Morgunblaðið - 23.09.2008, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Framleiða, framleiða, meira meira. Slappa, slappa af og dingla sér.
VEÐUR
Það var margt mjög fróðlegtsem fram kom í fréttaskýringu
Péturs Blöndal í Morgunblaðinu á
sunnudag, um að grundvallar-
skipulag löggæslu á Íslandi sé til
endurskoðunar.
Ekki síst var athyglisvert að rýnaí ýmsar tölulegar upplýsingar í
fréttaskýringunni, t.d. þá stað-
reynd að þeir sem starfa við lög-
gæslu í landinu eru í heild 680 og
þar af eru stjórnendur 443.
Er það virki-lega nauð-
synlegt að tæp-
lega tveir
stjórnendur séu
fyrir hvern
óbreyttan lög-
reglumann?!
Þá voru ekki síður athyglisverð-ar vangaveltur Stefáns Eiríks-
sonar, lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins, í þá veru
að nýta megi betur starfskrafta
sérsveitar ríkislögreglu-
stjóraembættisins í þágu löggæslu
á höfuðborgarsvæðinu.
Orðrétt sagði Stefán m.a.:„Drjúgur tími fer í þjálfun
þeirra og æfingar, en utan þess
tíma fáum við upplýsingar um að
þeir sinni verkefnum, sem við vit-
um ekki hver eru, og séu því ekki
tiltækir í löggæslu á höfuðborgar-
svæðinu. Það er í ósamræmi við
upplegg dómsmálaráðherra þegar
kynnt var breytt skipulag sérsveit-
arinnar árið 2004. Sérsveitin nýt-
ist að einhverju marki á
höfuðborgarsvæðinu en ég tel
mikla þörf á að nýta betur þessa
öflugu og góðu lögreglumenn.“
Hvaða verkefnum eru sérsveitar-menn að sinna þegar þeir eru
ekki við þjálfun og æfingar? Þarf
ekki að upplýsa það, svo það liggi
fyrir klárt og kvitt að þeir séu
ófærir um að taka að sér löggæslu
á höfuðborgarsvæðinu?
STAKSTEINAR
Stefán Eiríksson
Löggæsla og samnýting
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"#
"! #
" $
%
%
$
%
%
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
% %
%
%
%
%
% %
%
%
%
*$BC
!
"#$ %&
*!
$$B *!
&$'
(
)*
<2
<! <2
<! <2
&(' +
#
, -!.
CD$ -
<7
'
"&
<
'
(
)*
#(
"+
)*
'
",
)*
/0 $ 11
)$ 2
!) +
#
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
GUNNAR Ein-
arsson, bæjar-
stjóri í Garðabæ,
varði 15. septem-
ber sl. doktorsrit-
gerð sína við Uni-
versity of
Reading og fjallar
hún um stjórnun
og forystu í
menntamálum.
Leiðbeinandi við verkefnið var Brian
Fidler, prófessor við sömu stofnun.
Gunnar fæddist 1955 í Hafnarfirði,
varð stúdent frá Flensborgarskóla
1975 og lauk íþróttakennaraprófi frá
Norska íþróttaháskólanum í Ósló
1986. Hann lauk námi í opinberri
stjórnsýslu frá Endurmenntun Há-
skóla Íslands 1998 og M.Ed.-prófi í
stjórnun menntamála frá University
of Reading 2001.
Gunnar tók við starfi bæjarstjóra
Garðabæjar 2005. Hann situr í stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
sat fyrir hönd menntamálaráðuneyt-
is í nefnd um endurskoðun grunn-
skólalaga.
Gunnar er kvæntur Sigríði D.
Gunnarsdóttur náms- og starfsráð-
gjafa og eiga þau þrjú börn.
Doktor í
stjórnun
og forystu
Varði ritgerðina við
Reading-háskóla
Gunnar Einarsson
VEITINGASTAÐURINN Vox á Hilton Hóteli við
Suðurlandsbraut hefur verið tilnefndur fyrir Ís-
lands hönd til heiðursverðlauna í Norrænni mat-
argerðarlist 2008.
Í fréttatilkynningu frá norrænu ráðherranefnd-
inni, sem veitir verðlaunin, segir að góður árangur
hafi náðst við að kynna nýja, norræna matargerð-
arlist með þessum hætti, bæði á Norðurlöndum og
annars staðar í heiminum.
Í ár er þema keppninnar samkeppnishæf, nor-
ræn framleiðsluþróun í matargerðarlist, heilbrigði
og lífsgæði. Þeir sem tilnefndir eru eiga m.a. að
auka norræna samkeppnishæfni með því að
styrkja fjölbreytni í framboði á norrænu hráefni
og matvælum, koma með framlag til uppbygging-
ar á strandsvæðum og landsvæðum með norræn-
an virðisauka í matvælaframleiðslu að markmiði
og vinna að því að íbúar fái hollan mat sem stuðlar
að auknum lífsgæðum.
Auk Vox voru eftirfarandi aðilar tilnefndir til
heiðursverðlaunanna 2008. Danmörk: Læsø
Saltsyder. Finnland: Kasvis Galleria frá Kuopio.
Grænland: Veitingastaðurinn Nipisa í Nuuk. Nor-
egur: Hanne Frosta, eigandi veitingastaðarins
„På Hoyden“ í Bergen. Svíþjóð: Eldrimner.
Álandseyjar: Överängs Hembageri & Kvarn.
Vox tilnefnt til heiðursverðlauna
Markmið norrænnar keppni í matargerðarlist að íbúarnir fái góðan og hollan mat
Morgunblaðið/Arnaldur
SJÁLFBOÐALIÐAR úr röðum
starfsmanna Alcoa Fjarðaáls unnu að
samfélagsverkefnum á Austurlandi
sl. laugardag undir kjörorðinu
„Leggjum hönd á plóg“. Þátttaka
starfsmanna í þessu verkefni er liður
í víðtæku samfélagsstarfi sem starfs-
menn Alcoa vinna að um allan heim.
Samtals tóku yfir 50 starfsmenn
Alcoa Fjarðaáls þátt í fjórum verk-
efnum. Fjölmargir utan fyrirtækisins
tóku einnig áskorun starfsmanna um
að taka þátt í starfinu og samtals
unnu 125 manns að fjölbreyttum
sjálfboðaliðastörfum fyrir samfélagið
á Austurlandi um helgina.
Í Reyðarfirði settu sjálfboðaliðar
upp handrið meðfram Geithúsárgili á
hættulegum kafla gönguleiðarinnar
yfir Grænafell sem liggur frá Reyð-
arfirði yfir í Fagradal og lögðu brú yf-
ir læk á leiðinni.
Á Héraði voru lagðir göngustígar
við sumarbúðir Kirkjumiðstöðvar
Austurlands við Eiðavatn. Þar njóta á
sumri hverju um tvö hundruð börn
dvalar í sumarbúðunum, segir í
fréttatilkynningu frá Alcoa.
Uppbygging Alls unnu 125 sjálfboðaliðar að verkefnunum á laugardaginn.
Sjálfboðaliðar frá Alcoa
í samfélagsverkefnum