Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 9
FRÉTTIR
Fáskrúðsfjörður. | Félagsheimili eldriborgara hér í bæ var formlega tekið í
notkun á sunnudag. Hlaut það nafnið Glaðheimar. Húsnæðið er í gamla
grunnskólanum, en þar var síðast rekið barnaheimili. Eldriborgarar á Fá-
skrúðsfirði fögnuðu deginum með kaffiboði og bárust heimilinu góðar
gjafir. Eldriborgarar lögðu fram vinnu við endurgerð hússins en Fjarða-
byggð lagði til fjármuni. Séra Gunnlaugur Stefánsson blessaði húsið.
Félagsheimili vígt
Morgunblaðið/ Albert Kemp
FRÉTTASKÝRING
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„VIÐ höfum í okkar fjölskyldu- og
jafnréttisstefnu bent á óheyrilegan
vinnutíma, bæði karla- og kvenna,“
segir Maríanna Traustadóttir, sér-
fræðingur í jafnréttismálum hjá Al-
þýðusambandi Íslands.
Íslendingar vinna langan vinnudag
og það gerir að verkum að vinnudag-
ur barnanna verður jafnframt langur.
Spyrja má hvort sú þróun sé líkleg til
að breytast þegar kreppir að í efna-
hagslífinu.
Undanfarin ár hefur viðverutími
barna í leikskólum lengst mjög en
tæplega 90% barna dveljast sjö
klukkustundir eða lengur í leikskóla á
degi hverjum. Hefur umboðsmaður
barna ritað menntamálaráðherra
bréf vegna þessa. Þar segir að
tryggja „þurfi börnum rétt til að fá
notið bernsku sinnar og samskipta
við foreldra“.
Dagurinn býsna langur
Með bréfinu er umboðsmaður m.a.
að bregðast við ályktun sem Kenn-
arasamband Íslands samþykkti á
skólaþingi í vor. Þar segir að starfs-
dagur barna (skóli, vistun, tóm-
stundir, heimanám) hafi lengst mikið
og óhóflega. Eiríkur Jónsson, for-
maður KÍ, segir þessi mál hafa verið
rædd á þinginu. Ekki sé óalgengt að
fólk sé í vinnu frá því klukkan átta á
morgnana og til klukkan fimm á dag-
inn. „Foreldrar þurfa þá að geta náð í
vinnuna fyrir klukkan átta á morgn-
ana og leggja svo af stað klukkan
fimm til þess að sækja barnið. Þá er
starfsdagur barnsins orðinn býsna
langur,“ segir Eiríkur.
Að sögn Maríönnu Traustadóttur
sýna kannanir að þeir sem vinna
lengstan vinnudag eru ungt fólk, ekki
síst ungir karlar. Langur vinnudagur
ungs fólks skýrist væntanlega m.a. af
því að það er að koma yfir sig þaki og
stofna fjölskyldu. Slíku fylgir mikill
kostnaður og Maríanna bendir á að
ýmislegt sem tengist börnum sé dýrt,
t.d. kostnaður við leikskóla og frí-
stundastarf. Hún segir Íslendinga
vinna miklu lengri vinnudag en hinar
Norðurlandaþjóðirnar. Íslenskar
konur vinni líka kvenna mest.
ASÍ hafi gert þá kröfu í stefnu-
skjali sínu að fæðingarorlof verði
lengt. Þá sé líka mikilvægt að for-
eldraorlof, sem er launalaust og for-
eldrar hafa lítið nýtt, verði gert að
raunverulegum valkosti. Stytta þurfi
vinnudaginn og auka sveigjanleika til
hagsbóta ungu fjölskyldufólki.
Tímafrekt brauðstrit
Morgunblaðið/Valdís Thor
Börn Foreldrar ungra barna vinna margir hverjir langan vinnudag og fá þá vist fyrir börn sín á leikskólum
Mikil vinna ungs fólks með börn hér á landi Ungir karlar
vinna mest Foreldraorlofið verði raunhæfur valkostur
!
"
"
Karin Erna Elmarsdóttir |
22. september 2008
BARA í 100% vinnu
Það vantar hugarfarsbreytingu þegar
kemur að samverustundum foreldra og
barna. Börnin mín eru 8-9 tíma á dag á
leikskóla og skóla og þar er sem betur
fer hugsað mjög vel um þau. En ég er oft
með samviskubit yfir því að geta ekki
verið meira með börnunum mínum. Ég
er mamma þeirra og mér fyndist eðli-
legra ef ég gæti verið meira með þeim
en raunin er. Ég er samt BARA í 100%
vinnu. [...] Í dag þykir það hins vegar
hálfskrítið ef annað foreldri er heima-
vinnandi. Spurningar eins og „hvenær
ætlar þú að fara að vinna?“, „hvað gerir
þú allan daginn?“ osfrv. eru algengar.
Meira: www.karin.blog.is
Ásta | 22. september 2008
Fá störf minni en 100%
Sonur minn er einn af þeim sem eru
með 9 tíma „pláss“ á leikskólanum sín-
um. Umferð, vinna og fleira þvíumlíkt
kemur í veg fyrir að hann geti verið
styttri.
Störf undir 100% eru frekar sjaldgæf
og yfirleitt er slegist um þau. Þar fyrir
utan þurfa allflestir að vera í 100% vinnu
(og jafnvel 100%+) til að geta látið enda
ná saman ...
Meira: www.solan.blog.is
Guðrún Emilía Guðnadóttir |
22. september 2008
Foreldrar hafi val
Það er það sem þarf að koma til að fólk
geti lifað af á mannsæmandi vinnutíma.
Fyrst og fremst þurfa foreldrarnir að
vilja breytinguna, allavega að hafa val.
Meira: www.milla.blog.is
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Mikið úrval af
fallegum peysum
Opið mánud.-föstud. 10-18
Opið laugard. í Bæjarlind 10-16 og í Eddufelli 10-14
Skyrtur
Hvítar og svartar str. 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Laugavegi 63 • S: 551 4422
LÉTTAR
HAUSTYFIRHAFNIR
MEÐ HETTU
Hverfisgötu 6
101 Reykjavík
sími 562 2862
GLÆSILEGT
ÚRVAL
KJÓLA
Laugavegi 44 • Sími 561 4000
www.diza.is
Opið virka daga kl. 10:30-18:00
laugard. kl. 11:00-16:00
Diza
m
bl
10
48
30
6
Nýjar vörur
Engri lík!
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Nýjar vörur frá
- Sænsk hönnun
Ferskleiki og stíll fyrir allar konur
@Fréttirá SMS