Morgunblaðið - 23.09.2008, Page 7

Morgunblaðið - 23.09.2008, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 7 Barbados                                             !"               #    $   #  %    &    '      #       '   $   (      #  # $ )*                 +"           ' '  , - .             #    '                                /   $      0  1 2 3 445  !"     '     .       -       6 444  !"         !!7 7""          /   $      0 8 #   6 9  444      !"     '    .       !!    :    !" """     GEIR H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra munu tala fyrir framboði Íslands til setu í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna í New York þessa vikuna. Þar fer nú fram svonefnd ráð- herravika allsherjarþings SÞ, dag- ana 22. – 27. september, en allsherj- arþingið sjálft verður sett í dag í 63. skipti. Ráðherrarnir munu hitta þjóðar- leiðtoga og aðra ráðamenn sem sækja þingið. Á föstudaginn mun forsætisráðherra flytja aðalræðu fyrir Íslands hönd og funda eftir það með Ban Ki-moon, framkvæmda- stjóra SÞ. Hann mun einnig leiða fund smærri ríkja um nýjar um- hverfisógnir, miðvikudaginn 24. september, og verður þann sama dag heiðursgestur við lokunarathöfn verðbréfamarkaðar NASDAQ. Þá mun forsætisráðherra ávarpa fund um framkvæmd Þúsaldarmarkmiða SÞ fimmtudaginn 25. september og eiga fundi með fulltrúum úr við- skiptalífi og háskólum. Utanríkisráðherra var í gær einn aðalræðumanna á fundi UNIFEM um málefni Afríku. Hún mun sækja fund utanríkisráðherra Norður- landa, samráðsfund utanríkisráð- herra Atlandshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess miðvikudaginn 25. september og leiða sérstakan fund kvenutanríkisráðherra SÞ föstudaginn 26. september. Mikið starf næstu vikur Fram kemur á vef forsætisráðu- neytisins að næstu vikur muni starf- semi Íslands á vettvangi SÞ taka mið af því að tæpur mánuður er nú þar til gengið verður til kosninga í örygg- isráðið Framboð Íslands nýtur stuðnings alla Norðurlanda og munu ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar leggja framboðinu lið á allsherjarþinginu. Mikil fundahöld hjá ráðherrum í New York Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Geir H. Haarde „OKKUR var kunnugt um þetta. Það er gert ráð fyrir að þessi floti sigli í gegn- um íslensku efna- hagslögsöguna á leiðinni á æf- inguna,“ sagði Urður Gunn- arsdóttir, upplýs- ingafulltrúi utan- ríkisráðuneytisins, í viðtali við mbl.is í gær. Floti rússneskra herskipa lagði í gær af stað frá Severomorsk-höfn í Norður-Rússlandi áleiðis til Vene- súela. Þar ætla þau að taka þátt í her- æfingum með Venesúela-mönnum, að því er fram kemur hjá BBC. Samkvæmt hafréttarsáttmálanum mega Rússar fara um efnahags- lögsöguna hér. Ferðirnar eru því að- eins tilkynningskyldar, sé farið inn fyrir fyrir 12 mílna lögsögu Íslands. Urður segir gert ráð fyrir að rúss- nesku skipin verði hér á ferð í byrj- un nóvember. Meðal þeirra er beitiskipið Pétur mikli sem er um 19.000 tonn, kjarn- orkuknúið og búið stýriflaugum. Það er eitt öflugasta skip rússneska flot- ans. Tvær rússneskar sprengjuflug- vélar tóku í liðinni viku þátt í æfing- um með flugher Venesúela. | 15 Rússarnir létu vita af ferðum herskipa Urður Gunnarsdóttir HÓPSLAGSMÁL brutust út á Akureyri í gær meðal skipverja af breskum togara sem kom að landi snemma morguns vegna viðgerða. Skipverjar virðast hafa gripið það tækifæri fegins hendi að hafa fast land undir fótum og fengið sér að- eins neðan í því þótt snemma væri dags, þar til upp úr sauð um hádegi. Að því er lögreglan á Akureyri tjáði Fréttavefnum mbl.is, lenti 8 mönnum saman og var þar af einn fluttur á slysadeild, en reyndist ekki illa meiddur. Voru látnir sofa úr sér Hinir sjö voru fluttir á lögreglu- stöðina til skýrslutöku og voru fimm látnir sofa úr sér og fengu þeir að gista fangaklefana þar til togarinn færi út, en brottför hans var áform- uð í gærkvöldi. Lögreglunni er ekki kunnugt um hvað olli því að upp úr sauð meðal mannanna, en mögulega hafi þeir misst sig aðeins í gleðskapnum vegna þess hve lengi þeir höfðu ver- ið úti áður en til Íslands kom. Held- ur óvenjulegt er að erlendir togarar staldri við á Akureyri og þá ekki síð- ur að hópslagsmál brjótist út fyrir hádegi á mánudegi. Breskir sjómenn í hópslagsmálum Morgunblaðið/Júlíus FISKISTOFA hefur framlengt leyfi til skipstjórnarmanna um að halda afladagbækur í bókarformi. Í reglugerð er kveðið á um að skipstjórum íslenskra fiskiskipa verði gert að halda rafrænar afla- dagbækur en einnig var í reglu- gerðinni ákvæði sem heimilar skip- stjórum skipa að halda afladagbók í bókarformi um tiltekinn tíma. Nú er ljóst að vegna tafa á nauð- synlegum breytingum á rafrænu afladagbókinni og breytingum hvað varðar fjarskipti verður ekki unnt að innleiða þær um borð í minnstu skipin fyrir 1. október n.k. Því hefur landbúnaðar- og sjáv- arútvegsráðuneytið ákveðið, að skipstjórum skipa, sem eru minni en 45 brúttótonn, verði heimilt að halda afladagbók í bókarformi til 1. júlí 2009. Í afladagbækur eru skráðar upp- lýsingar um afla fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða hér við land. sis- i@mbl.is Afli áfram færður til bókar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.