Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 2
ÞEGAR slegið er í gegn í íslenskum jarðgöngum
mun vera til siðs að brynna bergrisanum með
koníakstári og það gerðu gangastrákarnir hjá
Ístaki í Grjótárgöngum Hraunaveitu með til-
þrifum í gær þegar síðasta haftið í göngunum
rofnaði. Norðmenn innleiddu siðinn hérlendis
fyrir nokkrum áratugum en það fylgir sögunni
að gangagerðarmenn verði að gæta þess að
halda alltaf eftir staupfylli handa sjálfum sér því
bergbúar kunni ekki að meta það að sitja einir
að eðalveigum á slíkum tímamótum heldur deila
veigunum með þeim sem verkin hafa unnið.
Ljósmynd/Sigurður H. Markússon
Bergrisinn fékk að lokum koníakstárið sitt
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HLUTHAFAFUNDUR
Stjórn FL Group hf. (Stoða) boðar hér með til hluthafafundar í
félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 30. september 2008
kl. 8.30 á Hilton Nordica.
Dagskrá:
1. Tillaga um að nafni félagsins verði breytt í Stoðir hf.
Tillagan hefur í för með sér breytingar á 1. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um að veita stjórn félagsins heimild til að ráðstafa eigin hlutum
og gefa út nýtt hlutafé til að fjármagna kaup á hlutum í Baugi Group hf.
3. Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað að gefa út nýja hlutaflokka.
Tillagan felur í sér að bætt verði við B og C flokki þannig að hlutafé félagsins
skiptist í þrjá flokka: A, B og C. Flokkarnir munu njóta mismunandi réttinda í
félaginu, einkum með þeim hætti að hlutum í B og C flokki fylgir ekki
atkvæðisréttur, hlutir í C flokki munu njóta forgangsréttar til arðs en arður á
C hluti verður takmarkaður. Tillagan felur í sér breytingar á II. kafla
samþykkta félagsins nefndur„Um hlutaféð og meðferð hlutafjár“.
4. Tillaga um hækkun heimilda stjórnar til útgáfu nýs hlutafjár og að
heimild til hækkunar hlutafjár taki til allra hlutaflokka í félaginu.
Tillagan felur í sér breytingar á II. kafla samþykkta félagsins nefndur„Um
hlutaféð og meðferð hlutafjár“.
5. Stjórnarkjör
6. Önnur mál.
Reykjavík, 22. september 2008
Stjórn FL Group
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SKÁLAÐ var með koníaksstaupi fyrir merkum áfanga í
sögu Kárahnjúkavirkjunar þegar slegið var í gegn í
Grjótárgöngum í gær. Kristinn Eiríksson, fulltrúi Lands-
virkjunar og verkefnisstjóri, fékk heiðurinn af því að
sprengja síðasta haftið klukkan 17. Um er að ræða hluta
Hraunaveituverkefnis. Með því að Grjótárgöng hafa opn-
ast verður unnt að flytja vatn úr Grjótá og Kelduá yfir í
kerfi Kárahnjúkavirkjunar. Mun þetta vera síðasta
gangasprengingin í Kárahnjúkaverkefninu.
Eftir gjaldþrot Arnarfells sem áður vann að verkefn-
inu ákvað Landsvirkjun að bjóða verkið út á ný og tók Ís-
tak við verkinu þann 28. maí sl. auk þess að ljúka þeim
verkum sem var ólokið. Að sögn Reynis Viðarssonar, yf-
irverkfræðings hjá Ístaki og staðarstjóra í Hraunaveitu,
stefna menn á að ljúka störfum þetta árið í lok október.
330 manns vinna við verkið fyrir Ístak.
„Við skáluðum inni í göngunum með einu koníaks-
staupi á mann og héldum síðan svolítið teiti fyrir ganga-
strákana,“ segir Reynir. „Það er alltaf áfangi þegar haft-
ið er rofið eins og sagt er.“
Starfsmenn Ístaks, framkvæmdaeftirlitsins og fleiri
skvettu koníaki yfir grjóthauginn að sprengingu lokinni
til heiðurs bergbúanum.
Þennan sið fluttu Norðmenn til Íslands fyrir nokkrum
áratugum og íslenskum bergbúum hefur síðan þá verið
brynnt með koníakstári víða um land eftir síðustu
sprengingu í jarðgöngum.
Síðasta haftið sprengt
Teiti haldið fyrir gangastrákana í Grjótárgöngum í gær þegar slegið var í gegn
Ístak er með 330 manns við Kárahnjúka og var sprengingin sú síðasta á svæðinu
Í HNOTSKURN
»Lokið er nú gangagerðvegna Kárahnjúkavirkj-
unar eftir að boraðir hafa ver-
ið og sprengdir 73 km af jarð-
göngum af ýmsu tagi!
Grjótárgöng eru 1.665 metra
löng. Vatn mun renna um þau
úr Grjótárlóni í Kelduárlón,
síðan áfram um Kelduárgöng í
Ufsarlón og áfram niður í
Fljótsdalsstöð.
ÍSLANDSPÓSTUR hefur sagt
upp tímavinnufólki á höfuðborg-
arsvæðinu sem vinnur við að keyra
út póstsendingar
á kvöldin. Um er
að ræða um tíu
manns, aðallega
skólafólk. Að
sögn Ágústu
Hrundar Stein-
arsdóttur, for-
stöðumanns
markaðs- og
kynningardeild-
ar, var ástæða uppsagnanna
rekstrarhagræðing hjá fyrirtæk-
inu. Enginn af umræddum starfs-
mönnum var með uppsagnarfrest.
Fyrirtækið mun grípa til þess
ráðs að nýta betur það starfsfólk
sem fyrir er hjá Íslandspósti til að
keyra út sendingarnar. Ekki
stendur til að láta fastráðna fólkið
bæta á sig vinnu til að vinna störf-
in sem tímavinnufólkið innti af
hendi.
Hjá Póstinum vinna að meðaltali
um 1.300 starfsmenn í um 1.000
stöðugildum. Vinnustaðir fyrirtæk-
isins eru um 88. Er mikil áhersla
lögð á að aðbúnaður starfsmanna
sé eins og best verður á kosið, þ.e.
öryggi á vinnustöðum og ekki síst
félagslegir þættir í starfsumhverfi,
segir á heimasíðu Póstsins.
Uppsagnir
hjá Ís-
landspósti
Um 10 manns í út-
keyrslu sagt upp
MALBIKA þarf þrjá vegkafla til að
unnt sé að keyra hringinn í kringum
landið á malbiki. Tveir vegkaflanna
eru þegar í vinnslu, í Hamarsfirði
sunnan Djúpavogs og hins vegar í
Jökuldal en þar er vegagerð langt
komin. Þriðji vegbúturinn, vegurinn
fyrir botni Berufjarðar, er í mati á
umhverfisáhrifum.
Þegar komið er bundið slitlag á
þessa þrjá kafla má aka hringinn á
bundnu slitlagi, þó ekki á Hringvegi
(1) eins og hann er skilgreindur, því
að hluta þarf að fara Suðurfjarðaveg
(96) að því er segir í frétt í fram-
kvæmdafréttum Vegagerðarinnar.
orsi@mbl.is
Þrír malar-
bútar eftir
NÍUTÍU tonna tankur, sem flytja
átti frá Grindavík til Helguvíkur,
valt af flutningavagni í gærkvöldi.
Að sögn sjónarvotta, sem voru
margir, þykir mikil mildi að ekki
hafi farið verr, enda staðnæmdist
tankurinn, sem er um 27 metrar á
hæð, á gámi við verkstæðishús á
hafnarsvæðinu. Hefði tankurinn
oltið í hina áttina eru líkur á, að
hann hefði hafnað á íbúðarhúsi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurnesjum var ákveð-
ið að girða svæðið af og taka
ákvörðun um hvort reynt verði að
flytja tankinn aftur á morgun.
Flutningabíllinn komst ekki nema
um 200–300 metra áður en tankur-
inn valt af. Að sögn lögreglu verður
rannsakað hvort festingar hafi ver-
ið ótraustar. andri@mbl.is
Ljósmynd/Víkurfréttir
Valt af eftir 200–300 metra ferðalag