæka flokksins í Serbíu, mæltist til að menn beindu kröftum sínum að því að eyða Boris Tadic, forseta Serbíu, en ekki Belgrad. sigrunhlin@mbl.is Óeirðir á mótmælafundi stuðningsmanna Karadzic Reuters Gráir Serbneskir öfgaþjóðernis- sinnar mótmæltu í Belgrad í gær. JARÐÝTA var send til að jafna hluta hússins, þar sem fjölskylda Sun Ruonan hefur rekið bakarí í á aðra öld, við jörðu og nágrönnunum greitt fyrir að hafa auga með henni og tilkynna lögreglu ef gesti bar að garði. Embættismönnum var einnig gert viðvart og þeim skipað að neita Sun um læknisþjónustu. Svona lýsir Sun reynslu sinni í við- tali við The New York Times af til- raunum kínverskra stjórnvalda til að planta trjám þar sem bakaríið hefur staðið skammt frá Torgi hins him- neska friðar í Peking, borginni þar sem Ólympíuleikarnir verða settir áttunda ágúst nk. Net hylur mótmælaspjöldin Að sögn greinarhöfundar The New York Times er byggingin að hruni komin og stillansar og grænt byggingarnet notað til að hylja mót- mælaspjöld konunnar, svo gestir leikanna komi ekki auga á þau. Að sögn blaðsins hafa kínversk stjórn- völd ekki látið þar við sitja heldur gripið til þess ráðs að reisa múra, hlaðna úr múrsteinum, til að hylja verslanir og önnur hús sem talin séu „lýti“ á umhverfinu. Múrarnir voru hlaðnir að ná- grönnunum forspurðum og hefur til- tækið komið illa við verslanir og litla veitingastaði. baldura@mbl.is Valtað yfir verslanir og múrað fyrir hús Kínastjórn beitir hörku í aðdraganda Ólympíuleikanna Í HNOTSKURN »Sumarólympíuleikarnirhefjast þann 8. ágúst nk. »Leikarnir eru þeir dýrustuí sögunni og er áætlað að verðmiðinn hljóði upp á um 43 milljarða dala, jafnvirði um 3.500 milljarða króna. Reuters Glansmyndin Hluti hins glæsilega og dýra Ólympíuleikvangs í Beijing. HÚN sýnist hetjuleg viðleitnin til að slökkva elda úr lofti með því að losa vatn úr tönkum eða öðrum búnaði sem heldur vatni við erfiðar aðstæður. Það er hins vegar með öllu óvíst hvort hún geri nokkuð gagn. „Margir gera ýmislegt að óþörfu til að vekja á sér athygli eða til eigin framdráttar í stjórnmálum,“ sagði Jim Ziobro, slökkviliðsstjóri skógrækt- arinnar í Oregon, um slíka losun í viðtali við The Los Angeles Times. Dagblaðið metur árangurinn af aðferðinni og segir slökkviliðsmenn upp- nefna losun vatns úr háloftunum sem „CNN-skvettu“, með þeim orðum að oft sé þrýst á þá að útvega flugvélar og þyrlur í að slökkva elda þótt gefið sé að eini tilgangurinn sé að sýnast fyrir framan tökulið fjölmiðla. baldura@mbl.is Sýndarmennska yfir eldhafinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.