Morgunblaðið - 23.09.2008, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
HAUSINN af andarnefjunni sem
drapst og rak á land í Eyjafirði um
helgina verður sendur til Bandaríkj-
anna þar sem vísindamaður hyggst
taka af honum sneiðmynd og freista
þess að komast að því hvaða „tíðni“
dýrið notar þegar það leitar sér mat-
ar. Nokkrar tegundir sjávarspen-
dýra hafa verið rannsakaðar þannig
en aldrei andarnefja – og komið hef-
ur í ljós að engin tegund notar sömu
tíðni.
Þátttakendur í alþjóðlegu sjáv-
arspendýranámskeiði sem haldið
var á Húsavík og lauk um helgina
fengu heldur betur ábót á náms-
efnið. Nemendurnir sáu nefnilega
með berum augum hvar ein and-
arnefjan á Pollinum við Akureyri
hafði flækst í bauju fyrir nokkrum
dögum og reyndu að bjarga henni;
það tókst reyndar ekki en hluti
hópsins var viðstaddur í gærmorgun
þegar skepnan var krufin og tekin
úr henni ýmiss konar sýni.
Hópurinn var á leið til Húsavíkur
frá Selasetrinu á Hvammstanga á
þriðjudag í síðustu viku þegar einn
nemandinn fékk símhringingu frá
föður sínum. Faðirinn var við
Drottningarbrautina á Akureyri og
fannst einkennilegt að ein and-
arnefjan kom sífellt upp úr sjónum á
sama stað.
Hópurinn komst á bát út á Pollinn
á þriðjudagskvöld og reyndi að losa
dýrið en tókst ekki því bæði var
dimmt og hvasst. Hugðist mann-
skapurinn koma aftur morguninn
eftir en þá var dýrið horfið.
Segja má að fyrst dýrið drapst,
sem enginn gleðst í sjálfu sér yfir,
hafi það gerst á hárréttum tíma með
nemendurna á Húsavík í huga.
Skepnan drapst því ekki til einskis,
greyið, eins og einn viðmælandi
Morgunblaðsins sagði í gær.
Talið er víst að það hafi dregið
dýrið til dauða að það festist í bauj-
unni við aðstöðu siglingaklúbbsins
Nökkva síðastliðinn þriðjudag. Hins
vegar er ekki ljóst enn hvort hún
drukknaði vegna þessa eða hvort
hún drapst eftir að hana rak á land.
Úr því fæst væntanlega skorið á
næstu dögum þegar sýni verða skoð-
uð. Einnig er of snemmt að segja til
um það hvenær dýrið drapst.
Baujan var enn föst við andarnefj-
una þar sem hún lá í fjörunni við
Nes; reipi reyrt um kjaft hennar og
flækt í marga hringi um sporðinn.
Hlynur Ármannsson hjá útibúi
Hafrannsóknarstofnunar á Akureyri
tók sýni úr skepnunni í gær ásamt
samstarfsfólki sínu en úr þeim verð-
ur unnið í höfuðstöðvunum í Reykja-
vík og þangað verður dýrið reyndar
sent í heilu, fyrir utan hausinn, til
frekari skoðunar.
Dr. Marianne Rasmussen, for-
stöðumaður Rannsókna- og fræða-
setursins á Húsavík, stjórnaði nám-
skeiðinu ásamt dr. Patrick Miller frá
St. Andrews-háskóla í Skotlandi.
Þau freistuðu þess fyrst að láta taka
sneiðmynd af haus andarnefjunnar
hér heima en hvergi er til nógu stórt
sneiðmyndatæki á sjúkrahúsi hér-
lendis.
Dó ekki alveg til einskis, greyið
DÝRIÐ sem
rak við Nes
um helgina
var kvenkyns,
ekki fullvaxið.
Skepnan
mældist 6,18
metrar að
lengd en kven-
dýrin verða
mest 8 til 9
metrar. Fjór-
tán háskólanemar, frá Bretlandi,
Bandaríkjunum, Þýskalandi og Ind-
landi auk Íslands, aðallega meist-
aranemar, sóttu námskeiðið í sjáv-
arspendýrafræði sem dr. Marianne
Rasmussen, forstöðumaður Rann-
sókna- og fræðasetursins á Húsavík,
og dr. Patrick Miller frá St. And-
rews-háskóla í Skotlandi stýrðu og
lauk um helgina. Hluti námskeiðsins
var helgaður andarnefjunum í Poll-
inum við Akureyri og höfðu nem-
endurnir fylgst mjög náið með þeim,
bæði með berum augum og skoðað
myndir. Hópurinn er þess fullviss að
dýrið sem drapst sé annað þeirra
tveggja sem kom síðar.
Úr seinni
dúettinum
Í Nesi Andarnefjan
skorin í gær.
Segja má að Einar Ásmundsson
í Nesi í Höfðahverfi hafi verið
fyrsti haffræðingur landsins.
Einar, sem lést á ofanverðri 19.
öld, var bóndi og sjálfmennt-
aður í haffræðum. Svo
skemmtilega vill til að rann-
sóknarbátur Hafrannsókn-
arstofnunar á Akureyri heitir
Einar í Nesi og auðvitað ekki til-
viljun enda nefndur í höfuðið á
áðurnefndum bónda og þegar
fréttist af því að andarnefjan
hefði fest sig í bauju á Pollinum
í síðustu viku var farið að svip-
ast um eftir henni – á Einari í
Nesi. Ekki sást skepnan í það
skiptið en það er líklega tilviljun
að andarnefjuna skyldi reka á
land einmitt á jörðinni Nesi í
Höfðahverfi. Eða hvað?
Einar í Nesi
Nemar á alþjóðlegu sjávarspendýranámskeiði fengu óvænta ábót Haus andarnefjunnar sem drapst
rannsakaður í Bandaríkjunum Reynt að komast að því hvaða tíðni andarnefjur nota við matarleit
Djöfull að draga Baujan var kyrfilega föst við skepnuna þegar vísindamenn rannsökuðu hana í gærmorgun í Nesi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hausinn af Marianne Rasmussen, lengst til vinstri, og Hlynur Ármannsson
fylgjast með þegar hníf og sög var beitt til þess að ná hausnum af dýrinu.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær í
níunda skipti farbann yfir fyrrver-
andi framkvæmdastjóra Verðbréfa-
þjónustu sparisjóðanna (sem var og
hét). Maðurinn verður í farbanni til
11. nóvember nk. Einn hæstarétta-
dómara skilaði sératkvæði.
Framkvæmdastjórinn fyrrver-
andi hefur sætt farbanni frá 13. apr-
íl á síðasta ári. Hann er grunaður
um stórfelld efnahagsbrot, sem fel-
ast í útgáfu tilhæfulausrar ábyrgð-
aryfirlýsingar upp á 200 milljónir
bandaríkjadala – rúma 18 milljarða
króna samkvæmt gengi gærdagsins.
Talið er að ábyrgðir vegna athæfis
mannsins geti fallið á þrotabú VSP.
Í dómi Hæstaréttar segir, að í
ljósi þess hvernig málið er vaxið og
hversu mikla hagsmuni það varðar
sé fallist á, að réttlætanlegt sé að
maðurinn sæti enn um sinn far-
banni.
Jón Steinar Gunnlaugsson, einn
hæstaréttardómara, skilaði sérat-
kvæði þar sem fram kom önnur af-
staða. Hann bendir á að maðurinn
hafi þegar sætt farbanni í meira en
sautján mánuði, sem sé lengra en
önnur dæmi eru um í íslenskri rétt-
arframkvæmd. „Jafnframt liggur
fyrir samkvæmt [...] upplýsingum
sóknaraðila að líklegast verði nauð-
synlegt að óska enn framlengingar
farbannsins að þessum tíma liðnum,
án þess að nokkur vissa sé um hvaða
tími sé talinn munu duga til að þjóna
markmiði sóknaraðila“.
Telur Jón Steinar ekki við slíkt
unandi og því ætti að fella farbanns-
úrskurðinn úr gildi.
Farbann framlengt í níunda skipti
Fyrrverandi framkvæmdastjóri VSP minnsta kosti nítján mánuði í farbanni
Jón Steinar Gunnlaugsson vildi að farbannsúrskurðurinn yrði felldur úr gildi
Morgunblaðið/Kristinn
Hæstiréttur Tafir á rannsókn málsins voru að nokkru leyti réttlættar við
munnlegan málflutning fyrir Hæstarétti, en það þykir nokkuð óvenjulegt.
Í HNOTSKURN
»Upp komst um málið íapríl á síðasta ári, og var
framkvæmdastjóranum um-
svifalaust sagt upp störfum.
»Málið er afar umfangs-mikið og teygir anga
sína til margra landa. Enn
er beðið gagna, s.s. frá Ari-
zona, en réttarbeiðnir voru
sendar á síðasta ári.
»Saksóknari efnahags-brota fer utan til Bret-
lands til að yfirheyra tvö
vitni.
LÖGREGLAN á Akranesi stöðvaði í
síðustu viku ökumann bifreiðar sem
lögreglumenn grunuðu um aka und-
ir áhrifum áfengis eða lyfja. Sá
grunur reyndist á rökum reistur en
maðurinn var með sannkallaða
lyfjablöndu í blóðinu: kókaín, am-
fetamín og kannabis. Maðurinn var
handtekinn ásamt farþega bifreið-
arinnar, en hann reyndi að losa sig
við nokkur grömm af amfetamíni og
það nánast fyrir framan lögreglu-
mennina.
Máli félaganna var þó ekki lokið
þar með. Eftir handtöku þeirra
ákvað lögregla að leita í bifreiðinni.
Við leitina fannst – fyrir utan fyrr-
nefnt amfetamín – kókaín, e-töflur,
kannabis auk nokkurs magns af
sterkum, lyfseðilsskyldum lyfjum.
Einnig var í bílnum sveðja.
Til að kóróna allt saman var bif-
reiðin ekki skráð á mennina. Var því
lagt hald á hana þar til náðist í rétta
eigendur. Henni var komið til skila.
Mönnunum var svo sleppt eftir að
þeir höfðu sofið úr sér. andri@mbl.is
Ökumaður
undir áhrifum
lyfjablöndu