Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SÉRSVEIT ríkislögreglustjóra er
sérsveit allrar íslensku lögregl-
unnar og sinnir verkefnum innan
íslenska ríkisins og refsilögsögu
þess, að sögn Jóns F. Bjartmarz
yfirlögregluþjóns hjá ríkislög-
reglustjóra og yfirmanns sérsveit-
arinnar.
Sveitin er sérþjálfuð í að annast
vopnuð lögreglustörf og öryggismál
hvar sem er á landinu. Auk þess að
sinna verkefnum sem talin eru
krefjast vopnaburðar er sveitinni
einnig ætlað að vera til taks þegar
þjálfun hennar og búnaður koma að
notum. Þar má nefna aðstoð við
þjálfun og fræðslu lögreglumanna,
aðstoð við Lögregluskólann og að-
stoð við þjálfun friðargæsluliða Ís-
lensku friðargæslunnar. Innan sér-
sveitarinnar starfa m.a.
sprengjusérfræðingar og kafarar.
Sinnir almennri löggæslu
„Sérsveitin hefur frá upphafi
sinnt almennri löggæslu jafnframt
þjálfun og sérsveitarverkefnum,“
sagði Jón í svari til Morgunblaðsins
við spurningum um sérsveitina.
Dags daglega er sérsveitin stoð-
deild við lögregluembættin auk
þess að sinna sérstöku varðgæslu-
eftirliti og sérsveitarverkefnum
sem koma upp. Verkáætlun sér-
sveitarinnar á sviði almennrar lög-
gæslu er send viðkomandi lög-
regluliðum.
Sérsveitarmenn frá Reykjavík
sinna almennri löggæslu í umdæm-
um lögreglustjóranna á höfuðborg-
arsvæðinu, á Selfossi, Suð-
urnesjum, Akranesi og í
Borgarnesi. Frá starfsstöð á Ak-
ureyri sinna þeir almennri lög-
gæslu í umdæmum lögreglustjór-
anna á Akureyri, Húsavík,
Sauðárkróki og Blönduósi. Frá
starfsstöð á Suðurnesjum sinna
sérsveitarmenn almennri löggæslu í
umdæmi lögreglustjórans þar. Sér-
sveitin hefur þrjá sérbúna bíla til
umráða á höfuðborgarsvæðinu, einn
á Suðurnesjum og einn á Akureyri.
Bílarnir lúta stjórn Fjarskipta-
miðstöðvar ríkislögreglustjóra. Við
dagleg lögreglustörf falla liðsmenn
sérsveitarinnar undir stjórn lög-
reglustjóra þess umdæmis sem þeir
starfa í hverju sinni. Yfirmenn lög-
regluembætta um land allt senda
ríkislögreglustjóra einnig beiðnir
um aðkomu sérsveitarinnar að lög-
gæsluverkefnum, t.d. vegna fjöl-
mennra mannamóta, handtöku
hættulegra afbrotamanna og fanga-
flutninga.
Viðamikil þjálfun
Sérsveitarmenn ganga vaktir all-
an sólarhringinn alla daga ársins.
Allt að tólf sérsveitarmenn eru á
vakt frá starfsstöðinni í Reykjavík
að næturlagi um helgar. Þá sinna
þeir almennri löggæslu, t.d. í
miðbæ Reykjavíkur og í umdæmi
lögreglu höfuðborgarsvæðisins, á
Selfossi, Suðurnesjum, Akranesi og
Borgarnesi og víðar ef svo ber und-
ir. Einnig eru sérsveitarmenn á
vakt á Akureyri og á Suðurnesjum
þegar þeir eru vaktskyldir.
„Það er grundvallaratriði við
starfsemi sérsveita að þær hljóti
fullnægjandi þjálfun, annars er
ekki um sérsveit að ræða,“ sagði
Jón. Þjálfunin felst annars vegar í
einstaklingsþjálfun svo sem þrek-
þjálfun, skotfimi, handtöku og
sjálfsvarnaræfingum o.fl. Hins veg-
ar hópþjálfun þar sem æfðar eru
samhæfðar aðgerðir. Þá æfa ein-
stakir hópar t.d. slysahjálp, köfun
og sprengjueyðingu. Miðað er við
að æfingamagn fari ekki yfir 50%
af skylduvinnu sérsveitarmanna.
Æfingarnar víkja fyrir sérverk-
efnum og sérsveitarverkefnum sem
upp koma. Þótt sérsveitin sé á æf-
ingum er ávallt viðbúnaður til þess
að bregðast strax við ef upp koma
sérsveitarverkefni eða stórir at-
burðir sem kalla á aukinn lög-
reglustyrk.
Þrautþjálfuð sveit
Liðsmenn sérsveitarinnar sinna almennri löggæslu auk verk-
efna sem krefjast sérhæfðrar þjálfunar og búnaðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Tilbúnir Liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra fá mjög stranga þjálfun og ráða yfir sérhæfðum búnaði.
Sérsveit ríkislögreglustjóra og fjarskiptamiðstöðin styðja við öll lögregluembætti landsins
DÆMI eru um það að skólabörn
beri of þungar töskur í skólann dag-
lega. Til þess að vekja athygli á
þessu og hvetja fólk til að huga að
áhrifum rangrar notkunar skóla-
tasknanna stendur Iðjuþjálfafélag
Íslands þessa vikuna fyrir skóla-
töskudögum í samstarfi við Lýð-
heilsustöð. Yfirskrift daganna er
„Létta leiðin er rétta leiðin.“
„Á skólatöskudögum fræða iðju-
þjálfar nemendur, foreldra og sam-
félagið og kenna rétta notkun á
skólatöskum,“ segir Harpa Ýr Er-
lendsdóttir, sem situr í fræðslu- og
kynningarnefnd Iðjuþjálfafélags Ís-
lands. Huga þurfi að því hvernig
stilla eigi skólatöskuna, raða í hana
og bera hana. Æskilegt sé að álag á
stoðkerfi líkamans sé sem minnst,
en Harpa segir að æskilegt sé að
þyngd skólatöskunnar sé aldrei
meiri en 10% líkamsþyngdar barns-
ins.
Harpa segir gott að hafa í huga
að börnin eigi aðeins að hafa með
sér í skólann það sem nauðsynlegt
er að nota þann daginn. „Þá þarf að
kenna börnunum að raða rétt í
töskuna, til dæmis að hafa það sem
þyngst er næst bakinu,“ segir hún.
Ennfremur sé mikilvægt að taskan
passi vel á bakið og notaðar séu
brjóst- og mittisólar.
„Þessa vikuna verður farið í
heimsókn í grunnskóla úti um allt
land,“ segir Harpa. Haldin eru er-
indi fyrir krakkana en þeim er líka
boðið að vigta töskurnar sínar. „Ef
taskan er of þung, mælum við með
því að þau skoði sérstaklega vel
hvað þau eru að bera í töskunni og
hvort eitthvað af því megi skilja eft-
ir heima,“ segir hún. Líka sé mik-
ilvægt að foreldrar hugi að þessum
málum.
„Við höfum reynt að vekja at-
hygli á þessu við upphaf skólaárs-
ins,“ segir Harpa. elva@mbl.is
Dæmi er um að skólabörn beri of þungar töskur í skólann
„Létta
leiðin er
sú rétta“
Morgunblaðið/Kristinn
Vigtun Björg Jónína Gunnarsdóttir, nemi í iðjuþjálfun, vigtar tösku Diljár Kristjánsdóttur í Engjaskóla í gær.
LÖGREGLUMENN á Fjarskipta-
miðstöð ríkislögreglustjóra (FMR)
skrifuðu Birni Bjarnasyni dómsmála-
ráðherra 16. júní s.l. og lýstu sig mót-
fallna því að forræði FMR flyttist frá
ríkislögreglustjóra til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Tilefni bréfsins
var opinber umræða um flutning
FMR á milli embætta og bréf frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu til
ríkislögreglustjóra 5. júní s.l.
Fjarskiptamiðstöðin var stofnuð
og staðsett í Skógarhlíð 14 árið 2000.
Áður höfðu fjarskipti lögreglu og
símsvörun gagnvart Neyðarlínunni
verið hjá hverju embætti um sig. Var
ákveðið að stöðin yrði á forræði rík-
islögreglustjóra, m.a. vegna hlut-
verks þess embættis á landsvísu.
„Fjarskiptamiðstöðin hefur verið í
mikilli samvinnu við aðrar deildir rík-
islögreglustjóra sem veita hver ann-
arri stuðning sem skilar samlegðar-
áhrifum hjá embættinu,“ segir m.a. í
bréfinu. „Ekki hafa verið sett fram
nein rök fyrir tilfærslu FMR til lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki verður séð að nein rekstrarhag-
ræðing sé af breytingunni og miklu
frekar að hún komi niður á samstarfi
sem er við aðrar deildir ríkislögreglu-
stjóra. Starfsmenn FMR hafa m.a.
verið sérþjálfaðir við stuðningsað-
gerðir við almannavarnadeildina og
sérsveitina. Þá fer FMR með forræði
í Samhæfingarstöðinni við daglega
leit og björgun.
Starfsmenn telja að núverandi
skipan sé til fyrirmyndar og stað-
setning FMR hjá ríkislögreglustjóra
sem annast samræmingu á landsvísu
sé rétt fyrirkomulag. Það að einum
lögreglustjóra af 15 sé falið að starf-
rækja og stýra fjarskiptamiðstöð fyr-
ir öll lögreglulið landsins sé óeðlilegt
og líklegt til þess að valda tog-
streitu.“
Starfsmenn
FMR vildu ekki
vistaskipti
Morgunblaðið/Golli
Miðstöð Fjarskiptaþjónusta lög-
reglunnar var sameinuð árið 2000.
#$% %&
%&
'(
%&
#
") *
+
) ,
- !!
./&0
*1
.2&*
%/& &2 #( '
0(%
Í HNOTSKURN
»Sérsveitin er þjálfuð tilvopnaðra lögreglustarfa
og t.d. kölluð til þegar vænta
má vopnaðrar mótspyrnu.
»Sérsveitin er þjálfuð til aðbregðast við gíslatöku.
»Hún annast vopnaða ör-yggisgæslu erlendra þjóð-
höfðingja o.fl.
»Sérsveitin aðstoðar lög-reglulið landsins eftir nátt-
úruhamfarir og sinnir hættu-
legum björgunaraðgerðum.