Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
260. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
LISTIR
TJÁ SIG UM DAGVAKT
OG SVARTA ENGLA
DAGLEGTLÍF
Erum við öll hæf til
að ala upp börn?
Leikhúsin
í landinu >> 37
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
JÓN Bjartmarz, yfirlögregluþjónn
hjá ríkislögreglustjóra og yfirmað-
ur sérsveitar embættisins, hefur
sagt sig úr Lögreglufélagi Reykja-
víkur vegna ummæla Óskars Sig-
urpálssonar, formanns Lögreglu-
félagsins, í kvöldfréttum Sjónvarps
á sunnudag. Óskar sagði þar að rík-
islögreglustjóraembættið hefði að
mörgu leyti verið tilraun sem hefði
misheppnast.
Að hans mati er of mikill
„hrepparígur“ innan lögreglunnar
sem alið sé á í fjölmiðlum.
„Það er ekki ásættanlegt að for-
maður [Lögreglu]félagsins skuli
taka þátt í slíku með þessum hætti
enda engin umræða farið fram um
málið innan félagsins. Lögreglan á
Íslandi þarf að vinna saman sem ein
heild að því að sinna löggæslu og
takast á við ný verkefni og nýjar
ógnir. Tíma og kröftum á ekki að
eyða í innbyrðis togstreitu og dæg-
urþras,“ segir hann.
Jón Bjart-
marz hefur verið
yfirmaður sér-
sveitarinnar frá
árinu 1987, leng-
ur en nokkur
annar yfirmaður
í sögu sveitar-
innar, sem er
orðin 26 ára.
„Það er mín
sannfæring að það sé bara ein lög-
regla á Íslandi og að allir lögreglu-
menn séu í sama liðinu,“ segir Jón.
Yfirmanni sérsveitarinnar blöskra ummæli formanns LR
Hættur í Lögreglufélaginu
Jón Bjartmarz
ÞAÐ er ekki fyrir lofthrædda að vinna við stóra turninn, sem er að rísa við
Höfðatún í Reykjavík. Verkamennirnir standa þarna við vinnu sína
óhræddir að sjá og minna helst á frægt atriði úr kvikmyndinni Titanic.
Betra að vera ekki lofthræddur
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
KVIKMYNDIN Mamma Mia!,
sem byggð er á samnefndum
söngleik með lögum ABBA,
er tekjuhæsta kvikmynd allra
tíma í íslenskum kvikmynda-
húsum, frá því SMÁÍS (Sam-
tök myndrétthafa á Íslandi)
hófu að taka saman tölur yfir
miðasölu og aðsókn að kvik-
myndum í íslenskum kvik-
myndahúsum árið 1995.
Tekjur af Mamma Mia! námu í gær tæplega 92.3 millj. kr. skv. úttekt SMÁ-
ÍS, en fyrra tekjumet Mýrarinnar var 90,6 milljónir króna.
Mamma Mia! hefur verið sýnd í 11 vikur hér á landi og samkvæmt nýj-
ustu tölum hafa rúmlega 106 þúsund aðgöngumiðar verið seldir á hana. Sú
kvikmynd sem mesta aðsókn hefur fengið á Íslandi til þessa er Með allt á
hreinu, um 125.000 sáu hana á sínum tíma að sögn framleiðanda hennar,
Jakobs Frímanns Magnússonar. | 38
Mamma Mia! tekjuhæst,
sló met Mýrarinnar
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
TILKYNNINGUM um innbrot á
heimili og í bifreiðar hefur fjölgað á
undanförnum mánuðum og mynstrið
er að breytast. Í gegnum árin hefur
venjan verið að innbrotum fækki á
sumrin en fjölgi aftur á haustin, þeg-
ar rökkva tekur á ný. Í ár varð hins
vegar uppsveifla í júlí og ágúst. Í
mörgum tilvikum eru vinnubrögðin
keimlík: skipulögð og heimilin valin
sérstaklega.
Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá lögreglu
höfuðborgarsvæðisins, segir að yfir-
leitt verði sérbýli fyrir valinu, enda-
hús með auðveldri flóttaleið. Sjaldn-
ar er farið inn í hús sem snúa að
fjölfarinni götu en fremur göngustíg
og gluggar og hurðir eru spennt upp.
Og svo virðist sem öryggiskerfi ógni
sjaldnast þjófum sem kunna sitt
verk. Þeir vita að hverju þeir ganga.
Hlutirnir geymdir á sama stað
„Þeir vita nákvæmlega hvar hlut-
irnir eru geymdir,“ segir Hákon Sig-
urjónsson lögreglufulltrúi. „Konurn-
ar geyma skartgripina á
nákvæmlega sömu stöðum, nánast
undantekningalaust. Tölvurnar eru
alltaf í sérstöku herbergi og mynda-
vélarnar á sama stað. Þeir fara inn,
sækja flest verðmætin og fara út á
mjög stuttum tíma. Oft á tveimur
mínútum.“
Dæmi eru um það að menn komi
hingað til lands til þess eins að brjót-
ast inn í hús eða leggja stund á önnur
afbrot. Þeir dveljast þá hér á landi í
nokkurn tíma og fylgjast með húsum
sem henta vel til innbrota.
Önnur breyting sem orðið hefur á
innbrotum í heimahús er, að sífellt
oftar ráðast þjófarnir til inngöngu á
morgnana. Skömmu eftir að heim-
ilisfólk er farið til vinnu og í skóla.
Ómar Smári segir aldrei hægt að
koma algjörlega í veg fyrir innbrot
en húseigendur geti gert sitt til að
gera innbrotsþjófum erfiðara um
vik. Helst ætti fólk þá að horfa til
frágangs við glugga og hurðir. Einn-
ig er mikilvægt að vera vakandi fyrir
sínu nánasta umhverfi. Nágrannar
hafa oft reynst vel í því að upplýsa
innbrot.
Fullir kassar af þýfi
Á skrifstofum fjármunabrota-
deildar lögreglu höfuðborgarsvæðis-
ins er aragrúi kassa sem innihalda
þýfi sem gert hefur verið upptækt að
undanförnu. Mikið af því var í póst-
sendingum sem stöðvaðar voru. Það
sem af er ári hafa á annað hundrað
sendingar verið stöðvaðar.
Verslunarmenn | 4
Tvær mínútur
að hreinsa út
flest verðmæti
Innbrotsþjófar sem kunna sitt fag hafa
ekki áhyggjur af öryggiskerfum
Í HNOTSKURN
»Fjármunabrotadeild lög-reglu höfuðborgarsvæð-
isins er tvískipt. Annars veg-
ar eru aðallega til rannsókn-
ar innbrot og rán og hins
vegar aðallega fjársvika- og
skjalabrot.
»Álag á deildina hefuraukist gríðarlega á und-
anförnum árum, ekki síst
með tilkomu fleiri innflytj-
enda.
„Við teljum að
þetta sé mikil
traustsyfirlýsing
fyrir félagið,“
segir Hreiðar
Már Sigurðsson,
forstjóri Kaup-
þings, um kaup
sjeiks Moham-
meds Bin Khalifa
Al-Thanis á 5%
hlut í bankanum fyrir tæpa 26 millj-
arða króna.
Al-Thani er fjármálaráðherra
Katar og bróðir emírsins af Katar.
Ólafur Ólafsson, kenndur við
Samskip, er kunningi Al-Thanis, og
hafa þeir meðal annars stundað
saman veiðar í Afríku. Þá er aðal-
eiginkona Al-Thanis góð vinkona
Dorrit Moussaieff forsetafrúar. Var
Dorrit í Katar fyrr á árinu, þar sem
hún sat ráðstefnu. » 16
Fjármálaráðherra Katar
veðjar á Kaupþing
Al-Thani
Gott ástand er
á makrílstofn-
inum, sem er
heldur að
stækka, og
norsk-íslenski
síldarstofninn
stendur vel. Er
hrygningarstofn-
inn um 12 millj.
tonna.
Kemur þetta
fram í viðtali við Svein Sveinbjörns-
son fiskifræðing, sem segir, að
mjög hafi gengið á kolmunna-
stofninn en ánægjulegt sé, að fund-
ist hafi fjórum sinnum meira af
loðnuseiðum en í fyrra. » 13
Makríll og síld standa vel
og loðnan lofar líka góðu
Makríllinn hefur
verið mikil búbót.
Skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esj-
unni, sem Páll Bergþórsson veð-
urfræðingur jafnar við hitamæli,
sem sýni árferðið mjög vel, hvarf
með öllu 18. þessa mánaðar.
Er þetta áttunda árið í röð sem
skaflinn hverfur síðsumars og hef-
ur það ekki gerst áður í jafnlangan
og samfelldan tíma. Páll segir, að
nái skaflinn að þrauka samfellt í
áratug, þá sé hitinn í Stykkishólmi
3,5 stig eða minni en hverfi hann
alltaf í áratug, þá sé meðalhitinn
fimm gráður eða meiri. Það sé því
ekki ófyrirsynju, að honum sé líkt
við hitamæli. » 8
Skaflinn í Gunnlaugs-
skarði er horfinn