Morgunblaðið - 30.07.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.07.2008, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnhildur S.Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 15. mars 1924. Hún lést á Landakotsspítala 19. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Geir- þóra Ástráðsdóttir húsfreyja, f. 1892 í Reykjavík, d. 1979, og Guðmundur Kr. Guðjónsson kaup- maður, f. 1893 í Dalasýslu, d. 1977. Systkini Gunnhildar eru Ingibjörg Ásta, f. 1922, d. 1979, Yngvi, f. 1926, d. 2003, og Áslaug, f. 1929. Gunnhildur giftist 7. september 1946 Sigurði Sigurðssyni, f. 7. júlí 1921, d. 28. maí 2000. Foreldrar hans voru Þuríður Pétursdóttir og Sigurður Árnason sem bjuggu á Bergi við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Sigurður var búfræð- ingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Hann útskrifaðist sem húsasmiður árið 1949 og starfaði lengst af sem húsasmíðameistari í Reykjavík. Börn Gunnhildar og Sigurðar eru: 1) Guðmundur við- skiptafræðingur, f. 20. september 1946, maki Valgerður Marinós- dóttir hagfræðingur. Dóttir þeirra er Guðbjörg Erla, f. 10. mars 1992. Sonur Guðmundar og fyrri konu hans, Elísabetar Hall- dórsdóttur, er Ragnar, f. 23. júní 1966. Sonur hans Skorri Þór f. 1998. 2) María næringarrekstrar- fræðingur, f. 3. febrúar 1949, maki Einar Loftsson húsasmíða- meistari. Börn þeirra eru: a) Loft- ur Þór, f. 2. nóvember 1976, sam- býliskona Brynhildur Helga, íbúð við Bústaðaveg, en þá voru börnin orðin þrjú. Þar bjuggu þau til ársins 1961. Um tíma bjuggu þau á Bergi við Suðurlandsbraut, æskuheimili Sigurðar, á meðan þau byggðu sér hús í Grænuhlíð, en þá voru börnin orðin sex. Þar bjuggu þau næstu tólf árin. Eftir það fluttust þau í Fossvoginn og að síðustu í Hvassaleiti 20. Árið 1981 byggðu þau sér ásamt börn- um og tengdabörnum, sumarbú- stað í landi Heyholts í Borgar- firði. Sumarbústaðurinn var þeim mikill sælureitur alla tíð. Einnig ferðuðust þau hjónin víða bæði innan- og utanlands og fóru oft óhefðbundnar leiðir í ferðavali. Miklu ástfóstri tók Gunnhildur við Kaupmannahöfn þangað fór hún árlega eða oftar síðustu áratug- ina. Áður en Gunnhildur og Sig- urður stofnuðu heimili vann hún við afgreiðslustörf, en sinnti börn- um og búi eftir það. Í byrjun átt- unda áratugarins fór hún aftur út á vinnumarkaðinn og starfaði í fá- ein ár í verslun föður síns, VBK á Vesturgötu í Reykjavík. Frá árinu 1976 og til starfsloka 1994 starf- aði hún sem leiðbeinandi í leik- skólum í Reykjavík. Hugsaði hún ætíð til þess starfs með mikilli gleði. Gunnhildur tók þátt í starfi aldraðra í Bústaðakirkju. Eign- aðist hún þar góðar vinkonur. Var perluföndur hennar aðaliðja þar og prýða nú fallega unnir munir hennar mörg heimilin. Gunnhild- ur var mikil fjölskyldukona, hélt vel utan um fólkið sitt og fylgdist af miklum áhuga með lífi allra af- komenda og tengdra. Útför Gunnhildar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. sonur þeirra Einar Kári, f. 2007 b) Ás- laug, f. 29. október 1981, sambýlismaður Jón Berg. 3) Áslaug hjúkrunarfræðingur, f. 10. janúar 1951, maki Sveinn S. Hannesson við- skiptafræðingur. Dætur þeirra eru: a) Gunnhildur, f. 28. janúar 1976, b) Elín Júlíana, f. 4. sept- ember 1978, sam- býliskona Sigríður Droplaug, c) Kolbrún, f. 16. mars 1985, sambýlismaður Jens Lyse- mose og d) Margrét, f. 9. desem- ber 1990. 4) Hrefna leik- skólastjóri, f. 28. júní 1952, maki Haukur Valdimarsson læknir. Sonur þeirra er Fjalar, f. 21. sept- ember 1979, sambýliskona Ás- laug, sonur þeirra Haukur Bragi, f. 2006. 5) Sigurður iðjuþjálfi í Danmörku, f. 22. febrúar 1954. 6) Ingibjörg leikskólakennari, f. 27. mars 1963, maki Bjarni S. Einars- son tæknifræðingur. Börn þeirra eru Ester Hermannsdóttir, f. 3. apríl 1991, Einar Siggi, f. 24. október 1994 og Birkir Ingi, f. 7. febrúar 1997. Gunnhildur ólst upp í foreldra- húsum á Lindargötu 6 í Reykja- vík. Hún gekk í Miðbæjarbarna- skólann og síðan í Kvennaskólann í Reykjavík. Hilda, eins og hún var jafnan kölluð, var mjög félagslynd, stundaði fimleika, var mikið á skíðum og virk í útivist- arfélaginu Farfuglum. Gunnhildur og Sigurður byrj- uðu búskap sinn á Lindargötu 6. Árið 1952 fluttu þau í sína fyrstu Mjög kær tengdamóðir og vin- kona, Gunnhildur Guðmundsdóttir, kölluð Hilda, er látin eftir skamm- vinn veikindi. Hildu, sem var lífs- glöð manneskja með mikla réttlæt- iskennd, var umhugað um vellíðan fjölskyldu sinnar og vina. Eigin- maður hennar til 54 ára var Sig- urður Sigurðsson húsasmíðameist- ari, kallaður Siggi, en hann lést vorið 2000. Vart er hægt að ræða um annað þeirra án þess að minnast á hitt, svo nátengd voru þau. Hilda var mikil fjölskyldumanneskja sem fylgdist vel með lífi fjölskyldu sinn- ar og sýndi gjörðum þeirra sem henni tilheyra mikinn áhuga. Í dag- legu sambandi við börn sín fékk hún jafnan góðar fréttir, sem hún miðlaði áfram. Vina- og kunningja- hópur hennar var ríkulegur, enda má segja að vinir barna hennar og barnabarna hafi einnig verið henn- ar vinir, svo góða nærveru hafði hún hvert sem hún kom. Oftar en ekki var leitað til Hildu með að passa barnabörnin, enda sinnti hún því hlutverki afar vel, barngóð með eindæmum og ástrík amma. Gaf hún góða skýrslu að pössun lokinni og voru þetta oft hinar mestu skemmtisögur, því Hilda var lífs- glöð manneskja og kunni þá list að láta öllum líða vel í návist sinni. Ógleymanlegar eru ferðir okkar í sumarbústaðinn í Heyholti, en þangað fórum við fjölskyldan með henni á hverju ári eftir að Siggi lést. Þar hafði hún unun af því að sinna trjáklippingum og njóta fag- urs útsýnis í kyrrð náttúrunnar. Spilað var fram á rauða nótt og oft- ar en ekki hljómaði rödd Jónasar Jónassonar og kvöldgesta hans undir, en Hilda fylgdist mjög vel með fréttum og menningartengdum þáttum í útvarpi og sjónvarpi. Hilda ferðaðist víða, jafnt innan- lands sem utan, með eiginmanni sínum. Oftar en ekki voru þetta óhefðbundnar ferðir sem þau skipu- lögðu sjálf. Hún hélt áfram að ferðast eftir að Siggi lést, yfirleitt til Danmerkur. Minnisstætt er þeg- ar við fjölskyldan hittum Hildu hjá Sigurði, syni hennar, í Danmörku. Þar var hún á heimavelli, las Politi- ken eins og innfædd, ferðaðist með strætisvagni eins og hann væri hennar einkabifreið og kunni góð skil á kaffihúsum og hallargörðum. Óperur voru hennar líf og yndi og átti hún mikið safn geisladiska sem hún naut að horfa á, því Hilda var sannkallaður lífskúnstner. Það er margs að minnast þegar litið er yfir farinn veg og víst að margir eiga eftir að sakna Hildu, sakna en jafn- framt finna til þakklætis fyrir ást- ríka nærveru, kærleika og gleði hennar. Bjarni S. Einarsson. Nú í haust eru liðin 40 ár síðan leiðir okkar Gunnhildar lágu fyrst saman. Það var á því margfræga ári 1968 sem heil kynslóð er nú kennd við. Ég fór þá að gerast alltíður gestur í Grænuhlíðinni að heim- sækja dótturina, Áslaugu, sem nú hefur verið eiginkona mín í 35 ár. Mér var strax ótrúlega vel tekið. Seinna kynntist ég því að það var einfaldlega þannig að Gunnhildur tók öllum vel sem tengdust fjöl- skyldunni. Átti það jafnt við um menn og málleysingja. Hún hafði einstaklega ljúfa lund og skipti sjaldan skapi. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni í öll þessi ár sem okkar leiðir lágu sam- an. Hún lét nægja að leiða hjá sér að ræða um þá sem henni mislíkaði stórlega við. Það er eftir á að hyggja einkenni- legt að Gunnhildur hefur eiginlega ekkert breyst og varla nokkuð elst öll þessi ár. Hún var alla tíð heilsu- hraust bæði til líkama og sálar og bar sig vel. Þau hjónin Gunnhildur og Sigurður voru um margt ólík en áttu þó sameiginleg áhugamál í hvers konar ræktun og einnig höfðu bæði yndi af tónlist og ferðalögum. Bestu stundir þeirra í seinni tíð voru þó sennilega í sumarbústaðn- um í Borgarfirði. Hann var búfræð- ingur og húsasmíðameistari og vann hörðum höndum og oftast í útivinnu alla daga og í öllum veðr- um. Hún var Reykvíkingur í marga ættliði og alla tíð dálítið fín með sig. Svolítið matvönd og vildi ekki láta sjá sig illa til hafða. Þeirra hjónaband var bæði langt og farsælt en Sigurður lést árið 2000. Gunnhildur lét ekki bugast þegar Sigurður féll frá. Hún hélt áfram að ferðast og sækja tónleika og leikhús og fylgdist vel með því sem var að gerast. Fjölskyldan var þó alla tíð í senn hennar starf og áhugamál. Árum saman hefur hún verið nokkurs konar miðpunktur og upplýsingamiðstöð fjölskyldunnar. Hún vissi nákvæmlega hvar allir voru og hvað þeir voru að gera. Virtist hafa áhuga á öllu sem henn- ar fólk tók sér fyrir hendur og sam- gladdist innilega með unga fólkinu við hvern áfanga í lífinu. Aldrei lét hún sig vanta þegar slegið var upp veislu eða kaffiboði. Því miður kynnist maður ekki mörgum persónum á ævinni sem eru jafn skapgóðar, heiðarlegar og vandaðar eins og Gunnhildur S. Guðmundsdóttir. Þess vegna er þeirra saknað meira en annarra þegar kemur að kveðjustund. Með þessum örfáu orðum vil ég þakka fyrir mig og mína fjölskyldu. Minn- ingin um góða konu lifir í hjörtum okkar sem hana þekktum. Sveinn Hannesson. Gunnhildur S. Guðmundsdóttir  Fleiri minningargreinar um Gunn- hildi S. Guðmundsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum.                          ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR BÖÐVARSSON, dvalarheimilinu Sólvöllum, áður Túngötu 51, Eyrarbakka, sem lést á dvalarheimilinu Sólvöllum mánudaginn 21. júlí, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 14.00. Ólafur Ragnarsson, Ásrún Jónsdóttir, Jón Karl Ragnarsson, Snjólaug Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, KARL ÓMAR CLAUSEN, Nesvegi 45, Reykjavík, lést aðfaranótt 20. júlí á líknardeild Landspítalans. Útförin fór fram í kyrrþey. Bára Jóhannesdóttir, Brynjar Pétur Clausen, Guðfinna Magnea Clausen, Kristján Clausen, Jens Pétur Clausen, Marsibil Jóna Tómasdóttir, tengdaforeldrar, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUNNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Hvassaleiti 20, Reykjavík, sem lést laugardaginn 19. júlí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, í dag, miðvikudaginn 30. júlí kl. 15.00. Guðmundur Sigurðsson, Valgerður Marínósdóttir, María Sigurðardóttir, Einar Loftsson, Áslaug Sigurðardóttir, Sveinn Hannesson, Hrefna Sigurðardóttir, Haukur Valdimarsson, Sigurður Sigurðarson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Bjarni S. Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN BERGSSON, Ketilsstöðum, lést miðvikudaginn 23. júlí á Heilbrigðisstofnun Austurlands, Egilsstöðum. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 2. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Austurlands, Egilsstöðum. Elsa Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Halldóra S. Jónsdóttir, Birgir Sigfússon, Bergur Jónsson, Olil Amble, Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Einar Valur Oddsson, afabörn, langafabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÓLAFÍA PÁLSDÓTTIR, Sléttuvegi 23, áður Langagerði 74, Reykjavík, lést á Landakotsspítala mánudaginn 28. júlí. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 8. ágúst kl. 13.00. Guðmundur Pálmi Kristinsson, Ragnheiður Karlsdóttir, Hrönn Kristinsdóttir, Brynjólfur Helgason, Ólafía Pálmadóttir, Halldór Már Sverrisson, Karl Pálmason, Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Kristinn Pálmason, Unnur Eir Björnsdóttir, Pálmi Örn Pálmason og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.