Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 20
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Afhverju ætti ekki að þurfa að kennaforeldrum uppeldi?“ svarar GyðaHaraldsdóttir, sálfræðingur á Mið-stöð heilsuverndar barna, þegar spurningin er borin upp. „Uppeldi barna er auð- vitað mikilvægt starf sem hefur mikil áhrif til frambúðar og er tiltölulega flókið. Þó virðist vera gert ráð fyrir því að allir kunni sjálfkrafa að ala börnin sín upp.“ Gyða bendir á að bæði börn og foreldrar séu misjöfn. „Þess vegna er aldrei hægt að gefa ná- kvæma formúlu fyrir því hvernig á að haga upp- eldi. Hins vegar eru ákveðnar aðferðir í uppeldi líklegar til að skila góðum árangri og sömuleiðis eru ákveðnar aðferðir gagnslausar eða geta gert illt verra. Eins er hægt að upplýsa foreldra um hvers kyns heimilisaðstæður geta tengst lík- um á því að barnið þrói með sér erfiðleika, t.d. í hegðun eða á tilfinningasviðinu.“ Tímaleysi virðist vera mikill óvinur nútíma- foreldra, ef marka má Gyðu sem er sammála því að foreldrahlutverkið hafi mikið breyst frá því sem áður var. „Þróunin hefur verið mjög hröð. Það sem gagnaðist sem uppeldisráðgjöf fyrir tuttugu árum gagnast ekkert endilega í dag þannig að ráðleggingar afa og ömmu eiga ekki alltaf við. Foreldrar þurfa að kenna börnunum að varast ýmsar nýjar hættur, s.s. þyngri um- ferð á götunum og ný fíkniefni. Eins eru hlutir, sem í sjálfu sér eru ekki hættulegir en þarf að kenna börnum að umgangast, eins og tölvur, internetið og sjónvarp. Það er gífurlega mikil- vægt að foreldrar ákveði hvaða aðgengi þeir vilja að börnin hafi að þessum hlutum og t.a.m. þarf að setja mjög skýrar reglur um hversu miklum tíma ung börn mega eyða í sjónvarp og tölvunotkun.“ Freistandi lausn Oft verður tímaleysið hins vegar til þess að börnin fá meiri aðgang að þessum miðlum en gott reynist. „Ég geri ráð fyrir að enginn ætli sér að láta barn sitja klukkustundunum saman fyrir framan tölvu eða sjónvarp en það getur orðið freistandi lausn „akkúrat núna“ – en sem er notuð of oft.“ Til að uppeldi lánist vel er hins vegar mikil- vægt að foreldrar ákveði frá upphafi hvernig þeir ætla að haga því. „Það þarf ákveðið skipu- lag, markmið og framtíðarsýn, rétt eins og í hverri annarri vinnu,“ segir Gyða. „Fólk þarf að mynda sér skoðun á því fyrirfram hverju það Bestu stundirnar með börnunum eru Morgunblaðið/G.Rúnar Breyttir tímar „Það sem gagnaðist sem uppeldisráðgjöf fyrir tuttugu árum gagnast ekkert endilega í dag,“ segir Gyða Haraldsdóttir. Foreldrastarfið er eitt það mik- ilvægasta í heimi en þó eru litl- ar sem engar hæfniskröfur gerð- ar til þeirra sem taka það að sér. Afraksturinn er enda misjafn. En skyldi kannski þurfa að kenna foreldrum uppeldi? uppeldi 20 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Atli Vigfússon Aðaldalur | „Árið 1975 fór ég á vefn- aðarnámskeið og þannig kviknaði áhuginn á því sem ég er að gera í dag.“ Þetta segir Elín Kjartans- dóttir sem býr í Norðurhlíð í Aðaldal og hefur byggt upp og þróað Tóverið Tumsu í gamla fjósinu á bænum. Tó- verið er heill heimur út af fyrir sig af handverki og ótrúlega margt að skoða, enda sköpunarþörfin mikil. Elín hefur sankað að sér náttúru- legum hráefnum sem hún hefur unn- ið með á marga vegu. Þar má nefna leður, skinn, trjágreinar, grjót, horn og bein. Og líka rusl eins og Elín segir, en gamlar flíkur, tuskur, dag- blöð, glerbrot og jafnvel ryðgaðan gaddavír eru meðal efniviðarins sem hún notar. Reyndar rúmast Tóverið Tumsa ekki alveg í fjósinu og starfsemin hefur því víkkað út. Þannig eru horn og bein höfð í vinnuherbergi inni í íbúðarhúsinu ásamt gleri, steinum o.fl. Elín er félagi í handverkshópnum Kaðlín á Húsavík sem er með eina 14 félagar sem hafa um árabil selt ferðamönnum og héraðsbúum muni í Pakkhúsinu við gamla kaupfélags- planið. Hún segir vel hafa gengið hjá Kaðlín í sumar, en félagar skipta á milli sín afgreiðslunni. Ostaskerar og hárprjónar „Hornin þarf að pússa og sumt vil ég pólera,“ segir Elín sem var önn- um kafin úti í garði að vinna með hreindýrshorn þegar fréttaritara Morgunblaðsins bar að garði. „Það kemur ryk af hornum og beinum þegar þau eru pússuð og þess vegna hef ég komið mér upp þessari aðstöðu hér úti og vinn þenn- an hluta horna- og beinavinnunnar á sumrin.“ Á borðinu hefur hún marga litla kassa með ýmum gerðum horna, auk þess sem hún er með klaufir af hús- dýrum sem hún gerir ýmislegt úr. Þar eru lítil pússningarvél, tæki til að pólera og bandsög sem hún sagar hornin með. Sögin kemur að góðum notum þegar hún gerir tölur, en þær eru töluverður hluti framleiðslunn- ar. Ekki eru þó öll horn póleruð því alltaf þurfa einhverjir munir og skraut að halda náttúrulegu útliti. Hreindýrshornin bjóða upp á marga möguleika og hefur Elín unn- ið úr þeim skrautmuni og sköft, t.d. á ostaskera og hnífasett, auk þess að móta hárprjóna úr hornum og bein- um, nælur og hálsmen. Tölur úr steinum, gluggatjöld og lampa- skermar úr alaskavíði og hrosshári eru síðan enn fleiri dæmi dæmi um skemmtilegt handverk Elínar. Margt er hægt að spinna Í aðalvinnustofunni í gamla fjós- inu fer ullarvinnan fram. Þar er að finna marga poka af ull, vefstól, hol- lenskan rokk og fjölda sýnishorna af úrvinnslu ullarafurða. Í gamla fjós- inu er Elín líka með spuna af ýmsum gerðum - birkilitaða ull, búkhár hrossa, hundahár, kanínufiður, katta-, kýrhala-, manns- og refahár, sem og bæði tog og þel. Elín hefur líka sótt margvísleg handverksnámskeið í gegnum tíðina, m.a. í beinavinnu, glervinnu, spuna, vefnaði og þæfingu. Þær eru líka ófáar sýningarnar sem hún hefur tekið þátt í og hún hefur líka oftar en einu sinni hlotið viðurkenningu fyrir gott handverk. „Ég hef gaman af að ramba á eitt- hvað sem fellur í kramið og ég held að það sé hollt að af hafa gaman af vinnunni,“ segir Elín. Hún er bjart- sýn á framhaldið í handverkinu, enda er hún að undirbúa þátttöku í sýningu sem haldin verður á vegum Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nytjamunir Tölur úr hreindýrshorni eiga vel við á mörgum flíkum. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Handverkskona Elín Kjartansdóttir vinnur mikið með hreindýrshorn. Búsáhöld Hreindýrssköftin sóma sér vel á hnífum og ostaskerum. Tóverið Tumsa er fjölbreytilegt handverkshús Sýning Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur er haldin dagana 31. október til 3. nóv- ember.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.