Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 29 ar, Slóveníu, Búlgaríu, Ródos og síðast í haust til Svartaskógar. Við sem erum sérstakar vinkonur frá 1940 höfum eftir verklok yfir vetrarmánuðina hist hver hjá ann- arri vikulega að morgni til og rætt landsins gagn og nauðsynjar. En nú er Kristín horfin og skarð fyrir skildi. Kristín fékk krabba- mein fyrir rúmum tveimur árum og þrátt fyrir aðgerð og meðferð dugði það ekki. Það er mikil gæfa að eiga góð skólasystkin og maka þeirra að vinum alla tíð og góðar minningar úr menntaskóla. Kristín skólasystir okkar var ein af þeim. Auk góðra gáfna var hún heilsteyptur og sterk- ur persónuleiki, hjálpsöm, heiðar- leg, hógvær og skemmtileg á sam- fundum okkar. Í öllum störfum sínum var hún til fyrirmyndar og eftirbreytni og naut verðskuldaðs trausts og virðingar sinna sam- ferðamanna. Við hjónin biðjum dætrum, tengdasyni og dóttursyni Kristínar blessunar Guðs í öllu ævinlega og huggunar í sorginni. Blessuð sé minning mikillar mannkostakonu. Guðrún Jónsdóttir. Mig langar með örfáum orðum að minnast góðrar konu sem nú er fall- in frá. Það er hún Kristín læknir eins og ég og mín fjölskylda oftast kölluðum hana. Ég kynntist Krist- ínu fyrir æði löngu þegar við Ester eldri dóttir hennar gengum saman í barnaskóla og ég varð tíður gestur á heimili hennar. Húsið þeirra stóð of- an við Kársnesbrautina á mikilli hæð og gnæfði yfir nánasta um- hverfi, einstakt hús umvafið gróðri og anda framandi menningar og lista. Þar voru oft erlendir gestir í heimsókn og mikið töluð útlend tungumál – sem þótti á þeim tíma svolítið spennandi og sérstakt. Kristín og þáverandi eiginmaður hennar Elías Davíðsson áttu fallegt heimili og myndarlegar dætur og áhersla var lögð á menntun, háttvísi og víðsýni í metnaðarfullu uppeldi og starfi. Þegar barnaskóla lauk fórum við báðar, Ester og ég, í Kvennaskólann í Reykjavík til frek- ara náms og á þeim tíma nánast flutti ég inn á heimili þeirra yfir vetrarmánuðina. Kristín opnaði heimili sitt fyrir mér og veitti mér bæði húsaskjól, mat og kennslu eins og væri ég ein af dætrum hennar. Hef ég oft síðan hugsað um það hversu einstök ljúfmennska það var og alls ekki sjálfsögð, þar sem hún hafði í mörg horn að líta sem úti- vinnandi móðir tveggja dætra, með ábyrgðarfullt starf og heimili þar sem oft var gestkvæmt, ásamt öðru því sem upp kemur og þarf að takast á við í mannlegu lífi. Ég man aldrei eftir að Kristín hafi nokkurn tíma verið mér annað en sem hin besta móðir, hún las yfir verkefnin mín, hlýddi mér yfir fyrir próf, hvatti mig til dáða og lagði áherslu á að vera heiðarleg, sönn og samvisku- söm í því sem ég var að vinna að hverju sinni. Hún var metnaðarfull fyrir mína hönd og tókst að smita mig af þeim metnaði þannig að ég fékk áhuga á að leggja mig fram við að ná árangri. Þetta er betra vega- nesti en flestir fá og fæ ég það seint fullþakkað. Hún barst ekki mikið á hún Krist- ín, ók ekki um á stórum bíl eða sló um sig en ég bar alla tíð lotning- arblandna virðingu fyrir henni enda var hún afskaplega vitur, vel gerð og góð manneskja. Hún sinnti starfi sínu af ábyrgð og samviskusemi og var stoð og stytta fjölskyldunnar meðan heilsan leyfði. Svo liðu árin og eins og gengur skildi leiðir okkar Esterar og þar með duttu einnig niður tengslin við fjölskylduna hennar um margra ára skeið. Úr fjarlægð fylgdist ég þó með þeim; skilnaði, nýjum fjölskylduböndum, flutningum, barneignum og nú síð- ast veikindum. Alltaf stóð Kristín sig eins og hetja, tók hlutunum eins og þeir komu og var söm við sig. Síð- sumars heimsótti ég þær mæðgur í tvígang. Það var yndislegt að hitta Kristínu aftur og finna að hún var enn eins og ég mundi hana alltaf, þrátt fyrir hennar alvarlegu veik- indi. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að þakka þessari merki- legu konu samfylgdina hér á jörðu. Trú mín er að dauðinn sé aðeins upphafið á öðru lífi og vissa mín er sú að við hittumst aftur á öðrum stað og öðrum tíma. Þangað til, farðu í friði og takk fyrir mig. Sigríður Ævarsdóttir. Árið 1953 luku 14 læknanemar námi í læknadeild Háskóla Íslands. Í þeim hópi var ein stúlka, Kristín Elísabet Jónsdóttir, stúdent með ágætiseinkunn úr máldeild Mennta- skólans í Reykjavík í júní 1946, fyr- irmyndar læknanemi, sem hlaut hæstu einkunnina á kandídatspróf- inu það árið. Fáum mánuðum síðar lá leið Kristínar til Bandaríkjanna, þar sem hún vann kandídatsárið í New York og stundaði þar að því loknu sérnám í lyflækningum, fyrst íslenskra kvenna. Að námi loknu hóf Kristín störf á Borgarspítalanum í Reykjavík, sem þá var til húsa í Heilsuverndarstöðinni við Baróns- stíg. Fáar stúlkur voru við nám í lækn- isfræði árið 1953 og bárum við mikla virðingu fyrir þessari greindu og harðduglegu stúlku, sem var að út- skrifast úr læknadeildinni. Ekki minnkaði sú virðing, þegar við kynntumst persónu Kristínar og störfum; læknis-, vísinda- og kennslustörfum, sem við fylgdumst með alla hennar starfsævi. Kristín var sú hjálpfúsa, trausta, ráðagóða og vandvirka manneskja, sem alltaf var hægt að leita til, þegar vanda bar að höndum, hver svo sem sá vandi var. Kristín tranaði sér ekki fram. Hún var hlédræg að eðlisfari og lét lítið á sér bera, en því vand- aðri var öll hennar vinna. Komið er að leiðarlokum. Jarð- nesku lífi mikilhæfrar og góðrar konu er lokið. Við starfssystur hennar kveðjum Kristínu með söknuði. Þökkum ára- langa trausta vináttu og fjölmargar ánægjustundir á langri leið. Okkar innilegustu samúðarkveðjur send- um við dætrum hennar, tengdasyni, barnabarni og öðrum nánum ætt- ingjum. Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Bergþóra Sigurðardóttir, Halla Þorbjörnsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Margrét Guðnadóttir og Þórey J. Sigurjónsdóttir. Ég kynntist Kristínu 1999, sama ár og móðir mín í Þýskalandi dó, og þrátt fyrir meira en 30 ára aldurs- mun urðum við vinkonur. Það er svo margt gott sem ég á Kristínu að þakka: hún gaf mér ráð og húsaskjól á meðan ég var að fóta mig í starfi mínu hér á landi. Hún talaði við mig á þýsku, móðurmálinu mínu þegar ég var „mállaus“ en kenndi mér ís- lensku um leið. Hún hjálpaði mér að rata í íslenskum menningarheimi sem hún horfði á með húmor og úr fjarlægð þeirrar manneskju sem hefur búið lengi erlendis. Hún að- stoðaði mig við að kaupa mína fyrstu íbúð og jafnvel við að stand- setja hana. Hún kenndi mér að fara í berjamó og búa til krækiberja- hlaup. Hún var svaramaður minn í brúðkaupi mínu o.m.fl. Ég veit að ég var alls ekki sú eina sem fékk að njóta hennar örlætis og blíðu. Það var mikill gestagangur hjá Kristínu, maður var alltaf velkominn í spjall og tesopa með kexi og osti. Oft voru fleiri en einn í heimsókn og ég fékk tækifæri til að kynnast fjölskyldu og vinahópi Kristínar. Það var ekki aldur, menntun, fé- lagsleg staða eða tungumálið sem skipti hana máli heldur það hver maður var. Vinahópurinn hennar var litríkur og endurspeglaði kannski meira en margt annað fjöl- breyttan persónuleika Kristínar: Hún var Vestfirðingur en jafnframt heimsborgari og talaði meira en sex tungumál reiprennandi. Hún var snjall vísindamaður og læknir en látlaus, afar tilfinninganæm og gat lesið í fólk. Hún var með fínan húm- or, hlý, umburðarlynd og örlát en staðföst í sinni dómgreind. Hún var forvitin og opin fyrir öllu sem gerð- ist í heiminum og hjá sínu fólki til æviloka og lét ekki neinn biturleika ná tökum á sér þó að margt hafi gengið á í hennar lífi. Kristín var mér fyrirmynd á mörgum sviðum, ekki síst hvernig hún tókst á við veikindi sín og lok ævinnar. Ég mun sakna vinkonunn- ar minnar – og ég þakka innilega fyrir þennan góðan tíma sem við átt- um saman. Birgitta María Braun. Jæja, Kristín Jónsdóttir er dáin. Ég sem var farinn að vona að dauðs- föllum í minni foreldrakynslóð væri farið að linna. Kristín var vinkona móður minn- ar, Amalíu Líndal, í Kópavogi. Tók þá móðir mín viðtal við hana fyrir menningartímarit sitt, Sextíu og fimm gráður; árið 1968. Snýst það um frama kvenna í atvinnulífinu og svaraði Kristín þá fyrir hönd lækna. Frá þeim árum voru hún; og þáver- andi maður hennar, Elías Davíðs- son, góðkunningjar fjölskyldunnar. Ef litið er í Læknatalið sést að Kristín hefur verið í forystuliði kvenna á sinni tíð: Hún varð af- burðanemandi, lauk ýmsu sérfræði- námi, var í ýmsum löndum við nám og störf, starfaði í margvíslegum læknastörfum á Íslandi; þar á meðal við kennslu og rannsóknir, og varð höfundur fjölda vísindagreina. Hún sat í ýmsum stjórnum og nefndum er tengdust heilbrigðismálum. Hún eignaðist og fjölbreyttan eiginmann og litrík börn. Nýlega sagði hún þó í viðtali við Morgunblaðið, að hún hefði verið af fátæku sveitafólki komin, og hefði því verið heppin að geta farið í menntaskóla yfirleitt. Kristín annaðist bekkjarfélaga sinn úr MR; Harald Jóhannsson; hagfræðing og rithöfund; er hann lá banaleguna fyrir nokkrum árum. Sagði ég henni síðar, að það sæti í mér, að ég hefði ekki getað fundið réttu orðin til að skrifa eftir hann þá. En hann hafði verið góður kunn- ingi minn í kaffihúsinu í Þjóðarbók- hlöðunni og víðar, síðustu árin sem hann lifði. Síðustu árin var Kristín orðin tryggur félagi í Vináttufélagi Ís- lands og Kanada, þar sem ég hef verið í formennsku. Hún kom mér fyrir sjónir sem fremur alvörugefin, jarðbundin, skyldurækin, vinnusöm og hlýleg manneskja, og var þó stutt í glað- legt bros og einlæg en greindarleg tilsvör um tilveruna. Kannski var hún einnig ögn hlédræg og feimin. Þannig held ég að mamma hafi lýst henni líka. Árið 1992 gaf ég út ljóðabókina Trómet og fíól. Er hún að uppistöðu til harmljóð eftir móður mína, sem dó 1989. Færði ég þá Kristínu og dóttur hennar Ester eintök. (Og raunar einnig síðar Elíasi Davíðs- syni). Sagðist Kristín þá vona að með þessari minningabók væri ég ekki hættur að yrkja! Ég vil nú kveðja hana með ljóði úr elleftu ljóðabók minni, Kvæðaljóðum og sögum, sem kom út á þessu ári. Er þar meðal annars að finna rímaða útgáfu af einu af áðurnefndum harmljóðum vegna mömmu. En það nefnist Haustþankar að vori II: Núna er hún nár í jörð, næ ég trauðla sáttar gjörð við þann sem það gerði; þó að hefndir verði. Tryggvi V. Líndal. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR VALDIMARSSON frá Fjalli, Efri-Brúnavöllum, Skeiðum, lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. september. Útför hans fer fram frá Skálholtskirkju föstudaginn 26. september kl. 14.00. Áslaug Björt Guðmundardóttir, Guðfinna Auður Guðmundsdóttir, Jón Finnur Hansson, Auður Sif Sigurðardóttir, Steinn Hermann Sigurðarson, Fróði Guðmundur Jónsson, Erla Mekkín Jónsdóttir, Bára Björt Jónsdóttir, Tinna Kjartansdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HJÖRDÍS ÓLADÓTTIR, áður til heimilis að Engimýri 12, Akureyri, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð, Akureyri, laugardaginn 20. september. Útförin verður auglýst síðar. Óli G. Jóhannsson, Lilja Sigurðardóttir, Edda Jóhannsdóttir, Þórhallur Bjarnason, Örn Jóhannsson, Þórunn Haraldsdóttir, Emilía Jóhannsdóttir, Eiður Guðmundsson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Bróðir okkar, ÞORSTEINN JÓNSSON, Denni, vélstjóri frá Ísafirði, Arnarhrauni 18, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum föstudaginn 19. september. Systkini hins látna. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, KRISTJANA ÞORSTEINSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á heimili sínu föstudaginn 19. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum. Gerður Ólafsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Bjarni Bjarnason, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra dóttir, KRISTÍN SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, föstudaginn 19. september. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Hanne Hintze, Halldór Sigurðsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, RUTH JÓNSDÓTTIR HELLA, Bergen, Noregi, er látin. Útför hennar fór fram frá Nygard kirkju í Laxevog föstudaginn 12. september. Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir hönd fjölskyldu okkar og annarra vandamanna, Anna og Svava.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.