Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 25
ÞRÁTT fyrir al-
menna sátt um að karl-
ar og konur eigi að vera
jafn mikils metnir ein-
staklingar hvílir ójafn-
réttið eins og mara á
samfélaginu. Launa-
kannanir sýna að enn
bera konur minna úr
býtum fyrir störf sín en
karlar, konur þrífa
heimilin oftar en karlar og það þrátt
fyrir að atvinnuþátttaka kvenna sé
hvergi meiri en á Íslandi. Þá þekkja
afar fáir íslenskir karlar það að starfa
með börnum, sjúkum eða öldruðum.
Rót vandans liggur oft í fyrirfram
ákveðnum kröfum sem við fullorðna
fólkið gerum til kynjanna, stelpur
„eiga“ að vera penar og prúðar á
meðan strákum „leyfist“ meiri gassa-
gangur og við gerum jafnvel minni
kröfur til þess að þeir hlýði. Stelp-
ustrákar og strákastelpur eru svo
„undantekningin“.
Þetta læra börnin af okkur, því við
fæðingu eru börn fullkomlega for-
dómalaus, frjáls og óháð fyrir fram
gefnum hugmyndum um hefðbunda
hlutverkaskiptingu kynjanna. Á ein-
hverjum tímapunkti læra börn hvað
sé „eðlilegur“ leikur eða hegðun fyrir
sitt kyn. Á sama tíma og við fullorðna
fólkið ætlumst til þess að pabbi og
mamma beri ábyrgð á barnauppeldi
fá flestar stelpur dúkk-
ur og annað dót sem
notað er til að herma
eftir foreldrahlutverk-
inu og heimilisstússi en
færri strákar fá slíkt að
gjöf. Stelpum er svo
síður uppálagt að æfa
sig í bílaakstri því þær
fá enn síður dótabíl að
gjöf en drengir, þó nær
allar konur á Íslandi
séu ökumenn. Jöfn
tækifæri felast ekki síst
í þeim skilaboðum að
valið sé þeirra, al-
gjörlega óháð kyni.
Fyrir rúmum þremur árum leituðu
jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar
og Hafnarfjarðarbær eftir samstarfi
við fjölda aðila til að halda ráðstefnu
um jafnrétti í leik- og grunnskólum.
Skemmst er frá því að segja að
hundruð kennara, foreldrar og fræði-
menn sóttu ráðstefnuna „Kynlegur
skóli“. Áhuginn frá starfsfólki skól-
anna og hjá foreldrum var gríð-
arlegur en nánast allt námsefni
skorti. Ákveðið var að bæta þyrfti
verulega úr námsefnisskortinum,
finna bestu leiðirnar til að þróa að-
ferðir og miðla þeim milli aðila til að
efla jafnréttisfræðslu í leik- og
grunnskólum.
Metnaðarfulla samstarfsverkefnið
„Jafnrétti í leik- og grunnskóla“ sem
stór og kraftmikill hópur á vegum
Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðar,
Akureyrar, Kópavogs, Mosfells-
bæjar, Jafnréttisstofu og félagsmála-
ráðuneytisins stendur að, hefur nú
hafið göngu sína.
Í tengslum við verkefnið hafa tveir
metnaðarfullir skólar í Reykjavík,
Vogaskóli og Múlaborg, ákveðið að
taka þátt í tilraunaverkefninu og von-
andi fylgja fleiri í kjölfarið.
Með verkefninu gefst kennurum,
foreldrum og öðrum áhugasömum
tækifæri til að afla sér þekkingar um
hvernig færa má jafnréttisfræðslu
inn í kennslustofuna til barnanna í
gegnum sérstaka vefsíðu. Vefsíðunni
er einnig ætlað að miðla því sem vel
gengur til annarra og þannig að við
getum stuðlað að því að börnin okkar
verði frjáls og fordómalaus og velji
sér hlutverk og starf eftir áhugasviði,
en ekki kyni sínu. Vonandi mun þetta
samstarf skóla, foreldra, ríkisvalds-
ins, sveitarfélaganna og atvinnulífs-
ins stuðla að uppvexti fordómalausr-
ar kynslóðar sem ekki er föst í viðjum
vanans, kynslóðar sem hefur fjöl-
breytt tækifæri til að láta drauma
sína rætast.
Hægt er að nálgast upplýsingar
um verkefnið á:
www.jafnrettiiskolum.is/
Jafnrétti í leik og grunnskólum
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir
skrifar um jafnrétti
í skólum
» Á einhverjum tíma-
punkti læra börn
hvað sé „eðlilegur“ leik-
ur eða hegðun fyrir sitt
kyn.
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir
Höfundur er fyrrverandi formaður
jafnréttisnefndar Reykjavíkur.
AÐ tillögu bygging-
arfulltrúa Reykjavíkur
hefur borgarráð hinn
17.7. 07 staðfest sam-
þykkt skipulagsráðs
um að dagsektum skuli
beitt til að knýja á um
að „óleyfisþakgluggar“
á húsinu Lambhól,
skuli fjarlægðir, og að látið verði af
„óleyfisbúsetu“ í bílageymslu. Húsið
Lambhóll er í raun tvö sambyggð
hús byggð á mismunandi tímum
(1924 og 1952), Eldri hluti hússins er
tvær hæðir og ris (tveir eignahlutar/
íbúðir) og nýrri hluti, kjallari tvær
hæðir og ris (þrír eignahlutar/
íbúðir). Þegar nýrri hluti hússins var
byggður lokuðust af gluggar á gafli í
tveimur risherbergum eldri hluta
hússins þannig að þau urðu glugga-
laus og var þá meiningin að setja
þakglugga á herbergin í staðinn. Ris-
herbergin tilheyra sitt hvorri íbúð-
inni í eldri hluta hússins. Fyrir fáein-
um árum létu eigendur neðri hæðar
(eldri hluta) setja þakglugga á sitt
herbergi, án athugasemda frá öðrum
eigendum, enda samkomulag um að
gluggi yrði líka settur á herbergi efri
hæðar síðar. Einnig hefur verið sett-
ur þakgluggi og svalir á ósamþykkta
risíbúð nýrri hluta hússins. Ekki er
byggingarleyfi fyrir neinum af þess-
um framkvæmdum.
Eigendur efri hæðar (eldri hluta)
hafa í tvö ár reynt að fá samþykki
fyrir ísetningu glugga á sitt þakher-
bergi og í því samhengi bent bygg-
ingarfulltrúa á aðra „ólöglega“ þak-
glugga og svalir hjá þeim sem
mótmæltu ísetningu þakglugga á ris-
herbergi efri hæðar. Bygging-
arfulltrúi hlyti þá að krefjast þess að
aðrir ólöglegir þakgluggar og svalir
yrðu fjarlægðar af húsinu. Einnig
var byggingarfulltrúa bent á að
samkv. 79. gr. bygging-
arreglugerðar er
skylda að hafa glugga á
íbúðarherbergi sem
umrætt herbergi er
samkv. þinglýstum
sameignarsamningi frá
1958. Þrátt fyrir ótal
bréf tölvupósta, og
samtöl við embætti
byggingarfulltrúa í tvö
ár, þar sem beðið var
um að hann aðhefðist
eitthvað í málinu, ákvað
hann að gera ekkert.
Eigendur efri hæðar vildu ekki
una slíku ójafnræði og ákváðu í mars
sl. að setja glugga á sitt þakherbergi
þrátt fyrir ábendingu byggingarfull-
trúa um að slíkt væri óleyfilegt.
Þá létu viðbrögð byggingarfull-
trúa ekki á sér standa. Hann keyrir í
gegnum skipulags- og borgarráð að
dagsektum skuli beitt til að knýja á
um að þeir skuli fjarlægðir. Það væri
svo sem í lagi ef það sama myndi þá
gilda um aðra óleyfisþakglugga á
húsinu. En nei, bara gluggar efri
hæðar skulu fjarlægðir en aðrir fá að
standa. Eigendur efri hæðar gapa af
undrun og spyrja hvort ekki eigi að
gilda jafnræði. Svar lögfr.deildar
Reykjavíkurborgar er: „Borgarinn
getur ekki vænst þess að öðlast rétt
á grundvelli óréttar annars með vís-
an til jafnræðis.“ Þannig að bygging-
arfulltrúi getur valið úr hverjir eru
beittir dagsektum og hverjir ekki
fyrir sama brot í sama húsi. Þetta er
merkileg stjórnsýsla
Byggingarfulltrúi ákveður einnig
með fulltingi skipulags- og borg-
arráðs að dagsektum skuli beitt
vegna „ólöglegrar notkunar á bíl-
skúr“ þ.e. bílskúrinn „hefur verið
tekinn til íbúðar“ hvernig svo sem
það hefur verið sannreynt. Engin
kvörtun hefur komið fram, nema þá
beint til byggingarfulltrúa, engin
húsfélagssamþykkt hefur mótmælt
því hvernig bílskúrinn er nýttur og
einnig hefur kærunefnd fjöleigna-
húsamála komist að þeirri nið-
urstöðu í máli 62/1999 að samkv. 75.
gr. laga um fjöleignahús, sé nýting
bílskúrs til útleigu og íbúðar ekki
andstæð lögum, enda sé ekki sér-
stakt ónæði af því hvernig bílskúrinn
sé nýttur umfram það sem „eðlilegt
má teljast“. En nei, bygging-
arfulltrúi veit betur og vísar í 11. gr.
byggingareglugerðar þar sem segir:
„Óheimilt er að grafa grunn, reisa
hús, rífa hús, breyta því að innan eða
utan, burðarkerfi þess, formi, svip-
móti, eða notkun þess eða gera önn-
ur þau mannvirki sem falla undir
ákvæði reglugerðar þessar nema að
fengnu leyfi sveitarstjórnar.“
Ja langt skal seilst. Hvað ætli það
séu margir bílskúrar í Rvk. „sem
hafa verið teknir til íbúðar?“ eða þá
íbúðir sem breytt hefur verið að inn-
an án leyfis sveitarstjórnar. Það eru
líklega mjög margir samskonar lög-
brjótar til í Reykjavík, en bygging-
arfulltrúi velur þá sem teknir eru
fyrir enda getur „Borgarinn ekki
vænst þess að öðlast rétt á grund-
velli óréttar annars með vísan til
jafnræðis.“
Það er erfitt að lýsa því hvernig
eigendur efri hæðar upplifa þessa
framgöngu byggingarfulltrúa. Er
þetta virkilega hægt? Hvernig virkar
þessi jafnræðisregla stjórnarskrár-
innar eiginlega. Geta embættismenn
með fulltingi sveitarstjórna að vísu,
ákveðið að ákveðnir aðilar komist
upp með „lögbrot“ sem bent hefur
verið á, en aðrir ekki.
Skrítin stjórnsýsla og
jafnræðissýn byggingar-
fulltrúa Reykjavíkur
Kristján Krist-
jánsson segir frá
samskiptum sínum
við stjórnsýslu
Reykjavíkurborgar
» Þannig að bygging-
arfulltrúi getur valið
úr hverjir eru beittir
dagsektum og hverjir
ekki fyrir sama brot í
sama húsi. Þetta er
merkileg stjórnsýsla.
Kristján Kristjánsson
Höfundur er sjálfstætt starfandi og
eigandi íbúðar í Lambhól.
VIÐ lifum nú sér-
kennilega tíma á fjár-
málamarkaði. Það virð-
ist orðið þykja óeðlilegt
að leyfa verði að lækka
og að fyrirtæki fari í
gjaldþrot. Skortsala er
tímabundið bönnuð í
BNA og Evrópu. Í
hverju felst skynsemi
nýlegra inngripa rík-
isvaldsins? Skortsalar
eru ekki vandamál
fjármálakreppunnar.
Fyrir utan mikilvægi
skortsölu í áhættu-
stýringu þá er skort-
sala m.a. aðferð til að
leyfa þeim sem hafa þá
skoðun að verð sé of
hátt að hagnast á
skoðun/greiningu
sinni. Á sama hátt eru
kaup aðferð til að leyfa
þeim sem hafa þá skoðun að verð sé
of lágt til að hagnast á skoðun/
greiningu sinni. Þegar þessir tveir
kraftar takast á myndast jafnvægi og
verð myndast á markaði. Kerfið
byggist þannig á því að aðilar á mark-
aði finni það út í viðskiptum sín á milli
hvað sé eðlilegt verð. Ef það er skoð-
un einhvers að verð sé orðið of lágt
hlýtur sá hinn sami að meta það sem
tækifæri að kaupa sem aftur dregur
úr eða snýr við lækkun og þannig
myndast markaðsverð að lokum.
Skortsala er þannig hluti af eðlilegri
verðmyndum og eykur skilvirkni
markaða á sama hátt og kaup hafa
áhrif til hækkunar.
Ef það er rétt að nú sé eðlilegt að
banna skortsölu af því að verð sé orð-
ið of lágt – þá væri jafneðlilegt að
banna kaup þegar verð er orðið of
hátt. Hver á svo að
dæma hvort verð sé of
lágt eða of hátt – ríkið?
Ef þetta bann ætti ein-
hvern rétt á sér ætti það
að gilda í báðar áttir. Ef
við gerum slíkt erum við
búin að búa til fastgengi
– fastgengi á verðbréf –
vill það einhver?! Slíkt
er náttúrlega fjarstæða.
Okkar kerfi byggist á
því að „rétt verð“ er það
verð sem aðilar á mark-
aði koma sér saman um
en ekki ákvarðað af rík-
inu. Bann við skortsölu
er hugsanavilla. Ein aug-
ljós skammtímaafleiðing
tímabundins banns er að
þá mun verð jú hækka.
Ástæða hækkunar er
ekki betri staða fyr-
irtækja heldur að verk-
færi þeirra sem telja
verð enn of hátt er bann-
að. Ennfremur neyðast
slíkir aðilar í einhverjum
tilvikum til að loka sínum
stöðum sem aftur veldur hækkun án
innistæðu. Hvað gerist svo þegar
tímabundnu banni er aflétt?
Annar útbreiddur misskilningur er
að það sé sérstök ástæða til að banna
nakta (e. naked) skortstöðu. Nakin
skortstaða er skortsala sem er ekki
gerð í þeim tilgangi að verja eign.
Dettur einhverjum í hug að banna
nakin kaup? Slíkt er álíka gáfulegt.
Nakin kaup eru kaup á verðbréfum
án þess að verið sé að verja skuld. Ef
þessi rök ættu að gilda ættu þau líka
að gilda fyrir kaup. Þá væri bannað
að kaupa verðbréf ef yfirvöldum
þætti verðið of hátt – nema viðkom-
andi skuldaði bréfin áður en hann
keypti þau! Slíkt gengur augljóslega
ekki upp.
Bann við skort-
sölu – skortur
á skynsemi
Jón Helgi Egilsson
segir bann við
skortsölu hugs-
anavillu
Jón Helgi Egilsson
»Hækkun í
kjölfar
banns er ekki
vegna betri
stöðu fyrirtækja
heldur að verk-
færi þeirra sem
telja verð enn of
hátt er bannað.
Höfundur kennir fjármálaverkfræði.
KRISTNI Íslend-
ingur, þú sem skírður
hefur verið í nafni Guðs
föður, sonar og hins
heilaga anda. Veistu að
þegar þú ómálga og
ósjálfbjarga klæddur
hvítum skrúða varst
borinn af umhyggju og
kærleika af þeim sem
elska þig mest upp að
brunni réttlætisins til
að laugast í vatni og
anda, þá varstu tengd-
ur við lífið.
Sambandið er þráð-
laust, uppsprettan eilíf,
þú ert sítengdur.
Gjaldið hefur verið greitt í eitt
skipti fyrir öll, af honum, sem er upp-
sprettan og viðheldur straumnum, af
honum, sem er lífið. Hann hefur
krýnt þig náð og miskunn og gert þig
að erfingja eilífðarinnar.
Horfðu í augun á Jesú
Og þegar þér finnst þú lítils virði,
líður illa, ert umkomulaus. Horfðu þá
í augun á frelsaranum þínum, Jesú
Kristi. Honum sem hefur tekið þig
sér í fang og heitið þér eilífri sam-
fylgd. Eftir því sem þú horfir lengur
og dýpra í augun á honum munt þú
finna að þú ert elskaður af ómót-
stæðilegri ást. Þú munt
finna hve óendanlega
dýrmætur þú ert. Elsk-
aður út af lífinu. Elsk-
aður af sjálfu lífinu. Af
honum sem er upp-
spretta lífsins, upprisan
og lífið sjálft. Honum
sem sagði: Ég lifi og þú
munt lifa!
Hann vakir yfir þér
Jesús er Guð þinn, því
aldrei skalt gleyma.
Hann gengur við hlið
þér og leiða þig vill. Þú
eilífa lífið átt honum að
þakka. Hann sigraði
dauðann og lífið þér gaf.
Guðs son á himni nú
vakir þér yfir. Hann
gleymir ei bæn þinni
hver sem hún er. Líf
mitt sé falið þér, eilífi faðir. Faðm-
inum þínum ég hvíla vil í.
Ekki nóg að vita af veginum
Látum ekki fara fyrir okkur eins
og manninum sem vissi um veginn til
himins í gegnum frelsarans slóð.
Hann kunni bæði sálma og bænir,
sögur og ljóð. Samt fór hann aldrei
veginn hvernig sem á því stóð.
Gleymum ekki sjálfum okkur.
Gleymum því ekki hver við erum og
hvert við viljum stefna.
Gleymdu
ekki hver þú ert
Ef þér líður illa
horfðu þá í augun á
frelsara þínum seg-
ir Sigurbjörn Þor-
kelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Sambandið
er þráðlaust,
uppsprettan ei-
líf, þú ert sí-
tengdur.
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur og framkvæmdastjóri
Laugarneskirkju.