Morgunblaðið - 30.07.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2008 35
Gleymdirðu að
kaupa lottómiða?
Njóttu þess að vera í fríinu með áskrift að Lottó!
Farðu strax á næsta sölustað eða á www.lotto.is
og skráðu þínar tölur.
5 Fimmfaldur potturum helgina
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
34
81
7
BLAÐAFULLTRÚI fyrirsætunnar
Heather Mills, fyrrverandi eig-
inkonu Sir Paul McCartney, hefur
sagt starfi sínu lausu og segir að
það sé „ómögulegt“ að starfa fyrir
Mills.
Michele Elyzabeth, sem hefur
starfað fyrir Mills í fjögur ár, sagði
í sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum í
vikunni að hörkurifrildi þeirra
Mills hefði verið ástæða uppsagn-
arinnar. „Eftir að skilnaðurinn
gekk í gegn, hefur Heather orðið
ómöguleg. Við rifumst heiftarlega,
hún sagði mig heimska og ég svar-
aði og sagði að hún væri enginn
Guð. Þá sagðist hún aldrei ætla að
tala við mig aftur.“
Blaðafulltrúinn segir Mills
skulda sér fé og að hún hafi nú
skilning á mörgum þeirra nei-
kvæðu frétta sem birst hafa um fyr-
irsætuna.
Reuters
Erfið Blaðafulltrúi Heather Mills-
McCartney skilur skrifin um hana.
Blaðafulltrúi
Mills gengur
á dyr
NÝTT lag með Whitney Houston
hefur lekið út á netið og vakið tölu-
verða athygli. Lítið hefur farið fyr-
ir söngfuglinum í lengri tíma en
það var síðast árið 2003 sem hún
sendi frá sér lítið jólalag.
Nýja lagið heitir „Like I Never
Left“ og syngur Whitney þar með
rapparanum Akon. Lagið verður
best flokkað sem ástarsöngur en
deila má um hvort lagið jafnast á
við stærstu smelli söngdívunnar.
Engu að síður hefur lekinn náð að
fanga athygli fjölmiðla og aðdá-
enda.
Ef leitað er á YouTube sést hins
vegar að hvers kyns upptökur af
laginu hafa verið fjarlægðar
„vegna brots á höfundarrétti“ og
gæti það bent til að lekinn hafi ekki
verið með vilja þeirra sem standa á
bak við upptökuna. Áhugasamir
geta þó enn fundið upptöku með því
að slá inn titil lagsins á Google.
Reuters
Sígild Lífið hefur ekki alltaf verið
dans á rósum hjá Whitney.
Whitney
lekur á netið
KEVIN Spacey er einn virtasti kvikmyndaleikari samtímans, með tvo
Óskara á arinhillunni, fyrir The Usual Suspects og American Beauty –
og svo stýrir hann leikhúsi. Þótt Spacey sé hæfileikaríkur getur hann þó
ekki lært línurnar sínar fyrir kvikmyndirnar hvar sem er og allra síst
heima. Þar er of hljóðlátt. Hann á best með að einbeita sér þar sem er
hávaði og erill. „Ég fer á mjög háværa veitingastaði til að læra textann
minn. Eða á mjög háværar lestarstöðvar, þar sem er verið að missa
diska, símar hringja – vegna þess að það þröngvar heilanum til að ein-
beita sér.“
Spacey, sem mun senn leika Lex Luthor að nýju í nýrri kvikmynd um
Superman, upplýsir einnig í viðtali sem fréttaveitan Bang Showbiz
greinir frá, að hann þoli það ekki þegar hann hrekkur upp á nóttinni
vegna opinberana um það hvernig hann eigi að leika hlutverkin sem
hann tekst á við í það og það skiptið.
„Stundum gerist þetta og ég er hálfsofandi en fer að skrifa hjá mér og
þremur klukkutímum seinna vakna ég og horfi á það sem ég hef párað
og hugsa, hver fjárinn er þetta?! Ég skrifa svo illa.“
Spacey æfir sig
á lestarstöðvum
Reuters
Spacey Hampar Óskari í mannþröng.
KELSEY Gram-
mer, aðalleikari
Frasier-
þáttanna, var
fluttur í skyndi á
sjúkrahús í New
York í fyrradag,
þar sem hann var
að kynna nýjustu
kvikmynd sína.
Grammer var
einnig lagður inn
á sjúkrahús fyrir tveimur mánuðum,
eftir alvarlegt hjartaáfall á Hawaii,
þar sem hjarta hans hætti alveg að
slá.
Innlögnin nú er sögð vera vegna
aukaverkana af lyfjum sem hann er
enn á.
„Frasier“ á
sjúkrahúsi
Kelsey
Grammer