Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 23

Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 23 Gaman Samgönguviku lauk í gær og af því tilefni brugðu börn úr Húsa- og Ártúnsskólum á leik á Austurvelli. G. Rúnar Blog.is Lára Hanna Einarsdóttir | 22. sept. Afmælisbarn mánaðar- ins – að minnsta kosti Eitt besta einstaklings- framtak síðari ára held ég að sé Okursíða dr. Gunna. Íslendingar hafa löngum verið mjög ómeðvitaðir um verð, gert lítinn verð- samanburð og lengst af ekki haft um margt að velja (hafa svosem ekki heldur núna í fákeppninni og sam- ráðinu). En við erum afleitir neytendur og látum ótrúlegustu hluti yfir okkur ganga möglunarlaust, það held ég að flestir geti verið nokkuð sammála um. Hér áður fyrr var eini vettvangurinn til að bera saman bækur sínar, segja dæmisögur og þvíum- líkt, kaffistofur, saumaklúbbar og önnur viðlíka mannamót – líklega einkum þar sem konur komu saman. Meira: larahanna.blog.is Ágúst H Bjarnason | 22. sept. Í dag er jafndægur á hausti. Geta egg stað- ið upp á endann í dag? Í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu segir um vorið að það sé frá jafn- dægri til fardaga en þá taki við sumar til jafn- dægurs á hausti. Sam- kvæmt því lauk sumrinu í gær. Með orðinu jafndægur er átt er við þá stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar, sem í fornu máli hét jafndæg- urshringur, og dagur og nótt eru jafnlöng um alla jörðina. Þetta gerist tvisvar á ári, Meira: agbjarn.blog.is Í MORGUNBLAÐINU sunnudaginn 10. september sl. birtist viðamikil umfjöllun um mismunandi skoðanir innan lögreglunnar um frekari end- urskipulagningu hennar. Sú framtíðarsýn að lög- reglan á Íslandi verði ein stofnun í fjárlögum þýðir ekki að það verði bara einn lög- reglustjóri sem stýri öllu frá Reykjavík. Heppilegt er að auk ríkislögreglustjóra verði sex svæðisbundnir lög- reglustjórar hver með ábyrgð á sínum lands- hluta varðandi þau skilgreindu verkefni sem til hans falla. Jafnframt verði deildir undir stjórn eins eða fleiri lögreglustjóra með lands- vísuverkefni svo sem fjarskiptamiðstöð, al- mannavarnadeild, efnahagsbrotalögreglu, tæknirannsóknarstofa á landsvísu, al- þjóðadeild, greiningardeild, rannsóknardeild sem rannsakar skipulagða glæpastarfsemi á landsvísu, kynferðisbrotadeild, rannsóknir tölvubrota, deild sem rannsakar alvarleg of- beldisbrot og sérsveit með landsumboð. Fjarskiptamiðstöðinni var komið upp í tengslum við Neyðarlínuna og starfar hún nú ásamt almannavarnadeild ríkislögreglustjóra með öðrum samstarfsaðilum í Skógarhlíð og í samvinnu við sérsveit, greiningardeild og al- þjóðadeild embættisins. Samvinna samstarfsaðila í Skógarhlíð hefur tekist mjög vel og er algengt að er- lendir samstarfsaðilar leiti hingað að fyrirmyndum. Ein fjarskiptamiðstöð lögreglu fyrir allt landið var í raun fyrsti vísir að þeirri skipan að lög- reglan á Íslandi yrði eitt lögreglulið. Hún skapaði grundvöll til þess að færri lögreglumenn þyrftu að starfa inni á lögreglustöðvum á landinu og gætu þess í stað sinnt eftirliti á göt- um úti. Áður voru starfræktar fjar- skiptamiðstöðvar hjá einstökum lög- regluliðum. Vegna fámennis íslensku lögreglunnar þurfti einungis eina fjarskiptamiðstöð fyrir landið allt, sérstaklega þar sem fyrirsjáanlegt var að Tetra fjarskipti myndu verða á landsvísu. Þá var það sameig- inleg niðurstaða lögreglustjóranna að ein fjar- skiptamiðstöð skyldi starfrækt, að óeðlilegt væri að hún væri staðsett hjá einum þeirra, heldur væri rétt að ríkislögreglustjóri starf- rækti slíka miðstöð sem ætti að þjóna öllum lögregluliðunum jafnt. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins setur einnig fram þá hugmynd í Morgunblaðinu að sameina ætti embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Lög- reglustjórinn á Suðurnesjum tekur undir þessi sjónarmið og nefnir sem fordæmi að ríkistoll- stjóri hafi verið lagður niður og sameinaður tollstjóranum í Reykjavík. Í því sambandi má benda á nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem beinlínis er gerð tillaga um að embætti ríkistollstjóra verði stofnað á ný til þess að gera meiri miðstýringu mögulega og auka þar með getu til þess að ná betri árangri í baráttunni við innflutning fíkniefna. Í þessu sambandi má spyrja: úr því að hægt væri að sameina emb- ætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, hvað er þá því til fyr- irstöðu að sameina alla lögregluna í eina stofn- un? Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu tel- ur að með því að færa löggæsluverkefni frá rík- islögreglustjóra til hans embættis, skapist hag- ræðingarmöguleikar og tækifæri til að taka til í yfirmannalagi lögreglunnar. Þessi fullyrðing vekur furðu nema hann eigi við að með sér- sveitinni fái hann hlutfallslega fleiri undirmenn heldur en yfirmenn sem lagi samstundis hlut- fall yfirmanna og undirmanna innan hans liðs sem er náttúrulega tær tölfræðisnilld. Í umfjöllun Morgunblaðsins er haft eftir að- stoðarlögreglustjóra í dönsku lögreglunni um nýlegar skipulagsbreytingar þar að í gömlu góðu lögreglunni gættu margir lögreglumenn fyrst og fremst lampanna á skrifborðinu en voru ekki úti á meðal fólksins þar sem glæpa- mennirnir starfa. Miklu skiptir að kjarna- starfsemi lögreglunnar sem er hin almenna löggæsla gleymist ekki við skipulagningu lög- regluliða og að kjarninn í starfi lögreglunnar fer fram úti í samfélaginu en ekki inn á lög- reglustöðvum. Við sameiningu lögregluliða á höfuðborg- arsvæðinu skapaðist kjörið tækifæri til að bæta hér úr, einfalda skipulag, fækka yfirmönnum og fjölga lögreglumönnum á götunni. Ekki verður betur séð en að yfirmannastöðum, inni- störfum og deildum hafi fjölgað við samein- inguna. Þá hefur komið fram gagnrýni frá við- komandi sveitarstjórnum að lögreglumönnum á götunni hafi fækkað og þjónusta verið skert við íbúana. Þá starfa hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, lögreglumenn í ýmsum verkefnum sem skrif- stofufólk gæti innt af hendi. Tilfærsla sér- sveitar og fjarskiptamiðstöðvar til lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu breytir engu þar um. Sérsveitin starfar þegar í dag að stærstum hluta í umdæmi lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu og til að auka viðveru hennar á göt- unni verður það ekki gert nema sérsveitin hætti að sinna löggæslu í öðrum umdæmum. Sú skipan yrði til þess að halla verulega á lög- regluna og samfélögin á landsbyggðinni. Eftir Jón F. Bjartmarz »Ein fjarskiptamiðstöð fyrir lögregluna á landsvísu var í reynd fyrsti vísir að því að sameina alla lögregluna í eina lögreglustofnun. Höfundur er yfirlögregluþjónn. Fjarskiptamiðstöðin og eitt lögreglulið Jón F. Bjartmarz SÚ var tíð að hinn hægrisinnaði kjósandi hafði eingöngu um tvennt að velja þegar kosningar voru haldnar – að kjósa ekki (eða skila auðu) eða kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn var sá eini sem talaði hreint út um takmörkuð ríkisafskipti, lækkun skatta og af- nám hafta og sérhagsmunagæslu. Oft var meira sagt en gert, en yfir lengri tíma litið var þróunin yf- irleitt í frjálsræðisátt þegar sjálf- stæðismenn sátu í ríkisstjórn. Nú er öldin önnur. Samviska flokksins, Heimdallur, er þögnuð. Atkvæðin tínast af flokknum eftir því sem hann leitar lengra inn á heimaslóðir miðju- og vinstrimanna. Viðbrögðin við því eru að leita enn lengra á þær hættulegu slóðir þar sem hugsjónir og stefnufesta víkja fyrir samræðustjórnmálum og vindhanasnúningi. Sjálfstæðisflokkurinn er nær óþekkjanlegur frá því sem áður var. Hann er farinn að lykta af útvötnuðum sósíalisma allra hinna flokkanna. Hvernig stendur á því? Oft heyrist það sagt að stjórn- málin snúist ekki lengur um deilur hægri- og vinstrimanna sem karpa sín á milli um hvort sé nú betra, markaðsbúskapur eða öflugt og allsráðandi ríkisvald. Í staðinn sé kominn einn stór hrærigrautur þar sem allt er opið fyrir umræðu og farsælasta lausn er sú sem sem flestir geti komið sér saman um. Sjálfum hugnast mér ekki bragðið af slíkum graut frekar en bragðið af hafragraut þar sem mygluðum höfrum er blandað saman við ferska. Þótt grauturinn sé bragðbættur með sætindum þá eyðileggja mygluðu hafrarnir alltaf bragðið og ber að fjarlægja úr uppskriftinni. Sjálf- stæðisflokkurinn getur ekki höfðað til hægrimanna um leið og hann gælir við hugsjónir og hugðarefni vinstrimanna. Það er óhreinskilinn málflutningur. Deila hægri- og vinstrimanna – þeirra sem trúa á frjálsan markað og þeirra sem trúa á þanið ríkisvald – er ennþá bráðlifandi þegar yf- irborð umræðunnar hefur verið skafið af. Annaðhvort minnkar rík- isvaldið og hinn frjálsi markaður vex, eða öfugt. Annaðhvort stendur til að lækka skattbyrðina eða ekki. Ætlunin er annaðhvort sú að hlúa að frelsi og einstaklingsframtaki eða herða að hvoru tveggja. Frelsi eða helsi. Þessir tveir pólar takast á, sama hvort stjórnmál eru kölluð umræðustjórnmál eða hreinræktuð pólitísk átök hugmyndafræðikerfa. Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera búinn að missa stöðu sína sem hið eina mögulega athvarf hægrimanna í kosningum. Mun annar flokkur fylla í skarðið, hristir Sjálfstæð- isflokkurinn af sér slikju sósíal- demókrata eða á að láta atkvæði hægrimanna falla dauð niður? Hvað kom fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Eftir Geir Ágústsson » Sjálfstæðisflokk- urinn virðist vera búinn að missa stöðu sína sem hið eina mögu- lega athvarf hægri- manna í kosningum. Hvað verður nú um at- kvæði þeirra? Geir Ágústsson Höfundur situr í stjórn Frjáls- hyggjufélagsins og starfar sem verkfræðingur í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.