Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 22

Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Um árabilvar komiðfram við heyrnarlaus börn á Íslandi eins og þau gætu ekki lært. Menntun þeirra var afar rýr, því þau máttu ekki læra á eigin for- sendum. Það hafði ekkert með námshæfileika þeirra að gera, heldur var þeim gert að læra talmál, táknmál var bannað og þannig reynt að þvinga heim hinna heyrandi upp á þau. Þegar börnunum gekk illa að tileinka sér náms- efnið var brugðist við með því að halda áfram að kenna þeim þetta sama námsefni, jafnvel ár eftir ár. Og kennarar í Heyrnleysingjaskólanum sögðu nemendum sínum jafn- vel að þeir væru byrðar á samfélaginu. Þetta þurftu þau að þola, heyrnarlausu börnin, sem sum hver voru send að heim- an aðeins fjögurra ára gömul, af því skólaskylda heyrnar- lausra hófst við þann aldur. Eini skólinn var í Reykjavík, svo í reynd þýddi þetta að lítil börn misstu tengsl við fjöl- skyldur sínar og sum biðu þess áreiðanlega aldrei bæt- ur. Í þokkabót urðu þau sum fyrir ofbeldi á meðan þau dvöldu í skólanum. Fjórir fyrrverandi nem- endur Heyrnleysingjaskólans rita grein í Morgunblaðið í gær þar sem þeir rekja hug- myndir sínar um hvernig bæta megi þeim og samnemendum skaðann. Þeir vilja viðurkenn- ingu á brotunum og afsökunarbeiðni. Þeir vilja tryggja að fagfólk verði feng- ið til að aðstoða þá við að glíma við afleiðingar þessa uppeldis. Þeir fara líka fram á að heyrnarlausum verði tryggð endurmenntun og að þeir sem urðu fyrir ofbeldi fái fébætur. Grein fjórmenninganna, Önnu Jónu Lárusdóttur, Berglindar Stefánsdóttur, Guðmundar Ingasonar og Trausta Jóhannessonar, um þetta erfiða mál er skrifuð af hófstillingu. Þau gera rétt- mæta kröfu um að reynt verði að bæta heyrnarlausum upp allt það sem úrskeiðis fór. Samfélagið brást þeirri skyldu sinni að hlúa að og mennta þessi börn, sem höfðu það eitt sér til sakar unnið að vera heyrnarlaus. Þótt slíkt skilningsleysi sé til allrar hamingju úr sögunni hefur það skilið eftir fjölmennan hóp, sem stendur höllum fæti að ýmsu leyti. Fjórmenningunum og sam- nemendum verður aldrei bættur skaðinn að fullu. En samfélagið á að leggja áherslu á að koma svo til móts við þennan hóp að hann geti gert upp fortíð sína. Samfélagið brást þeirri skyldu sinni að hlúa að og mennta þessi börn} Bætt fyrir bernskuna Allir skulu verajafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferð- is, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætt- ernis og stöðu að öðru leyti,“ segir í 66. grein stjórnar- skrárinnar. Þetta ætti að blasa við í upphafi 21. aldar, en sú er þó alls ekki raunin ef marka má könnun, sem Félagsvísinda- stofnun gerði fyrir Alþýðu- samband Íslands. Rúmur þriðjungur svarenda á aldrin- um 18 til 35 ára kvaðst telja eðlilegt að Íslendingar nytu betri kjara á vinnumarkaði en fólk af erlendum uppruna. Það merkilega við þessa niðurstöðu er að langflestir töldu að ASÍ ætti að leggja áherslu á laun, jafnrétti og mannréttindi. Bara ekki fyrir útlending- ana. Langt er frá því að jafnrétti ríki á íslenskum launamark- aði. Mismunurinn á launum karla og kvenna virðist svo rótgró- inn að ekkert hríni á honum og þó myndi ekki nokk- ur maður voga sér að segja í skoðanakönnun að konur ættu skilið lægri laun en karlar. Hvað veldur því að þeir, sem voru spurðir í könnun- inni, svara með þessum hætti? Líta þeir svo á að útlendingar séu ekki jafnir fyrir lögum? Eiga þeir ekki að njóta mann- réttinda? Eru þeir virkilega þeirrar skoðunar að útlend- ingur eigi skilið að fá lægri laun fyrir að skúra eða stunda heilaskurðlækningar en Ís- lendingur? Fjölmargir útlendingar hafa ákveðið að setjast að á Íslandi. Þeir eru hluti af ís- lensku samfélagi og leggja sitt af mörkum til þess, en því miður eru brögð að því að svindlað sé á þeim á vinnu- markaði. Útlendingar eiga að sitja við sama borð og aðrir íbúar landsins. Eins og segir í kjörorði ASÍ þá er bara einn réttur. Allir íbúar Íslands sitji við sama borð }Einn réttur Þ að var ónotalegt að vakna á mót- elinu Tulip Inn í smábænum Mount Vernon fyrir skemmstu. Þann morgun komst bærinn í fréttirnar á CNN. Maður um þrí- tugt hafði gengið berserksgang með byssu kvöldið áður og myrt sex, þar á meðal aðstoð- arlögreglustjórann á svæðinu. Og það var kaldhæðnislegt að lesa í sömu andrá umfjöll- un dagblaða vestra um þann úrskurð hæsta- réttar Bandaríkjanna að byssueign eigi að vera stjórnarskrárbundinn réttur hvers ein- staklings. En þetta var eini skugginn á dvöl- inni vestra. Brúðkaup vina okkar hjóna, Erin og Daves, fór fram á sjálfstjórnarsvæði indjána við Pull & Be Damned Rd. Þar voru allir sérfræðingar í mál- efnum hjartans. Í bókstaflegri merkingu. Brúðhjónin hafa að lifibrauði að ómskoða hjörtu og gestirnir ýmist skera þau upp eða lækna á annan máta. Og allir sem ég gaf mig á tal við sögðust styðja Barrack Obama í kosn- ingunum. Kannski út af málefnum hjartans. En flestir voru efins um að hann bæri sigur úr býtum. Því viðhorfi átti ég einnig eftir að kynnast í Seattle eftir brúðkaupið. Það er eins og demókratar séu orðnir úrkula vonar um að repúblíkönum verði komið frá. Annars er Seattle með fegurri borgum, hæðótt og um- lukin hafi og vötnum. Mér til ómældrar ánægju komst ég að því að þetta er borg bókaormanna. Bókabúðir eru nánast á öðru hverju götuhorni Seattle og flestar miðað við höfðatölu í Bandaríkjunum. Jafnvel blaðamanni bókaþjóðarinnar í norðri er dulin ráðgáta hvernig allar þessar bókabúðir fá þrifist. Ein ástæðan er kannski sú að þar er vagga kaffimenningar í Bandaríkjunum. Kaffihús á hinu götuhorninu (á móti bókabúðinni), oftast Starbucks sem hóf göngu sína í borginni. Kannski bókhneigðina megi rekja til rigninga í Seattle – ég heyrði raunar að þar seldist mest af varahlutum í rúðuþurrkur! Svo má ef til vill rekja bókhneigðina til öflugs háskóla og þekkingarfyrirtækja á borð við Microsoft og Boeing. Hvað sem því líður, þá leitaði ég uppi róm- aða bókaverslun, Elliott Bay Book Company. Þar var „virðulegur“ lögfræðingur, Vincent Bugliosi, með Gail konu sinni, að kynna bók- ina „The Prosecution of George W. Bush for Murder“. Bugliosi segir innrásina í Írak hafa verið undir fölsku yf- irskini og því eigi að ákæra Bush eftir að forsetatíð hans lýkur fyrir „morðið“ á 4 þúsund bandarískum hermönn- um í Írak og „að minnsta kosti 100 þúsund Írökum“. Fulllangt seilst fyrir minn smekk. En auðvitað er það stjórnarskrárbundinn réttur mannsins að halda þessu fram. Ekki síður en að eiga byssu. En nóg af fjöldamorðum. Þá er sú hlið Bandaríkjanna sem lýst er í rómantísku gamanmyndinni Sleepless in Seattle bjartari. Húsbátur Sams Baldwins, sem leikinn var af Tom Hanks, er við Washington-vatn og ku vera til sölu. Sam hélt til New York – lét hjartað ráða för. Og það mætti huga betur að málefnum hjartans í bandarísku þjóðfélagi. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Af málefnum hjartans Hægt að afgreiða samrunamál hratt FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is G era má ráð fyrir að fram- undan sé hrina samruna fyrirtækja, ekki síst á fjármálamarkaði, vegna rekstrarerfiðleika. For- stjóri Samkeppniseftirlitsins segir að stofnunin sé í stakk búin að taka hratt á slíkum brýnum úrlausnarefnum. Samkeppniseftirlitið er nú með 10 samrunamál til meðferðar og hefur afgreitt um 30 slík mál á árinu. Í fyrra afgreiddi stofnunin 47 mál og 30 mál 2006. Samruni fyrirtækja er gjarnan lið- ur í hagræðingu. Halldór J. Krist- jánsson, formaður Samtaka fjármála- fyrirtækja og bankastjóri Landsbankans, sagði í viðtali við Morgunblaðið á laugardag að í flest- um fjármálakerfum „byrji slíkir hag- ræðingarmöguleikar á því að minni fyrirtæki á markaði sameinist þeim stærri,“ enda mun erfiðara fyrir smærri og sérhæfðari fyrirtæki að þrauka í niðursveiflu. Samruni fjármálafyrirtækja er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins en það er meðal annars með til athugunar Sam- runa Kaupþings og SPRON og kaup Kaupþings á stofnfjárhlut í Sparisjóði Mýrasýslu. Gengur hratt fyrir sig Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, bendir á að eftirlitið geti ógilt samruna eða sett honum ýmis skilyrði. Í sambandi við tímafresti, sem tóku gildi með breytt- um lögum í vor, segir Páll Gunnar að margir samrunar séu afgreiddir inn- an 25 daga frests og samrunamál gangi yfirleitt hratt fyrir sig. Þau séu almennt af þeim toga að mikilvægt sé fyrir fyrirtæki að fá skjóta úrlausn og því taki afgreiðslan oft ekki langan tíma. Samt fari tíminn eftir því hve vel gangi að afla gagna í málum og dæmi séu um það að beita hafi þurft dagsektum til þess að fá fram nauð- synleg gögn í mati á viðkomandi máli. Í því sambandi má nefna að vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á samruna SPRON og Kaupþings voru ákveðnar dagsektir á Byr sparisjóð þar sem upplýsingar bárust ekki þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Að undanförnu hafa borist fréttir um að samruni ýmissa erlendra fyrir- tækja hafi gengið hratt í gegn. Páll Gunnar dregur í efa að búið sé að af- greiða alla viðkomandi samruna og umræðan byggist á ákveðnum mis- skilningi. „Það er alveg ljóst að sam- keppnisyfirvöld hér eru á sama hátt og samkeppnisyfirvöld í nágranna- löndunum vel í stakk búin til þess að taka hratt á málum, þegar brýn úr- lausnarefni eru,“ segir hann. „Það þarf ekki að óttast það að samruna- mál gangi hægar fyrir sig hér en ann- ars staðar, þótt óhjákvæmilega geti brýn samrunamál hægt á vinnslu annarra mikilvægra mála.“ Að sögn Páls Gunnars eru vísbend- ingar um að eðli samruna, sem koma til skoðunar hjá eftirlitinu, sé að breytast. Undanfarin ár hafi uppkaup fyrirtækja verið áberandi en líklegt sé að samrunar, sem tilkomnir eru vegna erfiðleika, verði algengari. Tekur tillit til aðstæðna Fyrir skömmu var greint frá fyrir- hugaðri yfirtöku breska trygginga- fyrirtækisins Lloyds TSB á breska tryggingafyrirtækinu HBOS. Fram kom að ríkisstjórn Gordons Browns myndi greiða fyrir yfirtökunni og sjá til þess að samkeppnislög kæmu ekki í veg fyrir hana. Páll Gunnar segir að hjá Sam- keppniseftirlitinu sé svigrúm til þess að taka tillit til alvarlegra erfiðleika í rekstri hjá þeim sem í hlut eiga. hverju sinni. Þetta sé atriði sem litið sé til við aðstæður eins og nú ríki, byggist viðkomandi samruni á því. Morgunblaðið/Frikki Erfiðleikar Steypustöðin og Mercur sameinuðust á sínum tíma í bygg- ingavörufyrirtækið MEST, sem varð gjaldþrota í sumar. SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hefur samkvæmt samkeppnislögum eftir- lit með samruna fyrirtækja sem falla undir lögin. Skylt er að tilkynna samruna til Samkeppniseftirlitsins þegar sam- eiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er 2 milljarðar króna eða meira á Íslandi og ársvelta að minnsta kosti tveggja þeirra 200 milljónir eða meira. Ef sameiginleg heildarvelta er meiri en milljarður á ári hefur eftirlitið heimild til að krefjast samrunatilkynningar. Samruna þarf að tilkynna „áður en hann kemur til framkvæmda en eftir að samningur um hann er gerður, tilkynnt er opinberlega um yfirtökuboð eða yfirráða í fyrirtæki er aflað.“ Samkeppniseftirlitið hefur 25 virka daga til að ákveða hvort taka þurfi samruna til nánari athugunar og síðan 70 virka daga til að skila niðurstöðu. Heimild er til að fram- lengja frestinn um allt að 20 virka daga. ALLT AÐ 115 DAGA FERLI››

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.